Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 VÖLVAN
skasti vegna frásagna Ásgeirs sem gefur
játningar sínar út á bók.
STASI AFTUR Í FRÉTTUM
Leyniþjónusta Austur-Þýskalands, Stasi,
kemst enn og aftur í fréttir á Íslandi þeg-
ar Íslendingur sem var við nám í Austur-
Þýskalandi játar þátttöku sína í njósnum
fyrir Stasi og nefnir félaga sína í leiðinni.
Þessi maður er lítt þekktur at-
vinnurekandi á Íslandi en
sumir þeirra sem hann
nefnir í þessu sambandi
eru allþekktir fyrrver-
andi námsmenn í Aust-
ur-Þýskalandi. Völvan sér
bæði Svavar Gestsson og
Hjörleif Guttormsson með vandræðalegan
svip á andlitinu vegna þessa máls.
DAUFT ER Í SVEITUM
Völvan sér forsvarsmann bænda í kreppu
vegna vafasamra viðskiptahátta og hann
endar með því að segja af sér embætti.
Fjármál bænda komast í sviðsljósið þegar
Landsbankinn leysir til sín eignir í land-
búnaði, sérstaklega hjá skuldsettum kúa-
bændum. Völvan greinir dimmt ský yfir
sveitum landsins á nýju ári og harmleikur
á sveitabýli sunnanlands mun
tengjast yfirtöku bankans.
Vanhirt og skuldsett
sveitabýli í eigu gjaldþrota
eignarhaldsfélaga verða
áberandi í sveitum og auka
á úlfúð milli landsbyggðar
og þéttbýlis.
Húsbrunar sem taldir eru tengjast trygg-
ingasvikum verða mikið í fréttum þegar
líður á árið og völvan sér þjóðþekkta menn
komast í fréttir vegna þeirra. Þessi hús
brenna úti á landi og fátt sannast saknæmt
í þeim efnum.
RÚV
Mjög umdeild verður sú ákvörðun RÚV að
ráða Sigurð Ragnarsson veðurfræðing til
starfa á fréttastofunni. RÚV bakkar ekki en
völvan sér einhvern reynslubolta í Efstaleit-
inu ganga út í fússi vegna málsins.
RÚV ræðst í uppstokkun
á Kastljósinu og skyldum
þáttum á nýju ári. Þór-
hallur fær áfram að deila
og drottna en völvan sér
gráhærðan starfsmann
við hlið hans og í kjölfar-
ið fækkar „fallega“ fólkinu í
Kastljósinu. Í tengslum við þessar breyting-
ar flytur Logi Bergmann sig um set og kem-
ur á ný til starfa í Efstaleiti. Í kjölfarið kemst
einkalíf hans með undarlegum hætti í kast-
ljós fjölmiðla.
Deilumál sem tengist spurningaþættin-
um Útsvari verður að gríðarlegu hitamáli í
tvo eða þrjá daga og Sigmar og Þóra eiga í
vök að verjast vegna umdeildra ákvarðana.
Völvan sér einnig mikið havarí í tengsl-
um við Gettu betur en í vetur kemur upp
njósnamál í aðdraganda úrslita þegar efni
þáttar lendir í höndum þátttakenda og úr
verður afar vandræðaleg uppákoma. Völv-
an sér ekki betur en að eitt liðanna segi sig
frá keppni vegna málsins.
HANNES OG EIÐUR Í KLÍPU
Hannes Hólmsteinn Gissurarson kemst
með óþægilegum hætti í fréttir á árinu þeg-
ar einkalíf hans verður sett í sviðsljós fjöl-
miðla með þeim hætti sem ekki hefur verið
gert áður. Eiður Guðjohnsen knattspyrnu-
maður verður áfram í fréttum vegna per-
sónulegra vandræða sem ekki tengjast fót-
bolta.
Völvan sér annað „KSÍ-mál“ koma upp á
árinu og þykir það ekki síður vandræðalegt.
Málið snýst um óvarlega meðferð íþrótta-
hreyfingarinnar á vafasömum skemmti-
stöðum en í þetta sinn eru það leikmenn
landsliðsins sem í hlut eiga.
VIÐSKIPTALÍFIÐ
Árið 2010 í viðskiptalífinu mun einkenn-
ast af gjaldþrotum fyrirtækja, sameining-
um og ýmsum kúvendingum.
