Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 10 STJÓRARsem lofuðu góðu en ... Fjölmargir efnilegir knattspyrnu- stjórar hafa stigið fram á sjónarsvið- ið á undanförnum árum. Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa náð frábærum árangri með liðum sínum í stuttan tíma. Þeir eru hins vegar allir þess vafasama heiðurs aðnjótandi að vera gleymdir flestum í dag. DV tók saman þá tíu eftirminnilegustu. einar@dv.is SRECKO KATANEC n Katanec var ungur að árum þegar hann gerði ótrúlega hluti með slóvenska landsliðið í kringum aldamótin. Slóvenar höfðu í raun ekki getað neitt áður en hann tók við en hann kom liðinu óvænt inn á Evrópumótið árið 2000. Tveimur árum síðar kom hann liðinu svo á HM í Suður-Kóreu þar sem allt fór í bál og brand. Honum og helstu stjörnu liðsins, Zlatko Zahovic, lenti saman og fór það svo að Zahovic var sendur heim eftir einn leik. Slóvenar töpuðu öllum leikjunum og urðu aðhlátursefni keppninnar. Eftir það hætti Katanec og tók við Olympiakos í Grikklandi. Þar gekk allt á afturfótunum og eftir aðeins þrjá mánuði við stjórnvölinn var hann látinn taka pokann sinn. Sömu sögu var að segja þegar hann tók við makedónska landsliðinu. Nú er Katanec við stjórnvölinn hjá landsliði Sameinuðu arabísku furstadæm- anna og er fyrir flestum gleymdur. RUDI VÖLLER n Það vakti athygli þegar Rudi Völler var ráðinn þjálfari þýska landsliðsins árið 2000. Hann var við stjórnvölinn þegar England burstaði Þjóðverja 5:1 í Þýskalandi en náði að gera frábæra hluti með liðið. Þýskir fjölmiðlar lýstu liði Völlers sem því versta í sögu þýskrar knattspyrnu en engu að síður kom hann liðinu í úrslitaleik HM árið 2002 þar sem liðið tapaði reyndar 2:0 fyrir Brasilíu. Eftir hörmulegt gengi á Evrópumótinu árið 2004 hætti hann sjálfviljugur og tók við Roma. Eftir einn mánuð í starfi hætti hann og sneri aftur til Þýskalands sem tæknilegur ráðgjafi hjá Bayer Leverkusen. JACQUES SANTINI n Santini var stjórinn sem gerði Lyon að því stórveldi sem það er í dag í franska boltanum og gerði liðið að frönskum meisturum árið 2002 . Svo fór að hann tók við franska landsliðinu eftir eftirminnilega slaka frammistöðu liðsins á HM 2002. Santini hélt áfram á sigurbraut og vann liðið undir hans stjórn alla átta leikina í undankeppni EM 2004. Á einhvern óskiljanlegan hátt ákvað Santini hins vegar að hætta með liðið fyrir mótið til að taka við miðlungsliði Tottenham. Stærri mistök hefur varla nokkur knattspyrnustjóri gert. Eftir þrettán leiki með Tottenham hætti Santini hjá félaginu og hvarf gjörsamlega af fótboltasviðinu. KLAUS TOPPMÖLLER n Það muna eflaust margir eftir Toppmöll- er sem gjarnan sást með brjálæðislega hárgreiðslu á hliðarlínunni hjá Bayer Leverkusen í byrjun aldar - ávallt með sígarettu í munnvikinu. Hann gerði frábæra hluti með Bayer Leverkusen um leið og hann tók við félaginu árið 2001. Enginn titill vannst á hans fyrsta tímabili en Leverkusen-liðið spilaði stórbrotinn sóknarbolta með menn á borð við Michael Ballack, Ze Roberto og Bernd Schneider innaborðs. Undir stjórn Toppmöller komst Leverkusen