Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Qupperneq 6
SANDKORN n Egill Helgason eykur senni- lega ekkert vinsældir sínar með- al sumra sjálfstæðismanna með pistli sem hann ritar í síðasta tölublað Reykjavík Grapevine. Egill, sem hefur sem kunnugt er verið harðlega gagnrýnd- ur af ýmsum hægrimönn- um fyrir mál- flutning sinn, fjallar þar um búsáhalda- byltinguna. Hann rifjar upp hvern- ig mál þróuðust í janúar í fyrra og segir það hafa verið til marks um hversu illa stjórn Geirs H. Haarde var í takt við þjóðina að meðal fyrstu mála á dag- skrá þingsins var frumvarp um breytingu á áfengislögum sem Sigurður Kári Kristjánsson var fyrsti flutningsmaður að, eða eins og Egill lýsir honum: „A young and rather silly politician of Haarde’s party.“ n Í pistli sínum í Reykjavík Grapevine, þar sem hann gerir upp síðasta ár, rifjast upp fyrir Agli Helgasyni hvað T.E. Law- rence ritaði á fyrstu síðum bókar sinnar The Seven Pill- ars of Wisdom. Þar minnt- ist Lawrence hvernig fór fyrir byltingu hans í eyðimörk Arabíu á tím- um síðari heimsstyrjaldar (sem varð fræg í myndinni Lawrence of Arabia). Lawrence rifjar þar upp hvernig gömlu valdastétt- irnar komu aftur eftir bylting- una og komu sér vel fyrir. Sama hafi gerst hérna. Fljótlega eftir búsáhaldabyltinguna hafi hún fjarað út og stjórn landsins farið í sama far og áður. n Innan Facebook hafa verið stofnaðir hópar um allt milli himins og jarðar. Þeirra á með- al er hópurinn „Við viljum fá Prúðuleikarana aftur í sjónvarp- ið“ sem hefur safnað á ann- að þúsund meðlimum. Forsprakki hópsins sendi innkaupa- deild Sjón- varpsins póst á dögunum þar sem hann kom beiðni hópsins á framfæri og óskaði eftir viðbrögðum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og svaraði Guðmundur Ingi Kristjánsson því til að þetta yrði skoðað með jákvæðum huga. Svo er bara að bíða og sjá hvort meðlimum hópsins verði að ósk sinni. 6 FÖSTUDAGUR 22. janúar 2010 FRÉTTIR Eigendur World Class greiddu starfsfólki hundrað þúsund krónur í jólabónus. Öll- um nema starfsfólki veitingasölunnar, Lauga Café, og heilsuræktarinnar, Lauga Spa, sem reknar eru undir annarri kennitölu. BARA SUMIR FENGU BÓNUS HJÁ WORLD CLASS Björn Leifsson og Hafdís Jónsdótt- ir, eigendur World Class á Íslandi, eru sökuð um að mismuna starfs- fólki sínu þar sem hluta starfsmanna hafi verið greiddur út jólabónus. Allir nema starfsfólk veitingasölunnar og heilsuræktarinnar fengu myndarleg- an bónus. Eigendur World Class greiddu starfsfólki sínu hundrað þúsund krónur í bónus fyrir síðustu jól. Bón- usinn var greiddur í samræmi við starfshlutfall þannig að fyrir fullt starf fengust hundrað þúsund krón- ur. Allt starfsfólk líkamsræktarstöðv- arinnar hlaut bónusinn en það fékk starfsfólk veitingasölu World Class, Lauga Café, og heilsuræktar World Class, Lauga Spa, ekki. Veitingasal- an og heilsuræktin eru undir annarri kennitölu en líkamsræktin. Ekki sama kennitalan Einn hinna óánægðu starfsmanna, sem starfs síns vegna vill ekki láta nafns síns getið, segir eigendur fyr- irtækisins mismuna starfsfólki sínu gróflega þar sem öllum nema starfsmönnum veitingasölunnar og heilsuræktarinnar hafi verið greidd- ar hundrað þúsund krónur í bónus fyrir jólin. Annar starfsmaður skilur ekkert í því hvers vegna svona hafi verið staðið að málum og bendir á að yfirmaður veitingasölunnar hafi kvartað formlega við eigendurna. Þar hafi fengist þær skýringar að um mis- munandi rekstrarfélög væri að ræða og þau gengju misvel. Þess vegna hefði aðeins starfsfólk líkamsrækt- arstöðvarinnar fengið bónus. Starfs- maðurinn segir Björn þó hafa svarað því til að starfsfólkinu yrði bætt þetta upp með þeim hætti að fyrirtækið kæmi til með að gera því glaðan dag við tækifæri. Skilur óánægjuna Elías Magnússon, sviðsstjóri kjarasviðs Verslunarmannafé- lags Reykjavíkur, segir eigend- ur í fullum rétti að ákveða hvaða bónusar séu greidd- ir hjá fyrirtækinu. Hann skilur engu að síður vel óánægju þeirra