Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Síða 28
Á síðustu tveimur árum hef-ur veruleikinn sem við búum við verið fáránleiki. Við fáum blöðin með al-
gjörlega absúrd viðtölum, greinum,
uppljóstrunum og svörum og við
sem erum að skrifa skáldskap höfum
bara ekki við þessum veruleika. Við
ákváðum því bara að taka eitt við-
tal af þessum þúsundum viðtala og
greina og nota í leikverk,“ segir Auður
Jónsdóttir leikstjóri leikverksins Nei
Dorrit! sem sýnt verður í Iðnó næsta
mánudagskvöld, sama dag og skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis verður
loksins birt opinberlega.
Leikgerðin er eftir Þórarin Leifs-
son, eiginmann Auðar, en hún er
byggð á viðtali við forsetahjón-
in íslensku, Ólaf Ragnar Gríms-
son og Dorrit Moussaieff, sem birt-
ist í breska tímaritinu Condé Nast
skömmu eftir efnahagshrunið hér
á landi. Viðtalið, sem skrifað var af
blaðamanni að nafni Joshua Hamm-
er, var mjög umtalað vegna þeirra
samskipta sem forsetahjónin eiga
í viðtalinu. Ólafur reynir til dæmis
nokkrum sinnum að stöðva Dorrit í
frásögn sinni og hún segist vera eins
og eiginkona araba eftir að hafa lýst
löngun sinni til að taka þátt í mótæl-
unum fyrir framan Alþingi en að Ól-
afur hafi meinað henni það.
„Það sem þessi blaðamaður ger-
ir er að skrifa ekki bara það sem þau
segja við hann heldur líka það sem
þau segja sín á milli á meðan hann
tekur viðtalið. Fyrir vikið erum við
með listaverk,“ segir Auður og hlær.
Forsetaframbjóðandi leikur
forseta
Forsetaframbjóðandinn fyrrverandi
Snorri Ásmundsson, sem leikur Ólaf
Ragnar í sýningunni og situr alvar-
legur og ábúðarfullur á svip við hlið
hinnar dökkhærðu og glaðlyndu Auð-
ar, tekur upp þráðinn.
„Blaðamenn eru oft svolítið með-
virkir með viðmælandanum, taka
burt það sem er kannski óþægilegt
og snyrta samtalið til. En þessi blaða-
maður gerir það ekki, hann birtir
bara allt sem sagt er. Dorrit segir líka
í miðju viðtalinu að hann megi nota
þetta allt. Hann tekur hana á orðinu
og því fá lesendur að lesa orðrétt kýt-
ingarnar og rifrildið á milli Ólafs og
Dorritar. Og þau fá þannig á bauk-
inn.“
Forsetaembættið óskaði ekki eftir því
að lesa yfir viðtalið eftir því sem Auð-
ur og Snorri komast næst. „Eitthvað
hefur gerst þarna sem verður til þess
að viðtalið fær að birtast svona. Og
þegar maður les þetta verður maður
...,“ segir Auður og þagnar augnablik.
„Þarna eru setningar eins og sú sem
Ólafur segir um að Íslendingar hefðu
alið með sér ákveðið næmi og skyn-
bragð á áhættusækni, rétt um það
leyti sem hrunið skellur á,“ bætir hún
við með undrunarsvip.
Auður nefnir líka setninguna þar
sem Ólafur segir að þúsundir Íslend-
inga muni að líkindum missa heimili
sín og Dorrit spyr þá: „Hvernig get-
ur fólk tapað húsinu sínu í landi þar
sem eru tvöfalt fleiri hús en fólk?“
„Setningarnar segja svo mikið einar
og sér. Því oftar sem við förum yfir
þetta því meira hissa verðum við,“
segir Auður.
„Þetta er svo raunveruleikafirrt.
Raunveruleikinn þeirra er svo allt
annar,“ skýtur Snorri inn í.
