Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 FRÉTTIR
LOKAÐI MOGGANUM
FYRIR SVERRI
Eftir 13 ára stríð hefur Davíð Oddssyni nú tekist
að koma í veg fyrir birtingu greina eftir Sverri
Hermannsson, fyrrverandi ráðherra og banka-
stjóra, í Morgunblaðinu. Í fyrsta skipti á æv-
inni neyddist Sverrir til þess í vikunni að
fá grein birta í Fréttablaðinu. Í greininni
rifjar hann upp tilraunir í forsætisráð-
herratíð Davíðs til þess að knésetja
Styrmi Gunnarsson.
Hrakinn frá Morgunblaðinu
„Hvar Davíð hefir komizt að því trún-
aðarmáli er hægur vandi að geta sér
til um,“ segir Sverrir Hermannson.
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi
ráðherra og bankastjóri Lands-
banka Íslands, fékk ekki birta grein,
sem hann sendi Morgunblaðinu fyr-
ir skemmstu, og var hún því birt í
Fréttablaðinu síðastliðinn miðviku-
dag. Þetta er í fyrsta skipti sem Sverrir
fær ekki birta grein eftir sig í Morgun-
blaðinu, en ákvörðun þar um var tek-
in af ritstjórum blaðsins samkvæmt
heimildum DV.
Morgunblaðið leitast við að birta
allar aðsendar greinar nema þær
teljist ærumeiðandi. Í
umræddri grein
með fyrir-
sögninni
„Örlít-
il at-
hugasemd“ sneiðir Sverrir að Davíð
Oddssyni, ritstjóra Morgunblaðsins,
og rifjar upp tilraunir hans til þess að
knésetja Styrmi Gunnarsson, þáver-
andi ritstjóra Morgunblaðsins, seint á
tíunda áratugnum. Davíð var þá for-
sætisráðherra og reyndi mjög að fá
ritstjóra Morgunblaðsins til að þagga
niður í Sverri eftir að hann var látinn
hætta sem bankastjóri Lands-
bankans vorið 1998
ásamt tveim-
ur öðrum
bankastjór-
um. Sverr-
ir undi því
illa og ritaði
harðskeytt-
ar greinar í
Morgunblað-
ið í skjóli rit-
stjóranna
Styrmis og
Matthíasar Jo-
hannessen.
Vildu ganga
að Styrmi
Í greininni í Frétta-
blaðinu síðastliðinn
miðvikudag segir Sverrir
meðal annars: „Sá sem hér
heldur á penna var „rek-
inn“ aðallega vegna
þess, að hann hafði
neitað Davíð
Oddssyni um
þann greiða
að hafa æru
og atvinnu af
Styrmi Gunn-
arssyni. Þá ósk
Davíðs flutti
Kjartan Gunnarsson, varaformað-
ur bankaráðs Landsbankans, Sverri
bankastjóra að morgni dags, bláþú-
staður mjög. Kvaðst Kjartan ekki fram
bera þá ósk við bankastjórann held-
ur fyrrverandi frammámann og trún-
aðarmann Sjálfstæðisflokksins. For-
ingi sinn, Davíð, væri búinn að fá sig
fullsaddan af þjónustu Styrmis við
Jón Baldvin Hannibalsson og hefði
komizt á snoðir um að skuldastaða
Styrmis við Landsbankann væri slík,
að hægur vandi væri að segja skuld-
unum upp og ganga að Styrmi og gera
hann gjaldþrota. Hvar Davíð hefir
komizt að því trúnaðarmáli er hægur
vandi að geta sér til um.“
Sverrir segir berum orðum
að Kjartan Gunnarsson, þá-
verandi bankaráðsmað-
ur í Landsbankanum -
sem þá var ríkisbanki
- og framkvæmda-
stjóri Sjálfstæð-
isflokksins,
hafi beðið
hann sem
sjálfstæð-
ismann en
ekki banka-
stjóra að
gjaldfella
tilgreind-
ar skuld-
ir Styrmis í
Landsbank-
anum.
Skuld-
ir Styrmis
skiptu tug-
um milljóna
króna upp úr miðjum tíunda ára-
tugnum samkvæmt heimildum sem
virðast upphaflega hafa komið úr
Landsbankanum að einhverju leyti
og þar af leiðandi háðar bankaleynd.
