Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Qupperneq 18
Svarthöfði er miður sín eftir atburði helgarinnar. Eitt helsta goð hans, Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæj-
arstjóri í Kópavogi, hefur verið mát-
aður og sleginn út af borðinu. Þetta
er áfall fyrir þau öfl í landinu sem
vilja endurreisa Ísland og tryggja að
allt verði eins og það var.
Gunnar hefur á ferli sín-um marga fjöruna sopið. Hann er á meðal allra alþýðlegustu stjórnmála-
mönnum. Í stað þess að loka sig
inni í pýramída valdsins var hann
gjarnan á vappi á meðal borgar-
anna. Þannig var um tíma hægt
að ganga að honum nokkuð vísum
á hverfispöbbi nokkrum í Kópa-
vogi. Sá veitingastaður átti reynd-
ar Gunnari og Kópavogsbúum að
þakka tilvist sína. Staðurinn var
áður rekinn í nágrannasveitarfé-
laginu Reykjavík. Þar gaus upp of-
stæki í stjórnsýslunni vegna þeirrar
menningarstarfsemi sem átti sér
stað þar. Boðið var upp á listdans
kvenna sem á sviði sýndu kúnst-
ir sínar. Þetta bönnuðu öfgaöfl í
Reykjavík fyrir nokkrum árum.
Gunnar bæjarstjóri brá skjótt við og
veitti listafólkinu skjól í Kópavogi.
Þá lét hann þess getið að ef dansinn
fengi ekki að þrífast löglega myndi
hann færast út á götur og torg með
skelfilegum afleiðingum. Allt fram
á þennan dag hefur þessi listgrein
átt skjól í Kópavogi. Framan af var
bæjarstjórinn gjarnan gestur þar í
menningarskyni en vegna ofsókna
hætti hann að mæta.
Bæjarstjórinn í Kópavogi var dáður af meðborgurum sínum sökum alþýðleika og framkvæmdagleði. Það
var gott að búa í Kópavogi. Í bæn-
um draup smjör af hverju strái og
peningarnir flæddu um hagkerf-
ið. Það þurfti margar hendur til
að vinna verkin. Og það var meiri
eftirspurn en framboð á vinnandi
fólki. Því greip Gunnar til þess ráðs
að fela dóttur sinni að vinna verk-
efni tengd sögu bæjarins sem aðrir
nenntu ekki að sinna. Að sjálfsögðu
þurfti dóttirin að fá umbun fyrir
verk sín. Þetta var nákvæmnis-
vinna og tímafrek þannig að millj-
ónir þurftu að koma til greiðslu til
að sanngirni væri til staðar. Óvinir
Gunnars notuðu þetta gegn honum
þótt þeim ætti að vera ljóst að dótt-
irin færði fórnir í þágu sveitarfé-
lagsins og föður síns.
Ótal hagræðingaraðgerðir áttu sér stað í Kópavogi í tíð Gunnars. Hann gerði sjálfan sig að stjórnar-
formanni lífeyrissjóðs bæjarstarfs-
manna. Og til að einfalda málin
lánaði sjóðurinn bænum fjármuni.
Augljóst hagræði var að slíku þar
sem þá þurfti ekki að eyða tímanum
í að fara í banka. Lögreglan þurfti
endilega að frýnast í þetta mál og
bæjarstjórinn varð að segja af sér
um stundarsakir. Síðasta aðförin
að Gunnari var sú að hann fékk vin
sinn, Halldór Jónsson, skoðunar-
mann reikninga Kópavogsbæjar,
til að taka að sér aukaverkefni sem
fólust í eftirliti með byggingarfram-
kvæmdum ýmsum. Fyrir þetta fékk
skoðunarmaðurinn skitna milljón
á mánuði eða samstals 70 millj-
ónir króna. Þetta var auðvitað gert
tortryggilegt. Með slíkum endem-
um var umræða Baugsmiðlanna
um málið að kónginum var skákað
með þeim afleiðingum að hann féll.
Svartur vann skákina. Kópavogsbú-
ar sitja síðan uppi með að hafa af-
neitað sínum besta syni. Eftirskrift-
in verður eflaust „Það var gott að
búa í Kópavogi“.
KÓNGURINN MÁTAÐUR
„Svarið er augljóst:
Það verður enn
betra að búa í
Kópavogi,“ segir
Ármann Kr.
