Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Blaðsíða 27
HELGARVIÐTAL 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 27
ista sem er bestur á sínu sviði og við
sköpum eitthvað saman. Ég fæ kjóla
og svoleiðis frítt frá hönnuðum en
fæ það oftast bara lánað þar sem ég
get aldrei verið í sama dressinu tvisv-
ar. Mér finnst mjög gaman að geta
stutt íslenska hönnun, enda eigum
við marga sterka og upprennandi
hönnuði og íslenskar fatalínur eins
og Gyðju, E-label, Hörpu Einars-
dóttur, M-design, Birnu og fleiri. Það
er erfitt fyrir alla listamenn, sama
í hvaða geira það er, að koma sér
áfram fyrst svo það er gaman að geta
komið fram í íslenskri hönnun og
látið ljósmynda hana.“
Finnurðu fyrir kröfu um að þú kynnir
land og þjóð?
„Alls ekki. Það hefur kannski
aldrei þurft að krefjast þess af mér. Ég
tala mikið um mitt land og mína þjóð
því sama hvar ég bý í heiminum er
Ísland svo stór hluti af mínum frum-
eindum. Svo eru fjölmiðlar mjög
forvitnir að heyra um þetta fjarlæga
land sem á mynd virðist næstum til-
heyra annarri plánetu.“
Hefur þú orðið „starstruck“?
„Það kemur alveg fyrir að ég hitti
fólk sem ég dáist mikið að. Þá verð ég
eiginlega bara spennt og fer að pæla
í hvernig ég geti þvingað tiltekna
manneskju til að vinna með mér. Ég
hitti til dæmis Terrence Howard fyr-
ir tæpu ári, við urðum nánir vinir og
núna erum við að vinna að þróun
tveggja verkefna saman.“
Ertu farin að geta valið og hafnað
hlutverkum?
„Ég tek alls ekki hvað sem er. Vil
frekar taka smá tíma og finna eitt-
hvað sem kveikir í mér en að gera
það sem ég er bara volg yfir eða verð-
ur til þess að ég fari skref aftur á bak.“
Eru papparassarnir byrjaðir að elta
þig?
„Þeir gera það stundum. Aðallega
á kvöldin ef ég fer út að skemmta
mér. Ekkert til ama.“
Hvernig heldurðu þér við jörðina?
„Uppeldið heldur mér við jörðina.
Svo yrði amma Ella svo vonsvikin ef
ég breyttist í hræðilega manneskju.“
Hverju þakkar þú velgengnina?
„Nægu viti til að fara í góðan
skóla, skilningi til að geta aðlag-
ast þegar þörf er á, svo sannarlega
heppni að hitta stundum rétta fólkið
sem sér eitthvað sérstakt í mér, Pétri
frænda sem ég er alveg viss um að
er að hjálpa mér þarna uppi, jafn-
aðargeðinu til að meiða ekki fólk
sem kemur illa fram við mig, ábyggi-
lega ekki réttlætiskenndinni því hún
þvælist oft bara fyrir en ég treysti á
það að hún komi mér inn fyrir hliðið
þegar sá tími kemur, þrjóskunni sem
leyfir mér aldrei að hætta, mömmu
og fjölskyldunni minni sem dæma
mig aldrei og hafa að geyma óend-
anlegan brunn af ást og stuðningi,
forréttindunum að fá að vinna með
stórglæsilegu fólki sem kveikir í mér
og auðvitað Dean mínum.“
Einhvers staðar talaðir þú um að það
hve lágvaxin þú ert væri þitt vopn?
Eru allir litlir í Hollywood?
„Já, Al Pacino er svo lítill að hann
var lengi kallaður The Midget. Það
var áður en hann fékk The Godfath-
er. Nú er hann bara kallaður Al. Eða
Mr. Pacino. Ég hef hlotið viðurnefn-
ið The Little Viking. Ætli það sé ekki
tengt vopnaáráttu minni…. og hvað
ég er smá…. “
Fannst þér ekki flottir kjólarnir í The
Tudors?
„Kjólarnir drógu mig næstum til
dauða. Konurnar á þessum tíma hafa
verið mikið fyrir svona masókisma.“
Draumarnir
SMÁM SAMANrætast
Anita Briem live í
Preservation Hall
Dean leikstýrði tónlistar-
myndbandi Anítu með
Preservation Hall Band.
MYND DEAN PARASKEVOPOULOS
Anita og Katrín Briem Anita
ásamt yngri systur sinni.
MYND DEAN PARASKEVOPOULOS
Quentin er vinur okkar og
það er gaman að koma
til hans þótt það séu
oft ansi langar næt-
ur. Annars finnst okk-
ur eiginlega skemmti-
legast að fara á litla
holubari sem enginn
veit af.
Fíngerð
Anita hefur hlotið
viðurnefnið The
Little Viking.