„Annars þarf hann að kæra
okkur“
Viðtalið er flutt orðrétt í sýningunni,
en með örlitlum viðbótum og stíl-
færingum. „Margt af því kemur líka
frá blaðamanninum. Lýsingar hans
eru leikrænar. Við liðkum þetta svo
aðeins til því frumgerðin er á köflum
svolítið stirðbusaleg,“ segir Auður.
„Þettta er líka fært í stílinn til að
koma þessu í eitt, stutt leikverk,“ seg-
ir Snorri en verkið tekur aðeins um
20 til 25 mínútur í flutningi.
„En þetta er orðrétt það sem Ól-
afur og Dorrit segja. Við pössuð-
um okkur á að setja engar ýkjur eða
skrípó inn í þetta því í sjálfu sér er
þetta eins og fáránleikaleikhús,“ segir
Auður brosandi.
Snorri herðir á þessu, segir verkið
ekkert háð og spott. „Þetta er ekkert
Spaugstofudæmi og grín heldur blá-
kaldur veruleikinn.“
Leyfi fyrir uppátækinu frá Joshua
hafði ekki verið fengið þegar blaða-
maður spjallaði við Auði og Snorra
á miðvikudaginn. „Við sendum hon-
um póst í gær og vonandi gefur hann
grænt ljós á þetta. Annars þarf hann
að kæra okkur,“ segir Auður og hlær.
„Það væri mjög fyndið ef hann myndi
kæra okkur. En við myndum samt
gera þetta.“
„Við erum í rauninni bara að lesa
viðtalið,“ bætir Snorri við og sýnir
engin merki þess að hafa áhyggjur
af hugsanlegri kæru frá blaðamann-
inum. Í póstinum sem sendur var á
Josh ua var honum boðið á sýning-
una og ætlunin var einnig að senda
slíkt boðskort til Ólafs og Dorritar.
Tekur ekki fram úr veruleik-
anum
Hugmyndin um að setja upp leikverk
ÞÓRUNN Í
ÞJÓÐLEIKHÚS-
KJALLARANUM
Á næstu mánuðum og misserum
verður Þjóðleikhúskjallarinn vett-
vangur fyrir leikara og listafólk Þjóð-
leikhússins þar sem hver og einn
úr þeirra hópi setur saman dag-
skrá eftir sínu nefi undir yfirskrift-
inni „Kvöldstund með listamanni“.
Þórunn Lárusdóttir ætlar að ríða
á vaðið og hefur með í för Kjartan
Valdemarsson píanóleikara. Þórunn
ætlar að ræða um og flytja nokkur
af þeim lögum sem hafa haft hvað
sterkust áhrif á hana í gegnum árin,
meðal annars perlur eftir Bob Dyl-
an, Leonard Cohen, John Lennon,
Joni Mitchel og U2. Aðgangseyrir
er 1000 krónur, frumsýning verður í
kvöld, föstudag, og önnur sýning á
morgun.
UM HELGINA
SIGN Á NASA Sex af helstu rokkböndum Íslands
gera allt vitlaust á NASA í kvöld, föstudag. Hljómsveitin
Sign er á meðal þeirra sem hafa boðað komu sína og
spilar því nú á Íslandi í fyrsta skipti í rúmlega eitt ár. Þeir
hyggjast spila allt gamla efnið ásamt því að spila nýtt
efni af væntanlegri plötu. Aðrir sem fram koma eru Cliff
Clavin, For a Minor Reflection, Noise, Ten Steps Away og
Nevolution. Húsið opnar klukkan 20.
ELDGOSA-
SÁNDTRAKK
Langafar íslensks dauðarokks eru
risnir upp úr óvígðum gröfum
sínum. Sororicide og In Mem-
oriam risu upp frá dauðum á
seinasta ári og hafa aldrei verið
sterkari og ætla að spila á tónleik-
um á Sódómu Reykjavík í kvöld,
föstudag. Einnig spila Sólstafir og
Bastard. Kunnugir segja að tón-
listin sem þessi bönd flytja sé hið
fullkomna sándtrakk við eldgos,
stórbruna og almenna eyðilegg-
ingu á þessum seinustu og verstu
tímum. Tónleikarnir hefjast
klukkan 22, 1.800 krónur kostar
inn og 18 ára aldurstakmark.