Ólafsson sem
hafnaði í 1. sæti í
prófkjöri
sjálfstæðismanna
í Kópavogi um
helgina. Ármann
lagði þar Gunnar Birgisson, sem
hafnaði í 3. sæti. Frægustu ummæli
Gunnars frá því hann var bæjarstjóri
eru líklega: „Það er gott að búa í
Kópavogi.“
VERÐUR ÁFRAM GOTT
AÐ BÚA Í KÓPAVOGI?
„Mér vitanlega
hefur Eva Joly
ekki lagt neitt
meira af mörkum en hver
annar pistlahöfundur.“
n Björn Valur Gíslason um aðild Evu Joly af
Icesave-deilunni en hann skilur ekki hvers vegna
fólk dásami hana fyrir framlag sitt til hennar.
- Visir.is
„Ef einhver segir það
auðvelt að sameina þessa
hluti fjölskyldulífi þá er
það auðvitað lygi.“
n Sigurjón Sighvatsson
kvikmyndaframleiðandi um að
sameina fjölskylduna hasarnum
í Hollywood. Honum hefur samt
tekist það og hefur verið giftur í 35 ár. - DV
„...skipta á mér og þúsund
úlföldum.“
n Linda Pétursdóttir,
fyrrverandi alheimsfegurðar-
drottning, um að vini hennar
hafi verið boðnir þúsund úlfaldar
í skiptum fyrir hana þegar þau voru stödd í
Marakó fyrir skemmstu. - DV
„Ég held nú að ég hafi sýnt
þeim kennara að hann
hafði rangt fyrir
sér.“
n Björgvin Páll Gústavsson,
landsliðsmarkmaður í
handbolta, um ummæli
fyrrverandi kennara sem sagði að það yrði
ekkert úr honum. Hann hefur svo sannarlega
afsannað þau orð. - DV
„Æ, þetta er eitthvað svo
óþægilegt.“
n Einn af gestunum á myndinni frægu sem
tekin var af mörgum af helstu útrásarvíkingum
landsins og vinum þeirra í skíðaferð í boði
Landsbankans á sínum tíma. - DV
Martröð Nýja-Íslands
Martröð Nýja-Íslands er að ríkis-stjórn Samfylkingar og vinstri grænna verði með puttana ofan í einstökum ákvörðunum bank-
anna um viðskiptalífið. Fyrr eða síðar myndu
vanheilög tengsl stjórnmálaflokka og stór-
fyrirtækja valda spillingu sem yrði verri en
spillta viðskiptalífið fyrir hrun. Vald ríkis-
stjórnar yfir ákvörðunum bankanna myndi
marka endalok endurreisnarinnar og upphaf
nýrrar spillingar.
Martröðin er að samstaða komi í stað gagn-
rýni og átaka; að allir þingmenn ríkisstjórnar-
innar gangi í takt fylgjandi ákvörðunum for-
manna stjórnmálaflokkanna. Að atvinnulíf
og stjórnmál myndi með sér sömu samstöðu
og var þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
fór með Sigurði Einarssyni til Kaupmanna-
hafnar til að tala máli bankanna í mars 2008.
Samstaðan var einkenni Íslands fyrir hrun.
Samstaða er eitt helsta einkenni samfélaga í
einvaldsríkjum. Lýðræðið er hins vegar stöð-
ug átök, tortryggni og gagnrýni.
Martröðin er að Íslendingar kalli yfir sig
sterkan leiðtoga, sem aldrei
viðurkennir mistök, og refsi
þeim stjórnmálamönn-
um sem geta endurmet-
ið áhrif ákvarðana sinna í
ljósi breyttrar stöðu. Hún er
að þjóðin hafi ekki þroska
til að hafna þeim sem vilja
ekki biðjast afsökunar og
líti á þá sem veikgeðja sem
biðjast afsökunar. Martröð-
in er að hér verði ríkjandi persónustjórnmál,
þar sem afstaða snýst um að styðja óskeik-
ula leiðtoga óháð málefnum og ákvörðunum.
Hún er að stjórnmálin verði eins og fótbolta-
leikur.
Martröðin er að fólk verði aftur gert horn-
reka fyrir skoðanir sem samrýmast ekki vilja
valdamanna. Að fólk verði jafnvel rekið úr
stöðum sínum á vegum ríkisins ef það tjáir sig
frjálst.
