Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 22. janúar 2010 FRÉTTIR
VEÐSETTU BÓTASJÓÐ
SJÓVÁR FYRIR VAFNING
Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri
Sjóvár, mun hafa borið því við í yfir-
heyrslum sem fóru fram yfir honum
hjá sérstökum saksóknara að hann
hafi engar ákvarðanir tekið varðandi
fjárfestingar og lánveitingar Sjóvár
á árunum fyrir hrunið. Forstjórinn
fyrrverandi vissi sömuleiðis oft ekki
hvaða samninga hann var að skrifa
undir og hann gat ekki útskýrt hver
tilgangurinn hefði verið með þeim
samningum sem hann staðfesti með
undirritun sinni.
Viðkvæði Þórs mun almennt hafa
verið að hann hafi treyst starfsmönn-
um Milestone, forstjóranum Guð-
mundi Ólasyni og aðstoðarforstjór-
anum Jóhannesi Sigurðssyni, þegar
þeir báðu hann um að skrifa undir
skjöl og samninga sem tengdust Sjó-
vá. Þór mun nánast alltaf hafa bor-
ið því við að hann hafi skrifað upp á
skjölin í góðri trú og vegna þess að
honum hafi verið sagt að stjórn Sjó-
vár hefði samþykkt samningana sem
um ræddi.
Verkfæri Milestone
Niðurstaðan úr yfirheyrslunum yfir
Þór er því sú, samkvæmt heimild-
um DV, að Þór hafi einfaldlega verið
eins konar verkfæri í höndum starfs-
manna Milestone og stærsta eiganda
þess, Karls Wernerssonar. Þeir út-
bjuggu skjöl um fjárfestingar og lán
sem síðan var farið með til Þórs og
hann undirritaði, oft á tíðum án þess
að vita nákvæmlega hvað það var
sem hann var að skuldbinda trygg-
ingafélagið til. Þór mun hafa borið
því við að hann hafi átt að hafa um-
sjón með vátryggingastarfsemi Sjó-
vár en að fjárfestingararmur félags-
ins hafi verið skilinn frá henni og
verið stýrt frá skrifstofum Milestone á
Suðurlandsbrautinni. Þór treysti því
starfsmönnum Milestone til að sjá
um fjárfestingarstarfsemina og leit-
aði alltaf til forstjórans, Guðmundar
Ólasonar, og aðstoðarforstjórans, Jó-
hannesar Sigurðssonar, eftir ráðlegg-
ingum áður en hann skrifaði undir
skjöl.
Hæddur og spottaður
Heimildir DV herma jafnframt að
Þór hafi verið hæddur og spottaður
og kallaður niðrandi nöfnum af þeim
Milestone-mönnum, Guðmundi og
Karli, og að honum hafi verið komið
í skilning um að hans eina verkefni
væri að gera það sem honum væri
sagt. Þeir munu bæði hafa sagt þetta
beint við Þór og eins um hann þeg-
ar hann vék af fundum, líkt og Stein-
grímur Wernersson greindi frá í sín-
um vitnisburði. Steingrímur sagði
jafnframt að Þór hefði verið komið í
skilning um að ef hann skrifaði ekki
undir það sem hann væri beðinn um
væri alltaf hægt að finna einhvern
annan til að gera það. Þór hafi því
gert það sem honum var sagt en oft
í algerri blindni.
Ósamræmi í vitnisburði
Vitnisburður Þórs, og reyndar
Steingríms líka, stríðir algerlega
gegn vitnisburði Karls Werners-
sonar sem greint er frá hér í blað-
inu. Samkvæmt vitnisburði Karls
benti hann á að embætti saksókn-
ara ætti að spyrja Þór Sigfússon um
einstaka fjárfestingar og lánveiting-
ar. Karl sagði að Þór hefði haft alls-
herjarumboð til að skuldbinda Sjó-
vá og ákvarðanir sem hann skrifaði
upp á hefðu margar ekki endilega
farið fyrir stjórn. Karl bar því einn-
ig oft við að hann kannaðist ekkert
við einstaka viðskiptagerninga hjá
Sjóvá.
