Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Blaðsíða 14
ÓDÝRT Á
AKUREYRI
Neytendasamtökin könnuðu
verð á sælgæti og drykkjar-
föngum í nokkrum leikhúsum
og tónleikasölum. Gos í gleri
er ódýrast í Háskólabíói og hjá
Leikfélagi Akureyrar. Þar kostar
flaskan 250 krónur en hún kost-
ar 400 krónur í Borgarleikhús-
inu. Bjórflaska er einnig ódýr-
ust hjá Leikfélagi Akureyrar,
kostar 650 krónur. Hún er dýr-
ust í Borgarleikhúsinu og kostar
850 krónur.
n Almennt hefur það
verið þannig að vörur
sem framleiddar eru
fyrir Bónus, til dæmis
Bónus-safi, er ódýrari
en önnur vörumerki.
Viðskiptavinur í Bónus
við Hallveigarstíg komast að
raunum um að epla Brazzi
reyndist tíu krónum ódýrari en
Bónus eplasafi. Hann rak í það
augun
fyrir
rælni.
n „Ég var kominn á kassann í Krónunni
í Lindunum þegar ég fattaði að mig
bráðvantaði einn hlut. Ég vissi ekki
hvar hann var geymdur svo
afgreiðslustelpan skaust fyrir
mig og sótti hlutinn. Það finnst
mér góð þjónusta,“ sagði
ánægður viðskiptavinur
Krónunnar.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 196,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,9 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 197,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 195,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 199,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,9 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 197,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 195,2 kr.
Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 197,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 195,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 199,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,9 kr.
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / ney tendur@dv.is
el
d
sn
ey
ti
Niðurstaða skýrslu fyrir Neytendasamtökin:
BANKARNIR GETA AFSKRIFAÐ
„Svigrúm viðskiptabankanna til
að laga skuldastöðu heimilanna
er ótvírætt til staðar. Er verið að
nota það svigrúm að fullu og er
verið að nota það svigrúm á þann
hátt að aukin jöfnuður verði meg-
inforsenda þeirra aðgerða?“ spyr
hagfræðingurinn Kjartan Broddi
Bragason. Hann hefur unnið
skýrslu fyrir samtökin um skulda-
stöðu íslenskra heimila.
Niðurstöðurnar eru með-
al annars þær að þegar skulda-
staða íslenskra heimila er skoðuð
er einkennandi hversu skuldugir
tekjulægstu hóparnir eru. Dreifing
skulda er mjög jöfn sem bendir til
þess að tekjulægri heimili eiga erf-
itt með að lifa samkvæmt eðlileg-
um lágmarksneyslustöðlum sam-
félagsins. Kjartan segir að félagsleg
vandamál gætu aukist til lengri
tíma litið.
Kjartan segir að bankarnir hafi
ótvírætt svigrúm til afskrifta og spyr
hvort verið sé að nota það svigrúm á
þann hátt að aukinn jöfnuður verði
meginforsenda aðgerða. Hann seg-
ir enn fremur að stór hluti umræð-
unnar beinist að stóru bönkunum
þremur en bendir á að meira en
helmingur skulda heimilanna sé
í eigu annarra aðila á fjármagns-
markaði; einkum Íbúðalánasjóðs
og lífeyrissjóðanna. Horfa þurfi til
hvernig þessir aðilar geti tekið á sig
auknar niðurfæslur eða afskrift-
ir. Kjartan segir að verði skulda-
stöðu heimilanna ekki komið í rétt
horf geti endurreisn efnahagslífs-
ins dregist verulega. Landflótti geti
fylgt í kjölfarið. baldur@dv.is
14 MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 NEYTENDUR
RÁNDÝRT
SÆLGÆTI
Í könnun Neytendasamtakanna
á verði á sælgæti í leikhúsum
og tónleikasölum kom í ljós
að Nissa-súkkulaði kostar 250
krónur í Borgarleikhúsinu, í
Háskólabíói, í Íslensku óper-
unni, hjá Leikfélagi Akureyr-
ar og í Þjóðleikhúsinu. Ópal og
Tópas kosta jafnmikið nema í
Háskólabíói þar sem pakkinn
kostar „ekki nema“ 200 krónur.
Lakkrískonfekt í poka kostar
á bilinu 300 til 250 krónur, þar
sem það fæst.
