Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 FRÉTTIR
Hugarfarið, sem birtist í tölvupóstum stjórnenda Glitnis og
helstu eigendanna, á rætur að rekja til einkvæðingar bankanna,
að mati Vilhjálms Bjarnasonar lektors. „Það sem menn vissu
ekki var að eigendur banka úti í bæ stjórnuðu honum með þeim
hætti sem nú er orðið ljóst.“ Náin tengsl eru á milli Stímmáls-
ins og meginatriða í málshöfðun skilanefndar Glitnis á hendur
helstu stjórnendum og eigendum bankans.
„Ég hef ástæðu til að ætla að þetta
sé eitt af mörgum málum af þessum
toga sem eiga eftir að koma fram,
einnig í hinum bönkunum tveimur,
Kaupþingi og Landsbanka Íslands
hf.,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, lekt-
or við Háskóla Íslands og stjórnar-
maður í Samtökum fjárfesta.
„Þetta virðist hafa verið orðin
starfsvenja. Það voru engin skil milli
starfsemi bankans og þessara svo-
kölluðu eigenda. Þeir tæmdu bank-
ann innan frá. Menn geta hugleitt
hvort eftirlit hafi brugðist en ég held
að menn hafi ekki áttað sig á því að
þetta hugarfar var komið inn í bank-
ana. Fulltíða manneskja kennir ekki
foreldrunum um slæmt uppeldi sitt
þegar á reynir. Auðvitað brást eftir-
litið; bankakerfi hrynur ekki nema
vegna þess að eftirlitið brást að ein-
hverju leyti. En það sem brást á und-
an var stjórnin á bönkunum. Menn
vissu um valdatengslin en það sem
menn vissu ekki var að eigendur
banka úti í bæ stjórnuðu honum með
þeim hætti sem nú er orðið ljóst.“
Ekki haldbært, segir Lárus
Stefna á hendur Glitniseigendunum
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Pálma
Haraldssyni og fjórum yfirmönnum
Glitnis, þeim Lárusi Welding, Rósant
Má Torfasyni, Magnúsi Arnari Arn-
grímssyni og Guðnýju Sigurðardóttur,
snýst í meginatriðum um 6 milljarða
króna lánveitingu, sem skilanefnd
Glitnis telur ólögmæta. Þar af leiðandi
gerir hún jafnháa skaðabótakröfu á
hendur sexmenningunum.
Lárus Welding, fyrrverandi for-
stjóri Glitnis, sendi frá sér yfirlýsingu í
kjölfar þess að DV birti forsíðufrétt um
stefnu á hendur honum. Hann kveðst
hafa unnið af fullum heilindum og
samkvæmt reglum bankans með það
að markmiði að verja hagsmuni hans
í erfiðu markaðsumhverfi sumarið
2008. „Fyrir liggur að í þessum við-
skiptum, sem voru að stærstum hluta
framlenging á áður ótryggðu láni og
að minni hluta ný lánveiting, batn-
aði heildartryggingarstaða bankans
verulega gagnvart þessum viðskipta-
vin. Ég tel því kröfugerð bankans á
hendur mér ekki studda haldbær-
um rökum og harma sérstaklega að
skilanefnd bankans kjósi að draga
almenna starfsmenn bankans inn í
þessi málaferli, sem verða fyrirsjáan-
lega mjög tímafrek og kostnaðarsöm,“
segir Lárus í yfirlýsingu sinni.
Rætur í einkavæðingu
bankanna
Fyrir liggur að skýrsla rannsóknar-
nefndar Alþingis verður birt næst-
komandi mánudag og augljóslega
mun kastljós fjölmiðla beinast að
henni.
Vilhjálmur Bjarnason kveðst ótt-
ast að stjórnmálamenn og embætt-
ismenn varpi sök hver á annan. „Það
má búast við skítkasti milli stjórn-
málamanna og embættismanna þeg-
ar skýrslan liggur fyrir. En gerendur í
leiknum eru eigendur og stjórnend-
ur bankanna. Ég kveð ekki upp dóma
fyrir fram en vil horfa á orsakasam-
hengið. Það eru þessir aðilar sem eru
gerendurnir. Vanræksla og vangá er
eitt en ásetningur er allt annað mál.
