Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 2
Björgunarfélag Árborgar gæti neyðst til þess að flytja út úr húsnæði sínu á Selfossi vegna gjaldþrots Björg- unarmiðstöðvar Selfoss. Ráðist var í byggingu Björgunarmiðstöðvarinn- ar fyrir nokkrum árum, en skömmu eftir bankahrunið stöðvuðust fram- kvæmdirnar. Upphaflega stóð til að auk björgunarsveitarinnar yrði slökkvistöð og miðstöð fyrir sjúkra- flutninga í húsinu, sem er sérhann- að fyrir slíka starfsemi. Gerðir voru samningar við þessa aðila um að leigja hluta hússins. Upp úr sam- starfinu slitnaði síðar. Framkvæmdir hafa verið stopp í um 18 mánuði, en Björgunarfé- lag Árborgar ákvað að flytja inn í hálfklárað húsnæðið. Í vikunni yf- irtók Íslandsbanki svo húsið vegna ógreiddra skulda og gæti Björgun- arfélagið lent á hrakhólum í kjölfar þess og þar með orðið óstarfhæft. Vilja kaupa húsið Björgunarfélagið vill kaupa þann hluta byggingarinnar sem það hef- ur notað síðustu misseri, en ljóst er að umtalsverða fjárhæð vantar upp á til þess að það sé hægt. Upphæð- in er talin vera á bilinu 20 til 30 millj- ónir króna. Áður en ráðist var í bygg- ingu Björgunarmiðstöðvarinnar átti félagið eigið húsnæði, sem ákveð- ið var að selja til þess að fjármagna framkvæmdirnar við Björgunarmið- stöðina. Ármann Ingi Sigurðsson, formað- ur Björgunarfélags Árborgar, segir að nú sé beðið eftir því að hefja samn- ingaviðræður við Íslandsbanka um framtíð byggingarinnar. Stofnað var sérstakt hlutafélag í kringum bygg- ingu hússins, sem varð gjaldþrota í haust. Björgunarfélagið á þess vegna ekki á hættu að fleiri eignir þess, svo sem farartæki og björgunarbúnaður, verði teknar upp í skuldir við lánar- drottna. Rekstur Björgunarfélagsins er sagður tryggur. Áður en Íslandsbanki yfirtók hús- ið höfðu iðnaðarmenn tekið niður vaska og klósett sem sett höfðu verið upp í húsinu, en ekki fengist borgað fyrir. Þrátt fyrir að húsið sé hálfklárað þá telur Ármann mjög mikilvægt að Björgunarfélagið verði áfram í hús- inu, enda er það sérhannað fyrir slíka starfsemi. „Við erum þar enn þá, en bankinn er búinn að taka hús- ið yfir. Einhvers staðar þurfum við að geyma öll tækin okkar og þetta er líka félagsaðstaða fyrir björgunarfé- lagið,“ segir Ármann og bætir við: „Ef við þurfum að yfirgefa húsnæðið, þá munum við gera það, en án húsnæð- is erum við ekki útkallsfær.“ Biðja ekki um meira en aðrir Á bilinu 400 til 500 manns eru á skrá hjá Björgunarfélagi Árborgar og þar af eru tæplega 50 virkir meðlimir. Björgunarfélagið gegnir mjög mik- ilvægu starfi á svæðinu og á síðast- liðnu ári fóru meðlimir þess í um 40 útköll. „Við erum tilbúin til að fara hvert sem er og hvenær sem er. Það sást um daginn þegar skjálftinn reið yfir á Haítí. Þá voru björgunarsveit- armenn farnir að undirbúa brottför þremur tímum eftir skjálftann,“ seg- ir hann. Ármann vonast til þess að mál- inu ljúki farsællega fyrir félagið. „Við erum ekki að bijða um að fá eitthvað annað en það sem aðrir hafa feng- ið. Við erum að biðja um aðstoð til að kaupa part af húsinu í því ástandi sem það er.