Martröðin er að þeir sem lögðu drög að
Icesave-samningnum komist til valda með
því að gagnrýna Icesave-samninginn. Hún
er að Sjálfstæðisflokkur-
inn komist til valda áður
en hann verður dæmdur
fyrir gjörðir sínar. Hún er
líka að vinstri grænir venj-
ist valdinu hraðar en þeir
ná að siðvæða stjórnkerfið
og stjórnmálin og lögbinda
móteitur gegn spillingu.
Martröð Nýja-Ís-
lands nálgast. Ákallið eft-
ir blindri samstöðu og sterkum leiðtoga til
skjótra aðgerða verður sífellt háværara meðal
fólksins í landinu. Það er eðlilegt ákall frá fólki
sem hefur verið fórnað í skipulegan, langvar-
andi þrældóm íslenskra húsnæðis- og bíla-
lána. Ríkisstjórnin verður að setja í forgang
að klára almenna löggjöf sem tjóðra bankana
og frelsa almenning undan oki þeirra. Ágætis
byrjun er frumvarp Lilju Mósesdóttur um að
fólk geti skilað bankanum fasteign sinni án
þess að bankinn hundelti það eins og saka-
menn, á sama tíma og hann afhendir grunuð-
um sakamönnum eignir á færibandi.
JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Martröðin er að samstaða komi í stað gagnrýni.
BÓKSTAFLEGA
18 MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 UMRÆÐA
SANDKORN
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
n Stjörnulögmaðurinn Sveinn
Andri Sveinsson hefur undan-
farin ár setið nær einn að því að
verja meinta krimma Íslands. En
nú hefur hann
fengið grimma
samkeppni því
Jón Egilsson
lögmaður rær á
sömu mið. Og
Jón hefur fengið
drjúga aðstoð
við að ná til sín
kúnnum því
Atli Helgason, lögfræðingur og
fyrrverandi fangi, hefur gengið til
liðs við hann. Atli sat árum saman
á Litla-Hrauni og þekkir því vel til
eftirsóknarverðra viðskiptavina.
n Ragnheiður Hergeirsdóttir,
bæjarstjóri í Árborg, vann góð-
an sigur í prófkjöri f lokksins
og hreppti efsta sætið. Þetta er
auðvitað góð-
ur sigur og þá
kannski sér-
staklega í því
ljósi að Ragn-
heiður hafði
gefið út að hún
myndi ekki
gefa kost á sér
í slaginn. Talið
var að það væri vegna einstak-
lega bágrar stöðu sveitarfélagsins
sem mun ganga í gegnum miklar
þrengingar á næstunni. Sagt var
frá sigri Ragnheiðar í fjölmiðlum
en ekki var látið neitt uppi um
þátttökuna. Lítill fugl í Árborg
hvíslaði því að alls hefðu rúmlega
200 manns tekið þátt í prófkjör-
inu.
n Þau tíðindi úr kópavogi að Ár-
mann Kr. Ólafsson bæjarfulltrúi
lagði að velli
sjálfan kóng-
inn, Gunnar I.
Birgisson, eru
með þeim stærri
í stjórnmála-
sögunni. Með
þessu lýkur 20
ára valdatíð
Gunnars innan
Sjálfstæðisflokksins. Ástæða falls
hans er væntanlega sá spillingar-
stimpill sem hann hefur á sér. Bæj-
arfulltrúar flokksins sneru baki
við sínum gamla leiðtoga og fylktu
sér að baki Ármanni. Sama er að
segja um leiðtoga annarra flokka
sem sammæltust um að vilja ekki
vinna með gamla kónginum sem
þannig lenti uppi á skeri sinna pól-
itísku örlaga.
n Páll Magnússon útvarpsstjóri
hefur sig mikið í frammi þessa
dagana. Lík-
lega metur
hann stöðu sína
ótrygga í því ljósi
að skipunartími
hans rennur út á
þessu ári. Hann
mætti í viðtal hjá
Tvíhöfða á Kan-
anum í keflavík
og var hinn mýksti. Eftir því var
tekið að hann mætti ekki á sportbíl
skattgreiðenda heldur á mun lé-
legra ökutæki. Á sunnudagsmorg-
un var Páll síðan á Rás 2 og svaraði
spurningum langt á annan klukku-
tíma. Reikna má með að hann láti
taka við sig viðtöl víðar hjá eigin
stofnun meðan á framboðsbarátt-
unni stendur.
LEIÐARI
SPURNINGIN
SVARTHÖFÐI