sem ekki hlutu bónus. „Eigendurnir geta stýrt þessu algjörlega sjálfir og allir svona bónusar eru fínir. Ef þetta er ekki á sömu kennitölunni getur reksturinn gengið misjafnlega en ég væri sjálf- ur líklega ekki sáttur væri ég í þeirra sporum. Á meðan líkamsræktin gengur kannski vel getur veitinga- salan gengið síður og það getur hafa ráðið þessum bónusum,“ segir Elías. „Um leið og ég skil þau rök skil ég vel óánægju starfsmannanna. Ákvörðunin liggur hins vegar hjá eig- endum hverrar kennitölu fyrir sig en til að koma í veg fyrir óánægju hefði vissulega verið hægt að borga frekar yfir línuna.“ Bónusar og nýjar stöðvar Hinn myndarlegi bónus fyrir jól- in gefur til kynna að rekstur líkams- ræktarstöðva World Class gangi vel. Þannig sé verið að þakka starfsfólki fyrirtækisins fyrir vel unnin störf. Fyr- irhugað er að opna tvær nýjar World Class-stöðvar á árinu og er fyrirtækið byrjað að auglýsa þær opnanir. Um er að ræða nýjar stöðvar í Kringlunni í Reykjavík og Ögurhvarfi í Kópavogi. Á sama tíma standa eigendurnir í deilum við Straum fjárfestingabanka vegna hárra skulda eftir misheppnað útrásarævintýri í Danmörku. Bank- inn hefur hótað málshöfðun og það hefur Björn líka gert en hann sakar Straum um að hafa veitt sér ævin- týralega lélega ráðgjöf í kringum æv- intýrið. Í samtali við DV á síðastliðnu ári lýsti Björn því yfir að sjálfur kynni hann að lenda í gjaldþroti en það ætti ekki að hafa áhrif á rekstur World Class á Íslandi. Reksturinn er nú kominn undir aðra kennitölu. Þrátt fyrir tilraunir fengust hvorki viðbrögð frá Birni né Hafdísi við vinnslu fréttarinnar. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Ákvörðunin ligg-ur hins vegar hjá eigendum hverrar kennitölu fyrir sig en til að koma í veg fyrir óánægju hefði vissulega verið hægt að borga frekar yfir línuna. Flottur bónus Starfsmenn World Class fengu 100 þúsund króna jóla- bónus frá eigendum fyrirtækisins. Gengur vel Rekstur líkams- ræktarstöðvar World Class virðist ganga vel sé horft til myndarlegs bónuss sem starfsfólk fékk um jólin. Aðstoðarrektor Háskóla Íslands ver ráðningu Ástu Möller, fyrrverandi þingkonu: Faglega staðið að ráðningunni Jón Atli Benediktsson, aðstoðar- rektor Háskóla Íslands, er hissa á gagnrýni háskólakennara á ráðn- ingu Ástu Möller, fyrrverandi þingkonu, í starf forstöðumanns Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við skólann. Hann tel- ur ráðninguna faglega og samrým- ast fyllilega lögum og reglum há- skólans. Ráðning Ástu hefur komið af stað deilum á innanhússpóstvef skólans. Háskólakennarar gagn- rýna ráðninguna og segja það áhyggjuefni hversu lágar kröfur eru gerðar við ráðningu forstöðu- manna rannsóknarstofnana há- skólans. Hún var þingmaður og varaþingmaður fyrir Sjálfstæðis- flokkinn í áratug og tengsl hennar við stjórnmálin eru meðal þeirra þrætuefna sem kennarar HÍ kasta fram ásamt því að hún hafi tak- markaða rannsóknareynslu á sviði stofnunarinnar. Jón Atli bendir á að rektor hafi ekki ráðið Ástu í starfið heldur stjórnmáladeild skólans en tel- ur mikilvægt að horft sé til hvers lags starfsemi fer fram á viðkom- andi stofnun. „Í háskólalögunum er gerð krafa um meistarapróf að lágmarki og við fylgjum íslenskum lögum. Varðandi forstöðumenn er yfirleitt ekki gerð ríkari krafa þó að við stefnum almennt að því að um- sækjendur hafi doktorspróf. Síðan þarf að skoða hvert tilvik fyrir sig og meta hvort viðkomandi stofnun sé í eðli sínu rannsóknarstofnun,“ segir Jón Atli. „Ég held að við verðum að gæta þess að ganga ekki of langt í um- ræðunni því fólk verður að kynna sér betur um hvað þetta starf er. Séu kröfurnar fyrir starfið skoðað- ar er ég viss um það að mjög fag- lega hafi verið staðið að þessu hjá stjórnmáladeildinni. Í þessu til- viki, miðað við það sem ég veit, var ég hissa á gagnrýninni.“ trausti@dv.is Uppfyllti skilyrði Aðstoð- arrektor HÍ segir skólann fara að lögum við ráðningar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.