Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Blaðsíða 25
FÓKUS 22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 25
Leikkonan Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir færir út kvíarnar:
Úr leik í söng
FÖSTUDAGUR
n Global Battle of The Bands á
Sódómu
Úrslitakvöld Global Battle of The Bands
fer fram á skemmtistaðnum Sódóma
Reykjavík. Sigursveitin tryggir sér þátt-
tökurétt í úrslitakeppninni sem haldin
er á tónleikastaðnum Scala í London.
Hljómsveitirnar sem keppa eru:
Bárujárn, Mikado, Nögl, Wistaria, Útidúr
og Endless Dark. Húsið verður opnað
klukkan 21og aðgangseyrir er 500 kr.
n Techno á Jacobsen
Það er alltaf brjálað stuð á Jacobsen
fyrir þá sem vilja dansa við techno-tóna
en í kvöld eru það Damien Eie og
Impulze&Egner aka Rephlekt (pollux
records 220v recordings) sem halda
uppi stuðinu.
n Boogie nights á Spot
Það er alltaf sama heita stemningin
þegar það er Boogie nights-kvöld á
Spot. Að þessu sinni er það Valli Sport
sem hristir upp í gestum, eins og hon-
um einum er lagið. Miðaverð er 1.200
krónur og hefst miðasalan klukkan 23.
n Hreimur á 800 Bar
Hreimur Örn Heimisson úr Landi og
Sonum verður á 800 Bar á Selfossi í
kvöld. Langt er síðan við höfum fengið
að heyra í honum en hann var einn vin-
sælasti hjartaknúsari okkar Íslendinga
hér á árum áður. Hreimur mætir ásamt
gítarleikara. Húsið verður opnað kl. 23
og er miðaverð 990 krónur.
n Góðir Íslendingar frumsýnt
Borgarleikhúsið frumsýnir nútímaleik-
ritið Góðir Íslendingar í kvöld. Leikritið
fjallar um það sem er að gerast í
þjóðfélaginu í dag og er það brýnt, nú
sem aldrei fyrr, að sýna landsmönnum
veröld okkar á kómískan hátt. Leik-
stjórar eru Hallur Ingólfsson, Jón Páll
Eyjólfsson og Jón Atli Jónasson en þeir
eru jafnframt höfundar. Miðar á midi.is
LAUGARDAGUR
n Bermuda á Spot
Hljómsveitin Bermuda með Írisi Hólm í
framlínunni skemmtir gestum á hinum
heita skemmtistað Spot og verður
brjálað stuð. Íris var þessa dagana að
komast áfram í undankeppni Eurovision
með laginu The one. Spilaðir verða
nýjustu danssmellirnir langt fram eftir
nóttu. Miðasala hefst klukkan 23 og er
aðgangseyrir 1.500.
n Playboy kvöld á Club 101
Það verður eldheit stemning á Club
101 en á laugardagskvöld verður
haldið Playboy-partí á vegum Agent.
is. Playboy-kanínur taka á móti fyrstu
gestunum með glæsilegum fordrykk,
flottasta kanínan verðlaunuð og stúlkur
sem mæta í kanínudressi fá glaðning
við innganginn. Dj Óli Geir og Sindri BM
sjá um tónlistina. Eldheitt dæmi.
n Atli og Erpur á Hverfisbarnum
Félagarnir Erpur og Atli fagna fimm
ára samstarfsafmæli með svakalegu
samkvæmi á Hverfisbarnum. Ásamt
Atla og Erpi koma líka fram XXX Rott-
weiler, Friðrik Dór, Emmsjé Gauti og A+.
Veitingar verða í boði fyrir fyrstu þyrstu
og hefjast leikar stundvíslega kl. 24!
n Bollywood í Turninum
Bollywood-sýning Yesmine Olsson í
Turninum er alltaf jafnvinsæl og er enn
hægt að fá miða á sýningu kvöldsins.
Glæsileg sýning með einstaklega
bragðgóðum indverskum og arabískum
mat sem matreiðslumeistarar Veislu-
turnsins galdra fram eftir uppskriftum
úr bókum Yesmine. Verð er 8.900
krónur og er matur og sýning innifalið.
Borðhald hefst klukkan 20 og er hægt
að fá miða á pantanir@veisluturninn.is.
Hvað er að
GERAST?
