Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Blaðsíða 57
Ísak Örn Sigurðsson
FYRRV. FRAMKVÆMDASTJÓRI BRIDGESAMBANDS ÍSLANDS OG BLAÐAMAÐUR
MINNING 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 57
Þorvaldur fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hann var við nám í Tón-
listarskólanum í Reykjavík 1934-37
og lærði m.a. fiðluleik hjá Þórarni
Guðmundssyni, lauk fullnaðarprófi
í fiðluleik 1937 og var við framhalds-
nám í The Royal Academy of Music í
London 1946.
Þorvaldur var fiðluleikari Útvarps-
hljómsveitarinnar frá 1944, forfiðl-
ari þar frá 1947, fiðluleikari Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands frá stofnun,
1950, aðstoðarkonsertmeistari Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands frá 1966
og konsertmeistari við Þjóðleikhúsið
á árunum 1966-80. Hann kenndi við
Tónlistarskólann í Reykjavík 1943-46
og var skólastjóri Tónlistarskólans í
Hafnarfirði 1980-88.
Þorvaldur starfaði hjá Hollywood
Bowl Orchestra í Kaliforníu 1961-
65, var fyrsti fiðluleikari hjá Sinfón-
íuhljómsveit Dallas-borgar 1962-65
og aðstoðarkonsertmeistari hjá Sin-
fóníuhljómsveit Oklahoma-borg-
ar 1969-71. Þorvaldur starfaði lengi
í Frímúrarareglunni og gegndi auk
þess ýmsum trúnaðarstörfum í fé-
lögum tónlistarmanna, var formaður
FÍH, Félags íslenskra hljóðfæraleik-
ara 1953-55, formaður Lúðrasveit-
ar Reykjavíkur 1976-78 og formaður
Félags íslenskra tónlistarskólastjóra
um skeið frá 1982. Þorvaldur var
sæmdur heiðursmerki FÍH 1976.
Fjölskylda
Fyrri kona Þorvaldar var Ingibjörg,
f. 5.5. 1919, d. 8.1. 1966, hárgreiðslu-
meistari. Hún var dóttir Halldórs
Jónssonar, fiskkaupmanns í Reykja-
vík, og k.h., Sigríðar Sighvatsdóttur,
húsmóður frá Gerðum í Garði.
Börn Þorvaldar og Ingibjargar
eru Sigríður, f. 12.4. 1941, leikkona,
búsett á Seltjarnarnesi, gift Lárusi
Sveinssyni trompetleikara en þau
eiga þrjár dætur, Ingibjörgu, Þórunni
og Dísellu; Kristín, f. 31.10. 1942,
hárgreiðslukona, búsett í Reykja-
vík og eru börn hennar Sigurður,
Sif og Hrefna; Halldór, f. 27.9. 1950,
tæknifræðingur og forstjóri í Delton
á Flórída, kvæntur Regínu Valgerði
Scheving, en þau eiga þrjú börn, Est-
er, Ellen og Davíð.
Seinni kona Þorvaldar er Jóhanna
Cortes, f. 11.8. 1921, dóttir Lárus-
ar Hanssonar, innheimtumanns í
Reykjavík, og k.h., Jónínu Gunn-
laugsdóttur húsmóður.
Systkini Þorvalds: Baldur Stein-
grímsson, f. 3.8. 1907, d. 20.7. 1968,
deildarverkfræðingur hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, var kvæntur Krist-
björgu Guðmundsdóttur; Bragi
Steingrímsson, f. 3.8. 1907, d. 11.11.
1971, héraðsdýralæknir í Biskups-
tungum, var kvæntur Sigurbjörgu
Lárusdóttur; Ingvi Steingrímsson, f.
21.8. 1908, d. 20.1. 1911; Anna Guð-
rún Steingrímsdóttir, f. 16.7. 1910, d.
13.10. 2006, var gift Árna Kristjáns-
syni, píanóleikara og tónlistarstjóra
Ríkisútvarpsins; Jón, f. 27.7. 1914, d.
29.1. 2004, stýrimaður í Reykjavík,
var kvæntur Guðbjörgu Þórhalls-
dóttur; meybarn, f. 1.9. 1916, d. s.á.;
meybarn, f. 1.9. 1916, d. s.á.; Herdís
Elín (Dísella), f. 23.11. 1921, d. 17.12.
1995, húsmóðir, var gift Sigurði Óla-
syni, lækni á Akureyri.
Foreldrar Þorvaldar voru Stein-
grímur Matthíasson, f. 31.3. 1876, d.
27.7. 1948, læknir á Akureyri, og k.h.,
Kristín Thoroddsen, f. 8.9. 1885, d.
7.10. 1959, húsmóðir.
