Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Blaðsíða 40
DANSAÐ TIL STYRKTAR HJARTVEIKUM Á laugardaginn verður hald-
in þolfimi- og dansveisla til styrktar Neistanum í Sporthúsinu en Neistinn er
Styrktarfélag hjartveikra barna. Útvarpsmaðurinn og plötusnúðurinn Siggi
Hlö mun halda uppi stuðinu á meðan helstu líkamsræktar- og danskennarar
landsins kenna réttu sporin. Allur ágóði rennur óskiptur til Neistans svo það er
um að gera að taka þátt og styrkja gott málefni.
Samkvæmt bandarískri rannsókn
ættu konur ekki að úða á sig ilm-
vatni ef þær vilja vekja aðdáun og
eftirtekt gagnstæða kynsins. Saul
Miller og K. Maner, prófessorar
við ríkisháskólann í Flórída, hafa
fundið út að testósterónmagn í
karlmönnum hækkar ef þeir finna
lykt af konu sem er með egglos og
er þar af leiðandi á sínu frjóasta
skeiði í tíðahringnum.
Í rannsókninni voru kvenkyns-
þátttakendur látnir sofa í sama
bolnum í þrjár nætur í röð. Karl-
kynsþátttakendur rannsóknarinn-
ar lyktuðu síðan af bolum þeirra
og til samanburðar lyktuðu þeir
af bolum sem enginn hafði klæðst.
Síðan var þeim gert að skila munn-
vatnssýni og testósterónmagn
þeirra mælt. Miller og Maner
segja að þeir karlmenn sem lykt-
uðu af bolum þeirra kvenna sem
hafi verið með egglos hafi mælst
með mun meira testósterón en
þeir karlmenn sem höfðu lyktað
af öðrum bolum. Þegar karlmenn-
irnir voru látnir velja bestu lyktina
völdu þeir einnig þá boli sem kon-
ur með egglos höfðu klæðst. Vís-
indamennirnir segja að rannsókn-
in sé sú fyrsta sem sýni fram á að
testósterónmagn karlmanna sé í
rauninni undir áhrifum ilmsins
sem frjósamar konur gefa frá sér.
Karlmenn laðast að ilmi kvenna sem eru frjósamar:
NÁTTÚRULEGA LYKTIN BEST
UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR, indiana@dv.is
MATUR GEGN
BLÓÐFITU
Möndlur
Hnetur og sér í lagi möndlur eru
ríkar af fitu sem er góð fyrir okk-
ur og mun betri en sú sem finnst
í „hollum“ flögum og snakki.
Möndlur eru hins vegar kalóríu-
ríkar svo hafðu skammtana litla.
Haframjöl
Tryggðu þér vænan skammt af
trefjum með því að borða hafra-
graut á morgnana. Trefjarnar
hafa góð áhrif á meltingarveg-
inn.
Fiskur
Ómega-3 fitusýrur teljast til
góðrar fitu og þú finnur mest af
þeim í feitum fiski eins og laxi og
túnfiski.
Rauðvín
Margir sérfræðingar segja að eitt
glas af rauðvíni á dag sé hollt
fyrir hjartað. Meira magn hefur
hins vegar slæm áhrif.
Soja
Allt úr soja, sojabaunir, tofu og
mjólk getur hjálpað í baráttunni
við kólesterólið.
Munum að stórvægilegar breyt-
ingar á mataræði ættu alltaf að
vera í samráði við lækni.
SLÉTTUR MAGI
BESTUR
Í framtíðinni munu vísindamenn
ef til vill finna upp aðferðir til
að varðveita fitu á mjöðmum,
lærum og afturenda okkur til
heilsubótar. Samkvæmt rann-
sóknum breskra sérfræðinga er
fita á þessum stöðum holl fyrir
efnaskipti líkamans. Fólk sem er
feitt um mittið sé líklegra, til að
mynda, til að fá sykursýki en fólk
sem er með feitan afturenda og
fólk sem er afar grannt á
þessum þrem-
ur svæðum er
líklegra til að fá
ýmsa sjúkdóma.