Þetta voru ekki starfsvenjur í bönkun-
um fram til ársins 1998. En það sem
gerðist eftir þann tíma og eftir einka-
væðinguna í kringum árið 2003 hefur
mér ekki verið fyllilega kunnugt um
fyrr en núna. Já, ég rek þetta til einka-
væðingarinnar. Það mátti ekki anda á
þessa herra.“
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
En það sem gerð-ist eftir þann
tíma og eftir einkavæð-
inguna í kringum árið
2003 hefur mér ekki ver-
ið fyllilega kunnugt um
fyrr en núna.
„Best Way to Rob a Bank is to Own
One“ Segir Þorvaldur Gylfason prófess-
or í blaðagrein og vitnar til bókartitils
bandaríska afbrotafræðingsins Williams
Black.
Almennur fjárfestir Vilhjálmur er
viss um að skaðabótakrafa skilanefndar
Glitnis sé aðeins sú fyrsta af mörgum
sem gerðar verði á hendur stjórnendum
og eigendum föllnu bankanna.
Samskiptahættirnir milli stjórnenda
og eigenda Glitnis birtast í tölvu-
póstum sem að nokkru leyti eru
raktir í stefnu skilanefndar Glitnis
á hendur tveimur eigendum bank-
ans, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
og Pálma Haraldssyni, auk Lárusar
Welding, fyrrverandi forstjóra bank-
ans, og þremur öðrum yfirmönnum
í bankanum. Í tölvupóstunum kemur
einnig við sögu Einar Örn Ólafsson,
áður yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar
hjá Glitni. Hann hætti snögglega hjá
Glitni fyrri hluta árs í fyrra og er nú
forstjóri Skeljungs hf.
Stefnendur telja tölvupóst-
ana sýna svo ekki verði um villst að
stærstu eigendur Glitnis hafi verið
eins konar skuggastjórnendur bank-
ans og farið sínu fram.
TÖLVUPÓSTUR 5. MAÍ 2008
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs
Group, leggur til við Lárus Welding
að bankinn kaupi hlutabréf í Aurum
af Pálma fyrir 6 milljarða króna og
andvirðið verði nýtt að hluta í „trygg-
ingargöt PH (Pálma Haraldssonar)
upp á 3.0 ma kr.“ [...] „PH (skyldi fá)
2,2 ma. kr. í cash“, samkvæmt tillögu
Gunnars.
TÖLVUPÓSTUR 11. MAÍ 2008
Jón Ásgeir Jóhannesson skrifar Lár-
usi Welding: „Klára FOX, 2) Klára
kaup á Byr bréfum af BG (Baugur
Group) og 4) Klára 101 capital þarf
helst að fá BJ (Bjarni Jóhannsson við-
skiptastjóri Glitnis) til að koma til NY
og klára þetta með mér er með góða
hugmynd að lausn.“
Í stefnunni er dreginn út töluliður
3), en þar stendur eftirfarandi: „Klára
Goldsmith (Aurum) ef þessu 1 millj-
arði sem ég átti að fá grett þarf 250
að fara til að borga yfirdrátt hjá GLB
(Glitnir) prinsip mál að vera ekki
með persónulegar skuldir í mér. Rest
get ég raun geymt hjá GLB þ.e.a.s. 750
þannig net cash út hjá GLB er 1,2 til
PH.“
TÖLVUPÓSTUR 22. MAÍ 2008
Jón Ásgeir sendir Lárusi og Bjarna
tölvupóst með fyrirsögninni „Þetta
eru málin sem ég er að bögga ykkur
með aðallega í tekjuöflun fyrir bank-
ann setti þetta skýrrt upp the Bonus
way svo við getum með einföldum
hætti klárð.“
Þar sagði einnig: „Þetta eru málin
nenni ekki að bögga ykkur á hverjum
degi með þessu enda ætlast ég tila
ð CEO þessara félaga vinni sín mál
