Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Blaðsíða 45
22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 45
HEIMSMEISTARARNIR OKKAR
GEIR SVEINSSON
340 LEIKIR - 502
MÖRK
Einn allra vinsælasti íþrótta-
maður þjóðarinnar og
íþróttamaður ársins 1997.
Hann var lengi atvinnumaður í
handbolta, á Spáni, í Frakklandi
og í Þýskalandi. Var fyrirliði
landsliðsins á Ólympíuleik-
unum í Barcelona 1992, þar
sem liðið hafnaði í fjórða
sæti. Geir er næstreyndasti
leikmaður landsliðsins frá
upphafi. Er framkvæmdarstjóri
og eigandi Umboðssölunar
í dag og frambjóðandi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn þar sem
hann ætlar sér stóra hluti.
Er giftur sjónvarpskonunni
Jóhönnu Vilhjálmsdóttur.
SIGURÐUR
GUNNARSSON
202 LEIKIR - 493
MÖRK
Var konungur á
miðjunni þegar hann
var upp á sitt besta.
Sigurður starfaði meðal
annar hjá ferðaskrif-
stofunni Úrval-Útsýn
þar sem hann sá um að
skipuleggja handbolta-
og formúluferðir.
BIRGIR SIGURÐSSON
105 LEIKIR - 195 MÖRK
Birgir er ein mesta handboltahetja í
sögu gamla risans, Víkings. Gífurlega
öflugur línumaður sem var um tíma
fastamaður í landsliðinu. Var þó mest
í því að horfa á Þorgils 1989. Hann
starfar í dag sem sendibílstjóri og
urmul af börnum.
HRAFN MARGEIRSSON
48 LEIKIR - 0 MÖRK
Hrafn var þriðji markvörður
liðsins og kom því afar lítið við
sögu í Frakklandi. Hann átti alltaf
við erfið meiðsli að stríða sem
háðu honum mest allan sinn feril.
Síðast þegar vitað var starfaði
hann sem sendibílstjóri og keyrði
út brauð.
HÉÐINN GILSSON 138 LEIKIR - 300 MÖRK
Árið 1989 var Héðinn Gilsson ungur og efnilegur hand-
knattleiksmaður sem átti framtíðina fyrir sér. Hann varð
síðan atvinnumaður en meiddist illa og kom á endanum
heim. Hann lék með Fram og var um tíma spilandi
aðstoðarþjálfari HK. Hann er hvað mest þekktur fyrir
skemmtilegt mark sem hann skoraði úr aukakasti þegar
leiktíminn var búinn í landsleik í Kaplakrika. Þá bryddaði
hann upp á nýjung. Steig stórt skref til hliðar og hamraði
boltann í netið.
JÚLÍUS JÓNASSON
288 LEIKIR 703 -
MÖRK
Þjálfari kvennalandsliðsins í
handbolta og var viðskipta-
mógúll í Kaupþingbanka.
Hann átti farsælan feril sem
atvinnumaður og er einn
besti varnarmaður Íslands frá
VALDIMAR GRÍMSSON 271 LEIKIR - 940 MÖRK
Var framkvæmdastjóri Póstflutninga árið 2001 sem flæktist í eitt flókn-
asta gjaldþrotarmál sögunnar. Fyrirtækið var í eigu Frjálsrar fjölmiðl-
unar og sá um dreifingu á Fréttablaðinu og DV. Frjáls Fjölmiðlun var í
miklum rekstrarerfiðleikum á þessum tíma og bitnaði það á Valdimari
og rekstri hans. Hann barðist þó í bökkum og greiddi sér til að mynda
ekki laun í marga mánuði til að halda rekstrinum réttum meginn við
strikið. Svo fór á endanum að fjármunirnir þrutu og Valdimar hafði ekki
bolmagn til að greiða virðisaukaskatt. Fjórum árum síðar var Valdimar
ákærður fyrir brot gegn lögum um vörsluskatt. Hann starfar nú sem
framkvæmdastjóri.
SIGURÐUR SVEINSSON
242 LEIKIR -736 MÖRK
Sigurður, eða Siggi Sveins, var lengi
í eldlínunni og er einhver dáðasti
leikmaður Íslandssögunnar. Það er
alltaf stutt í grínið þegar hann er annars
vegar og það munar um slíka menn.
Siggi Sveins hefur verið viðloðandi
tryggingabransann og þjálfar í dag 1.
deildar lið Þróttar.