Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 24
BJÖRGVIN G. VALTUR
n Undirliggjandi titringur er vegna
skýrslu Sannleiksnefndarinnar sem
birtist í næstu viku. Talað er um að
aðalleikarar
hrunsins séu nú
að búa sig undir
áfall. Fullyrt er
á Eyjunni að um
það sé rætt inn-
an Samfylking-
ar að Björgvin G.
Sigurðsson, fyrr-
verandi banka-
málaráðherra, þurfi að víkja sem þing-
flokksformaður þegar skýrslan kemur
fyrir almenningssjónir. Samherjar
Björgvins líta aftur á móti á hann sem
fórnarlamb þar sem Davíð Oddsson,
Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir hafi gætt þess vandlega að
hafa hann ekki með í ráðum.
SÁR SÚLUKÓNGUR
n Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggva-
son er duglegur að fá fólk í viðtal við
sig í Spjallinu á Skjá einum. Hann er
þó ekki alltaf vandlátur á viðmælend-
ur eins og sjá má
af því að hann
var með Ásgeir
Davíðsson, Geira
á Goldfinger, í
drottningarvið-
tali á dögunum.
Þar kvartaði súlu-
kóngurinn yfir
því að aðrir sölu-
menn nektarinnar væru valdameiri
en hann sjálfur. Skýringin var sú að
þeir ættu fjölmiðlana! Engin nánari
skýring var gefin á þeirri staðhæfingu.
AGNES OG ÞOTAN
n Athygli vekur að Agnes Bragadótt-
ir, pistlahöfundur á Mogganum, segir
ekki orð um þá greiða sem hún hefur
þegið af athafnamönnunum Jóni Ás-
geiri Jóhannes-
syni og Hannesi
Smárasyni. Eins
og greint var frá
í DV skaut Jón
Ásgeir einkaþotu
sinni í tvígang
undir Agnesi. Í
öðru tilvikinu var
henni skutlað frá
Reykjavík til London. Hitt tilvikið var
þegar blaðamaðurinn þurfti nauðsyn-
lega að komast frá London til Kaup-
mannahafnar. Sveinn Andri Sveins-
son lögmaður hefur krafið Agnesi
skýringa en sjálf þvertók hún fyrir það
í samtali við DV að hafa nokkru sinni
þegið greiða auðmanna til að ferðast.
Það var reyndar áður en uppljóstrað
var um ferðirnar.
AUÐMAÐUR
LÖGSÓTTUR
n Meðal þeirra auðmanna sem erfitt
eiga eftir hrunið er Ingvar Jónadab
Karlsson. Hann er nú lögsóttur af
Landsbank-
anum vegna
himinhárra
skulda. Ingvar er
viðskiptafélagi
athafnamanns-
ins Guðmund-
ar Birgissonar á
Núpum. Ingvar
lenti í kröppum
dansi fyrr á árum þegar hann og vitni
staðhæfðu að Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri hefði hótað honum
lífláti á Vínbarnum. Skýrslur um það
mál hurfu og málinu lauk án ákæru.
Ég geri allt sem þú segir mér að gera,“ skrifaði Einar Örn Ólafsson, framkvæmda-stjóri fyrirtækjaráðgjafar
Glitnis, í hjartnæmu tölvubréfi til
Lárusar Welding bankastjóra. Ein-
ar varaði við því að Glitnir borgaði
Pálma í Fons, einum eigenda Glitn-
is, 4 milljarða fyrir fyrirtæki að verð-
mæti 1,5 milljarðar.
Þetta var í bankaráninu mikla sem átti sér stað þegar undiralda efnahagskrepp-unnar skall á Íslandi. Þegar
Geir Haarde sagði allt vera í himna-
lagi, þrátt fyrir að allt liti bölvanlega
út. Þegar lögreglan sagði tortryggn-
um almenningi að líta í hina áttina og
kom upp skjaldborg um bankaræn-
ingjana. Næstum fimm mánuðir liðu
áður en útrásarvíkingar hættu að geta
mergsogið bankana. Og það var ekki
vegna þess að yfirvöld gripu í taum-
ana, heldur hrundu þeir niður eins og
hoppukastali þegar ekkert var eftir til
að sjúga.
Erfiðast fyrir Íslendinga er að forðast að skipta sér í fylking-ar eða lið. Þetta snýst ekki um að Davíð hafi verið vondur,
og því væru Baugsmenn góðir, eða
að Baugsmenn væru vondir og því
Davíð góður. Það einstaka við Ísland
var að nánast allir sem einhverju réðu
voru slæmir, slakir og óhæfir. Og þeir
sem höfðu vit á því að skynja hættuna
þögðu og gerðu allt sem þeir voru
beðnir að gera.
Engum blöðum er um það að fletta að vandi Íslend-inga stafar af þýlyndi. Það er þýlyndi þeirra sem störfuðu
undir útrásarvíkingunum og þeirra
stjórnmálamanna sem skiptu út
sannfæringu sinni fyrir skoðanir og
duttlunga leiðtoga sinna. Ef fleira fólk
hefði fylgt sannfæringu sinni og mót-
mælt yfirboðara sínum værum við á
öðrum stað í dag. Eða kannski bara
þeir. Líklega hefðu þeir verið reknir
og enginn hefði skipt sér af því.