Þar mun sannast að þeir sem
létu fara lítið fyrir sér í góð-
ærinu og tóku ekki þátt í
skuldsettum yfirtökum
og þess háttar aðgerðum
standa keikir meðan aðrir
síga niður á hnén.
Margvíslegar aðgerðir verða fyrir at-
beina bankanna og hinna nýju eigenda
þeirra. Ýmsar óvæntar sameiningar verða
í atvinnulífinu og ber þar hæst sameiningu
og einföldun á sviði bankastarfsemi og fjár-
mála.
Birna Einarsdóttir mun
láta af starfi sínu sem
bankastjóri í Íslandsbanka
og hverfa til starfa erlendis.
Ráðning bankastjóra Arion
banka mun valda miklum
hávaða því þar kemur aftur
til starfa háttsettur bankamaður sem
starfaði erlendis á árum áður.
Nýr bankastjóri Landsbankans mun
verða gagnrýndur fyrir pólitísk tengsl sín
við valdamikla menn á vinstrivængnum
enda vendilega merktur Samfylkingu und-
ir jakkafötunum. Nýr bankastjóri Íslands-
banka verður ekki Íslendingur
og völvan sér engar deilur
tengjast ráðningu hans.
Nokkur titringur verð-
ur í bóksölumálum þeg-
ar Eymundsson skiptir
um eigendur á árinu og nýr
forstjóri þar verður í skotlínu
fjölmiðla part úr degi.
Völvan sér olíufélagið N1 í verulegum
vandræðum sem munu jaðra við gjaldþrot
en með því að selja eignir tekst að halda
skútunni á floti. Málið hefur pólitískt yf-
irbragð vegna tengslanna við fjölskyldu
Bjarna Benediktssonar en aðilar tengdir
honum kaupa hluta eigna N1 og mun orða-
lagið „Kolkrabbinn lifnar við“ heyrast í því
sambandi.
GUÐMUNDUR Á NÚPUM
Völvan sér Guðmund Birgisson á Núpum í
Ölfusi í fréttum vegna styrktarsjóðs Sonju
Zorrilla. Sjóðurinn mun reynast tómur en
þegar sagan af því hvað Guðmundur og
kompánar hans gerðu við peningana verð-
ur sögð stendur þjóðin á önd-
inni af hneykslun og reiði.
Guðmundur sem hefur
alla ævi forðast sviðsljós-
ið verður um hríð þjóð-
þekktur og mun reyna eft-
ir megni að skríða í felur en
það tekst ekki.
Félagar hans í Lífsvali, fyrirtæki sem
keypt hefur bújarðir um land allt, komast
einnig í fréttir þegar glæpsamleg vinnu-
brögð fyrirtæksins verða tekin til rann-
sóknar.
SKRIÐA AF ÁKÆRUM
Völvan sér flesta fyrrverandi útrásarvík-
inga í áframhaldandi útlegð nema þegar
þeir neyðast til að koma til Íslands vegna
yfirheyrslna. Völvan sér Ólaf Ólafsson, Jón
Ásgeir, Pálma Haraldsson, Bakkavarar-
bræður og Finn Ingólfsson ganga inn í hús
í fylgd opinberra starfsmanna en Hannes
Smárason er hvergi sjáanlegur.
Á fyrri hluta nýs árs kemur aragrúi kæra
á hendur starfsmönnum banka og fjár-
málafyrirtækja fram í dagsljósið. Einkum
verður kært fyrir markaðsmisnotkun, brot
á lögum um upplýsingaskyldu og brot á
hlutafélagalögum. Hinir ákærðu skipa tug-
um ef ekki hundruðum og eru margar fyrr-
verandi stjörnur íslensks viðskiptalífs þar á
listanum og sumar þjóðþekktar. Völvan sér
flesta hinna ákærðu enda með fangelsis-
dóma þótt þeir falli ekki allir á nýju ári.
Völvan sér Jafet Ólafsson
viðskiptamógúl í afar vafa-
sömum málum hjá sérstök-
um saksóknara svo ekki sé
fastar að orði kveðið. Árni
Mathiesen, fyrrverandi
ráðherra, kemst aftur í frétt-
ir á nýju ári eins og nafni hans
Árni Magnússon en allt verður það í nei-
kvæðu ljósi.
