Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 17
meira. Árið 2012 verða til dæmis Ól-
ympíuleikarnir haldnir hér í London.
Í tengslum við þá má búast við aukn-
um umsvifum í verslun og vonandi
hafa fjármálamarkaðir opnast það
mikið þá að menn geti fjármagnað
kaup. Ef menn eiga greiða leið til fjár-
mögnunar þýðir það yfirleitt hærra
verð fyrir seljandann. Á meðan við
bíðum þá erum við í nánu sambandi
við stjórnendum þessara fyrirtækja
og fylgjumst vel með rekstrinum.
Heima á Íslandi verða menn ekki
varir við ýmislegt sem gengur á í
stórviðskiptum. Það er fjöldi kaup-
sýslumanna sem fæst við að leita
uppi eignir sem þeir reyna að kaupa
á lágu verði, nýta sér að þær aðstæð-
ur þegar fyrirtæki þurfa nauðsyn-
lega á fjármagni að halda. Þeir gera
oft góð kaup. Við höfum sem betur
fer ekki þurft að selja lánin okkar eða
hluti í fyrirtækjunum þvingaðri sölu.“
88 prósenta heimtur,
kannski meiri
Einn stærsti kröfuhafinn í þrotabú
Landsbankans gamla er og verður
Tryggingarsjóður innstæðueigenda
sem ætlunin er að geri á endanum
upp við Breta og Hollendinga vegna
hluta Icesaves-kuldbindinganna.
TIF, eins og sjóðurinn er skammstaf-
aður, verður þá í hópi forgangskröfu-
hafa.
„Þeir sem hafa þennan forgang
gera kröfur sem nema 1.400 millj-
örðum króna í Landsbanka Íslands
hf. Þegar gengið hefur verið frá
Icesave-samningum verður íslenska
ríkið ábyrgt fyrir um helmingi þess-
ara krafna eða sem nemur 700 millj-
örðum króna og það gleymist oft að
eignir Landsbankans standa á móti
þessum kröfum. Haldnir eru reglu-
legir fundir með kröfuhöfum um
þessi mál í Skilanefndinni. Áætlan-
ir nú gera ráð fyrir að heimtur upp
í ofangreindar kröfur verði um 88
prósent. Þessi tala getur rokkað eitt-
hvað upp og niður með gengissveifl-
um. Áætlunin ætti engu að síður að
vera raunhæf. Við áætlum verðmæti
eins og það er nú með því að miða
við að eignir séu ekki seldar held-
ur almennt séð séu lán innheimt á
gjalddaga. Þó er ljóst að stór hluti
eigna er líka háður sölu og við betri
skilyrði gætu heimtur orðið meiri ef
vel gengur í framtíðinni.“
Laun um eða undir
gangverði í London
Baldvin gat þess, að þegar allt lék
í lyndi hefðu starfsmenn í útibúi
Landsbankans í London verið 193.
Þeir eru nú 64. Hann áætlar að
starfsmannaþörfin í lok ársins verði
45 til 50 manns. Úr þessu greiðist
með tímanum.
En vill Baldvin svara því hvað
hann hefur í laun á mánuði?
„Ég vil halda því fyrir mig. Það er
stefnan hjá okkur að gefa ekki upp
launin. Það hefur með samanburð
að gera milli starfsmanna. En ég get
sagt að ég er með há laun á íslensk-
an mælikvarða. En þá er einnig á að
líta að London er ein dýrasta borg
í heimi. Í lok ársins 2008 lækkuðu
laun mín um 30 prósent. Ég held að
laun mín nú séu í samræmi við það
sem gerist í sambærilegum störf-
um hér í London, ef eitthvað er eru
þau nokkuð lægri. Ég held raunar
að laun mín væru ekki til umræðu
ef ég væri Breti. Þetta er nú reynd-
ar eitt af því sem ég tek inn á mig,
að sumir heima telji að við eigum
að skammast okkar fyrir að vera Ís-
lendingar og þá sérstaklega allir ís-
lenskir bankamenn. Ég verð aldrei
var við neina fordóma af þessu tagi
hér. Ég held að allir þeir sem hafa
kynnt sér hvað við erum að gera hér
í útibúinu séu mjög jákvæðir gagn-
vart störfum okkar og telji að við
höfum staðið okkur vel. Þá á ég við
breskar endurskoðunarskrifstofur
og þá sem hafa fylgst kerfisbundið
með störfum okkar.“
Grandalaus en
ekki óheiðarlegur
„En auðvitað er ég íslenskur banka-
maður og var þátttakandi í útþenslu
bankanna. Ég er búinn að vera hér
í þrjú ár og ég sé að einkum eldri
lán, sem ég kom að áður en ég kom
hingað, hafa nú tapast að einhverju
leyti, fyrst með falli krónunnar og
síðar vegna bankahrunsins. Ég er
kannski eins og svo margir að ég
uggði ekkert að mér í þessari þenslu
og ber mína ábyrgð. Þetta var aldrei
gert af neinum óheiðarleika og ég
held að það hafi engin áhrif á mín
störf núna því þetta er reynsla sem
ég held að hafi nýst mjög vel frá falli
bankanna. Svo er þetta þannig vax-
ið að því lengra sem líður frá falli
bankanna því minna máli skipta
störf mín hér.
Þá fer ég heim, það er ekkert
öðruvísi,“ segir Baldvin.
Fyrirtækið er svo gríðarlega stórt
og verðmikið að því má
eiginlega líkja við stóra
peningamaskínu.
Baldvin Valtýsson „Ég held að laun
mín nú séu í samræmi við það sem gerist
í sambærilegum störfum hér í London, ef
eitthvað er eru þau nokkuð lægri.“
„ÉG BER MÍNA ÁBYRGГ