í úrslit Meistaradeildarinnar árið 2002 og úrslit þýska bikarsins sama ár. Báðum úrslitaleikjunum töpuðu þeir að vísu og enduðu í öðru sæti þýsku deildarinnar. Innan við ári eftir þetta frábæra gengi var Toppmöller látinn taka pokann sinn og síðan þá hefur hann aldrei fundið fjöl sína og lítið til hans spurst. HECTOR CUPER n Hver man ekki eftir stórbrotnu liði Valencia sem komst tvívegis í úrslitaleik Meistara- deildarinnar skömmu eftir aldamótin? Þá var Hector Cuper við stjórnvölinn og Gaizka Mendieta í liðinu. Raunar var Valencia ekki fyrsta liðið sem Hector Cuper sló í gegn með. Hann hafði áður gert frábæra hluti í sólinni á Mallorca og stýrði liðinu í þriðja sæti deildarinnar árið 1999. Eftir það tók hann við Valencia og gerði frábæra hluti. En gleðin tók enda þegar Cuper var ráðinn til Inter á Ítalíu sumarið 2001. Fyrsta tímabilið var reyndar ágætt og var Inter grátlega nálægt því að vinna deildina í fyrsta skipti í þrettán ár. Þeir töpuðu hins vegar 4–2 í síðasta leiknum gegn Lazio og hirti Juventus titilinn fyrir vikið. Sem kunnugt er var Brassinn Ronaldo í liðinu þá. Hann fór hins vegar til Real Madrid árið 2002 og sagði hann að deilur við Cuper hefðu ráðið úrslitum. Orðspor Cupers beið hnekki fyrir vikið og ári síðar var hann horfinn á braut. Hann fór á milli félaga eftir það: aftur til Mallorca, Real Betis og Parma en náði sama og engum árangri. Hann tók svo við landsliði Georgíu sem tapaði meðal annars fyrir Íslandi á haustmánuðum. Nú er Cuper, eins og Mendieta, nánast gleymdur en hann stjórnar núna liði Aris Thessaloniki í Grikklandi. RAYNALD DENOUEIX n Eftir að hafa spilað í fimmtán ár við góðan orðstír með franska félaginu Nantes kom að því að Denoueix fékk tækifæri til að sanna sig sem stjóri. Það gerðist einmitt hjá sama félagi árið 1997 þegar hann fékk það tækifæri að taka við af hinum goðsagnarkennda Coco Suadeau. Þrátt fyrir að hafa litla peninga milli handanna tókst Denoueix að byggja liðið upp á efnilegum leikmönnum. Sú uppbygging skilaði svo árangri árið 2001 þegar liðið vann frönsku deildina. Næsta tímabil á eftir var ekki jafngott. Liðið tapaði stigum gegn minni spámönnum og fór það svo að Denoueix var látinn taka pokann sinn. Denoueix fór þá til Spánar þar sem hann gerði frábæra hluti með Real Sociedad og var liðið nálægt því að vinna spænsku deildina árið 2003. En allt fór á sama veg og hjá Nantes. Liðinu gekk illa tímabilið þar á eftir og var Denoueix rekinn. Síðan þá virðist þessi eitt sinn efnilegi stjóri algjörlega hafa horfið af sjónarsviðinu og félögin Real Sociedad og Nantes, leika nú í neðri deildum Frakklands og Spánar. BERND KRAUSS n Austurríkismaðurinn Krauss var talinn með þeim efnilegri í bransanum á tíunda áratug liðinnar aldar. Hann gerði frábæra hluti með Borussia Mönchengladbach og vakti það athygli hversu skemmtilegan sóknarbolta lið undir hans stjórn spiluðu. Undir hans stjórn vann liðið bikarmeist- aratitilinn í Þýskalandi árið 1995 og endaði í fimmta sæti deildarinnar. Þaðan var ferðinni heitið til Spánar þar sem hann tók við Real