„Þetta er búið að vera virkilega lær-
dómsríkt og spennandi,“ segir Ísgerð-
ur Elfa Gunnarsdóttir, leikkona, sem
þessa dagana er að leggja lokahönd á
sína fyrstu barnaplötu. Plötuna vinn-
ur hún með frænda sínum, Magnúsi
Jónssyni, en hann er að ljúka hljóð-
upptökunámskeiði á Stúdíó Sýrlandi
og er þetta lokaverkefni hans. „Það
má eiginlega segja að við höfum sleg-
ið tvær flugur í einu höggi, “ segir hún
og bætir við að hún vissi ekkert hvað
hún var að fara gera þegar hún byrj-
aði.
Ísgerður hefur verið í skóla und-
anfarin misseri ásamt því að leika og
er þetta því frumraun hennar á þessu
sviði. „Þetta er búið að vera svaka-
lega gaman. Ég hef sungið og sam-
ið texta fyrir hin ýmsu tækifæri en
aldrei komið að lagasmíðinni áður.
Við Maggi vorum mikið að prófa okk-
ur áfram. Ég kom með textana, hann
kom með tónlistina og svo gerðum
við laglínurnar saman í flestum til-
fellum.“
Til aðstoðar komu svo hinir ýmsu
tónlistarmenn og má meðal annars
nefna Ólöfu Arnalds, Arnljót Sigurðs-
son og Baldur Ragnarsson úr Ljótu
hálfvitunum auk þess sem hún fékk
til liðs við sig valinn hóp af krökkum
sem fylltu andrúmlfotið af spennu og
gleði. „Það fylgir þeim svo mikil og
góð orka sem smitar út frá sér,“ seg-
ir hún.
Plötunni er líka ætlað að höfða til
fullorðinna að sögn Ísgerðar. „Við vit-
um náttúrlega ekkert hvort það verði
þannig en vonum það. Þú átt alveg að
geta hlustað á hana aftur og aftur án
þess að verða alveg sturlaður,“segir
Ísgerður og hlær. Ekki er komin dag-
setning á útgáfuna en þó má fullyrða
að biðin verður ekki löng.
asdisbjorg@dv.is
Sjálfstæður kvikmynda-
framleiðandi
Myndin hefur þegar vakið mikla at-
hygli, nánast áður en hún fer í almenna
sýningu. „Heather Mills er byrjuð að
selja myndina á kvikmyndahátíðir.
Hún verður klippt og snyrt fyrir erlenda
áhorfendur því það eru atriði í mynd-
inni sem höfða sérstaklega til okkar Ís-
lendinga, sem útlendingar skilja ekki.
Við hefðum geta haft hana lengri -
miklu lengri. Það eru fjölmörg viðtöl
sem komust ekki í myndina en verður
á DVD-útgáfunni. Ég sem framleiðandi
treysti öllu því góða fólki sem ákvað
hvað fór inn og hvað ekki. Ég er rosa-
lega ánægð með þetta og ég held að til-
ganginum sé náð - að fólk vakni. Finni
fyrir neistanum og sjái að það er hægt
að gera eitthvað. Það á ekki að láta aðra
hugsa fyrir sig.“
Lilju fannst gaman að vera framleið-
andi að myndinni enda gerð af heilind-
um. „Þetta er gert af hjartanu. Gunni
náttúrlega fer inn í myndina og hugsar
varla um neitt annað í níu mánuði. Ég
ákvað það strax að fá enga styrki til að
enginn gæti sagt hvernig myndin ætti
að vera. Við vildum ráða því. Við vild-
um koma okkar skilaboðum áfram. Ef
maður ætlar að vera sjálfstæður fram-
leiðandi verður maður að vera trúr
sjálfum sér og vera sjálfstæður. En þetta
er lottó – annaðhvort gengur þetta eða
ekki.“
Féll fyrir Frakklandi
Lilja bjó í Frakklandi en flutti heim til
Íslands 2006 og fór að flytja inn vodka.
„Ég hef alltaf verið með annan fótinn í
Frakklandi,“ segir Lilja og bætir við að
Frakkland og þá sérstaklega París og
nágrenni borgarinnar sé í miklu uppá-
haldi. „Ég fór fyrst til Svíþjóðar eftir
stúdendsprófið og var þar í tvö ár. Síðan
fór ég til Frakklands í sumarfrí og ég fell
algjörlega fyrir Frakklandi og Frökkum.
Borgin París er fallegasta borg í heimi
þannig að ég fór til Svíþjóðar og sagði
upp starfinu mínu og flutti til Frakk-
lands.
Ég bjó fyrst í París og svo í nágrenni
hennar. Það er ekki talað um úthverfi
þar sem ég bjó.
