Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Side 23
ÚTTEKT 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 23
Ég var búin að fara margar ferðir til heimilis-læknis en hafði ekki fengið almennilega skoð-un. Ég fékk bara fleiri og sterkari verkjatöflur,“ segir Júlía Katrín Behrend sem greindist með
legslímuflakk þegar hún var 17 ára.
Júlía Katrín hafði þjáðst af miklum tíðarverkjum frá
13 ára aldri og var auk þess með afar óreglulegan tíð-
arhring. „Árið 2006 fór ég til kvensjúkdómalæknis sem
fann mjög stóra blöðru á öðrum eggjastokknum. Hann
vildi bara bíða og sjá og bað mig að koma aftur eftir
sex mánuði. Síðar sama ár fór ég til annars læknis sem
skoðaði mig og ákvað að skera mig og brenna blöðruna
í burtu. Í kviðholsspeglun kom legslímuflakkið í ljós,“
segir Júlía Katrín og bætir við að hvorki hún né mamma
hennar hafi nokkurn tímann heyrt getið um þennan
sjúkdóm. „Ég var svo ung og áttaði mig ekki alveg strax á
alvarleika málsins en eftir að hafa lesið mér til á netinu
gerði ég mér grein fyrir að sjúkdómurinn gæti haft áhrif
á frjósemi mína. Ég var ekki komin í neinar barneignar-
hugleiðingar á þessum tíma en var samt alltaf með þetta
á bak við eyrað.“
Barnleysið tekur toll
Í dag er Júlía Katrín 21 árs en hún og kærasti henn-
ar, Guðni Björn Gunnlaugsson, hafa reynt að eignast
barn í næstum tvö ár án árangurs. „Kvensjúkdóma-
læknirinn minn segir okkur að ræða við læknana á
Art Medica en ég er orðin svo læknahrædd. Ég er samt
að undirbúa mig fyrir að fara þangað og fá hjálp, það
er næsta skref,“ segir hún og bætir við að barnleysið
sé farið að taka sinn andlega toll. „Þetta er alveg rosa-
lega erfitt og það er ekki nóg með að blæðingarnar
séu merki um að ég sé ekki ófrísk heldur fylgir þeim
mikill sársauki líka,“ segir Júlía Katrín og bætir við að
hún mæli með að allar stúlkur tali við kvensjúkdóma-
lækni ef þær gruni að þær séu með legslímuflakk.
„Það er engin ástæða til að láta sér líða svona
illa einu sinni í mánuði og því fyrr sem þetta
greinist því betra. Ég vil líka benda konum
á að vera ákveðnar í samskiptum sínum við
lækna. Við verðum að standa fast á okkar og
vera dálítið frekar því annars tekur allt svo
langan tíma.“
indiana@dv.is
Við tíðablæðingar fer blóð ekki bara niður um leg-hálsinn, heldur berst líka svolítið blóð upp í gegnum
eggjaleiðarana og inn í kviðarhol-
ið, einkum niður í grindarholið. Í
blóðinu eru frumur úr legslímhúð-
inni sem setjast á yfirborð eggja-
stokkana eða á lífhimnuna sem
þekur kviðarholið að innan,“ segir
Reynir Tómas Geirsson, prófessor á
Kvennasviði Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss, þegar hann er beðinn
um að útskýra legslímuflakk. Reyn-
ir vill ekki meina að sjúkdómurinn
sé feimnismál heldur hafi sjúkling-
um oft reynst erfitt að skilja hann
og læknum að útskýra hvað gerist.
Ættgengur sjúkdómur
„Frumurnar geta hjá sumum kon-
um festst á lífhimnuna og borað
sér leið inn undir hana eða inn í
eggjastokkinn þar sem þær fjölga
sér. Hjá flestum konum ná varnar-
frumur líkamans að eyða þeim, en
þegar það tekst ekki þá vaxa þær og
svo blæðir mánuð eftir mánuð og
jafnvel ár eftir ár inn í eggjastokk-
ana eða lífhimnuna. Við það mynd-
ast bólga og þá losna hormón sem
valda verkjum, sérstaklega þegar
blæðir inn í eða undir lífhimnuna.
Þegar eggjastokkarnir eiga í hlut
eru verkirnir ekki jafn slæmir af því
þar eru fáar skyntaugar, en þá geta
myndast stórar blóðfylltar blöðrur
sem svo springa einn daginn sem
er ofsalega sárt.“
Reynir Tómas segir legslímu-
flakk hafa áhrif á frjósemi kvenna.
Bæði vegna þess að sjúkdóm-
urinn trufli egglos og hafi áhrif
á legslímhúðina sem taki við
frjóvguðu eggi. „Stundum get-
ur sjúkdómurinn verið þáttur í
eða hreinlega valdið því að kon-
ur eiga erfitt með að eignast börn
en flestar geta þó orðið þungaðar
með frjósemimeðferð,“ segir hann
og bætir við að sumar konur séu
næmari en aðrar og þeirra varn-
arkerfi svari verr en hjá öðrum.
Þetta sé ættgengt eins og íslensk-
ar rannsóknir hafa sýnt.
Sársauki við samfarir
Reynir segir að á Íslandi megi gera
ráð fyrir að um 2000 konur hafi
haft sjúkdóminn þannig að hann
hafi valdið þeim vandkvæðum á
frjósemisaldrinum. „Þessi tala er
há og við verðum að ná betur til
þessara kvenna. Einkennin eru
tíðaverkir sem standa lengur og
eru verri en hjá öðrum konum, oft
þungir verkir í grindarholi. Sumar
konur finna fyrir sársauka við sam-
farir. Getnaðarvarnir eins og pillan
með lengri hléum eða hormóna-
lykkjan geta haldið einkennum
niðri, en líka meðganga og brjósta-
gjöf og við tíðahvörf getur sjúk-
dómurinn brunnið út.“
indiana@dv.is
SJÚKDÓMURINN SEM EKKI MÁ NEFNA
UM 2000 KONUR MEÐ LEGSLÍMUFLAKK
GREIND 17 ÁRA
MEÐ LEGSLÍMUFLAKK
Reynir Tómas Geirsson yfirlæknir Reynir Tómas segir að
blóð fari ekki aðeins niður við blæðingar heldur einnig fari
svolítið upp í gegnum eggjaleiðarana og inn í kviðarholið.
Standa þétt saman Júlía Katrín og Guðni
Björn hafa reynt í tvö ár að eignast barn án
árangurs. Júlía Katrín segir barnleysið farið að
taka sinn toll andlega. MYND: RAKEL ÓSK