“ Björgunarsveitin hefur þegar vak- ið athygli bæjarstjórnar Árborgar á vanda sínum, en málið er skammt á veg komið í bæjarstjórninni. Björgunarfélag Árborgar hefur misst nýtt, hálf- klárað húsnæði sitt í hendur Íslandsbanka vegna ógreiddra skulda. Félag sem stofnað var um byggingu Björgunarmiðstöðv- ar á Selfossi er farið í þrot og gæti Björgunarfélagið lent á hrak- hólum. Á bilinu 20 til 30 milljónir króna vantar upp á svo félagið geti keypt húsið. HITT MÁLIÐ ÞETTA HELST - ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Í VIKUNNI ICESAVE-MAÐUR Í GÓÐUM MÁLUM Núverandi yfirmaður Landsbankans í Lond- on, Baldvin Valtýsson, stýrði bankan- um einnig fyrir hrun. Hann var einn launa- hæsti banka- maður landsins meðan Landsbankinn bauð upp á Ice save. Baldvin vill ekki gefa upp hver laun hans eru en fullyrða má að þau nemi tugum milljóna á ári. Baldvin var útibússtjóri Landsbankans í London frá því í lok apríl 2007 og þar til íslenska bankakerfið féll haustið 2008. Hann var því yfirmaður bankans þar í landi á meðan boðið var upp á Icesave-reikningana. Byrjað var að bjóða upp á Icesave í Bretlandi í október 2006, um hálfu ári áður en Baldvin tók við útibússtjórastöðunni í Landsbank- anum í London af Lárusi Welding. Baldvin hélt svo áfram að leiða starfsemi hins fallna Landsbanka í London eftir hrunið. RÁÐGÁTAN Á TORTÓLA Engir lánasamningar eru til um 800 milljóna lánveitingar frá Samson til fjögurra félaga í skattaskjólinu Tortóla. Óvíst er hverjir eiga Tortólafélögin sem lánað var til en að minnsta kosti eitt þeirra hefur verið sagt eign Björgólfs Thors. Skiptastjóri þrotabús eignar- haldsfélagsins Samsonar, Helgi Birg- isson, rannsakar nú lánveitingarnar. Samson var eignarhaldsfélag Björgólfs Guðmundssonar, sonar hans Björgólfs Thors og Magnúsar Þorsteinssonar sem hélt utan um kjölfestuhlut þeirra í Landsbankanum á árunum 2003 til 2008. Þrotabúinu hefur gengið erfiðlega að fá upplýsingar um af- landsfélögin þrátt fyrir að búið sé að opinbera kröfurnar á hend- ur félögunum. Til að mynda hafa ekki fengist upplýsingar um það hverjir eiga félögin, þó líklega hafi þau verið í eigu Björgólfsfeðga sjálfra. ÞÚSUNDIR FARAST Á HAÍTÍ „Öll borgin er í myrkri. Það eru þúsundir sem sitja á götun- um og hafa í engin hús að venda. Fólk hleypur um, grætur og öskrar,“ sagði Rach- mani Domersant, aðgerðastjóri hjálpar- samtakanna Food for the Poor, um ástandið í höfuðborginni Port-au-Prince eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí. Jarðskjálfti upp á 7,3 á Richter reið yfir og lagði alla borgina nánast í rúst. „Fólk reynir að grafa ættingja sína úr rústum húsa með vasaljósum. Ég held að tala dauðsfalla hlaupi ekki á hundr- uðum, heldur þúsundum,“ sagði Domersant. Jarðskjálftinn hafði hræðilegar afleiðingar í för með sér fyrir íbúa einhvers fátækasta ríkis jarðar. Íbúar hafa mátt þola miklar hörmungar á undanförn- um árum, blóðuga uppreisn, matarskort og mikla fátækt. 2 3 1 MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 11. – 12. janúar 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 4. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395 LEYNDARHJÚPUR SAMSON: Áslaug Friðriksdóttir varaborgarfulltrúi: Í VIÐSKIPTUM VIÐ PABBA OG BORGINA LÖGGAN MEÐ VÆNDISKÚNNA Í SIGTINU KAUPÞINGSMAÐUR FYRIR BRESKUM DÓMI DV birtir vitnisburðinn KAUPÞINGSMAÐUR FYRIR BRESKUM DÓMI ÁSLAUG FRIÐRIKSDÓTTIR VARABORGARFULLTRÚI: Í VIÐSKIPTUM VIÐ PABBA OG BORGINA LÖGGAN MEÐ VÆNDISKÚNNA Í SIGTINU FRÉTTIR FRÉTTIR n ERLENDUM VÆNDISKONUM FJÖLGAR n DV BIRTIR VITNISBURÐ GUÐNA NÍELS AÐALSTEINSSONAR SENDU STÓRFÉ TIL TORTÓLA n GJALDÞROTA Á RÁNDÝRUM BENZ n SKIPTASTJÓRI LEITAR 790 MILLJÓNA n BÓKHALDI BJÖRGÓLFA ÁBÓTAVANT ALLTAF Í ÚRSLIT n MATTI FÓR ÁFRAM 2 MÁNUDAGUR 11. janúar 2010 FRÉTTIR Engir