Niðurstaðan er því sú að Þór
bendir á eiganda Milestone, Karl,
starfsmenn félagsins og stjórn á
meðan Karl bendir fyrst og fremst
á Þór. Annar hvor þeirra hlýtur því
að segja ósatt og vita meira en gef-
ið er upp. Að öllum líkindum er það
Þór sem kemst nær sannleikanum
í sínum vitnisburði þar sem vitnis-
burður Steingríms er svipaðs eðlis
og hans. Spjót saksóknara hljóta því
að beinast fyrst og fremst að Karli,
Guðmundi Ólasyni og Jóhannesi
Sigurðssyni þó svo að Þór og Stein-
grímur geti vitanlega aldrei fríað sig
ábyrgð á því sem hann skrifaði upp
á sem forstjóri og prókúruhafi hjá
tryggingafélaginu.
Las ekki lánasamninginn
Sem dæmi um hversu litla þekkingu
Þór hafði á mörgum af viðskiptum
Sjóvár sem hann skrifaði upp á mun
hann ekki hafa getað útskýrt hver
ástæðan var fyrir 10,5 milljarða lán-
veitingunni frá Sjóvár til Vafnings í
febrúar 2008. Enn fremur vissi Þór
ekki hverjir forsvarsmenn Vafnings
voru né hver tilgangurinn var með
lánveitingunni. Jafnframt vissi Þór
ekki hvaða eignir Vafningur átti en
það voru eignir sem dótturfélög
Sjóvár höfðu selt inn í félagið – lúx-
usturninn í Makaó og breski fjár-
festingasjóðurinn KCAJ. Samt skrif-
aði hann undir lánasamninginn á
milli Vafnings og Sjóvár ásamt Guð-
mundi Ólasyni. Þór var því að skrifa
undir lánasamning sem hann vissi
lítið sem ekkert um auk þess sem
hann mun hafa sagt við yfirheyrsl-
ur að hann hafi ekki lesið samning-
inn yfir áður en hann skrifaði undir
hann.
Vísaði á Milestone
Þór mun hafa borið því við í yfir-
heyrslunum að lánasamningurinn
hafi verið útbúinn af starfsmönn-
um Milestone á skrifstofu félagsins
á Suðurlandsbraut og að hann hafi
treyst því að samningurinn hefði ver-
ið borinn undir stjórn Sjóvár áður
en hann var beðinn um að undir-
rita hann. Ekkert á lánasamningn-
um benti hins vegar til þess þó svo
að nafn Guðmundar Ólasonar væri á
samningnum. Í stað þess að svara því
sjálfur af hverju hann hefði skrifað
undir lánasamninginn og af hverju
lánið hefði verið veitt vísaði hann á
starfsmenn Milestone og Sjóvár sem
væru framúrskarandi fólk, sem hann
treysti, og sagðist hafa verið í góðri
trú. Enn frekar sagði hann að eðli
lánasamningsins hefði ekki verið út-
skýrt fyrir honum.
Forstjóri Sjóvár virðist því alfarið
hafa treyst því að starfsmenn segðu
honum satt og rétt frá og að dóm-
greind þeirra og stjórnar Milestone
væri góð. Dómgreind hans var aft-
ur á móti ekki betri en svo að hann
skrifaði upp á 10,5 milljarða lána-
samninginn án þess að vita út á hvað
samningurinn gekk. Starfsmönnum
sérstaks saksóknara mun hafa þótt
þetta þekkingarleysi Þórs um samn-
inginn mjög sérstakt.
Niðurstaðan í yfirheyrslunum var
því sú að Þór stóð á gati um Vafning
og gat ekki svarað spurningum sak-
sóknara um lánið þar sem hugmynd-
ir hans um það væru óljósar.
Lánið á öðrum veðrétti
Eitt af því sem Þór mun hafa upplýst
í yfirheyrslunum er að þegar hann
skrifaði undir lánasamninginn við
Vafning vissi hann ekki að í samn-
ingnum væri ákvæði sem kvað á um
að Sjóvá hefði haft annan veðrétt í
þeim eignum Vafnings sem lagðar
voru að veði fyrir láninu – lúxusturn-
inum í Makaó og breska fjárfestinga-
sjóðnum. Glitnir átti fyrsta veðréttinn
í þessum eignum en Vafningur fékk
einnig tvö lán frá bankanum þennan
sama dag eins og áður segir.
Þór mun hafa haldið því fram að
hann hafi ekki fengið að vita að Sjó-
vá hafi einungis átt annan veðrétt í
eignunum sem lagðar voru að veði
fyrir láninu en að sú staðreynd breyti
lánaviðskiptunum auðvitað því
Glitnir hafi haft forgang í eignirnar
sem lagðar voru fram sem veð. Sjóvá
átti því aldrei mikinn möguleika á að
fá mikið upp í lánið til Vafnings enda
hefur það verið afskrifað eins og segir
hér að framan.
