Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 6
SANDKORN n Starfshópur á vegum sjávar- útvegsráðherra, sem fæst við að endurskoða kvótakerfið, hefur ekki komið saman til fundar síðan í nóvember. Þetta þykir ýmsum undarlegt sem telja end- urskoðun kvótakerfis- ins eitt mik- ilvægasta stefnumál ríkisstjórn- arinnar. Menn velta fyrir sér þessum seinagangi og þykjast sjá í hendi sér að formaður nefndarinnar og varaformaður, þeir Guðbjart- ur Hannesson og Björn Valur Gíslason, séu hlaðnir Icesave- og endurreisnarstörfum. Og spyrja í leiðinni hvort ekki sé ráð að setja hörkutólið Ólínu Þor- varðardóttur yfir nefndina sem seint beygir sig fyrir sægreifun- um eins og dæmin sanna. n Áhyggjur manna af því að rík- isstjórnin sé á góðri leið með að stinga endurskoðun kvótakerf- isins og innlausn kvótans ofan í skúffu eru orðnar það miklar að skotið var á neyðarfundi síðastliðinn miðvikudag þar sem rætt var um að endurvekja Samtök um þjóðareign með nú- tímalegu sniði í anda InDefence. Á fundinn mættu bæði gamlar kempur, eins og Grétar Mar Jónsson, Jón Magnússon og Jón Baldvin Hannibalsson, en einn- ig yngri baráttumenn sem boða nýjar aðferðir og ný sjónarhorn. Tólf ár eru liðin síðan Samtök um þjóðareign voru stofnuð, meðal annars af mönnum eins og Ágústi Einarssyni rektor á Bifröst. n Ýmislegt bendir til þess að átökin um kvótakerfið eigi eftir að magnast til muna og að útspil Friðriks J. Arngrímssonar, fram- kvæmdastjóra LÍÚ, um að stefna flotanum í land, geti allt eins snúist í höndum sægreifanna. Sagan segir að stjórn LÍÚ hafi þegar fyrir áramót lagt á ráðin um að sigla flotanum í land léti ríkisstjórnin ekki af fyrningar- leiðinni. Þetta mun hafa borist Atla Gíslasyni, formanni sjávar- útvegsnefndar Alþingis, til eyrna skömmu eftir að sægreifarnir fjöll- uðu um málið innan sinna raða. „Þeir munu aldrei sigla flotanum í land,“ á Atli að hafa sagt van- trúaður. 6 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 FRÉTTIR Eignarhaldsfélagið Hnotskurn er á lokasprettinum við að semja um skuldir félagsins sem nema 2.800 milljónum króna. Eignir félagsins nema hins vegar einungis 244 millj- ónum sem eru fasteignir og lóðir. Fé- lagið fékk lán til hlutabréfakaupa í Tryggingamiðstöðinni. Það eignaðist síðan hlutabréf í FL Group þegar það félag keypti Tryggingamiðstöðina. Félagið er í eigu Katrínar Pétursdótt- ur, forstjóra Lýsis, og Gunnlaugs Sæv- ar Gunnlaugssonar, fjárhaldsmanns Guðbjargar Matthíasdóttur í Vest- mannaeyjum til margra ára. Í samtali við DV vildi Katrín Pét- ursdóttir ekki tjá sig um stöðu fé- lagsins og vísaði á lögmanninn Sig- urbjörn Magnússon sem stendur í samingaviðræðum um uppgjör á skuldum félagsins. Sigurbjörn er auk þess stjórnarformaður Árvakurs, út- gefanda Morgunblaðsins. Ekki náðist í Gunnlaug Sævar þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir. Nánast búið að semja „Það er verið að skoða uppgjör á skuldum fé- lagsins hjá Glitni. Þær viðræður eru á lokastigi og ég vonast til að það verði ekki langt í að þær verði leiddar til lykta,“ seg- ir Sigurbjörn Magnússon, lögmað- ur eignar- haldsfé- lagsins Hnot- skurnar. Hann vill ekki gefa upp hvort verið sé að semja um einhverjar af- skriftir af skuldum félagsins. Það liggi þó í hlutarins eðli að ein- hverjar afskriftir fari fram hjá þessu félagi líkt og öðrum sem vinna að fjárhagslegri end- urskipulagningu sinni í sam- starfi við bankastofnanir. Sig- urbjörn tekur þó fram að viðræðurnar séu á viðskiptalegum forsendum. Inni í félag- inu séu enn- þá einhverjar eignir á móti skuldum. 