lánasamningar eru til um 800 milljóna lánveitingar frá Samson til fjögurra félaga í skattaskjólinu Tortólu. Óvíst er hverjir eiga Tortólufélögin sem lánað var til en að minnsta kosti eitt þeirra hefur verið sagt eign Björgólfs Thors. Þrotabú Sam- sonar hefur litlar upplýsingar fengið um félögin. Skiptastjóri þrotabús eignarhalds- félagsins Samsonar, Helgi Birgis- son, rannsakar nú hundraða millj- óna króna lánveitingar frá félaginu til fjögurra aflandsfélaga á Bresku Jóm- frúareyjum á árunum fyrir banka- hrunið. Um er að ræða fjórar lánveit- ingar til eignarhaldsfélaga sem heita Eldoris, Amber International, Opal Global Investments og Bentis Hold- ing upp á samtals um 800 milljónir króna. Samson var eignarhaldsfélag Björgólfs Guðmundssonar, sonar hans Björgólfs Thors og Magnús- ar Þorsteinssonar sem hélt utan um kjölfestuhlut þeirra í Landsbankan- um á árunum 2003 til 2008. Erfitt að fá upplýsingar Þrotabúinu hefur gengið erfiðlega að fá upplýsingar um aflandsfélög- in þrátt fyrir að búið sé að opinbera kröfurnar á hendur félögunum. Til að mynda hafa ekki fengist upplýs- ingar um það hverjir eiga félögin, þó líklega hafi þau verið í eigu Björgólfs- feðga sjálfra. Til að mynda greindi Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari RÚV í London, frá því í október síðastliðn- um að Björgólfur Thor hefði stofnað Amber International á sínum tíma. Ein af ástæðunum fyrir því af hverju erfiðlega gengur að fá upp- lýsingar um aflandsfélögin er sú að skráningargjöld hafa ekki verið greidd af einhverjum þeirra í lang- an tíma og starfsmenn félagaskrár á Tortólu vilja ekki gefa upplýsing- ar um félögin vegna þessa. Félögin virðast detta af skrá, líkt og þau séu ekki til, vegna þess að ekki hafa verið greidd af þeim opinber gjöld. Þrota- búið stendur því frammi fyrir því að þurfa að greiða skráningargjöld fé- laga á Tortólu til að komast yfir upp- lýsingar um þau. Hæsta lánið 580 milljónir Hæsta lánið af þessum fjórum er til Opal Global Investments en það nemur um 580 milljónum króna. Hin lánin eru lægri. Lánið til Eld- oris nam 85 milljónum króna, Amb- er fékk 45 milljónir króna að láni og Bentis Holding fékk 80 milljónir króna í lán. Upphæðirnar eru eignfærðar sem lán í bókhaldi Samsonar og því er ljóst að stjórnendur félagsins hafa litið á greiðslurnar sem slík jafnvel þó að engar nánari útskýringar sé að finna fyrir lánveitingunum. Engir útfylltir lánasamningar Engir útfylltir lánasamningar eru í búinu vegna lánanna, samkvæmt heimildum DV. Eingöngu hefur fundist einn lánasamningur vegna þessara lánveitinga. Þar er um að ræða samning vegna lánsins til Opal Global Investments. Sá lánasamn- ingur er hins vegar ekki undirritaður. Þetta er eitt stærsta vandamálið sem þrotabúið stendur frammi fyr- ir varðandi lánveitingarnar þar sem enn erfiðara er að rekja þær fyrir vik- ið. Einu gögnin um lánveitingarn- ar sem finna má í bókhaldi félags- ins eru millifærslubeiðnir þar sem stjórnendur Samsonar biðja um að tilteknar upphæðir verði millifærð- ar út af reikningum félagsins og yfir á reikninga aflandsfélaganna í gegn- um Landsbankann í Lúxemborg. Samkvæmt heimildum DV er bú- ist við því að þessar lánveitingar út úr Samson skýrist endanlega á næstu vikum, meðal annars það hverjir eiga félögin sem fengu lánað. Þrotabúið mun væntanlega fá upplýsingar um þessar lánveitingar frá fyrrverandi stjórnendum Samsonar, samkvæmt heimildum