Ekki eðlileg eign
Forstjórinn fyrrverandi mun einnig
hafa greint frá því í yfirheyrslunum
að þegar viðskiptin við Vafning áttu
sér stað hafi Fjármálaeftirlitið gert
athugasemdir við það við Sjóvá að
verslanir eins og þær sem voru inni
í breska fjárfestingasjóðnum KACJ
hafi verið notaðar sem veð á móti
vátryggingaskuld tryggingafélags-
ins. Jafnframt mun Þór hafa sagt að
stjórnendur Sjóvár hafi látið Mile-
stone vita að slíkar búðir hafi ekki
beinlínis verið eðlilegur hluti af eign
á móti vátryggingaskuld hjá trygg-
ingafélagi, það er að segja bótasjóði
þess. Óháð eigninni sem lögð er að
veði er þetta auðvitað sérstaklega
óheppilegt þegar tryggingafélag hef-
ur einungis annan veðrétt í eignirnar.
Hann mun í framhaldi af þessu
hafa sagt að þó að ýmsir lánasamn-
ingar sem Sjóvá gerði við dótturfé-
lög Milestone hefðu mátt vera betri
hafi engan grunað á þessum tíma að
einhver hefði sérstakan áhuga á því
að fara illa með Sjóvá. Þór mun hafa
haldið því fram að það væru von-
brigði fyrir hann að sjá að veðin fyr-
ir lánunum hafi verið með þessum
hætti og að lánasamningarnir hafi
verið svo óhagstæðir fyrir Sjóvá en að
Vitnisburður Þórs Sigfússonar hjá
Sjóvá mun hafa sýnt fram á að hann
hafi verið lítið annað en verkfæri í
höndum Milestone-manna. Oft skrifaði
hann undir samninga sem hann gat svo
ekki útskýrt.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi stjórnarfor-
maður BNT, tjáði sig um aðkomu sína að Vafningi í samtali við DV í desember en
hann tengist félaginu þar sem hann fékk umboð frá föður sínum og frænda til að
veðsetja bréf þess. Þar sagði hann meðal annars:
n Af hverju fékkstu umboð til veðsetja Vafning? „Þeir [Benedikt og Einar,
innsk. blaðamanns] voru ekki staddir á landinu og báðu mig um það fyrir sína
hönd að skrifa undir ákveðinn veðsamning þar sem þeir voru að veðsetja
hlutabréfin sín í félaginu... Þetta var veðsamningur sem gerður var við
bankann vegna lána sem bankinn hafði veitt félaginu.“
n Komu Engeyingar nálægt ákvörðuninni um Vafning? „Ég sat aldrei
í stjórn þar... Vafningur snýst um meira en það að fara með eignarhald á
þessum turni. Þetta eru eignir sem Wernersbræður leggja inn í félagið sín
megin frá og þær koma okkur bara ekkert við.“
n Af hverju tókuð þið þátt í Vafningi? „Það er ekki hægt að segja að þetta sé
ákvörðun sem hafi átt sér neinn sérstakan aðdraganda. Þetta er mál sem var
inni á borði hjá forstjóranum [hjá BNT eða N1, innsk. blaðamanns] og þetta er
meira frágangsmál en nokkuð annað“
n Komst þú nálægt ákvörðun BNT um að gerast hluthafi í Vafningi? „Ég
skýst aldrei undan ábyrgð á því sem ég skrifa undir fyrir hönd þess félags sem
ég sit í stjórn fyrir.“
n Var ákveðið að Vafningur keypti turninn í Makaó án vitundar eigenda
félaga ættingja þinna sem voru hluthafar í félaginu? „Þú hefur ekki
heildaryfirsýn yfir það sem menn eru að gera á þessum tíma. Menn eru að
endurfjármagna lán og það er það sem er aðalástæðan fyrir þátttöku þessara
félaga í Vafningi.“
Hvað sagði Bjarni Ben um Vafning?
FJÁRFESTINGARNAR
TÓKU YFIR Orð Þórs
Sigfússonar munu benda til
að fjárfestingararmur Sjóvár,
sem stjórnað var alfarið af
starfsmönnum Milestone.
Niðurstaðan er því sú að Þór
bendir á eiganda Mile-
stone, Karl, og starfs-
menn félagsins á með-
an Karl bendir fyrst og
fremst á Þór.