Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Side 64

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2009, Side 64
64 MIÐVIKUDAGUR 30. desember 2009 VERÖLD ÁRIÐ 1909 VAR EKKI BÚIÐ AÐ FINNA UPP EFTIRTALDA HLUTI: Rennilás, plástra, umferðarljós, tyggigúmmí, pensilín, sólgleraugu, kúlupenna, búðar- kerrur, nælonsokka, kattasand og mjólkurfernur. Aðaldánarorsakir manna í heiminum þá voru af völdum lungnabólgu, flensu, berkla, niðurgangs, hjartasjúkdóma og hjarta- áfalla. Konur í heiminum höfðu nær hvergi kosningarétt árið 1909. Íslenskar konur yfir fertugt fengu ekki rétt til að kjósa fyrr en 9. júní 1915 og allar konur árið 1920. Nýlendu- stefnan var enn í algleymingi á þessum tíma, Bretar, Frakkar, Portúgalar, Þjóðverjar og fleiri Evrópuþjóðir stjórnuðu nær öllum löndum í Afríku og mörgum í Asíu. UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON, helgihrafn@dv.is LÝSNAR PLATAÐAR n Það var ekki tekið út með sældinni að vera skógarhöggsmaður á nítjándu öld. Í bókinni Kúrekar og líkkistusmiðir eftir Laurie Coulter er fjallað um ýmis erfið störf. Vitnisburður bandaríska skógar- höggsmannsins Walker D. Wyman, úr dagbók hans frá 1885: „Ein besta leiðin til að plata lýsnar var að snúa föðurlandinu á rönguna þegar farið var að sofa á nóttunni. Lýsnar eyddu mestum hluta næturinnar í að finna leiðina frá yfirborði föðurlandsins og innundir á hina hliðina, inn að húðinni.“ FERÐAMENN Á ÍSLANDI n Erlendir ferðamenn voru ekki marg- ir á Íslandi fyrir hundrað árum síðan. Árið 1909 kom danski rithöfundurinn Martin Andersen Nexö til landsins ásamt hópi danskra ferðamanna sem fóru á vegum danska blaðsins Politiken. „Mikið haf, sem lítið hefir verið ferðast um, er milli Danmerkur og Íslands, eyðilegur, þungur sjór, og enn er sem vér heyrum dunur af ferð- um útflytjenda fyrir þúsund árum; svo lítið hefir verið þar um umferð síðan.“ Pétur Pétursson þulur skrifaði grein í Morgunblaðið árið 2001 um ferðalagið: „Hópurinn ferðaðist víða um land. Til Þingvalla, Gullfoss og Geysis en sumir fóru allt til Ísafjarðar.“ Í dag, hundrað árum síðar, er Ísland áfangastaður fjölmargra ferðamanna frá ýmsum heimshornum. Rúmlega hálf milljón erlendra ferðamanna voru á Íslandi árið 2009. KONA HLAUT NÓBELINN n Selma Lagerlöf hlaut Bókmennta- verðlaun Nóbels árið 1909, fyrst kvenna og fyrst Svía. Frægustu bækur hennar eru Gösta Berlings saga frá 1891, er fyrst hlaut dræmar viðtökur en telst nú til klassískra bókmenntaperlna, og Nilli Hólmgeirsson og ævintýraför hans um Svíþjóð (Nils Holgerssons underbara resa genom Sverige) frá 1906-1907. Lagerlöf lést árið 1940. Í ár hlaut hin þýskumælandi Herta Müller frá Rúmeníu Bókmenntaverðlaun Nóbels og er hún tólfta konan frá upphafi er hlýtur þau. Alls hafa 102 rithöfundar hlotið verðlaunin. Fyrir hundrað árum 1909 William Howard Taft varð 27. forseti Bandaríkjanna árið 1909 eftir góðan kosningasigur. Hann sór embættiseiðinn 4. mars en mikið kuldakast í Washington setti svip sinn á athöfnina. Taft naut ekki mikillar velgengni í embætti sínu í Hvíta húsinu. Þrátt fyrir háleit markmið missti hann stuðning þingsins og þjóðarinnar. Taft tapaði með miklum mun fyrir Woodrow Wilson í forsetakosning- unum 1912. Taft var þyngsti Bandaríkjaforsetinn, talinn hafa vegið 140 kíló. Hann gagnrýndi kynþáttahatur harðlega í innsetningar- ræðu sinni og sagði: „Svertingjarnir eru Bandaríkjamenn. Forfeður þeirra komu hingað gegn sínum vilja fyrir mörgum árum síðan en þetta er þeirra eina land og eini þjóðfáni.