Vel hægt að afskrifa Skýrsluhöfundur
segir að stóru bankarnir hafi nægt
svigrúm til afskrifta. MYND PHOTOS.COM
HOLLUR SKYNDIBITI
Bananar, rúsínur og harðfiskur eru dæmi um skyndibita sem
uppfyllir bæði þau skilyrði að vera ákaflega ríkur af mikil-
vægum næringarefnum og afar handhægur. DV tók saman tíu
heilsusamleg matvæli sem borða má hvenær sem er í amstri
dagsins. Blaðið naut aðstoðar næringarfræðinga við hvaða efni
er að finna í matnum og hvaða áhrif þau geta haft á líkamann.
BANANAR Eru afar ríkir af steinefninu kalíum. Ef
efnið vantar í líkamann getur það haft slæm áhrif á blóðþrýst-
ing, þess vegna er talað um að gott sé fyrir fólk með háan blóð-
þrýsing að borða banana. Þeir eru mjög auðugir af kolvetnum
sem er aðal orkugjafi líkamans. Banani er auk þess trefjaríkur.
HARÐFISKUR Er ríkur af Omega-3 fitusýrum
og er hlaðinn hágæða próteinum. Fitusýrurnar virðast geta
dregið úr bólgumyndun og rannsóknir benda til þess að þær
geti haft jákvæð áhrif á heilastarfsemina. Nýlegar rannsóknir
benda til að Omega fitusýrur geti jafnvel dregið úr depurð.
HNETUR Eru mjög auðugar í andoxunarefnum eins og
e-vítamínum. Þau hafa jákvæð áhrif til varnar krónískum hrörn-
unarsjúkdómum. Mikilvægt er að fá nóg af e-vítamínum en of
mikið magn hefur ekkert að segja. Í hnetum eru fjölómettaðar
fitusýrur en þriðjungur fitunnar í fæðinu ætti að vera í því
formi; þriðjungur úr einómettuðum fitusýrum (t.d. ólífuolía) og
þriðjungur úr mettuðum fitusýrum (hörð fita). Íslendingar fá að
jafnaði 2/3 hluta fitunnar úr mettaðri fitu. Það hlutfall má bæta
með því að borða hnetur endrum og eins í stað afurða sem
innihalda harða fitu (t.d. djúpsteiktar kartöflur).
GULRÆTUR Sprengfullar af alls kyns næringarefn-
um eins og c-vítamínum og efnum sem kallast beta-karótín.
Það eru jurtaefni sem umreytast í a-vítamín en skortur á
því leiðir til næturblindu eða jafnvel blindu í alvarlegum
tilfellum. Skortur á a-vítamínum hjá börnum er algengasta
orsök blindu, þegar heimurinn allur er skoðaður. A-vítamín
eru andoxunarefni sem hafa jákvæð áhrif í för með sér fyrir
líkamann, að því skyldu að við fáum efnið úr fæðu, en ekki
fæðubótarefnum.
TÓMATAR Líkt og eins gul-
rætur innihalda tómatar karótín-efni.
Efnið í tómötum kallast lýkópen. Ef
það er í eðlilegu magni í líkamanum þá
getur það hjálpað okkur í baráttu gegn
ýmsum krónískum sjúkdómum. Þetta
er einnig efni sem við verðum að fá úr
fæðu til að það virki sem skyldi.
BLÁBER Innihalda mikið
magn andoxunarefna og talið er að
neysla þeirra geti dregið úr einkennum
hjá Alzheimer-sjúklingum og þeim
sem þjást af elliglöpum. Rannsóknir
sem gerðar voru á dýrum sýndu m.a.
að neysla á bláberjum gæti lækkað
kólesterólmagn í blóði og hjálpað til
við stjórnun blóðþrýstings. Neysla
Íslendinga á berjum er lítil og því
ólíklegt að fólk borði yfir sig af berjum.
HREIN AB-
DRYKKJARJÓGÚRT
A- og b-gerlar eru taldir geta stuðlað
að betri meltingu og geta dregið úr
óæskilegum afleiðingum af inntöku
sýklalyfja. Einhverjar rannsóknir
benda til að gerlarnir geti dreið úr
óheppilegum bakteríum og sveppum
í meltingarvegi. Mjólkurvörur eru
auk þess langbesta kalkuppsprettan í
fæðunni en kalk er mikilvægur þáttur í
byggingu beina.