Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2010, Qupperneq 30
Síðastliðinn föstudag hófst
miðasala í fertugsafmæli Páls
Óskars Hjálmtýssonar. Palli hef-
ur um árabil verið einn vinsæl-
asti tónlistarmaður landsins og
sérstaklega undanfarin ár. Það
má því búast við því að uppselt
verði í afmæli hans sem fer fram
finntudaginn 18. mars á Nasa.
Palli ætlar á tónleikunum að
leika lög frá öllum ferli sínum
sem spannar tæpa tvo áratugi.
Hljósmveitin Hjaltalín mun vera
honum til halds og trausts en
þau komu fram saman á síðustu
Airwaves-hátíð.
DJAMMAÐI MEÐ
PARÍS HILTON
Rapparinn Erpur Eyvindarson
skoðar nú útgáfusamninga fyrir
væntanlega sólóplötu sína. Erpur er
með þrjú eða fleiri tilboð í höndun-
um og því úr nægu að velja. Erpur
er langt á veg kominn með að klára
plötuna en líklegt er að hún komi út
í vor eða snemma í sumar.
Þetta er fyrsta platan sem Erpur
gefur út einn síns liðs en hann hefur
áður sent frá sér tvær plötur ásamt
XXX Rottweilerhundum. Þær náðu
báðar gríðarlegum vinsældum og
seldust í tugþúsundum eintaka á
sínum tíma. Hundarnir eru þó áber-
andi á plötunni og leggja Erpi lið í
mörgum laganna. Það er að segja
að rapparinn Bent er í nokkrum lög-
um og taktasmiðurinn Lúlli er einn-
ig áberandi á henni. Nokkur lög af
plötunni hafa þegar farið í spilun en
þar má helst nefna Hleraðu þetta,
Stórasta landið og Reykjavík Belfast.
Eins og frægt er orðið lenti Erp-
ur í útistöðum við raparann Móra
á dögunum. Atvikið átti sér stað í
húsakynnum 365 í Skaftahlíð þar
sem þeir Móri og Erpur áttu að
mætast í útvarpsviðtali í þættinum
Harmageddon. Þegar upp úr sauð á
milli þeirra lagði Móri til Erps með
hníf en hann var einnig vopnað-
ur rafbyssu. Erpur komst undan og
náði að verjast árásinni með skúr-
ingamoppu.
Þeir hafa báðir ákveðið að leggja
fram kæru vegna málsins sem er
einsdæmi í íslenskri tónlistarsögu.
asgeir@dv.is
VELUR ÚR SAMNINGUM
FAGNAR
FERTUGU
ERPUR EYVINDARSON AÐ LEGGJA LOKAHÖND Á PLÖTU:
FYRIRSÆTAN LILJA INGIBJARGARDÓTTIR:
Knattspyrnudómarinn Garðar
Örn Hinriksson lagði flautuna á
hilluna í vikunni en hann hefur
verið einn allra skrautlegasti
dómari efstu deildar síðustu ár.
Meðal annars gaf hann þrettán
rauð spjöld í fyrstu tólf leikjum
tímabilið 2008, eitthvað sem
enginn annar hefur leikið eftir.
Íþróttafréttamaðurinn Henry
Birgir Gunnarsson
var fljótur að bregð-
ast við fregnunum
og stofnaði Face-
book-hóp með yfir-
skriftinni: „Rauði
baróninn má ekki
hætta!“ en í lýsingu
hópsins segir:
„Íslensk knatt-
spyrna er ekki
söm án hans.“
Eftirminnilegt
er þegar Henry
leiddi Garðar og
Gilzenegger að
friðarviðræðum
í beinni í útvarps-
þættinum Skjálfanda.
Garðar segist sjálfur
ætla að fara einbeita sér
að öðrum verkefnum
og sinna fjölskyldunni
meira. Garðar stofnaði
einnig slúðurvefinn goss-
ip.is ásamt núverandi konu
sinni.
VIL HALDA
GARÐARI
30 MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 FÓLKIÐ
Erpur Eyvindarson
Velur milli útgefanda.
Lilja Ingibjargardóttir bjó í þrjú ár í New York og Los Ang-
eles þar sem hún stundaði skemmtanalífið af kappi. Lilja
þekkir stórstjörnuna París Hilton en hótelerfinginn bauð
henni með sér í þyrlu til Las Vegas yfir áramótin. Lilja
segir módelbransann harðan og að margar fyrirsætur sofi
hjá ljósmyndurum til að næla í verkefni.
