Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Page 2
2 MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 FRÉTTIR
Eignarhaldsfélag í eigu Þorgils Óttars
Mathiesen, fjárfestis og fyrrverandi
landsliðsfyrirliða í handknattleik, og
fyrrverandi eiginkonu hans tapaði
rúmum 1.700 milljónum árið 2008.
Félagið, sem heitir C22 ehf., fjárfesti
meðal annars í hlutabréfum í Glitni
og í fasteignafélaginu Klasa. Þetta
kemur fram í ársreikningi félagsins
fyrir árið 2008.
Klasi er félag sem sérhæfir sig í út-
leigu á fasteignum og á meðal annars
skrifstofur Morgunblaðsins í Hádeg-
ismóum auk fjölda annarra bygginga
hér á landi. Klasi á fjórðungshlut í Há-
skólavöllum sem fjárfesti í leiguíbúð-
um á Keflavíkurflugvelli.
Skuldir félagsins nema um 540
milljónum króna og eru í íslenskum
krónum. Þær eru á gjalddaga árið
2014. Lánveitandi félagsins er ekki til-
greindur en reikna má með að Glitn-
ir hafi lánað því. Veðið fyrir lánum fé-
lagsins eru í hlutabréfum félagsins í
Glitni og Klasa, samkvæmt ársreikn-
ingnum.
Beðið um skuldaniðurfelllingu
Í ársreikningi félagsins er tekið fram
að ljóst sé að ekki séu forsendur til
staðar fyrir áframhaldandi rekstri fé-
lagsins. „Félagið hefur því farið fram á
það við lánveitanda sinn að hann felli
niður skuldir þess eða að öðrum kosti
yfirtaki það til að komast hjá því að fé-
lagið fari í þrot,“ segir í skýrslu stjórn-
ar félagsins. Því verður að telja afar
ólíklegt að félagið geti starfað áfram í
óbreyttri mynd.
Félagið átti hlutabréf í Glitni og
hlutabréf í eignarhaldsfélaginu Ein-
ari Þorgilssyni, sem aftur átti þriðj-
ungshlut í Klasa. Í ársreikningi C22
ehf. fyrir árið 2007 voru þessi hluta-
bréf bókfærð á samtals 1,8 milljarða
króna. Nafnverð þeirra var hins veg-
ar einungis um 50 milljónir króna.
Hlutabréfin voru því langt í frá eins
verðmæt og bókfært virði þeirra gaf til
kynna. Tap félagsins samkvæmt árs-
reikningnum er því að einhverju leyti
tilkomið vegna þess að hlutabréfa-
eign félagsins var verðmetin á óraun-
hæfan hátt.
Eftir stendur hins vegar að félagið
skuldar meira en 500 milljónir króna
sem það getur ekki greitt.
Konan fer út
DV hefur ekki náð tali af Þorgilsi Ótt-
ari Mathiesen, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir. Fyrrverandi eiginkona hans,
Berta Gerður Guðmundsdóttir, segist
lítið vita um félagið. Hún segir að ver-
ið sé að ganga frá því að hún verði ekki
lengur hluthafi í C22. „Það er verið að
ganga frá þessu,“ segir hún.
Berta segir að hún geti hins vegar
ekki veitt upplýsingar um stöðu fé-
lagsins þar sem hún hafi ekki stýrt því;
Þorgils Óttar hafi séð um það.
Arður á tapári
Aðrir ársreikningar félaga í eigu Þor-
gils Óttars segja svipaða sögu. Þannig
tapaði félagið Verslun Einars Þorgils-
sonar ehf. um 920 milljónum á árinu
2008. Stór hlutur af því tapi var vegna
gengismunar á erlendum lánum, um
700 milljónir. Skuldir félagsins námu
um 1.500 milljónum í árslok 2008 og
átti félagið að greiða 1.200 milljónir af
þeim á síðasta ári, 2009.
Stærsta eign Einars Þorgilssonar
var eignarhlutur í eignarhaldsfélag-
inu Siglu, sem aftur á fasteignafélag-
ið Klasa. Inni í því félagi eru stærstu
eignir Þorgils Óttars: Fasteignirnar
sem eru í eigu Klasa. Félagið tapaði
rúmum 163 milljónum á árinu 2008
en eigið fé félagsins var tæpir 4 millj-
arðar króna.
Klasi greiddi 250 milljónir króna
í arð til Siglu á árinu 2008 þrátt fyrir
að tap hefði verið á rekstri félagsins.
Staða Klasa verður því að teljast nokk-
uð sterk.
Þorgils Óttar á enn þá þriðjungs-
hlut sinn í félaginu en hann hætti í
stjórn þess fyrir skömmu. Í stjórninni
sitja nú aðrir hluthafar Klasa, Tómas
Kristjánsson og Finnur Reyr Stefáns-
son, auk Ásgeirs Bolla Kristinssonar
sem kenndur er við tískuvöruverslun-
ina Sautján.
Samkvæmt heimildum DV ligg-
ur ekki fyrir að breytingar verði á eig-
endahópi Klasa á næstunni þrátt fyrir
erfiða stöðu Þorgils Óttars.
Þorgils Óttar Mathiesen, fjárfestir og
fyrrverandi handboltastjarna, skilur eftir
sig milljarðaskuldir í nokkrum eignar-
haldsfélögum. Þorgils Óttar leitaði til lán-
veitanda síns og bað um að skuldir eins
félagsins yrðu afskrifaðar. Handboltamað-
urinn fjárfesti í hlutabréfum í Glitni og í
fasteignafélaginu Klasa.
STRÁKARNIR OKKAR Í VIÐSKIPTALÍFINU
Nokkrir af sigurvegurunum úr heimsmeistarakeppni B-liða í handknattleik árið 1989 hösluðu sér síðar völl í viðskiptalífi. Þorgils
Óttar Mathiesen er einungis einn af þeim. Ýmsir þeirra, líkt og Þorgils Óttar, hafa staðið í ströngu eftir efnahagshrunið árið 2008:
„Það er verið að ganga frá þessu.“INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
ÞORGILS ÓTTAR VILDI AFSKRIFTIR
Veðið í bréfunum Veðið fyrir rúmlega
540 milljóna króna lánum félags Þorgils
Óttars og Bertu Gerðar Guðmundsdóttur,
fyrrverandi eiginkonu hans, var í hlutabréf-
um félagsins í Glitni og fasteignafélaginu
Klasa. Þau sjást hér saman.