DV. Bókhaldið „snúið“ Þessi tíðindi af óreiðunni í bókhaldi Samsonar vegna þessara lánveit- inga til Tortólufélaganna stemma við fréttir sem áður hafa verið sagðar um uppgjörið á þrotabúi Samsonar. Svo virðist sem bókhaldi félagsins hafi verið verulega ábótavant í mörgum tilfellum. Þannig greindi DV frá því í júlí að þrotabúið hefði stefnt Björgólfi Guð- mundssyni fyrir að hafa notað rúm- ar 111 milljónir króna af fé Samsonar til að greiða eftirstöðvar 500 milljóna skuldabréfs sem var stofnframlag í minningarsjóð dóttur hans, Mar- grétar Björgólfsdóttur. Dóttir Björ- gólfs lést af slysförum langt fyrir ald- ur fram. Bókhaldsfærslan á þeirri greiðslu var sögð „snúin“ í tölvupósti frá Sig- þóri Sigmarssyni, stjórnarformanni Samsonar, til Ágústs H. Leósson- ar, framkvæmdastjóra Samsonar, í febrúar 2008 þar sem gefin eru fyrir- mæli um þessa millifærslu af reikn- ingum Samsonar: „Bókhaldið í kringum þetta er kannski dálítið snúið... Orðið hef- ur að samkomulagi að Samson ehf. greiði eftirstöðvar af skuldabréfi sem BG [Björgólfur Guðmundsson, innsk. blaðamanns] gaf uppruna- lega út sem stofnframlag í Minning- arsjóð Margrétar Björgólfsdóttur. Þetta er þriðja greiðslan af fimm. Þó að um sé að ræða skuldabréf gefið út af BG, þá hefði ég viljað líta svo á að þetta sé ekki greiðsla fyrir hönd BG heldur einfaldlega framlag í sjóðinn og gjaldfært sem slíkt. Það hlýtur að vera einhver flötur á því...“ Eins greindi DV frá því að 11 milljóna króna láni frá Samson til KR-sports hefði verið breytt í styrk skömmu fyrir bankahrunið árið 2008. Engir lánasamningar voru heldur til í búinu vegna þess láns, líkt og í tilfelli Tortólulánanna fjög- urra. INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Tortóla er eyja í Karabíska hafinu. Hún er stærsta og fjölmennasta eyjan af hinum svokölluðu Bresku Jóm- frúreyjum. Evrópubúar hófu ferðir þangað eftir árið 1493 þegar Kristófer Kólumbus hafði fundið eyjarnar. Á Tortóla búa um 25 þúsund manns. Tortóla varð gríð- arvinsælt skattaskjól eftir að Bresku Jómfrúreyjarnar tóku upp alþjóðleg fyrirtækjalög árið 1984. Samkvæmt greinaflokki Morgunblaðsins stofnuðu íslenskir aðilar mörg hundruð félög á Tortólaeyjum. 136 félög til heimilis á Tortólaeyjum fengu starfsleyfi á Íslandi á árunum 2000 til 2008. Hin félögin sem ekki eru skráð hérlendis voru stofnuð af dótturfélögum bankanna erlendis og var það oftast gert í Lúxemborg. Þar voru Kaupþing, Landsbankinn og Glitnir með úti- bú. Evrópska efnahagssvæðið tók til starfa árið 1994 en í því fólst hið svokallað fjórfrelsi en í því felst með- al annars frjálst flæði fjármagns. Frá árinu 1996 starf- rækti Kaupþing verðbréfasjóð í Lúxemborg og árið 1998 var verðbréfafyrirtækið Kaupthing Luxemborug S.A. stofnað. Ari Matthíasson leikari sagðist í Silfri Egils hafa ver- ið viðstaddur kynningu Kaupþings á vogunarsjóðn- um GIR Capital Investment árið 1999. Sjóðurinn var skráður á Caymaneyjum í mars árið 2000. Á fundin- um var viðstöddum tjáð að þeir myndu fá arðgreiðsl- ur tvisvar á ári og þær væri hægt að fá greiddar inn á reikninga hvar sem er í heiminum. Segja má að þetta hafi verið upphafið að því sem síðar varð venjan í ís- lensku viðskiptalífi. Ástæðan á þeim tíma var fyrst og fremst háir skattar á Íslandi. Á þeim tíma þurfti að borga 45 prósent skatt af söluhagnaði umfram 3,2 milljónir króna. Fjármagnstekjuskattur fór þó síðar í tíu prósent sem þó kom ekki í veg