15. stærst í FL Group Gunnlaug- ur og Katrín eignuðust hlutabréf í FL Group þeg- ar félagið keypti Tryggingamiðstöð- ina haustið 2007. Fengu þau bréf í FL Group á genginu 24,3 og nam mark- aðsverðmæti bréfanna á þeim tíma um 1.995 milljónum króna. Sá hlut- ur dugði þeim til að verða 15. stærsti hluthafinn í FL Group með 0,82 pró- senta hlut. Í ársreikningi félagsins fyr- ir árið 2007 kemur hins vegar fram að þau hafi þurft að selja um 20 prósent af bréfum sínum í FL Group. Hluta- bréfaverð FL Group lækkaði um 40 prósent frá september 2007 til loka þess árs. Má telja líklegt að félagið hafi fengið veðkall (e. margin call) frá Glitni vegna lækkandi gengis FL Group og því verið þvingað til að selja. Vék úr stjórn vegna vanskila Katrín Pétursdóttir sat í stjórn Glitnis og líka FL Group. Samkvæmt heimild- um DV varð Katrín að víkja úr stjórn Glitnis í lok febrúar 2008 þar sem fé- lag hennar, Hnotskurn, var komið í vanskil með lán sín við bankann. Enda hafði markaðsverðmæti hlut- ar félagsins Hnotskurnar í FL Group rýrnað mjög mikið. Eins og áður var nefnt nam markaðsverðmæti hlutar félagsins í FL Group um 1.195 millj- ónum króna í septem ber 2007. Í lok desember sama ár var hlutur félags- ins metinn á 993 milljónir króna en þá hafði það verið þvingað til að selja um 20 prósent af bréfum sínum í FL Group. Katrín hefur sem fyrrum stjórnarmaður í Glitni þurft að sitja vitnaleiðslur í máli Vilhjálms Bjarna- sonar gegn Glitni vegna kaupa bank- ans á hlutabréfum Bjarna Ármanns- sonar. Vilhjálmur taldi að þau hefðu verið keypt á yfirverði en stjórnin var sýknuð af þessum ásökunum í Hæstarétti. Eignarhaldsfélagið Hnotskurn sem er í eigu Katrínar Pétursdóttur, forstjóra Lýs- is, og Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar er á lokastigi við að ná samningum við skilanefnd Glitnis um uppgjör á skuldum félagsins. Helsta eignin voru hlutabréf í FL Group. Skuldirnar eru tólf sinnum hærri en eignir. SEMJA UM AFSKRIFTIR ANNAS SIGMUNDSSON blaðamaður skrifar: as@dv.is Tjáir sig ekki Katrín Péturs- dóttir, forstjóri Lýsis, vill ekki tjá sig um 2.800 milljóna króna skuldir félags í hennar eigu sem átti hlutabréf í FL Group. Skuldum vafinn Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, fjárhaldsmaður Guðbjargar Matthíasdóttur í Vesmannaeyjum, reið ekki feitum hesti frá því að skipta bréfum sínum í Tryggingamiðstöðinni fyrir bréf í FL Group. Gunnar I. Birgisson býður sig fram sem bæjarstjóri þrátt fyrir stöðu sakbornings: Bæjarstjóraefni enn undir grun Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogsbæjar, hefur enn stöðu sakbornings í rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra vegna alvarlegra lögbrota. Hin meintu brot áttu sér stað í bæj- arstjóratíð hans og snúa að óeðli- legum lánveitingum Lífeyrissjóðs Kópavogsbæjar til sveitarfélagsins. Gunnar sat þá bæði sem bæjarstjóri og stjórnarmaður í lífeyrissjóðnum. Þegar málið kom upp var það rannsakað hjá Fjármálaeftirlitinu. Vegna grunsemda um alvarlegt lög- brot var það síðar sent til efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra. Helgi Magnús Gunnarsson, saksókn- ari efnahagsbrota hjá embættinu, hefur verið með málið til rannsóknar frá því í fyrrasumar. „Rannsókninni miðar áfram en henni er ekki lokið. Við höfum verið að yfirheyra stjórn- armennina og þeir hafa allir stöðu sakborninga. Grunsemdir eru enn til staðar um alvarleg brot og þær beinast að stjórnendum og stjórnar- mönnum,“ segir Helgi Magnús. Gunnar býður sig fram sem bæj- arstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar sem fram undan eru. Þar ætlar hann sér aftur á toppinn. „Ég hef góðar væntingar til prófkjörsins, enda fengið góðar viðtökur. Ég sækist eftir því að verða aftur forystumaður flokksins,“ segir Gunnar. trausti@dv.is Grunaður um lögbrot Gunnar sat sem bæjarstjóri og stjórnarmaður lífeyrissjóðsins þegar meintar óeðlilegar lánveitingar fóru fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.