Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Page 19
HVERNIG HELDUR ÞÚ AÐ ÍSLENDINGUM GANGI Í EUROVISION-KEPPNINNI?
„Ég held að það sé möguleiki að okkur
gangi vel. Mér finnst lagið fínt. Ég trúi
því að við lendum í topp tíu í
aðalkeppninni.“
RÚNA MAGNÚSDÓTTIR
15 ÁRA NEMI
„Ég held að okkur eigi eftir að ganga
ágætlega bara. Ég hef trú á Heru og því
að við komumst upp úr forkeppninni.“
BRYNJA BALDURSDÓTTIR
45 ÁRA GEISLAFRÆÐINGUR
„Ég hef ekki hugmynd enda fylgist ég
ekki með Eurovision-keppninni.“
BERGLIND GUÐNADÓTTIR
25 ÁRA HÚSMÓÐIR
„Ég ætla að giska á fjórða sætið. Ég hugsa
að við komumst upp úr forkeppninni en
er vissulega hræddur við stuðning
Evrópulandanna við hvert annað.“
JÓN ÞÓRARINSSON
28 ÁRA STARFSMAÐUR BÓNUSS
SEAN BURTON fór gjörsamlega á
kostum fyrir körfuknattleikslið
Snæfells sem tryggði sér bikarmeist-
aratitilinn í Laugardalshöllinni um
helgina með sigri á Grindavík. Sean
skoraði 36 stig en hann hefur verið
ótrúlega heitur í vetur. Hann æfir
skotin sín mikið aukalega.
TEKUR 500
SKOT Á DAG
„Ég held að við skorum ekki hátt. Mér
líst ekkert á þetta, hvorki á lagið né
flytjandann, og óttast að við eigum
eftir að skíta á okkur.“
ANDRI FREYR ÞORSTEINSSON
18 ÁRA NEMI
Kynbundin verkaskipting er fyrir
hendi í öllum samfélögum heims og
alls staðar er hún ein af grundvallar-
skiptingum þjóðfélagsins sem mark-
ar bæði konum og körlum stöðu í lífi
og starfi. Lengi vel var það hlutverk
karla að vera fyrirvinnur fjölskyld-
unnar og hlutverk kvenna að hugsa
um börn og bú.
Fleiri konur eru nú útivinnandi en
nokkurn tímann áður og er atvinnu-
þátttaka íslenskra kvenna með því
mesta sem þekkist í hinum vestræna
heimi. Á sama hátt eru karlar í aukn-
um mæli að axla ábyrgð á heimili og
börnum.
Langt í land
Fæðingarorlof íslenskra karla var
mikið framfaraspor í jafnréttisbar-
áttunni en það veitti körlum aukin
tækifæri til að taka þátt í uppeldi og
umönnun barna sinna. En betur má
ef duga skal, ennþá er töluvert í land
að karlar sitji við sama borð og konur
þegar kemur að umönnun barna og
heimilisstörfum. Jafnrétti kynjanna
þýðir nefnilega að kynin séu jafnsjá-
anleg í samfélaginu, jafnvaldamikil
og taki þátt í opinberu og einkalífi í
jöfnum hlutföllum.
Við vitum að margir karlar eru
ennþá fastir í fyrirvinnugildrunni
sem oft á tíðum kemur í veg fyrir að
þeir geti sinnt fjölskyldulífi til jafns
við konur. Á sama hátt eru margar
konur fastar í húsmóðurgildrunni
sem stundum stendur í vegi fyrir að
þær geti tekið þátt í opinberu lífi til
jafns við karla. Þarna er mikið verk
að vinna ef karlar og konur eiga að
sitja við sama borð og geta tekið þátt
í opinberu og einkalífi í jöfnum hlut-
föllum. Verk sem við, karlar og konur,
þurfum að vinna saman.
Úreltar staðalmyndir
Til að ná árangri þurfum við að skoða
samfélagið og formgerð þess. Við
þurfum að sýna kjark til að uppræta
inngróin og gamaldags viðhorf sem
gegnsýra allt okkar umhverfi. Og við
þurfum að sýna þor til að uppræta úr-
eltar staðalmyndir kynjanna sem út-
hluta körlum og konum ákveðin hlut-
verk og störf út frá kyni.
Það er vegna þessara gamaldags
viðhorfa og úreltu staðalmynda sem
karlar festast oft í störfum þar sem
ekki er tekið tillit til fjölskyldulífs og
barnauppeldis. Ef við upprætum ekki
þessa skekkju halda karlarnir áfram
að standa höllum fæti þegar kemur
að umönnun og uppeldi barna.
Karlar veri með
Konur hafa hingað til verið í forsvari
fyrir jafnrétti kynjanna og háð barátt-
una en nú verða karlarnir að koma
með. Án þátttöku karla munum við
aldrei ná fram raunverulegu jafnrétti.