fyrir að menn stofn- uðu félög á Tortólaeyjum. Morgunblaðið sagði frá því að mun fleiri Tortóla- félög hafi verið stofnuð frá ágúst 2008 fram að banka- hruninu í október en áður. Á þessu þriggja mánaða Hundruð íslenskra félaga á Tortóla: Tortólaparadísin tímabili sóttu 14 félög um starfsleyfi á Íslandi. Kaup- þing, Landsbankinn og Glitnir voru skráðir umsjón- araðilar um 65 prósenta af þeim Tortólafélögum sem höfðu starfsleyfi á Íslandi. DV sagði frá því í maí í fyrra að Sigurður Valtýsson, forstjóri Exista, hefði fært all- an eignarhlut sinn í Exista til Yenvis Inc. á Tortóla 11. september 2008 nokkrum vikum fyrir bankahrunið. Fjögur félög sem skráð voru á Tortóla áttu nokkuð stóran hlut í Landsbankanum. Þessi félög keyptu bréf í Landsbankanum og geymdu þau þar til starfsmenn Landsbankans nýttu sér kauprétti á þeim. Kaupin voru oftast fjármögnuð af Kaupþingi eða Glitni en ekki Landsbankanum sjálfum. Vegna þessa fyrirkomu- lags hafa hlutabréfakaup starfsmanna Landsbankans ekki verið jafnmikið í umræðunni og hlutabréfakaup starfsmanna Kaupþings og Glitnis en þeir bankar lán- uðu sínum starfsmönnum beint. Þetta leiddi til þess að aðrir kaupendur á hlutabréfamarkaði gátu ekki gert sér grein fyrir því hverjir væru eigendur þessara fjög- urra Tortólafélaga sem áttu í Landsbankanum sem voru raunverulega í eigu starfsmanna bankans. as@dv.is RANNSAKAR MILLJÓNA LÁN BJÖRGÓLFA TIL TORTÓLA Danska blaðið Berlingske Tidende sagði frá því á föstudag að Björgólfur Thor Björgólfsson lifi enn lúx- uslífi í London á meðan Íslendingar berjist við Breta og Hollendinga um hvernig leysa eigi úr Icesave-deil- unni. Segir blaðið frá því að persónuleg skuld Björgólfs Thors við Landsbankann í Bretlandi nemi 260 milljón- um punda eða sem nemur 53 milljörðum króna mið- að við núverandi gengi. Íbúð hans í Notting Hill- hverfinu í London sé metinn á átta milljónir punda eða sem nemur 1.600 milljónum króna. Blaðið segir líka frá því að Íslendingar hafi orðið reiðir þegar þeir komust að því að Björgólfsfeðgar hafi fengið lán hjá Bún- aðarbankanum árið 2003 til að borga fyrir 30 prósent af hlut sínum í Landsbankan- um. Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, átti frum- kvæðið að því að fá lánið hjá Búnað- arbankanum. Var það notað til að borga 30 prósent hlut af þeim 11,2 milljörðum króna sem eignarhalds- félagið Samson greiddi fyrir 46 pró- senta hlut í Landsbankanum. Var lánið veitt á sömu kjörum og Lands- bankinn hafði lánað Eglu, sem var í eigu S-hópsins, til að kaupa Búnað- arbankann. as@dv.is Björgólfur Thor Björgólfsson í Berlingske Tidende: LIFIR LÚXUSLÍFI Í LONDON n Eignarhaldsfélagið Samson var úrskurðað gjaldþrota 12. nóvember 2008 og nema lýstar kröfur í búið tæpum hundrað milljörðum króna. Eignir félagsins eru hins vegar aðeins metnar á 2,3 milljarða króna. Stærsta eign Samsonar, kjölfestuhluturinn í Landsbankanum sem keyptur var af íslenska ríkinu í árslok 2002 fyrir rúma 11 milljarða króna, varð verðlaus þegar Fjármálaeftirlitið tók bankann yfir í október 2008. Félagið var stofnað gagngert til þess að fara með þennan eignarhluta. n Eigendur Samsonar voru þeir Björgólfur Guðmundsson, sonur hans Björgólfur Thor og Magnús Þorsteinsson. Samson FRÉTTIR 11. janúar 2010 MÁNU DAGUR 3 Bókhaldsóreiða Samsonar Þrotabú Samsonar rannsakar lánveitingar út úr félaginu til fjögurra félaga á Tortólu. Samson var stofnað árið 2002 til að halda