„Heimurinn þarna úti er mjög harð-
ur og ef þú ert ekki til í að gera allt til
að komast áfram áttu erfitt uppdrátt-
ar,“ segir Lilja Hlín Ingibjargardótt-
ir fyrirsæta sem bjó í þrjú ár í New
York og Los Angeles þar sem hún var
í námi og starfaði sem fyrirsæta.
Á föstu með módeli
Lilja notaði tímann vel til að kynnast
skemmtanalífi stórborganna og hef-
ur djammað með ekki minni nöfn-
um en París Hilton og Hillary Duff
auk þess sem hún rakst á Jude Law
og Lindsey Lohan. „Ég hef oft hitt
París og hef t.d. farið heim til henn-
ar í partí. Hún er ótrúlegur djamm-
ari og það er svolítið erfitt að kynn-
ast henni, enda vinnur hún við að
skemmta sér. Það er örugglega erfitt
að eiga vinkonur þegar þú ert svona
fræg en hún er samt skárri en systir
hennar. Nicky er aðeins of mikið að
reyna. Skemmtistaðirnir borga París
háar upphæðir fyrir að mæta og láta
sjá sig á þeirra bar og á gamlárskvöld
átti hún að fara með þyrlu til Las Ve-
gas til að mæta á einhvern barinn.
Hún bauð mér með en ég hafði ekki
áhuga,“ segir Lilja sem bjó úti með
kærastanum sínum, fyrirsætunni og
leikaranum Bryce Draper. Þau eru
nú hætt saman en Draper hefur náð
langt sem karlkynsfyrirsæta, enda
funheitur karlmaður þar á ferð.
Erfiður bransi
Lilja segir mikla spillingu í módel-
bransanum í Ameríku sem einkenn-
ist af því að stelpur verði nánast að
selja sál sína ef þær vilji ná langt.
„Ef þú vilt ekki sofa hjá ljósmyndar-
anum hefur hann sjaldnast áhuga á
að mynda þig. Ég held að flestar leik-
konur og fyrirsætur þarna úti hafi
virkilega þurft að sofa sína leið inn í
bransann nema þær séu svo heppn-
ar að eiga áhrifamikla foreldra sem
hjálpa þeim að komast áfram. Sjálf
hef ég ekki áhuga á svona lífsstíl og
ákvað að drífa mig heim og hvíla mig
á þessum heimi. Hér heima er þetta
allt öðruvísi en hér eru upphæðirnar
í boði líka mun lægri. Mér líkar ekki
við þessa hlið á bransanum en ann-
ars finnst mér þetta voðalega spenn-
andi. Stelpur sem fara af stað inn í
þennan heim verða að vera með bein
í nefinu og passa að verða ekki fyrir
of miklum áhrifum glyssins. Ef það
tekst er þetta yndislegur heimur og
sjálf ætla ég að vera hluti af honum
eins lengi og ég get,“ segir Lilja sem
heldur sér í formi með því að mæta í
ræktina auk þess sem hún
stundar trimform.
Sjónvarpið
draumurinn
„Ég er ung og ætla að nota
það sem ég hef á með-
an ég hef það. En ég
verð ekki fyrirsæta
alla ævi og ætla
því að mennta mig
meira. Draum-
urinn er ekki að
verða ofurfyrir-
sæta en það væri
gaman að næla í
gott verkefni sem
gefur vel af sér.
Mig langar mest
að læra lífeðlis-
fræðilega sál-
fræði eða vinna
í sjónvarpi. Ég á
nokkrar eining-
ar eftir í stúd-
entinn og ætla
að klára það og
svo dríf ég mig
aftur út, reynsl-
unni ríkari.“
indiana@dv.is
Flott Lilja hefur allt að bera til
að ná langt í módelbransanum.
Hún segir bransann erfiðan
og að hún hafi oft verið beðin
um að sofa hjá ljósmyndurum
vegna verkefna. Hún hafi hins
vegar ekki áhuga á slíku.
Með fyrrverandi Lilja
bjó með fyrirsætunni
Bruce Draper í
Ameríku. Þau eru nú
hætt saman.