Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Blaðsíða 8
SANDKORN 8 FÖSTUDAGUR 15. janúar 2009 FRÉTTIR Slitastjórn Glitnis hefur nú til athug- unar að rifta samningum við Karl Steingrímsson í Pelsinum sem á dög- unum seldi kínverska sendiráðinu fasteignina við Skúlagötu 51. Litið er svo á að veðhafar í fasteigninni; Glitn- ir, Íslandsbanki og Arion banki, hafi verið blekktir í söluferlinu og félag í eigu Karls hafi ætlað að skjóta undan hundruðum milljóna króna. Eignin er veðsett framangreind- um bönkum og þrotabúi Glitnis fyrir hátt í einn milljarð króna samkvæmt heimildum DV eða langt umfram það söluverð sem Karl og félag í hans eigu kynntu veðhöfum í desember síðast- liðnum. Steinunn Guðbjartsdóttir hjá slitastjórn Glitnis segir að verið sé að skoða málshöfðun á hendur Karli og syni hans. Samkvæmt heimildum DV eru líkur til þess að bankarnir kæri feðgana fyrir tilraunir til að hafa af þeim fé og líkur eru til þess að málið verði meðhöndlað sem lögreglumál. Brynjar Níelsson lögfræðingur hefur verið fenginn til þess að fara með mál- ið fyrir Glitni. Kauptilboð frá Indverjum Málavextir eru þeir að 14. desember síðastliðinn undirritaði Aron Karls- son, sonur Karls Steingrímssonar, fyr- ir hönd félagsins 2007 ehf tilboð Auro Investment Partners í Bandaríkjun- um um kaup á 4.200 fermetra fast- eign við Skúlagötu 51 þar sem áður var Sjóklæðagerðin. Auro Investment er í eigu Indverja sem hafa nokk- ur tengsl við landið og höfðu fengið augastað á byggingunni, hugsanlega fyrir hótelrekstur. Húsið er uppgert og sem stendur er það innréttað sem skrifstofubygging eða annað atvinnu- húsnæði á fjórum hæðum með bíla- geymslu og kjallara. Umsamið kaup- verð var 575 milljónir króna. Veðsett bönkunum upp úr rjáfri Í yfirlýsingu frá 21. desember hétu Ari- on banki, Íslandsbanki og Glitnir að aflétta öllum veðum af byggingunni þegar kaupverðið, 575 milljónir króna, hefði verið greitt inn á reikning í Arion banka í eigu Vindasúlna ehf. Vegna yfirveðsetningar fasteignarinnar var umræddur reikningur handveðsettur Arion banka og um samið að bönk- unum væri heimilt að skipta söluand- virðinu milli sín í hlutfalli við kröfur. Þannig átti Arion banki að fá 239 millj- ónir króna upp í kröfur sínar, Íslands- banki 155 milljónir króna og Glitnir banki liðlega 180 milljónir króna. Yfirlýsing bankanna um þessi skipti gilti til 31. desember síðastlið- ins samkvæmt gögnum sem DV hefur undir höndum. Athuga ber að bank- arnir voru á þessum tíma í góðri trú um að viðskiptin færu fram milli 2007 ehf, félags Karls Steingrímssonar og Arons sonar hans, annars vegar og Auro Investment Partners hins vegar. Bankarnir voru með sölunni reiðubúnir að fallast á um- samið verð og afskrifa nokkur hundruð millj- ónir króna. DV hefur heimildir fyrir því að fast- eignin hafi ver- ið veðsett bönk- unum fyrir um 900 milljónir króna. Eignin flutt milli einka- hlutafélaga feðganna Meðan þessu vatt fram í desember síð- astliðnum seldu Karl og Aron sjálf- um sér eignina með því að flytja hana úr Vindasúlum efh yfir í annað félag í þeirra eigu undir nafninu 2007 ehf. Þetta félag keyptu feðgarnir nýverið, en upphaflegur tilgangur þess var út- flutningur notaðra ökutækja og