Ætt
Steingrímur var bróðir Þóru, móð-
ur Guðrúnar Þorsteinsdóttur söng-
konu. Önnur systir Steingríms var
Elín Laxdal, amma Ragnars Arnalds,
fyrrv. ráðherra, alþm. og fyrrv. for-
manns Heimssýnar. Steingrímur var
sonur Matthíasar, skálds og prests
m.a. á Sigurhæðum á Akureyri Jo-
chumssonar, b. í Skógum í Þorska-
firði Magnússonar. Móðir Matthías-
ar var Þóra, systir Guðrúnar, ömmu
skáldkvennanna Herdísar og Ólínu
Andrésdætra. Bróðir Þóru var Guð-
mundur, pr. og alþm. á Kvenna-
brekku, faðir Theodóru Thoroddsen
skáldkonu, og afi Muggs myndlist-
armanns. Þóra var dóttir Einars, b. í
Skáleyjum Ólafssonar.
Móðir Steingríms var Guðrún,
systir Þórðar, föður Björns forsætis-
ráðherra. Guðrún var dóttir Runólfs,
hreppstjóra í Saurbæ á Kjalarnesi
Þórðarsonar, hreppstjóra í Saurbæ
á Ólafssonar, b. á Vallá Eyjólfsson-
ar. Móðir Runólfs var Sigríður Þór-
ólfsdóttir, b. í Engey Þorbjörnssonar,
bróður Guðlaugar, langömmu Guð-
rúnar, langömmu Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra, föður Val-
gerðar alþm. og Björns, fyrrv. alþm.
og ráðherra, en bróðir Bjarna for-
sætisráðherra var Sveinn, afi Bjarna
Benediktssonar, formanns Sjálfstæð-
isflokksins.
Meðal systkina Kristínar voru
Emil Thoroddsen tónskáld og Þor-
valdur Thoroddsen, forstjóri Trípól-
íbíós og Tónabíós og stofnandi Tón-
listarfélags Reykjavíkur með Ragnari
í Smára. Kristín var dóttir Þórðar
Thoroddsen, alþm. og héraðslæknis í
Keflavík, bróður Sigurðar landsverk-
fræðings, föður Gunnars Thorodd-
sen forsætisráðherra. Annar bróðir
Þórðar var Þorvaldur náttúrufræð-
ingur og þriðjji bróðirinn Skúli, alþm.
og ritstjóri Þjóðviljans á Ísafirði, fað-
ir Jóns Thoroddsen skálds, Katrínar,
alþm. og læknis, Guðmundar lækna-
prófessors, Unnar, móður Skúla Hall-
dórssonar tónskálds, og Sigurðar,
alþm. og verkfræðings, föður Dags
Sigurðarsonar skálds. Loks var Sig-
urður verkfræðingur afi Katrínar
Jakobsdóttur menntamálaráðherra.
Þórður var sonur Jóns Thoroddsen,
sýslumanns og skálds á Leirá, sonar
Þórður Þóroddsson, beykir á Reyk-
hólum, sem Thoroddsenættin er
kennd við. Móðir Þórðar var Kristín
Ólína Þorvaldsdóttir, umboðsmanns
í Hrappsey Sívertsen.
Móðir Kristínar var Anna, dóttir
Péturs Guðjohnsen tónskálds, kór-
stjóra, dómorganista og helsta tón-
listarmanns Reykjavíkur á sinni tíð,
ættföður Guðjohnsenættar, og k.h.,
Guðrúnar Knudsen, systur Kristjönu
Knudsen sem Jónas Hallgrímsson
orti til ástarljóðið Söknuð. Guðrún
var dóttur Lauritz Knudsen, kaup-
manns í Reykjavík og ættföður Knud-
senættar, og k.h., Margrethe Hölter.
Vilhjálmur
frá Skáholti
SKÁLD
f. 29.12. 1907, d. 4.8. 1963
Vilhjálmur fæí Skáholti á
Drafnarstíg í Vesturbæn-
um. Hann ól allan aldur sinn
í Reykjavík að undanskild-
um vetrinum
1932-33
er hann
stundaði
nám við
Lýðhá-
skól-
ann við
Askov.
Vil-
hjálmur
setti sterk- an
svip á mann- lífið i
miðbæ Reykjavíkur á sinni tíð
enda var hann lengi blómasali
og starfrækti eins konar versl-
un við Aðalstræti. Og hann var
svo sannarlega Reykjavíkur-
skáld. Hann var tilfinningaríkt
og eirðarlaust náttúrubarn og
drykkfellt alþýðuskáld sem lá
ekki lengi yfir ljóðum sínum
né skeytti um brothætt mann-
orðið. Þess vegna drógu marg-
ir í efa að hann væri alvöru-
skáld.
