Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2010, Síða 46
NÝSTÁRLEG FARTÖLVA EÐA LESTÖLVA Far-
tölvur með tveimur skjáum hafa verið gæluverkefni
margra tölvuframleiðenda um skeið. MSI-fyrirtækið
kynnti þessa nýstárlegu tölvu á dögunum en hana má
nota sem lestölvu sem nýtir báða snertiskjáina ásamt
því að kalla fram hefðbundna virkni fartölvu og breytist
þá annar skjárinn í stafrænt lyklaborð. Fyrirtækið gerir
ráð fyrir að tölvan komi á almennan markað fyrir lok
þessa árs.
SNJALLSÍMI EÐA
GERVIMENNI
Dánarbú breska vísindaskáldsagna-
höfundarins Philips K. Dick
fyrirhugar að lögsækja Google-fyrir-
tækið fyrir að nota Nexus One sem
heiti á hinum nýja snjallsíma
fyrirtækisins. Skáldsaga Dicks, Do
Androids Dream of Electric Sheep?,
var gerð ódauðleg með framtíðar-
mynd Ridleys Scott, Blade Runner,
árið 1982, með þeim Harrison Ford
og Rutger Hauer í aðalhlutverkum.
Hauer lék þar gervimenni (android)
af tegund sem bar heitið Nexus 6.
Þess má einnig að geta að stýrikerfi
Google-símans kallast Android.
VEFÞJÓNAR FLUTT-
IR TIL ÚKRAÍNU
Aðstandendur vefsíðna sem eru
deilipunktar fyrir ólöglegt niðurhal
eru þessa dagana í óðaönn að flytja
starfssemi sína til landa eins og Kína
og Úkraínu. Ástæðan er einfaldlega
sú að stjórnvöldum og forsvars-
mönnum rétthafa á kvikmyndum og
tónlist hefur tekist að knýja fram
lagalegar breytingar í mörgum
löndum sem gera hýsingaraðila
einnig seka um ólöglega starfssemi
ef síðunum er ekki lokað. Tvær
stærstu deilisíðurnar, Pirate Bay og
Demonoid, hafa nú flutt vefþjóna
sína til Úkraínu en þar í landi kveða
fjarskiptalög á um að hýsingaraðilar
séu ekki ábyrgir fyrir því efni sem
notendur þjónustunnar hýsa á
síðum sínum.
UMSJÓN: PÁLL SVANSSON, palli@dv.is
NÝ KYNSLÓÐ
SNJALLSÍMA
46 FÖSTUDAGUR 22. janúar 2010 HELGARBLAÐ
Síðasta ár markaði tímamót á snjallsímamarkaðinum. Mörg farsímafyrirtæki tóku Android-
stýrikerfið upp á arma sína og Google ljóstraði upp um fyrirætlanir sínar um að koma eigin
snjallsíma á markað, Nexus One, sem loks var kynntur opinberlega fyrir umheiminum fyrr í
mánuðinum. DV bar saman hinn nýja Nexus við þrjá af vinsælustu snjallsímunum í dag.
16 GB 8 GB 16 GB 4 GB
32 GB útgáfa einnig til Stækkanlegt í 32 GB Stækkanlegt í 32 GB
5 t. 3G tal
300 t. í bið
5 t. 3G tal
300 t. í bið
6,4 t. 3G tal
270 t. í bið
7 t. 3G tal
250 t. í bið
3,0 3,0 5,0 5,0
Megapixlar
+ vídeóupptaka/vinnsla
Megapixlar Megapixlar
+ vídeóupptaka
Megapixlar
+ vídeóupptaka
Já Já Já Já
Já Já Já Já
(Turn by Turn leiðsögutækni)
+stafrænn áttaviti
(Turn by Turn leiðsögutækni) (Turn by Turn leiðsögutækni)
+stafrænn áttaviti
(Turn by Turn leiðsögutækni)
+stafrænn áttaviti
Já Nei Já Já
Nei Já Já Já
MPEG-4, H.264, MOV
M4V OG MP4 VIDEO
MP3, AAC, AIFF, WAV,
AUDIBLE (2,3,4) PROTECTED AAC,
VBR OG APPLE LOSSLESS AUDIO
MPEG-4, H.263, H.264 VIDEO
MP3, AAC, AAC+, AMR, WAV,
OG QCELEP AUDIO
MPEG-4, H.263, H.264 VIDEO
MP3, AAC, AAC+, eAAC+, WMA, AMR WB/MB,
WAV OG MIDI AUDIO
MPEG-4, H.263, H.264 VIDEO
MP3, AAC, AAC+, eAAC+, WMA, AMR WB/MB,
WAV OG MIDI AUDIO
Itunes
App Store
Palm
App Catalog
Android
Market
Android
Market
127.600 1.000 16.000 16.000
$599 $550 $599 $529
iPhone 3GS Palm Pre Motorola Droid Nexus One
Minni
Rafhlaða
Myndavél
WIFI
GPS
Raddskipanir
Skráarsnið
Forritaverslun
Fjöldi forrita
Fjölvinnsla
Verð (Verð í Bandaríkjunum)
Ólæstur og án samnings
(Verð í Bandaríkjunum)
Ólæstur og án samnings
(Verð í Bandaríkjunum)
Ólæstur og án samnings
(Verð í Bandaríkjunum)
Ólæstur og án samnings
POLAROID-VÉLAR
AFTUR Á MARKAÐ
Eftir slæmt gengi síðastliðinn áratug
tilkynnti Polaroid-fyrirtækið árið
2008 að gjaldþrot væri yfirvofandi
og að það myndi stöðva alla
framleiðslu á hinum klassísku
Polaroid-vélum. Fyrirtækið setti í
framhaldi á markað í fyrra stafræna
myndavél með innbyggðum
prentara. Það var síðan í vikunni að
fyrirtækið kynnti fyrir fréttamönnum
nýja vél sem kemur á markað á
þessu ári og er byggð á hönnun
svokallaðra One-Step véla
fyrirtækisins frá áttunda og níunda
áratug síðustu aldar. Jafnvel útlitið er
upp á gamla mátann og geta nú
margir glaðst sem saknað hafa
þessara ástsælu myndavéla.