Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Page 25
SPORT 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 25
MIKE DEAN
DÓMARI
n Mike Dean er einn allra
besti dómarinn í ensku úr-
valsdeildinni og hefur haft
hæstu meðaleinkunn allra í
tvígang á síðust þremur tíma-
bilum. Hann rak aftur á móti
Andy Wilkinson, leikmann
Stoke, út af með annað gult
spjalt fyrir nákvæmlega ekki
neitt.
MARKVÖRÐUR
n Paul Robinson - Blackburn
Robinson var öryggið uppmálað í erfiðum aðstæðum gegn
Bolton. Varði allt sem á markið kom.
VARNARMENN
n Julian Faubert - West Ham
Besti leikur Fauberts fyrir West Ham. Frábær varnarlega og
lagði upp annað mark liðsins.
n Martin Skrtel - Chelsea
Virkilega traustur í leiðindunum á City of Manchester
Stadium. Bjargaði mjög vel á ögurstundu undir lok leiks.
n Sylvain Distin - Everton
Slökkti gjörsamlega á Wayne Rooney og fyllti þannig upp
í flóðbylgju marka Manchester United.
n Hermann Hreiðarsson - Portsmouth
Eini maðurinn með lífsmarki hjá Portsmouth. Stóð sig
vel.
MIÐJUMENN
n Emmanuel Eboue - Arsenal
Arsenel-menn klappa ekki fyrir Eboue en það gerum
við. Í þetta skiptið.
n Valon Behrami - West Ham
Sterkur gegn Hull og skoraði gott mark.
n Cesc Fabregas - Arsenal
Er bara svo góður í fótbolta. Sunderland átti ekki
séns.
n Stewart Downing - Aston Villa
Var alveg góður og allt það. En hann skoraði tvö
mörk og annað með hægri! Hvað viljiði meira
frá Downing?
SÓKNARMENN
n Bobby Zamora - Fulham
Skoraði sigurmarkið gegn Birmingham eftir
að liðið hafði lent undir.
n Didier Drogba - Chelsea
Framherji og skoraði tvö mörk.
LIÐ HELGARINNAR
FALLIÐ
SALIF DIAO
STOKE
n Skoraði sigurmark Stoke
gegn Portsmouth á ögur-
stundu. Stoke-menn voru þá
orðnir einum færri meira að
segja. Frábær þrjú stig sem
fleyta Stoke upp töfluna.
HETJAN
SKÚRK
URINN
MARKIÐ
PORTSMOUTH
n DV elskar Portsmouth og er alveg
óhrætt við að segja það. Það er líka
mjög eðlilegt þar sem Hermann
Hreiðarsson spilar með því. Við
nýtum því þessa síðustu mánuði vel
áður en við þurfum að kveðja vini
okkar í Portsmouth. Lánleysi þeirra
náði nýjum hæðum með tapinu
gegn Stoke um helgina. Þegar Salif
Diao skorar sigurmark í uppbótar-
tíma verðurðu að líta í eigin barm.
Átta stigum frá öruggu sæti er of
mikið. Hemmi á þetta ekki skilið!
JULIAN FAUBERT
WEST HAM
n Faubert átti stórleik fyrir West
Ham gegn Hull, líklega hans besti
fyrir liðið. Hann lagði upp annað
mark liðsins á Carlton Cole með
ótrúlega fallegri sendingu. Fimm-
tíu metra innanfótar snudda út fyrir
vörnina og inn á teig, beint í fætur
Cole sem skoraði. Mögnuð sending.
EVERTON -
MAN. UNITED
n David Moyes, stjóri Ev-
erton, vann svo sannar-
lega fyrir kaupinu sínu
gegn Manchester United. Í
stöðunni 1-1 setti hann Dan
Gosling inn á sem skoraði
og í stöðunni 2-1 setti hann
Jack Rodwell inn á sem skor-
aði líka.
KLÚÐRIÐ
STEWART
DOWNING
ASTON VILLA
GEGN BURNLEY
n Stewart Downing sýndi
svo sannarlega sparihlið-
arnar gegn Burnley um
helgina og skoraði tvö
mörk, tvö! Seinna markið
var ekkert sérlega glæsi-
legt, eiginlega bara ljótt.
Það er samt klárlega mark
helgarinnar því þessi æv-
intýralega einfætti maður
skoraði með hægri. Hann
sjálfur vissi ekki af því að
hann væri með hægri fót.
GUMMINN
Eboue
Fabregas
Downing
Robinson
Drogba
Distin
Zamora
SkrtelHermann Faubert
Behrami
SENDINGIN
SKIPTING-
ARNAR
n Gummi Ben var ekki hrifinn af
einni skiptingu Steve Bruce í 0-2 tapi
Sunderland gegn Arsenal.
„Ja, hérna. Þeir
ætla að setja Phil
Bardsley inn á!“
MARKNETIÐ
WIGAN - TOTTENHAM
n Leik Wigan og Tottenham seink-
aði um nokkrar mínútur því gat var
á netinu í örðu markinu á DW-velli
þeirra Wigan-mann. Svoleiðis má
ekki gerast í úrvalsdeildinni. Þetta er
eins og að mæta á jólaballið með gat
í klofinu á buxunum.