Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 17
Boðið upp
á klausturlíf
Klaustur skammt frá Vín í Austur-
ríki býður fólki að lifa klausturlífi
yfir eina helgi. Ástæðan er skortur á
munkum og vonast ráðamenn frans-
iskusklaustursins í Maria Enzer-
dorf að með þeim hætti takist að
vekja áhuga fólks á að því að verða
munkar.
Munkarnir segjast vilja gefa fólki
raunsæja sýn á líf munka og allir
karlmenn upp að fertugsaldri eru
velkomnir.
Síðan átakinu var ýtt úr vör í
október hafa þrír íhugað að gerast
munkar. Reyndar stendur tilboðið
ekki eingöngu körlum til boða því
svipað boð stendur konum til boða
hjá fransiskus-nunnureglu.
Vinna í réttarsölum
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu hyggjast
setja ný lög sem heimila kvenkyns
lögfræðingum að flytja mál sín fyrir
dómstólum og að sögn Mohammed
al-Eissa dómsmálaráðherra eru lög-
in þáttur í fyrirætlunum Abdullah
konungs um þróun dómkerfisins.
Lögin, sem verða kynnt á næstu
dögum, gera kvenkyns lögfræðing-
um kleift, í fyrsta sinn, að flytja mál
sem varða fjölskyldur fyrir dómstól-
um, mál sem til dæmis varða skiln-
aði og barnaforsjá.
Eins og málum er háttað nú geta
kvenkyns lögfræðingar eingöngu
unnið á bak við tjöldin frá skrifstof-
um á vegum hins opinbera eða inn-
an dómshúsa.
Fjarri góðu gamni
Leikstjórinn Roman Polanski var
fjarri góðu gamni þegar hann var
tilnefndur besti leikstjórinn á kvik-
myndahátíð í Berlín í Þýskalandi
um helgina. Í stað þess að veita við-
töku Silfurbirninum fyrir leikstjórn
myndarinnar The Ghost Writer var
Polanski staddur á svissnesku fjalla-
heimili sínu með rafrænt ökklaband
sem tryggir að hann fari ekki út úr
garðinum.
Polanski var handtekinn í Sviss í
september, en hann hefur verið eft-
irlýstur af bandarískum yfirvöldum
síðan 1977 vegna kynferðisafbrots
sem hann framdi gegn þrettán ára
stúlku.
Páfi blandar sér í umræðuna um strípiskanna:
Heilindi fólks verðmætust
Yfirmenn öryggismála á flugvöllum
hafa kannski haldið að þeir hefðu nóg
á sinni könnu með tilliti til skósprengj-
uvarga og nærbuxnasprengju varga,
að ógleymdum farþegum sem gleyma
að setja tannkremið í litla plastpoka.
En lengi getur vont versnað og nú hef-
ur hans heilagleiki Benedikt XVI páfi
bæst við áhyggjuefni þeirra.
Á fundi í Páfagarði um helgina
blandaði páfi sér með óvæntum hætti
í umræðuna um áform um notkun
strípiskanna á flugvöllum og sagði
áheyrendum úr flugiðnaðinum að, án
þess að hann vildi gera lítið úr hætt-
unni sem stafar af hryðjuverkamönn-
um, „helstu verðmætin sem yrði að
verja og varðveita væri manneskjan,
og heilindi hennar“.
Benedikt páfi sagði að það kynni
að reynast sérstaklega flókið að virða
grundvallarreglur í nútíma samhengi
sagði hann áheyrendahópnum sem
samanstóð af framkvæmdastjórum
flugvalla, öryggisstarfsfólki, flugstjór-
um og öðrum sem tengjast flugiðn-
aðinum.
Páfi hafði orð á þeim vandamálum
sem viðkomandi fólk þurfti að glíma
við og væru tilkomin vegna efnahags-
kreppunnar og ógnar vegna hryðju-
verka á heimsvísu sem beindist að
flugvélum og flugvöllum. En páfi var
ómyrkur í máli og sagði að „það væri
mikilvægt að missa aldrei sjónar á
virðingu“ gagnvart manneskjunni.
Talið er víst að ummæli Benedikts
páfa verði vatn á myllu baráttufólks
fyrir borgaralegum réttindum sem
andvígt er notkun tækis sem nánast
afklæðir fólk.
Benedikt XVI páfi
Mátar flugstjórahúfu
á fundi með fólki úr
flugiðnaðinum. MYND AFP
utanríkisráðherra þeirra landa eiga
ekki staðfestan fund með Lieberman
á mánudag.
Boðin ný vegabréf
Bresk stjórnvöld hafa boðið þeim
sex bresku borgurum sem lentu í
því að vegabréf þeirra voru notuð
við morðtilræðið í Dúbaí ný vega-
bréf og vilja með þeim hætti koma í
veg fyrir að þeir verði handteknir af
alþjóðalögreglunni Interpol.
Starfsfólk breska sendiráðsins
í Tel Aviv hefur tekist að hafa upp
á þeim öllum og þeir búa allir í Ís-
rael.
Alþjóðalögreglan Interpol hefur
gert ráðstafanir svo unnt verði að
finna og handtaka þau ellefu sem
grunuð eru um aðild að morðinu,
hvar sem er innan þeirra 188 ríkja
sem aðild eiga að Interpol.
Lögreglustjórinn í Dúbaí hefur
krafist þess að yfirmaður Mossad-
leyniþjónustunnar verði handtek-
inn ef færðar verða sönnur á ábyrgð
leyniþjónustunnar á morðinu.
Lögreglustjórinn í Dúbaí, Dahi
Khalfan Tamim, hefur krafist þess
að yfirmaður Mossad-leyniþjón-
ustunnar verði handtekinn ef færð-
ar verða sönnur á ábyrgð leyni-
þjónustunnar á morðinu.
Í þarlendu dagblaði er haft eftir
Tamim að hann sé þess nánast full-
viss að Mossad hafi staðið að baki
morðinu. „Það er 99 prósent, ef
ekki 100 prósent [öruggt] að Moss-
ad stendur að baki morðinu,“ var
haft eftir Tamim.
ÍSRAELAR KRAFÐIR SVARA
Sendiherrar Ísraels á Írlandi og Bretlandi Dr. Zion Envrony (t.v.) og Ron Prosor.