utan um eignarhlut Björgólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar í Landsbankanum. Myndin af þremenningunum er tekin í Þjóðmenningarhúsinu árið 2002 í tengslum við kaup þeirra á bankanum. Björgólfur Guðmundsson keyr- ir enn um á 2007 árgerð af Benz-jeppa sem metinn er á um 12 milljónir króna þrátt fyr- ir 58 milljarða króna persónu- legt gjaldþrot. Sást hann síðast keyrandi um götur Reykjavík- ur á bílnum síðasta föstudag með bílnúmerið RE 001. Eins og kunnugt er úrskurðaði Hér- aðsdómur Reykjavíkur hann gjaldþrota síðasta sumar og var talað um stærsta persónu- lega gjaldþrot Íslandssögunnar. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 bar Björgólfur vitni hjá rann- sóknarnefnd Alþingis á föstu- daginn eftir að Stöð 2 hafði sagt frá því að hann hefði ekki verið yfirheyrður af nefndinni tveim- ur dögum áður. Björgólfur var sem kunnugt er stjórnarfor- maður Landsbankans. Hann hafði áður sent rannsóknar- nefndinni gögn um starfsemi Landsbankans. 58 milljarða ábyrgðir Persónulegar ábyrgðir Björgólfs Guðmundssonar við Lands- bankann og dótturfélög hans námu um 58 milljörðum króna. Stærstur hluti þessara ábyrgða er tilkominn vegna fjárfestinga- félagsins Grettis sem var stærsti hluthafinn í Eimskip og Ice- landic Group eða um 50 millj- arðar króna. Þess skal þó getið að upphaflega lánaði Lands- bankinn Gretti þegar félagið var í eigu Magnúsar Þorsteinsson- ar. Eftir að Björgólfur tók við fé- laginu Gretti gerðist hann per- sónulega ábyrgur til að treysta veð Landsbankans. Þegar íslenska útrásin var á hátindi sínum sumarið 2007 voru eigur Björgólfs Guðmunds- sonar metn- ar á 170 milljarða króna. Var hlutur hans í Landsbankanum met- inn á 90 milljarða króna, fjár- festingabankanum Straumi á 40 milljarða króna, Eimskipi á 19 milljarða króna, Icelandic Group á fjóra milljarða og hlut- ur í West Ham United á 15 millj- arða króna. Einnig átti félagið Árvakur sem átti Morgunblaðið áður en það varð gjaldþrota og líka Eddu/ Mál og menningu. Konan borgar Þegar Björgólfur fór í mál við Stöð 2 og Vísi vegna fréttaflutnings þeirra af meint- um millifærslum hans og ann- arra auðmanna á peningum yfir á erlenda bankareikninga borg- aði Þóra Hallgrímsson, eigin- kona hans, 1,4 milljónir króna í málskostnaðartryggingu fyrir hann. Hann gat ekki sjálfur lagt trygginguna fram vegna per- sónulegs gjaldþrots. Þau hjón- in búa enn í 440 fermetra glæsi- villu á Vesturbrún í Reykjavík þar sem Þóra hefur verið skráð- ur eigandi síðan 1994. Á 12 MILLJÓNA JEPPA Í boði Þóru Björgólfur Guðmundsson býr ásamt eiginkoni sinni Þóru Hall- grímsson í 440 fermetra húsi hennar á Vesturbrún í Reykjavík. Auk þess borgaði Þóra málskotstryggingu fyrir Björgólf þegar hann fór í mál við Stöð 2 og Vísi. Björgólfur Guðmundsson keyrir um götur Reykjavíkur á 12 milljóna króna Benz-jeppabifreið þrátt fyrir 58 milljarða króna persónulegt gjaldþrot. Björ- gólfur bar vitni fyrir rannsóknarnefnd Alþingis síðasta föstudag eftir að Stöð 2 hafði sagt frá því að hann hefði ekki verið yfirheyrður. ANNAS SIGMUNDSSON blaðamaður skrifar: as@dv.is Magnús Þorsteinsson varð fyrstur gjaldþrota: FLÚÐI TIL RÚSSLANDS Magnús Þorsteinsson var fyrsti íslenski útrásarvíkingurinn sem úrskurðaður var persónulega gjaldþrota eftir að efnahags- hrunið skall á haustið 2008. Héraðsdómur Norðurlands eystra kvað upp úrskurð þess efnis að bú hans yrði tekið til gjaldþrota- skipta vegna