Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Page 6
6 MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 FRÉTTIR
LEIÐRÉTTING
Í úttekt um fjármál sveitarfélaga
í helgarblaði DV voru skuldir
og skuldbindingar Hafnarfjarð-
arbæjar sagðar nema um 25,1
milljarði króna. Skuldir og skuld-
bindingar Hafnafjarðarbæjar eru
hins vegar umtalsvert hærri en
fram kom í úttektinni. Skuldir og
skuldbindingar Hafnarfjarðar-
bæjar eru áætlaðar um 37 millj-
arðar króna og eigið fé bæjar-
ins er neikvætt um 357 milljónir
króna.
Eldsvoði í
Stykkishólmi
Karlmaður á fertugsaldri var fluttur
alvarlega slasaður á gjörgæsludeild
Landspítalans á sunnudag eftir að
honum var bjargað úr brennandi
raðhúsi í Stykkishólmi.
Maðurinn var fluttur til Reykja-
víkur með þyrlu eftir að eldur kom
upp í húsi hans. Tilkynning um elds-
voðann barst lögreglu klukkan hálf
ellefu á sunnudagsmorgun. Vel gekk
að ráða niðurlögum eldsins en húsið
sem er í fmim húsa raðhúsalengju er
mikið skemmt.
Ármann lagði
Gunnar I. Birgisson
Ármann Kr. Ólafsson sigraði í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
sem fram fór á laugardaginn. Ár-
mann fékk 1.677 atkvæði í fyrsta sæti
listans. Gunnar I. Birgisson, fyrr-
verandi bæjarstjóri Í Kópavogi, sem
sóttist einnig eftir fyrsta sætinu, end-
aði hins vegar í þriðja sæti. Hann
fékk 1.253 atkvæði í fyrsta sætið.
Hildur Dungal náði öðru sæti á lista
sjálfstæðismanna í prófkjörinu.
Vildi Hrein á RÚV
Hreinn Loftsson, aðaleigandi DV,
fullyrti í aðsendri grein á Pressunni
um helgina að Davíð Oddsson hafi
árið 1997 lagt á það áherslu á að
hann tæki að sér embætti útvarps-
stjóra. Hreinn hafi hins vegar ekki
viljað taka starfið að sér. „Í samtöl-
um okkar Davíðs um RÚV haustið
1997 hvarflaði ekki annað að mér
en það væri hann sem réði þessu.
Þó var Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra og Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson var formaður út-
varpsráðs,“ skrifaði Hreinn.
Íris Ellenberger formaður Sagnfræðingafélags Íslands um sögu Seðlabankans:
Heppilegra að auglýsa starfið
„Það má setja spurningamerki við að
ríkisstofnun skuli fá einhvern í svona
verk án þess að auglýsa, án þess að
leita að bestu mögulegu fræðimönn-
unum til verksins,“ segir Íris Ellen-
berger, formaður Sagnfræðingafélags
Íslands. Eins og fram kom í DV á föstu-
daginn er Jón Sigurðsson með rit um
sögu Seðlabankans í smíðum, en hann
var sjálfur seðlabankastjóri frá 2003-
2006. Fyrrverandi bankastjórn Davíðs
Oddssonar, Ingimundar Friðrikssonar
og Eiríks Guðnasonar réð Jón til verks-
ins, en það er enn í vinnslu. Ráðist var í
skrifun verksins í tilefni þess að Seðla-
bankinn heldur upp á 50 ára afmæli á
næsta ári. Hefur Jón þegar skilað 360
blaðsíðna riti í A4-broti.
Spurningar hafa vaknað um hvort
eðlilegt sé að gamall forsvarsmað-
ur ríkisstofnunar sjái um að skrifa
sögu hennar. „Það sem sagnfræðing-
ar halda í heiðri hvítvetna er að gæta
eins mikils hlutleysis og þeir mögulega
geta. Að vera að skrifa sögu stofnunar
sem maður stýrði sjálfur samræmist
því ekki. Í því ljósi hefði kannski ver-
ið heppilegra að fá einhvern annan til
verksins,“ segir Íris Ellenberger. Hún
segir að sögurit á borð við það sem Jón
Sigurðsson ritar oft á tíðum ekki rituð
með fræðilegar niðurstöður að leiðar-
ljósi. „Þegar stofnanir hins opinbera og
fyrirtæki í einkaeigu ákveða að skrifa
sögu sína er aðalmarkmiðið ekki alltaf
að segja satt og rétt frá sögunni, held-
ur eru oft aðrar hvatir að baki. Þeir sem
taka ákvörðunina um hver skuli skrifa
söguna gera það gjarnan í því skyni að
reisa stofnuninni minnisvarða sem
felst meðal annars í að fegra hana og
oft sjálfa sig um leið,“ segir Íris.