Björgólfsfeðgar verða bornir þungum
sökum um tengsl við rússnesku mafíuna
og völvan sér mann stíga fram í sviðsljós-
ið í Bretlandi sem varpar nýju ljósi á þau
tengsl. Þeir verða þó ekki ákærðir en mann-
orð þeirra bíður enn frekari hnekki frá því
sem þegar er orðið.
NÝ ANDLIT Á SVIÐ
Völvan sér eftirspurn aukast eftir forstjór-
um sem eru óflekkaðir af hruninu og vend-
ingum sem tengjast því. Hreggviður Jóns-
son er meðal þeirra sem munu eiga óvænta
endurkomu í sviðsljósið og völvan sér ekki
betur en hann verði yfirmaður í stóru fjar-
skiptafyrirtæki. Þórólfur Árnason verður í
fréttum vegna nýrra starfa og Frosti Bergs-
son, Frosti Sigurjónsson og fleiri fyrrver-
andi forstjórar skríða aftur upp á sjóndeild-
arhringinn í atvinnulífinu og rísa hratt.
Völvan sér Benedikt Jóhannesson,
stærðfræðing og atvinnurekanda, í sviðs-
ljósinu þegar líða fer á árið og mun hispurs-
laus málflutningur hans afla honum bæði
aðdáunar og óvinsælda eins og stundum
áður.
FRÆGIR SKÍNA SKÆRT
Fræga fólkið heldur áfram að vera frægt á
nýja árinu en völvan sér ýmsar skemmtileg-
ar uppákomur í þeim efnum.
Borgarleikhús og Þjóð-
leikhús eiga í harðri sam-
keppni og átök þeirra um
hylli áhorfenda og starfs-
krafta leikara taka stund-
um á sig skemmtilegar
myndir. Magnús Geir mun
standa uppi sem alger sigurvegari að vori
eftir metvetur í aðsókn og jákvæðar um-
sagnir. Að sama skapi verður margt til þess
að valda Þjóðleikhúsinu mótbyr og völvan
sér neikvætt umtal á nýju ári þegar boðuð
stjörnuleiksýning á Gerplu verður lögð í salt
vegna anna Baltasars Kormáks, fyrirhug-
aðs leikstjóra, við kvikmyndaverkefni úti í
heimi.
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhús-
stjóri grípur þá til skyndiráða sem þykja
lítt grunduð og innihalda óþægilega marga
fjölskyldumeðlimi hennar.
Völvan sér Magna Ásgeirsson rokk-
stjörnu á vinsældalistum úti í heimi og
hljómsveitin Hjaltalín tekur við kyndlinum
af Björk og Sigur Rós sem vinsælasta krútt-
hljómsveitin sem trúir á álfa.
Björk Guðmundsdóttir fær viðurkenn-
ingar og verðlaun á nýju ári og vekur einn-
ig athygli fyrir nýstárlega listsköpun. Völv-
an sér Björk tengjast íslensku atvinnulífi og
leggja fé í atvinnurekstur á sviði iðnaðar.
Þekktur tónlistarmaður úr gróinni
popphljómsveit verður handtekinn í tengsl-
um við fíkniefnamál og í kjölfarið talar
hann opinberlega um neyslu sína og ann-
arra í greininni með þeim hætti að þjóðin
verður kjaftstopp. Margir verða til þess að
hrósa honum fyrir hreinskilnina og í kjöl-
farið heldur Nýdönsk mjög umtalaða tón-
leika.
Hjónaskilnaðir verða óvenjulega mikið í
sviðsljósinu á fyrri hluta ársins þegar þekkt
hjónabönd fara í vaskinn. Í einu tilfelli á
þekktur stjórnmálamaður í hlut en þykir
standa sterkari eftir en áður vegna orðspors
makans.
Egill Einarsson, Gillzenegger eða Störe,
verður í fréttum þegar einhver tjáir sig um
náið samband sitt við hann.
Sveppi og Auddi komast líka í fréttir.
Annar þeirra fyrir hófsemi og vel heppnað
framlag til lista og afþreyingar en hinn fyrir
hið gagnstæða.