ef við komum þessum málum frá er
borðið mitt hreint. Annars er kannski
best að ég verði starfandi stjórnarfor-
maður GLB (Glitnis).“
Fram kemur að þessi tölvupóstur
var sendur Bjarna, en einnig Magnúsi
Arnari, Rósant Má og Einari Erni Ól-
afssyni. Það gerði Lárus með eftirfar-
andi orðum: „Maggi Bjarni þið verð-
ui að búa til lánamál úr efstu tveimur
málnum þarna og tka þetta fyrir.“
TÖLVUPÓSTUR 23. MAÍ 2008
Einar Örn Ólafsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækjaráðgjafar Glitn-
is, sendir svarpóst til Lárusar: „mér
finnst hinn góði eigandi okkar að-
eins setja þig í erfiða stöðu með þess-
um mail. Goltsmith er t.d. virði 1,5 en
ekki 4,0 o.s.frv. En ég geri allt sem þú
segir mér að gera, kv. Einar.“
TÖLVUPÓSTUR 3. JÚNÍ 2008
Pálmi Haraldsson sendir Guðnýju
Sigurðardóttur, lánastjóra Glitnis,
tölvupóst vegna mögulegra kaupa
bankans á hlut Fons í Aurum (Golts-
mith), en hún hafði áður sent Pálma
yfirlit um stöðu gjaldfallinna lána.
Í tölvupóstinum gefur Pálmi yfir-
mönnum Glitnis, Lárusi og Guðnýju,
fyrirmæli:
„Ég ítreka að ég legg mikla áherslu
á að við gerum eþtta með þeim hætti
sem rtt var um
1. Þið greiðið 6000m fyrir Aurum bréf-
in að því gefnu að þið séuð komin
með puttið sem ykkur var lofað í gær
2. Við greiðu upp F38 2,730m
3. Við greiðum upp Plastprent lán-
ið 522 og þið haldið samt bréfunum
áfram til tryggingar á skuldum okkar,
4. Lánið frá því í febrúar reiðum við
vexti og lánið framlengist í eitt ár á
sömu kjörum og vextir rúllast áfram.
5. 500m fara inn á markaðsviðskipti
okkar
6. 1000 fara í að greiða skuld við JAJ
7. Rest er frítt til ráðstöfunar fyrir
Fons.“
9. júlí 2008 lagði Guðný fram lána-
beiðni fyrir hönd Fons og FS38 ehf.
(Pálma), alls 6 milljarða króna. Fram
kemur í stefnu að eiginleg útgreiðsla
úr bankanum yrði 2 milljarðar króna
og átt við að þeir skiptust á milli Jóns
Ásgeirs og Pálma í gegnum Fons hf.
Lánið er samþykkt þennan dag á
fundi í bankanum án þess að nokkur
fái að beita neitunarvaldi sínu, eins
og það er orðað í stefnunni.
TÖLVUPÓSTUR 10. JÚLÍ 2008
Einar Örn, framkvæmdastjóri fyrir-
tækjaráðgjafar, sendir tölvupóst til
Lárusar: „Ég verð að viðurkenna að
ég skil ekki af hverju við við lánum
ekki bara palma 2. ma.kr. til að koma
fyrir á cayman, áður en hann fer á
hausinn, I stað thess að fara I alla
þess goldsmith aefingu.“
Stefna skilanefndar er byggð á tölvupóstum lykilmanna:
„ÉG GERI ALLT SEM ÞÚ SEGIR MÉR AÐ GERA“
Ekki sérlega kátur „Mér finnst hinn
góði eigandi okkar aðeins setja þig í
erfiða stöðu með þessum mail ...“ sagði
Einar Örn Ólafsson í tölvupósti til Lárusar.
Valdamikill eigandi Stefnendur telja
víst að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi ekki
aðeins gætt sinna hagsmuna heldur
einnig Pálma Haraldssonar innan bankans.
Fyrirtæki á brauðfótum Rakið er að
staða Pálma Haraldssonar og fyrirtækja
hans hafi verið bágborin sumarið 2008.
RÓTIN Í EINKAVÆÐINGU BANKANNA