Hún segir að betra hefði verið að
leita að tilboðum í verkið í því leiðar-
ljósi að skrifað yrði sagnfræðilega gott
verk, ef þeir sem tóku ákvörðunina
höfðu það efst í huga.
helgihrafn@dv.is
Jón Sigurðsson Skrifar
360 blaðsíðna bók um
sögu Seðlabanka Íslands.
Þegar kenna átti bæjarbúum Flateyr-
ar notkun hjartastuðtækis kom í ljós
að annað af tveimur tækjum bæjarins
er horfið. Eitt slíkt hangir í sundlaug
bæjarins og annað hefur vanalega
hangið í fiskvinnslustöð Eyrarodda
en þegar fulltrúar Rauða krossins ætl-
uðu að grípa til tækisins á síðarnefnda
staðnum var gripið í tómt.
Sýnikennsla í notkun hjartastuð-
tækja var liður í viðbragðsdegi Flat-
eyrar en þá kynntu ýmsir viðbragðs-
aðilar, til að mynda Rauði krossinn,
björgunarsveitir, lögregla og slökkvi-
lið, starfsemi sína og búnað. Það voru
fulltrúar Rauða krossins sem ætluðu
að kenna notkun hjartastuðtækisins
í fiskvinnslustöðinni, stærsta vinnu-
stað bæjarins, en gripu í tómt þegar
þangað var komið því tækið hékk ekki
lengur uppi á vegg.
Kaupa líklega nýtt
Vigdís Erlingsdóttir, framkvæmda-
stjóri Eyrarodda, staðfestir að hjarta-
stuðtæki fiskvinnslunnar sé ekki leng-
ur til staðar þar sem það hafi verið
tekið niður þegar fyrri eigandi fisk-
vinnslunnar, sem þá hét Kambur,
hætti hjá fyrirtækinu. Hún bendir á
að það hafi verið eigandinn sjálfur,
Hinrik Kristjánsson, sem keypti tæk-
ið og segist aðspurð hafa orðið vör við
nokkra óánægju vegna málsins. „Ég
vissi af því að tækið hefði verið fjar-
lægt en það var farið þegar við byrj-
uðum. Þetta kom Rauða krossinum
á óvart því þeir héldu að tækið væri
hér,“ segir Vigdís.
„Það er staðreynd að eigandi
Kambs keypti tækið en hvað varð af
tækinu veit ég ekkert um. Að mínu
mati er slæmt að tækið sé farið því
slíkt á að vera á svona vinnustað. Í
ljósi umræðunnar sem orðið hefur
ætlum við væntanlega að fjármagna
nýtt tæki í húsið.“
Mikilvægur staður
Ívar Kristjánsson, formaður björgun-
arsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri,
segist hafa heyrt þá skýringu að um-
rætt hjartastuðtæki hafi bilað í rekstr-
artíð Kambs og því hafi það verið flutt
á heilsugæslustöð bæjarins til við-
gerðar. Hann fagnar því að forsvars-
menn Eyrarodda hyggist festa kaup á
nýju tæki. „Tækið var tekið til að hægt
væri að gera við það og ég hef heyrt að
það hafi farið á heilsugæsluna. Ef það
kemst í lag er mikilvægt að færa það
aftur í fiskvinnsluna en vonandi verð-
ur nýrra tæki keypt þangað,“ segir Ívar.
Bryndís Friðbjörnsdóttir, svæð-
isstjóri Rauða krossins á Vestfjörð-
um, segist hafa orðið hissa þegar hún
frétti að tækið hefði ekki verið leng-
ur þar sem það átti að vera. „Þar sem
ekki eru sjúkrabílar til staðar er nauð-
synlegt að hafa svona tæki á stærstu
vinnustöðunum sem þessi óneitan-
lega er. Ég var hissa þegar ég frétti
þetta. Hjartatækið er afar gagnlegt og
hefur bjargað mannslífum. Því ætti
slíkt tæki að vera til taks þar sem flest-
ir eru og því mjög mikilvægt að hafa
hjartatækið í fiskvinnslunni,“ segir
Bryndís.
Fulltrúum Rauða krossins á Flateyri var
heldur brugðið í síðustu viku en þá var
haldinn kynningardagur viðbragðsaðila
í bænum. Sýnikennsla í notkun hjarta-
stuðtækja er liður í kynningunni en þegar
á reyndi kom í ljós að annað af tveimur
tækjum bæjarins var horfið.
HJARTATÆKIÐ HVARF
Þar sem ekki eru sjúkrabílar til
staðar er nauðsynlegt
að hafa svona tæki á
stærstu vinnustöðunum
sem þessi óneitanlega er.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Tækið farið Hjartastuðtæki var
fjarlægt af stærsta vinnustað Flateyrar
en það kom viðbragðsfulltrúum
bæjarins á óvart í síðustu viku.