Sociedad. Eftir ágætan tíma þar sneri hann aftur til Þýskalands árið 2000 til að taka við Dortmund. En aðeins tveimur mánuðum síðar var honum sagt upp eftir hörmulegt gengi. Krauss sneri aftur til Spánar, nú til að taka við eyjaskeggjunum í Mallorca. Þar tók ekkert betra við og hætti hann eftir eitt tímabil. Síðan þá hefur Krauss stjórnað lítt þekktum liðum um allan heim. Nú er hann við stjórnvölinn hjá miðlungsliðinu Schwadorf í Austurríki. DAVID O'LEARY n Stjórinn sem talinn var vera næsti Alex Ferguson. Stjórnaði Leeds á síðasta blóma- skeiði félagsins í kringum aldamótin og kom liðinu í fjórða sæti ensku deildarinnar á sínu fyrsta tímabili. Árið 2000 endaði Leeds í þriðja sæti deildarinnar og sama ár komst liðið í undanúrslit Evrópu- keppni félagsliða þar sem tap gegn Galatasaray var staðreynd. Næsta tímabil á eftir var þó enn betra því þá komst liðið áfram í Meistaradeildinni og unnu sinn riðil. Lærisveinar O'Leary slátruðu Deportivo á leið sinni í undanúrslitin þar sem þeir töpuðu fyrir Valencia. En í kjölfarið lenti Leeds í skuldafeni og þurfti að selja alla sína bestu menn. O'Leary var svo rekinn eftir hörmulegt gengi. Hann tók við Aston Villa og náði félaginu aldrei á flug. Síðan hann var rekinn, árið 2006, hefur O'Leary verið atvinnulaus. ALBERTO ZACCHERONI n Zaccheroni hóf ferilinn hjá Udinese þar sem hann gerði ágæta hluti. Hann tók svo við Milan eftir að Capello hætti með félagið. Undir stjórn Capello hafði Milan lent í tíunda sæti deildarinnar sem var engan veginn ásættanlegt. Zaccheroni var ekki lengi að snúa Milan-liðinu á rétta braut. Hann fékk til að mynda gömlu markamaskínuna Oliver Bierhoff til liðsins sem hjálpaði liðinu að vinna deildina á fyrsta tímabili Zaccheroni. En eftir þetta lá leiðin niður í ræsið. Hann var rekinn árið 2001 eftir slakt gengi Milan-liðsins og ákvað í kjölfarið að taka við Lazio. Þar lék hann stórt hlutverk í að rústa ferli Gaizka Mendieta og raunar einnig Stefano Fiore sem báðir náðu sér engan veginn á strik undir stjórn hans hjá Lazio. Eftir brottharfið þaðan dó Zaccheroni ekki ráðalaus og tók við Inter þar sem hann gerði ekkert og var rekinn. Eftir fjóra hörmungarmánuði hjá Torino árið 2004 hefur Zaccheroni verið atvinnulaus. JOHN GREGORY n Aston Villa var heitasta liðið í ensku deild- inni tímabilið 1998-99 undir stjórn Gregory. Þeir voru til að mynda á toppnum um langt skeið og spiluðu skemmtilegan og aðlaðandi sóknarbolta. Paul Merson, Dion Dublin og Julian Joachim voru stjörnurnar og allt gekk eins og í sögu. Margir töldu að John Gregory myndi taka við enska landsliðinu en þá kom martröðin. Aston Villa gekk illa tímabilið 2001 til 2002 og snemma árs 2002 var honum sagt upp. Hann tók við Derby County en tókst ekki að bjarga þeim frá falli í ensku deildinni.Eftir það tók hann við liði QPR þar sem allt gekk á afturfótunum. Nú er Gregory í Ísrael þar sem hann stjórnar smáliðinu Akhi frá Nasaret. Þeir eru nýliðar í deild þeirra bestu í Ísrael og í raun dæmdir til að falla aftur niður um deild.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.