Það var mjög gott að búa þarna –
líka þegar maður kom heim því þá sér
maður hvað það er dásamlegt að búa
á Íslandi.“
Afi hafði rétt fyrir sér
Skúli Pálsson, afi Lilju, var braut-
ryðjandi í fiskeldi hér á landi. Hann
stofnaði og rak lengi fiskeldisstöðina
að Laxalóni en hugur hans hneigðist
snemma að útgerð. „Þegar ég fór til
afa og ömmu þá fór ég uppi í sveit,“ en
Laxalón er núna nánast í miðri Reykja-
vík. „Ég var mjög hrædd við Graf-
arholtið. Fór aldrei þangað. Það var
draugastaður og draugaland,“ segir
hún og brosir.
„Hann var mikill baráttumaður
og sjálfstæðismaður en hann sagði
að spillingin á Íslandi yrði til þess að
landið færi í hundanna einn daginn.
Þannig að afi hafði kannski bara rétt
fyrir sér. Hann sagði líka að einn dag-
inn myndi Ísland sjá Evrópu fyrir raf-
magni. Hann hafði engar áhyggjur af
tæknilegu hliðinni – hún kæmi. Þeg-
ar hugmynd verður til þá finnst lausn-
in. Ef maður leitar að lausn þá finnst
hún. Það sem ég vil sérstaklega varast
er að fólk segi: Svona er þetta. Þetta er
svona. Það má ekki – alls ekki.“
Ég var með sam-viskubit þegar
þetta hrun átti sér stað.
Ég stóð þarna í horninu
á fundunum og spurði
eins og Gunni: Hvernig
getur þetta gerst? Af
hverju erum við í
þessum sporum?
Gerð af heilindum Lilja segir að
myndin sé sjálfstæð og gerð frá
hjartanu. Hún eigi að vekja sterk
viðbrögð hjá fólki.
M
Æ
LI
R
M
EÐ
...
MÖMMU GÓGÓ
Frikki er
kominn
til baka.
CALL OF
DUTY:
MODERN
WARFARE 2
Í einu orði sagt
rosalegur.
STALÍN UNGA
Verðskuldað
verðlaunabók.
... FAUST
Leikur
Vesturports-
manna og
Leikfélags
Reykjavíkur er vel unninn og
ásjálegur á allan hátt
... THE ROAD
Algjör
eymd en
ágætis
ræma.
FLÓTTANUM MIKLA MEÐ
MORÐINGJUNUM
Frábær plata
hljómsveitar í
framþróun.
Maybe I should have
Það er undarlegt að vakna einn morgun í vestrænu velferðarríki og þurfa að átta
sig á því að öll tilvera manns hefur verið byggð á sandi. Allar áætlanir sem sneru
að því að vera maður meðal manna, eiga heimili, eiga möguleika og hafa trygga
atvinnu eru orðnar nánast að engu.
Jú, vinir og fjölskylda, það verðmætasta, eru sem betur fer á sínum stað.
Allt annað er í raun horfið eða á góðri leið með að hverfa. Fjárhagurinn í rúst,
vinnan ótrygg, stóru tækifærin orðin að engu, bankar ekki lengur þau traustu
fyrirtæki sem maður hélt að þeir væru, stjórnvöld rúin trausti og tilveran öll
einhvern veginn orðin frekar ótraust.
Maður fyllist óöryggi og verður hræddur. Nákvæmlega við hvað veit maður ekki.
En er ekki bara eðlilegt að verða hræddur þegar tilveru manns er ógnað með
jafnógnvekjandi hætti?
Fótunum er kippt undan okkur sem þjóð og við rennum stjórnlaust niður
straumþungar flúðir. Komin í „river rafting“ sem enginn pantaði eða sóttist eftir
að komast í. Við hömumst við að halda höfðinu upp úr vatninu og enginn svo
mikið sem kastar til okkar björgunarhring eða lætur okkur vita að hjálp sé á
leiðinni.
Engar upplýsingar að fá. Stjórnvöld og stofnanir fara undan í flæmingi.
Allir láta eins og um náttúruhamfarir sé að ræða.
En þetta eru ekki náttúruhamfarir þetta eru allt mannanna verk.
Og mitt í öllum þessum látum sér maður drauma sína fjara út og gerir sér um leið
grein fyrir því að draumar allra Íslendinga eru í raun að fjara út.
Við sem þjóð verðum á einu augnbliki að þjóð sem enginn vill þekkja eða eiga
samskipti við. Erum ekki lengur „in“, og ekki „klárust“, hvorki miðað við höfðatölu
né nokkra aðra viðmiðun. Orðið „Ísland“ er orðið hálfgert skammaryrði og á
hryðjuverkalista, langur vegur frá því að við séum orðuð við fegurð, kjark og
áræðni.