En þótt hann sé mistækur er
hann víða afburðaskáld þegar
honum tekst best upp. Hann
sendi frá sér ljóðabækurnar
Næturljóð, Vort daglegt brauð
og 1950 Sól og menn og Blóö
og vín, .
Vilhjálmur var uppreisnar-
skáld í tvenns konar skilningi:
Hann skipar sér á bekk með
róttækustu málsvörum verka-
lýðsbaráttu og heimsbyltingar
og ræðst auk þess á hræsni og
skinhelgi góðborgaranna með
hispurslausum hugleiðingum
um sjálfan sig og frelsarann.
Hann er oft sjálfmiðaður, sjálf-
gagnrýninn og angurvær þótt
hann verji breyskan bróður
og haldi fullri reisn í allri sinni
ógæfu.
Vilhjálmur var fríður, svip-
hreinn og höfðinglegur, trúr
vinum sínum og barngóður.
Honum bregður aðeins fyrir í
einni af Andra-bókum Péturs
Gunnarssonar enda muna
margir Vesturbæingar eftir
þessum óstýrilátna og háværa
manni þegar hann var við skál
og sem helst vildi bjóða öllum
krakkaskaranum í Hagahverf-
inu upp á ís.
Fyrir tveimur árum, er öld var
liðin frá fæðingu Vilhjálms,
flutti ríkisútvarpið prýðileg-
ann þátt um skáldið í umsjá
Gunnars Stefánssonar.
Lengi vel voru ljóðabækur Vil-
hjálms ófáanlegar en árið 1992
gaf Hörpuútgáfan út heildar-
safn ljóða hans, Rósir í mjöll.
Helgi Sæmundsson, rithöf-
undur og ritstjóri bjó safnið til
prentunar og samdi inngang
að því.
Tvö ljóða hans hafa oft ver-
ið sungin við gullfalleg lög
tveggja vina hans: Ó borg, mln
borg, við lag Hauks Morthens,
og Litla fagra, ljúfa vina, við
lag Sigfúsar Halldórssonar.
MINNING
Þorvaldur Steingrímsson
FIÐLULEIKARI
MERKIR
ÍSLENDINGAR
f. 7.2. 1918, d. 27.12. 2009
Eftirmæli
Jónas Þórir Dagbjartsson,
hljóðfæraleikari
„Ég kynntist Þorvaldi árið 1943.
Hann var minn fyrsti kennari
og við höfum allar aldir síðan
verið í miklu sambandi. Einnig
höfum við unnið mikið saman
síðan við kynntumst fyrst. Bæði
unnum við saman í Sinfóníunni
og svo á mörgum öðrum vett-
vöngum eins og hinum ýmsu
hljómsveitum. Hann er einhver
sá besti félagi sem ég hef átt.
Þorvaldur var mjög góður
fiðluleikari fyrst og fremst en
einnig spilaði hann á saxafón og
líka klarinett. Hann var jafngóð-
ur á þau tvö hljóðfæri líka. Þor-
valdur var einfaldlega frábær
maður í öllu sem hann gerði.
Hann var samt ákaflega hóg-
vær maður og góður. Hann var
góður í sér við alla, auðveldur
og mjög notalegur í öllum sam-
skiptum á allan máta. Við áttum
ótal samverustundir og höfðum
virkilega gaman af því að njóta
gleðinnar. Það má alveg segja að
hann hafi haft mikil og góð áhrif
á tónlistarlíf hér heima sem og
allt er hann kom nálægt.“
Eftirmæli
Jón Þórarinsson, tónskáld
„Við Þorvaldur kynntumst fyrst á Ak-
ureyri þegar ég var í menntaskóla og
hann var á svipuðum aldri. Þorvald-
ur er af góðum mönnum. Faðir hans
er Steingrímur Matthíasson, lækn-
ir og þjóðskáld. Við kynntumst svo
betur ég og Þorvaldur þegar ég kom
hingað suður og fór að fást við tón-
list. Hann var fyrst og fremst fiðlu-
leikari og var leiðandi manna í nær
öllum hljómsveitum sem reynt var
að stofna frá 1930 og allt til ca. 1950.
Svo þegar Sinfóníuhljómsveitin var
stofnuð tók hann strax sæti þar og
sat á meðan hann hafði aldur til.
Hann var mjög góður fiðluleikari en
fyrst og fremst hafði hann aflað sér
mikillar reynslu. Þorvaldur var lík-
lega reynslumesti fiðluleikarinn hér
á landi. Hann var afar yfirlætislaus
maður og gekk ætíð strax að sínu
verki og vann það eins vel og hann
gat. Hann var vandaður og góður
maður og svo sannarlega öðrum fyr-
irmynd.“