annar skyldur rekstur. Flutningur Skúlagötu 51 inn í 2007 ehf var réttlættur þannig að fasteignin yrði að vera í félagi sem laust væri undan öðrum kröfum sem kynnu að vera gerðar á Vindasúlur ehf. Gögn sem DV hefur aðgang að sýna að Vindasúlur afsöluðu eigninni við Skúlagötu 51 til 2007 ehf þann 14. desember, sama dag og kauptilboð 2007 ehf og Auro Invest- ment Partn- ers var sam- þykkt með vitund veð- hafanna. Léku tveimur skjöldum Samhliða þessum við- skiptum seldu Karl og Aron kínverska sendiráðinu bygg- inguna fyrir 7 milljónir dollara, jafn- virði 870 milljóna króna. Mismunur á því og söluverðinu sem bankarn- ir unnu með er rétt um 300 milljónir króna. Þannig hafa bankarnir efni til þess að ætla að seljendurnir, Karl og Aron, hafi vísvitandi ætlað að svíkja bankana um mismuninn eða 300 milljónir króna. Um þetta vitnar kaupsamning- ur 2007 ehf við kínverska sendiráðið frá 17. desember síðastliðnum. Undir hann ritar Aron Karlsson og H.E. Su Ge sendiherra Kína á Íslandi. Samn- ingnum var þinglýst 7. janúar síðast- liðinn, fyrir liðlega viku. Sama dag og Karl og Aron gerðu samninginn við kínverska sendiráð- ið barst ríkisskattstjóra tilkynning um breytingu á stjórn og prókúru í félag- inu 2007 ehf þar sem feðgarnir Karl og Aron setjast einir í stjórn og gerast pró- kúruhafar félagsins. Stefnir í málaferli Halda verður til haga að í uppruna- legum kaupsamn- ingi indverska fé- lagsins og 2007 ehf var sá fyrirvari sam- þykktur að kröfu feðganna Karls og Arons að þeir gætu rift samningnum bótalaust og áður en greiðsla hefði borist sæju þeir einhverja meinbugi á því að fullnægja skyldum samningsins með einhverjum hætti. Var þeim í sjálfsvald sett að rifta samn- ingnum ef þeir teldu það þjóna hags- munum sínum. Þetta urðu þeir þó að gera með einföldum tölvupósti til full- trúa kaupendanna, Auro Investment Partners. Að því uppfylltu var þeim heimilt að ráðstafa eigninni við Skúla- götu 51 að vild. Feðgarnir tilkynntu Auro Invest- ment Partners aldrei neitt í tölvupósti samkvæmt heimildum DV. Ekki held- ur upplýstu þeir bankana – veðhaf- ana – um að 575 milljóna króna sölu- samningurinn væri úr gildi en nýr 870 milljóna króna samningur hefði verið gerður við kínverska sendiráðið. Þannig voru bankarnir í góðri trú fram yfir áramót þegar upplýst var að Skúlagata 51 væri komin í eigu kín- verska sendiráðsins. Þessu kunna tals- menn slitastjórnar Glitnis og bank- anna illa og því stefnir í málaferli gegn Karli og Aroni. Karl Steingrímsson og Aron sonur hans seldu kínverska sendiráðinu Skúlagötu 51 fyr- ir 870 milljónir króna á sama tíma og bönkum, sem eiga veð í húseigninni, var kynnt 575 milljóna króna tilboð frá indversku félagi. Húseignin er yfirveðsett Íslandsbanka, Arion banka og þrotabúi Glitnis og íhuga bankarnir málshöfðun gegn feðgunum. HÓTA KARLI Í PELS- INUM MÁLAFERLUM Ekki heldur upplýstu þeir bankana – veðhaf- ana – um að 575 millj- óna króna sölusamn- ingurinn væri úr gildi en nýr 870 milljóna króna samningur hefði ver- ið gerður við kínverska sendiráðið. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Skúlagata 51 Húsið er samtals um 4.200 fermetrar og er nú í eigu kínverska sendi- ráðsins. Það er yfirveðsett bönkunum sem krefja seljandann um kínverska peninga. Karl Steingrímsson og Ester Ólafsdóttir Karl og Aron, sonur þeirra hjóna, kynntu bönkunum 575 milljóna króna söluverð en seldu í raun kínverska sendiráðinu á 870 milljónir króna. Yfirlýsing bankanna Skúlagata 51 er yfirveðsett bönkunum. Þeir ætluðu að samþykkja 575 milljóna króna samning og létta öllum veðum af húseigninni, afskrifa hundruð milljóna með öðrum orðum. Kaupsamningur Kaupsamningur 2007 ehf og kínverska sendiráðsins var undirritaður af Aroni Karlssyni og H.E. Su Ge sendiherra Kína 17. desember síðastliðinn. n Hrannar B. Arnarsson, að- stoðarmaður Jóhönnu Sigurð- ardóttur, er kominn í vörn fyrir skrif sín á Facebook og skrifaði þar nýlega að hann hugsaði þetta eins og hvert annað rabb við eld- húsborðið, þó vinirn- ir sem sæju skrif hans væru á átj- ánda hundr- að. Hrann- ar hefur oft vakið athygli með skrifum sínum og hefur verið ólatur við að vekja athygli á málflutningi þeirra sem hafa tekið undir með ríkisstjórninni og eins við að gagnrýna þá sem hafa farið hörðum orðum um stefnu og gjörðir ríkisstjórnarinnar. Hafa sumir reyndar haft á orði að þeir sem sækja vildu línuna til Jóhönnu fengju hana skýrasta í Facebook-færslum Hrannars. n Stuðningsmenn KR eru sumir hverjir orðnir hálfuggandi fyr- ir átök næsta sumars. Félagið er nú næsta markvarðalaust í meistara- flokki og ekki bætir úr skák að Björgólfur Takefusa, langmarka- hæsti leik- maður liðs- ins í fyrra, er hugsanlega á leið til Þýskalands í atvinnumennsku. Að auki hafa nokkrir leikmenn af yngri kynslóðinni farið til útlanda til reynslu að undanförnu. Og þó KR-ingar hafi fengið marga góða leikmenn til sín síðustu ár og náð öðru sæti í úrvalsdeild síðasta sumar ku einhverjir hafa áhyggjur af lærisveinum Loga Ólafssonar. En stundum hefur verið sagt að veturinn sé ein- mitt tími ótímabærra áhyggna og óraunhæfra drauma. n Litskrúðugur aðalfundur Týs, félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, hefur meiri þýðingu en bara þá að kjósa hverjir eru þar í stjórn. Áskorendurnir, sem töpuðu atlögu sinni að sitjandi stjórn, þykja hallir undir fram- boð Ármanns Kr. Ólafssonar sem hefur nú boðið sig fram gegn Gunnari I. Birgissyni í prófkjöri sjálfstæðismanna. Mikið var smalað fyrir fundinn og höfðu sitjandi stjórnarliðar, sem hallast frekar að Gunnari og njóta enn fremur stuðnings hans, sigur að lokum. Gæti það gagnast honum þegar í próf- kjörið er komið. n Umfjöllun hægrivefjarins AMX um aðalfund ungsjálf- stæðisfélagsins Týs í Kópavogi vekur athygli, ekki aðeins fyrir það sem þar stendur held- ur einnig fyrir það sem kemur ekki fram. Þar eru taldir upp nokkrir úr Deigluarmi Sjálfstæð- isflokksins sem fluttu lögheimili úr Reykjavík í Kópavog til að styðja Pétur Magn- ús Birgis- son og samherja gegn sitjandi stjórn. Það sem vantar hins veg- ar alveg er að ýmsir stuðnings- menn sitjandi stjórnar gerðu slíkt hið sama, þar á meðal þeir sem stundum hafa verið upp- nefndir „flugræningjarnir“ eftir SUS-kjör á Ísafirði. Þykir AMX, undir ritstjórn Óla Björns Kára- sonar, varaþingmanns Sjálf- stæðisflokksins í Kraganum, þó hafa góðar tengingar inn í Sjálf- stæðisflokkinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.