Þess má geta að DV hefur á grund-
velli gagna sannreynt að skuldir
Styrmis voru enn miklar fyrir tveim-
ur árum. Íbúðarhús hans í Kópavogi
var til að mynda veðsett Landsbank-
anum fyrir 100 milljónir króna með
tryggingarbréfi sem gefið var út í apríl
2006. Bréfið var gefið út meðan Björg-
ólfur Guðmundsson var formaður
bankaráðs Landsbankans og Kjartan
Gunnarsson, þá framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, sat í bankaráð-
inu.
Söguburður úr innsta hring
Styrmir Gunnarsson ritstjóri var í afar
óþægilegri stöðu árið 1998 gagnvart
stjórn Árvakurs og forystu Sjálfstæð-
isflokksins þegar Sverrir Hermanns-
son átti í hlut. Þá um vorið hafði Davíð
Oddsson forsætisráðherra og Finn-
ur Ingólfsson bankamálaráð-
herra vikið bankastjór-
um Landsbankans úr
embætti. Davíð
Oddsson hafði
horn í síðu
Styrmis og
tortryggði
hann
vegna vin-
fengis við
Jón Baldvin
Hannibals-
son sem var
utanríkisráð-
herra í Viðeyj-
arstjórninni
1991 til 1995.
Auk þess tal-
aði Morgunblaðið
ákaft fyrir auðlinda-
gjaldi í sjávarútvegi
sem var þyrn-
ir í augum
Landssambands íslenskra útvegs-
manna og forystu Sjálfstæðisflokks-
ins.
Styrmir hefur sjálfur sagt að
bornar hafi verið út sögur um mikl-
ar skuldir sínar og þær hafi kom-
ið úr innsta hring Sjálfstæðisflokks-
ins. Samkvæmt sögunum áttu þær
að hafa numið að minnsta kosti 80
milljónum króna um miðjan síðasta
áratug. Svo rammt kvað að þessum
söguburði í byrjun árs 1997 að Styrm-
ir sá sig knúinn til að hafa samband
við Davíð Oddsson forsætisráðherra
og spyrja hverju sætti. Honum þótti
svínslega að sér vegið, ekki aðeins af
Davíð, heldur einnig mönnum eins
og Birni Bjarnasyni og öðrum máls-
metandi mönnum í flokksforystunni.
Sverrir Hermannsson hefur áður
sagt í samtali við Mannlíf og síðar
við DV að svo langt hafi aðförin að
Styrmi gengið, að Kjartan hafi komið
á sinn fund og beðið sig um að gjald-
fella skuldir hans í bankanum, eins og
áður segir.
Í kjölfar þess að Styrmir setti sig í
samband við Davíð snemma árs 1997
áttu þeir margra klukkustunda lang-
an fund um málið. Vopnahlé virðist
hafa komist á eða þar til ofangreind
Sverrismál risu í tengslum við Lands-
bankafárið 1998.
Innmúrað
Árið 2003 kom út bókin „Sverrir –
skuldaskil“, skráð af Pálma Jónassyni
fréttamanni. Þegar bókin kom út var
ekki greint frá því að tekinn hafði ver-
ið einn kafli úr henni skömmu fyrir
prentun. Í kaflanum var meðal ann-
ars fjallað um bréf sem Sverrir á
í fórum sínum og sent var vorið
1998 til Matthíasar Johannessen,
ritstjóra Morgunblaðsins. Bréfið
er ódagsett og óundirritað. Í sam-
tali við blaðamann DV haust-
ið 2008 taldi Sverrir vafalít-
ið að bréfið væri ritað af
Kjartani Gunnarssyni,
framkvæmdastjóra
Sjálfstæðis-
„Sá sem hér heldur á penna var „rekinn“ aðallega vegna þess, að hann hafði neitað
Davíð Oddssyni um þann greiða að hafa æru og
atvinnu af Styrmi Gunnarssyni.“
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Kjartan Gunnarsson sat í
bankaráði Landsbankans
„Kvaðst Kjartan ekki fram bera
þá ósk við bankastjórann heldur
fyrrverandi framámann og trún-
aðarmann Sjálfstæðisflokksins.“