Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 53
SVIÐSLJÓS 15. janúar 2009 FÖSTUDAGUR 53 DEILURNAR AUKA ÁHORF Conan O´Brien snjall eða reiður? Eftir að Conan O´Brien sendi frá sér yfirlýsingu á þriðjudag um að hann myndi hætta hjá NBC ef þáttur hans yrði færður aftur í dagskránni jókst áhorf hans gríðarlega. Eða um heil 42% í aldurshópnum 18 til 49 ára frá deginum áður. Aðdragandi málsins er sá að eftir að Conan tók við Jay Leno sem stjórnandi þátt- arins The Tonight show hefur áhorf minnk- að mikið. Á sama tíma misheppnaðist einn- ig þáttur Leno á besta tíma og hefur nú verið ákveðið að færa hann til í dagskrá með þeim afleiðingum að þáttur Conans verður færður aftur um hálftíma. Enn er ekki ljóst hvort Conan muni standa við yfirlýsingu sína eða hafi bara ver- ið að vekja athygli á sér til að auka áhorf. Conan gerði óspart grín að NBC og sjálfum sér í þættinum á þriðjudagskvöld. „Halló. Ég heiti Conan O´Brien og ég verð hugsanlega laus á næstunni til að skemmta í barnaaf- mælum.“ Á sama tíma hefur áhorf á þátt Jay Leno einnig aukist en samt ekki jafnum- talsvert og á þátt Conans. CONAN O´BRIEN OG JAY LENO Eru þeir ósáttir eða bara með áhorfsbrellur? F rægðarsól bik- iníbombunnar Nicole Bahls heldur áfram að rísa þessa dagana en fjölmiðlar í Bandaríkjunum og Bret- landi birta æ oftar myndir af henni. Bahls hefur ver- ið kölluð hin brasilíska Jordan en henni hefur einnig verið líkt við rassa- bombuna Coco sem er gift rapparanum Ice-T. Vinsældir Bahls í enskumæandi löndum virðast ekki síst koma til vegna þess að nafn henn- ar er borið fram eins og boltar í fleirtölu, „balls“. Það orð er oft notað um eistu karlmanna og þykir það skondið. Þessar myndir voru teknar af fyrirsætunni þar sem hún sleikti sól- ina í Ríó og stakk sér til sunds. KYNÞOKKAFULL MEÐ MEIRU Nicole Bahls vekur lukku á ströndinni: Nicole Bahls Vekur lukku hvar sem hún kemur. Stingur sér til sunds Það er gaman að svamla í sjónum. Alvöru afturendi Vinsældir Nicole fara vaxandi. Subbudrottningin Courtney Love: TATTÚ Á TWITTER Ólátabelgurinn Courtney Love deildi mynd- um af nýjustu húðflúrunum sínum á Twitter fyrir skemmstu. Þar má sjá að Courtney hefur látið húðflúra lítil blóm víðs vegar um líkama sinn og eitt þeirra á hliðina á hægra brjósti sínu. Á myndunum má einnig sjá að Court- ney er í annarlegu ástandi en hún hefur um margra ára skeið átt við mikla eiturlyfjafíkn að stríða. Eftir að hafa rétt úr kútnum um tíma féll Courtney aftur og var á endanum svift forræði yfir dóttur sinni. Courtney er ekkja rokkarans Kurts Cobain en hann framdi sjálfsmorð fyrir mörgum árum. Subbuleg Courtney er illa farin af eiturlyfjaneyslu. Blómahúðflúr Courtney setti myndirnar inn á Twitter-síðu sína. HREIN SNILLD Drjúgt, fjölhæft og þægilegt... Gott á: gler plast teppi flísar stein ryðfrítt stál fatnað áklæði tölvuskjái omfl. ATH. frábært á rauðvínsbletti og tússtöflur S. 544 5466 • www.kemi.is • kemi@kemi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.