“ 2009 Gríðarlegur mannfjöldi fagnaði Barack Obama þegar hann tók við emb- ættinu í janúar og varð 44. Bandaríkjaforsetinn. Hann er, eins og allir vita, fyrsti svarti forseti landsins. Hann sór eið sinn við sömu biblíu og Abraham Lincoln gerði í sinni athöfn árið 1861. Sjaldan eða aldrei hafa jafnmargir jarðarbúar horft á nokkurn viðburð í gegnum sjónvarp og internet. Í ræðu sinni sagði Obama meðal annars: „Þið skuluð hafa það hugfast að Banda- ríska þjóðin er vinur allra þjóða, allra karla, kvenna og barna sem hafa frið og mannvirðingu að leiðarljósi og við erum reiðubúin að leiða á ný.“ 1909 Smíði risaskipsins Titanic hófst í Harland og Wolff-skipasmíðastöðinni í Belfast á Norður-Írlandi. Það átti að verða stærsta skip sögunnar en 3.000 manns unnu sleitulaust í þrjú ár að smíðinni. Skipið var fullklárað árið 1912. Sama ár hélt Titanic í jómfrúar- ferð sína sem endaði með skelfingu þegar skipið rakst á borgarísjaka og sökk tveimur klukkustundum síðar. Af 2.223 farþegum drukknuðu 1.517. 1909 Manchester United vann bresku bikar- keppnina í fyrsta sinn er liðið lagði Bristol City 1-0 í Crystal Palace fyrir framan 71.000 áhorfendur. Sandy Turnbull skoraði markið. 1909 Björn Jónsson, ritstjóri Ísafoldar og stjórnmálamaður úr Landvarnarflokki, var kjörinn ráðherra Íslands sem var æðsta embætti Íslendinga á þeim árum. Ráðherra Íslands fór með fram- kvæmdavaldið í umboði Alþingis til 1917 þegar embætti forsætisráðherra var búið til. 1909 Bygging Metropolitan Life Tower-skýjakljúfsins í New York var lokið árið 1909. Arkitektar hönnuðu bygginguna með hliðsjón af feneyska klukkuturninum Il Campanile. Turninn var hæsta bygging heims, 213 metra hár, þangað til Woolworth-byggingin var reist í New York árið 1913. 2009 Hinn 31. mars 2009 lést síðasti eftirlifandi farþeginn á Titanic, Millvina Dean, 97 ára gömul. Hún var aðeins níu vikna gömul þegar skipið sökk og yngsti farþeginn um borð. Flak skipsins var uppgötvað árið 1985 og hafa menn fært ýmsa gripi úr skipinu frá hafsbotni. James Cameron gerði eina frægustu kvikmynd allra tíma um Titanic en hún hlaut 11 óskarsverðlaun. 2009 Chelsea vann Everton 2-1 á Wembley fyrir framan 90.000 áhorf- endur í úrslitaleik bikar- keppninnar. Drogba og Lampard skoruðu mörk Chelsea og Louis Saha mark Everton. 2009 Jóhanna Sigurðardóttir varð forsæt- isráðherra Íslands, fyrst kvenna. Hún er talin fyrsti samkynhneigði leiðtogi lands í sögunni. 2009 Byggingu ytra borðs langhæstu byggingar heims, Burj Dubai, var lokið í október. Skýjakljúf- urinn er 813 metra hár. Hann kostaði um fjóra milljarða dollara. Yfirvöld í Dubai búast við að skrifstofurými skýjakljúfsins verði tekið í notkun á næsta ári, en miklir efnahags- örðugleikar hafa legið í loftinu í arabíska furstadæminu undanfarið. Íbúar jarðar 1909 1,7 milljarðar 2009 6,7 milljarðar Íbúar á Íslandi 1909 80.000 2009 319.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.