Egill Helgason heldur áfram að valda
umtali með þætti sínum, Silfri Egils, og
árásir hægrimanna á hann munu harðna
jafnt og þétt eftir því sem líður á nýja árið.
Völvan sér hann þó standa keikan til vors.
Völvan sér Guðrúnu Gunnarsdóttur
söngkonu í sviðsljósinu vegna einkamála
en Ragnhildi Gísladóttur taka við viður-
kenningu fyrir tónsmíðar.
Friðrik Þór Friðriksson slær í gegn með
kvikmynd sinni um Mömmu Gógó og fer-
ill hans nær flugi á ný. Baltasar Kormákur
á góða spretti í Hollywood en á innanlands-
markaði slær enginn Bjarnfreðarsyni við
sem nýtur þvílíkra vinsælda að Íslendingar
vilja enga aðra kvikmynd sjá. Í framhaldinu
ná vinsældir Péturs Jóhanns og Jóns Gnarrs
enn meira flugi og þeir verða ásamt Ragnari
Bragasyni vinsælustu kvikmyndastjörnur
ársins 2010.
Hermann Gunnarsson verður í fréttum á
nýju ári en völvan sér alvöruþrunginn blæ
yfir þeim tíðindum.
Ómar Ragnarsson mun halda vel heppn-
aða afmælistónleika á nýju ári og í fram-
haldinu verður efnt til mikillar fjársöfnun-
ar sem gerir Ómari kleift að ljúka einhverju
áríðandi verkefni sem hann vinnur að.
Völvan sér þá Ómar Ragnarsson og Jak-
ob Frímann Magnússon standa saman á
sviði við tónlistarflutning sem vekur mikla
kátínu.
ÁSDÍS OG EGILL SAMAN
Ásdís Rán Gunnarsdóttir verður áfram í
sviðsljósi fjölmiðla á nýju ári. Hún flytur
heim til Íslands þegar eiginmaður henn-
ar fær vinnu við fótbolta hérlendis. Völvan
sér Ásdísi og Egil „Störe“ í mjög undarlegu
samstarfi í fjölmiðlum.
ANDRI SNÆR VEKUR ATHYGLI
Íslenskir listamenn halda áfram að efla
frægð sína og völvan sér Andra Snæ Magna-
son vekja heimsathygli fyrir verk sín og
málflutning. Það sama má segja um Ólaf
Elíasson myndlistarmann
sem heldur áfram að stað-
festa sig sem eitt af stærstu
nöfnum tuttugustu og
fyrstu aldarinnar í list-
heiminum.
Völvan sér Ragnar Kjart-
ansson fjöllistamann vekja
athygli og umtal fyrir listgjörning sem jafn-
framt vekur deilur. Honum verður betur
tekið erlendis en hér heima.
Síðast en ekki síst sér völvan Guðberg
Bergsson í umræðunni í kringum Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum.
ÍSLENSK NÁTTÚRA
Völvan sér myndir af Reykjavík með gos-
mökk í baksýn á forsíðum
heimspressunnar á nýju ári.
Þar fyrir utan verður ár-
ferði með eindæmum gott
til sjávar og sveita og laust
við allar hamfarir náttúr-
unnar. Sumarið verður eitt
hið blíðasta í manna minnum
og sólin vermir landið sem aldrei fyrr. Sér-
kennilegt slys þar sem erlendir ferðamenn
koma við sögu varpar nokkrum skugga á
komandi sólskinstíð og veldur mikilli um-
ræðu um öryggismál í íslenskri ferðaþjón-
ustu.
ÍÞRÓTTIR OG ÍÞRÓTTAMENN
Golfiðkun Íslendinga nær nýjum hæð-
um á árinu og íslenskur kylfingur kemst í
sviðsljós erlendra fjölmiðla. Knattspyrnan
verður með allra dauflegasta móti og er
síminnkandi fjárstuðningur og færri er-
lendir leikmenn talin helsta orsökin. Skuggi
hneykslismála hvílir yfir forystu KSÍ allt
árið og völvan sér engan veginn fyrir end-
ann á þeim leiðindamálum en snemma árs
mun formaður og hluti af stjórn KSÍ neyðast
til að segja af sér.
n Eiður Smári Guðjohnsen verður áfram í fréttum fyrir annað en afrek á knattspyrnuvellinum.