Öðruvísi er ekki hægt að uppræta
þessi gamaldags viðhorf og úreltu
staðalmyndir sem koma í veg fyrir að
karlar njóti samvista við börn sín til
jafns við konur og að bæði karlar og
konur nýti hæfileika sína til fulls.
Jafnrétti kynjanna er ekkert einka-
mál kvenna. Jafnréttisbaráttan þarf
líka að beina sjónum sínum að körl-
um og hvernig gjald karlmennskunn-
ar getur dregið úr lífsgæðum þeirra.
Það er því full ástæða til að vekja
karlmenn til vitundar um að jafnrétti
kynjanna er ekki síður í þeirra þágu.
Áfram strákar vera með – jafnrétti
kynjanna er ekkert einkamál kvenna.
Jafnrétti ekki einkamál kvenna
UMRÆÐA 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 19
1 DAUÐI STJARNANNA EKKI LENGUR BRÝNT FRÉTTAEFNI Á BBC
Breska ríkisútvarpið hefur fjarlægt
fimm meðlimi bresku konungsfjöl-
skyldunar af lista sínum.
2 SEGIR AÐ DAVÍÐ HAFI BOÐIÐ SÉR STÖÐU ÚTVARPSSTJÓRA
Hreinn Loftsson segir að Davíð
Oddsson hafi viljað gera sig að
útvarpsstjóra árið 1997.
3 „SÁRALÍTILL MUNUR Á PÓLITÍKINNI Í AFRÍKU OG Á ÍSLANDI“
Myndin Burkina Faso, 8600 km er
komin í sýningar á netinu.
4 FRÆGUSTU FLÓTTARNIR ÚR HEGNINGARHÚSINU
Í helgarblaði DV eru rifjaðir upp nokkr-
ir af frægustu fangelsisflóttunum.
5 KLAPPSTÝRA VERÐUR SEXÍ SÖRFARI Leikkonan Hayden Panettiere bregður
sér í nýtt hlutverk á forsíðu tímaritsins
Self.
6 HANNES: DAVÍÐ VAR SÁR, EKKI REIÐUR
Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir
Davíð Oddsson ekki hafa verið reiðan
út í sig heldur sáran
7 SEBRAHESTUR LÉK LAUSUM HALA Í ATLANTA
Lögreglan í Atlanta átti í æsilegum
eltingaleik við sebrahest sem óð um
götur borgarinnar.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er maðurinn? „Sean Burton frá
New York.“
Hvar ólstu upp? „Rétt fyrir utan New
York-borg, í bæ sem heitir Utica.“
Hvernig líkar þér Ísland? „Ég elska
það. Þetta er allt öðruvísi en það sem
ég hef vanist samt. Þetta er samt frábær
staður til að búa á.“
Af hverju ákvaðstu að koma
hingað? „Ég vildi ekki hætta að spila
körfubolta eftir að ég kláraði háskólann
og þetta virtist vera besti kosturinn í
stöðunni, að koma til Íslands.“
Hvernig er Stykkishólmur á miðað
við önnur heimkynni þín? „Mun
minni og hljóðlátari en það líkar mér.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„New York-pitsa, ekki spurning!“
Fylgistu með öðrum íþróttum en
körfubolta? „Ekki mjög mikið. Ég hef
samt aðeins verið að horfa á fótbolta og
handbolta eftir að ég kom til Íslands. Svo
horfi ég líka á NFL.“
Hvar hefurðu áður spilað körfu-
bolta? „Í 3. deildar háskóla sem heitir
Ithaca.“
Hvernig var að hampa bikarmeist-
aratitlinum? „Það var alveg frábær
tilfinning. Það er alltaf gott að vinna og
sérstaklega leiki um titil.“
Hvenær fannst þér leikurinn
unninn? „Þegar það voru svona ein og
hálf mínúta eftir náðum við nokkrum
sóknarfráköstum í röð og hittum svo úr
þristi í horninu. Þá var ég orðinn nokkuð
öruggur.“
Hefurðu alltaf verið svona skotglað-
ur? „Ég er alltaf að æfa skotin þannig ég
er nokkuð öruggur þegar ég tek þau.“
Æfirðu skotin þín mikið? „Ætli ég taki
ekki samanlagt um fimm hundruð skot
á dag.“
Verðið þið Íslandsmeistarar? „Það er
markmiðið og ég vona svo sannarlega
að okkur takist það.“
MAÐUR DAGSINS
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
KJALLARI
ARNFRÍÐUR
AÐALSTEINSDÓTTIR
Verkefnisstjóri á Jafnréttisstofu
„Fæðingarorlof íslen-
skra karla var mikið
framaspor í jafnréttis-
baráttunni.“
Á SKAUTUM Ærslafull ungmenni nýttu frostið og stylluna í miðborginni á sunnudaginn til þess að renna sér á skautum og spila
íshokkí á ísilagðri Reykjavíkurtjörn, þegar Sigtrygg Ara Jóhannsson, ljósmyndara DV, bar að garði. MYND SIGTRYGGUR ARI