vanefnda við fjárfestingar- bankann Straum-Burðarás. Magnús skuldaði Straumi rúman millj- arð króna vegna sjálfsskuldarábyrgð- ar sem hann skrifaði upp á árið 2007. Straumur gerði ítrekaðar tilraunir til að fá skuldina greidda upp eftir að hún hafði gjaldfallið í byrjun september árið 2008, samkvæmt úrskurði héraðsdóms. Magnús taldi fyrir héraðsdómi að ekki væri hægt að taka bú hans til gjaldþrotaskipta hér á landi því lögheimili hans væri skráð í Rússlandi en ekki hér á landi. Magnús fór í mál við Stöð 2 og Vísi vegna fréttaflutn- ings þeirra af meintum millifærslum hans og annarra auðmanna á peningum yfir á er- lenda bankareikninga líkt og gamli félagi hans Björgólfur Guð- mundsson. Ekki er vitað hver borgaði málskostn- aðartryggingu hans. Magnús og Björgólfur gátu ekki lagt fram tryggingu sína þar sem þeir eru báðir persónulega gjaldþrota. as@dv.is 2 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 FRÉTTIR „Ef við þurfum að yfir- gefa húsnæðið, þá munum við gera það, en án húsnæðis erum við ekki útkallsfær.“ VALGEIR ÖRN RAGNARSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is NEYÐARKALL FRÁ BJÖRGUNARSVEIT Á hrakhólum Íslandsbanki hefur tekið yfir húsnæði Björgunarfélags Árborgar eftir að Björgunarmiðstöðin á Selfossi varð gjaldþrota. Ef félagið er án húsnæðis er það óútkallsfært. 20 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 FRÉTTIR „ÞETTA ER ÖNGÞVEITI“ Þann 12. janúar, klukkan 16.53 að staðartíma, reið jarðskjálfti, sem mældist 7 á Richter, yfir Haítí. Skjálft- inn var sá öflugasti sem þjóðin hefur upplifað í um 200 ár. Miðja skjálftans var rétt utan höfuðborgarinnar, Port- au-Prince, og fjöldi bygginga hrundi eða varð fyrir skemmdum, þeirra á meðal forsetahöllin, þinghús lands- ins og höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna. Mikið tjón varð víða í höfuðborg- inni þar sem hús hrundu til grunna og fjöldi fólks grófst í rústunum. For- sætisráðherra Haítí, Jean-Max Bell- erive, sagðist telja að yfir eitt hundr- að þúsund manns hefðu farist í hamförunum. Um 200 starfsmanna Sameinuðu þjóðanna er saknað og á fimmtudag var staðfest að sextán þeirra væru dánir. Samkvæmt fréttum er erki- biskup Port-au-Prince, Joseph Serge Miot, á meðal þeirra sem fórust, sem og yfirmaður Sameinuðu þjóðanna í Port-au-Prince. Samtökin Læknar án landamæra gátu ekki veitt aðstoð sem skyldi því þrjár hjálparmiðstöðvar þeirra biðu tjón í jarðskjálftanum og fjöldi slas- aðra Haíta var því án læknisaðstoðar. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is FRÉTTIR 15. janúar 2009 FÖSTUDAGUR 21 Þinghúsið er hrunið. Skattstofan er hrunin. Skólar hafa hrunið. Sjúkrahús hafa hrunið. Í mörgum skólum er fullt af látnu fólki. Sjúkra- húsin eru full af fólki. Þetta er stórkostleg eyðilegging. RENÉ PRÉVAL FORSETI HAÍTÍ Þetta er öngþveiti. Ég fór í fimm læknamið- stöðvar, þar á meðal stóran spítala, og flestar þeirra voru ekki starfhæfar. Flestar hafa skemmst og ég sá óhugnan- lega mörg lík. STEFANO ZANNINI YFIRMAÐUR LÆKNA ÁN LANDAMÆRA Öngþveiti og örvænting „Skólar hafa hrunið. Sjúkrahús hafa hrunið.“ Borg í rústum Illa byggð hús standast ekki náttúruöflin. OXYTARM Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30days& Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is. Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman -120 töflu skammtur - DETOX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.