Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Side 23
FRÉTTIR 9. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 23 SARKOZY OG „SÁPUÓPERAN“ Í aðalhlutverkum Forsetahjónin, Nicolas og Carla, eru ekki samstíga í „sápuóperunni“. MYND AFP Fleiri afurðir Gróu á Leiti FRANÇOIS MITTERRAND OG KVENNAMÁLIN Alkunna er að François Mitterrand, Frakklandsforseti frá 1981 til 1995, tók nokkur hliðarspor. Um hann var sagt að hann ræki tvö heimili og hefði eignast dóttur með einni ástkvenna sinna, Önnu Pingeot. Mitterand reyndi af fremsta megni að kveða sögusagnirnar niður og beitti fyrir sig lögreglunni og leyniþjón- ustunni. Um síðir varð hann þó of gamall og gat ekki lengur treyst á það ægivald sem hann hafði yfir blaðamönnum. Hann staðfesti sögusagnirnar árið 1994.MARKOVIC-MÁLIÐ Markovic-málið kom upp í október 1968 þegar líkið af Stevan Markovic, lífverði leik- arans Alains Delon, fannst á ruslahaugum við þorp í útjaðri Parísar. Dauði Stevans varð kveikjan að orðrómi um tilvist ljósmynda af Claude Pompidou, eiginkonu Georges Pompidou, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands og síðar forseta, sem sýndu hana taka þátt í hópkynlífi með þekktum einstaklingum úr undirheimunum. Orðróm- urinn átti ekki við rök að styðjast. MARÍA ANTOINETTE, FRAKKLANDSDROTTNING Franski byltingardómstóllinn réttaði yfir Maríu Antoinette þann 14. október 1793. Henni var gefinn lítill tími til að undirbúa vörn sína og almennt talið að um sýndar- réttarhöld hafi verið að ræða. Á meðal þess sem henni var gefið að sök voru sifjaspell og að hafa skipulagt kynsvall í Versalahöll. Áhöld eru um flest ákæruatriðin á hendur Maríu Antoinette og flest talin afurðir gróusagna. GISCARD D’ESTAING OG MJÓLKURBÍLL Um Giscard d’Estaing, forseta Frakklands frá 1974 til 1981, komst sú saga á kreik á áttunda áratug síðustu aldar að hann hefði verið á leið til ástkonu sinnar þegar hann árla morguns lenti í árekstri við mjólkurbíl. Sú saga fékkst aldrei staðfest. JACQUES CHIRAC Jacques Chirac, forseti Frakklands frá 1995 til 2007, var sagður hafa eignast óskilgetið barn með japanskri konu og eiga feitan bankareikning í Tókíó að auki. Þrátt fyrir að leyniþjónustan rannsakaði málið var kviksagan aldrei staðfest, né að fullu kveðin niður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.