28 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 FÓKUS
Dagskrá helguð Einari Braga í Gunnarshúsi á laugardaginn:
Minning Einars Braga heiðruð
SORGARPORTRETT
Sýningin Tregi eftir Elsu Björgu
Magnúsdóttur var opnuð í Skotinu
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í gær,
fimmtudag. Sýningin samanstend-
ur af þremur heildstæðum verkum,
tregablöndnum portrettum sem tjá
missi. Í viðfangsefni sínu leitast Elsa
við að tjá tregann sem hún upplif-
ir í gegnum móður sína með því að
varpa honum fram með myndum
sem hún kallar Sorgarportrett. Elsa
er heimspekingur að mennt og út-
skrifaðist með mastersgráðu í fagur-
fræði og siðfræði frá King‘s College í
London árið 2007.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis.
Dagskrá helguð skáldinu Einari Braga
verður í Gunnarshúsi að Dyngjuvegi
8 í Reykjavík á laugardaginn. Aðal-
steinn Ásberg Sigurðsson, Eysteinn
Þorvaldsson, Jórunn Sigurðardótt-
ir, Pétur Gunnarsson og Soffía Auður
Birgisdóttir munu flytja stutt erindi
um skáldið og þau fjölmörgu svið þar
sem hann lét til sín taka sem skáld, rit-
höfundur, þýðandi og frumkvöðull að
útgáfu tímaritsins Birtings.
Einar var fæddur árið 1921 í Skál-
holti á Eskifirði. Fyrstu ljóðabækur
hans, Eitt kvöld í júní (1950) og Svan-
ur á báru (1952), komu út þegar Ein-
ar bjó í Svíþjóð en eftir heimkomu
sína 1953 sendi hann frá sér þá þriðju,
Gestaboð um nótt. Einar gaf út fjölda
ljóðabóka, skáldsögur, endurminn-
ingar og ritgerðasöfn auk þess sem
hann var ötull þýðandi erlendra ljóða
og prósaverka. Hann þýddi meðal
annars leikrit Augusts Strindbergs og
Henriks Ibsens. Ljóðabækur eftir Ein-
ar hafa verið þýddar á önnur mál og
einstök ljóð hafa birst í safnritum á
fjölmörgum málum.
Einar Bragi gegndi fjölmörgum
trúnaðarstörfum fyrir rithöfunda,
meðal annars var hann formaður
Rithöfundasambands Íslands 1968
–1970, fulltrúi Íslands í nefnd á veg-
um Norrænu ráðherranefndarinn-
ar sem samdi starfsreglur Norræna
þýðingasjóðsins 1972–1974 og full-
trúi Bandalags íslenskra listamanna í
ráði Norræna hússins í fjölda ára. Ein-
ar var frumkvöðull að stofnun bók-
menntatímaritsins Birtings 1953 og
sat í ritstjórn þess allt þar til útgáfa
þess lagðist af 1968. Einar Bragi lést í
Reykjavík í mars 2005.
Dagskráin á laugardag hefst klukk-
an 14 og í hléi verður boðið upp á kaffi
og meðlæti. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill á meðan húsrúm leyfir.
Pétur Gunnarsson Er á
meðal fyrirlesara á samkomu
til heiðurs Einari Braga. MYND
EGGERT JÓHANNESSON
RIFRILDI FORSETAHJÓNA
Leikritið Nei Dorrit! í leikgerð Þórarins Leifssonar er sýnt í Iðnó á
mánudagskvöldið. Verkið er byggt á viðtali við forsetahjónin sem
birtist í tímaritinu Condé Nast. DV spjallaði við leikstjórann Auði
Jónsdóttur og Snorra Ásmundsson, sem leikur forsetann.
Auður Jónsdóttir og Snorri Ásmundsson Auður er
leikstjóri Nei Dorrit! og Snorri leikur Ólaf Ragnar Grímsson.