„Það besta væri
að geta safnað
fitu á læri, rass
og mjaðmir en
að maginn yrði
sléttur,“ sagði
Konstantinos
Manolopouos
lænir við Ox-
ford-háskóla.
Því miður fylgi
maginn hins veg-
ar oftast með.
Nema hjá fáum
útvöldum, eins
og Jennifer
Lopez.
Sjónvarpskonan Þórunn Högnadóttir skoðar tískublöð og fær þar hugmyndir að því
hvernig hún getur breytt og bætt föt, skart og skó sem hún á fyrir. Hún segir nauðsyn-
legt þegar kreppir að að geta gefið gömlum hlutum líf í stað þess að stökkva af stað og
kaupa nýtt. Þórunn segir alla geta þetta, það eina sem þurfi sé glingur og hugmyndaflug.
40 FÖSTUDAGUR 22. janúar 2010
Karlar fíla náttúrulegan ilm af
konum Samkvæmt bandarískri
rannsókn hækkar magn testósteróns
í karlmönnum þegar þeir finna lykt af
frjósamri konu.
LÍFSSTÍLL
„Eins og staðan er í þjóðfélaginu
held ég að það sé ekki svo vitlaust
að gefa gömlum hlutum nýtt líf í
stað þess að stökkva af stað og kaupa
nýtt,“ segir sjónvarpskonan og stíl-
istinn Þórunn Högnadóttir sem gef-
ur áhorfendum sniðugar hugmynd-
ir um hvernig hægt er að gefa gömlu
dóti endurnýjun lífdaga í þættinum
Heim og saman á sjónvarpsstöðinni
ÍNN. Þórunn breytir ekki aðeins hús-
gögnum heldur einnig skarti, fatnaði
og skóm. „Ég hef örugglega stund-
að þetta í 15 ár. Ef ég er komin með
leið á einhverju breyti ég því bara
eða læt breyta því fyrir mig,“ segir
Þórunn sem lappar til dæmis upp
á skó með því að líma á þá perlur
og skraut. „Ég keypti mér sæta skó í
Zöru um daginn og langaði að gera
þá aðeins fínni og klemmdi á þá litla
slaufu og tók hana svo af daginn eft-
ir. Þannig var ég komin með flotta og
öðruvísi skó fyrir kvöldið. Ég er allt-
af að skoða tískublöðin og rekst oft
á eitthvað sem ég sé að ég get búið
til,“ segir Þórunn og bætir við að það
sé óþarfi að eyða mörgum þúsund-
köllum í nýtt skart eða föt í hvert sinn
sem eitthvað sé um að vera.
Þórunn er lagin í höndunum
og ber fallegt heimili hennar þess
merki. Hún segir hins vegar alla
geta breytt og bætt. „Þetta þarf ekki
að vera flókið og við sem erum mik-
ið fyrir glingur eigum alls konar dót
sem hægt er að nota. Svo er líka um
að gera að kíkja á staði sem selja not-
að dót og með örlitlu hugmyndaflugi
er hægt að gera ótrúlegustu hluti.
Gamlir notaðir hlutir gefa líka svo
mikinn karakter á móti þessu nýja.“
indiana@dv.is
MEIRI KARAKTER
Í GÖMLU DÓTI
Flott festi Þórunn keypti borða í Vogue
og eyrnalokkana í Rokk og rósum. Hún
batt slaufu á festina og klemmdi yfir.
Blómanælur Einfaldur kjóll sem hún
poppaði upp með skemmtilegum
blómanælum sem hún keypti í H&M,
Skarthúsinu og Rokk og rósum.
MYNDIR/ KRISTINN MAGNÚSSON
Slaufuhælaskór Þórunn keypti
slaufuklemmu í Skarthúsinu og setti á
skóna.
Gaddastígvél Beltið fékk Þórunn í
H&M en hún segist vita að það fáist
einnig í Hókus Pókus.