Íslendingar hafa þrælasiðferði. Hérlendis telst aðdáunarvert að vera þrælduglegur, þrælklár, þrælhress eða þrælfyndinn. Það
getur reynst erfitt
fyrir einn þræl að
rísa upp. Hann
breytist bara í
laminn þræl og
hinir undrast
heimsku hans.
Og hér var eng-
inn Spartakus til
að leiða uppreisn
þrælanna. Enda
eru torfundnir
þeir þrælar sem
eru í jafngóð-
um holdum og
Íslendingar með
yfirdráttinn í botni árið 2007. Þeir
létu freistast af lánum útrásarvíking-
anna, sem mergsugu þá síðan.
Þýlyndi Íslendinga er frjór jarð-vegur fyrir einræðistilburði. Stærsti vandinn er að einn maður getur bara vitað visst
mikið og hann hefur allt aðra hags-
muni en heildin. Í einræði tapar fjöld-
inn. Enda á fjöldinn það skilið þegar
enginn þorir að rísa upp úr þræla-
hjörðinni.
Einar Örn, sem vildi gera allt sem honum var sagt að gera, er núna forstjóri Skeljungs. Hann var ráð-
inn eftir að Glitnir sá um söluna
á Skeljungi til nýrra eigenda. Þeir
sem beygja sig mest munu sá og
uppskera. Guð blessi réttlæti Nýja-
Íslands.
ÞÝLYNDI ÍSLENDINGA „Basti byrjaði og ætlaði
bara að vera einhverjar
fimm mínútur í markinu
en það teygðist eitthvað
og á meðan var leikurinn
spennandi.“
n Birkir Fannar Bragason, markvörður 1.
deildar liðs Selfoss í handbolta, kom inn á eftir
tuttugu mínútur í úrslitaleik um sæti í
úrvalsdeild og var valinn maður leiksins.
Þjálfarinn, Sebastian Alexanderson, byrjaði í
markinu og stóð þar í tuttugu mínútur. - sunn-
lenska.is
„Ég geri allt
sem þú
segir mér að
gera.“
n Einar Örn Ólafsson, yfirmaður fyrirtækja-
ráðgjafar Glitnis, í svarpósti til Lárusar Welding,
forstjóra Glitnis, 23. maí 2008, liðlega fjórum
mánuðum fyrir bankahrun. - DV.is
„Barnið mitt er
barnið mitt.“
n Geiri á Goldfinger ræddi
opinberlega um son sinn Jón
Kristin sem varð manni að bana
með því að keyra á hann. - Spjallið með Sölva
„Ég geri einfalda
og mjög ódýra
rétti.“
n Nýstirnið Maggi Mix lítur
upp til Jóa Fel en sjálfur eldar
hann ódýrari mat fyrir efnaminna fólk.
- Fréttablaðið
Dómsmorð á blaðamanni
Undanfarin ár hafa íslenskir dómstólar í nokkrum tilvikum dæmt blaðamenn í himinháar sektir vegna skrifa þeirra. Ís-
lensk prentlög eru með slíkum endem-
um að blaðamenn á lágum launum geta
átt von á því að verða sviptir árslaunum
vegna starfa sinna. Margir dómanna
eru vegna ummæla sem höfð eru eft-
ir viðmælendum um þriðja aðila. Þeg-
ar í dómsal kemur skiptir engu að við-
mælendur staðfesti að rétt hafi verið eftir
þeim haft. Blaðamaðurinn er miskunn-
arlaust dæmdur til að greiða fjárhæðir
sem í versta falli slaga í útborguð árslaun.
Nýjasti dómurinn í þessa veru er gegn
Guðríði Haraldsdóttur, aðstoðarritstjóra
Vikunnar. Blaðamaðurinn er dæmd-
ur til að greiða feðginum tvær milljónir
króna vegna ummæla sem amma barns
viðhafði í viðtali. Með málskostnaði ber
blaðamanninum að greiða hartnær þrjár
milljónir króna. Árslaun hennar eru fok-
in á svipstundu. Þetta er einn af mörgum
dómum sem fallið hafa á launþega sem
seint verða taldir til hátekjufólks. Sekt-
irnar eru slíkar að þeir sem lenda í klóm
réttarkerfisins íslenska fá vart fjárhags-
lega undir þeim risið. Skekkjan í málinu
er sú að væru sambærileg ummæli bor-
in fram í útvarpi eða sjónvarpi yrðu þátt-
arstjórnendur ekki dæmdir. Lagaglopp-
urnar sem heimila slíka aðför eru ekki
sæmandi réttarríki. Það er til skamm-
ar að blaðamenn skuli fá þyngri sektir
vegna orða annarra en fórnarlömb of-
beldis og nauðgana fá í bætur. Íslenska
réttarríkið er uppvíst að fjölda dóms-
morða sem endurspeglast í þeim lög-
lega níðingshætti að svipta launafólk
árslaunum vegna orða annarra. Blaða-
mannafélag Íslands aðhefst lítið í málum
af þessum toga sem hafa viðgengist árum
saman. Það er til skammar fyrir íslenska
þjóð að fjölmiðlafólk skuli daglega glíma
við þá ógn að vera svipt lífsafkomu sinni
vegna laga sem eru í öllum skilningi út úr
öllu korti. Ofsóknunum verður að linna.
XXX RITSTJÓRI SKRIFAR. Ofsóknunum verður að linna.
24 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 UMRÆÐA
SANDKORN
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG:
DV ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR:
Lilja Skaftadóttir
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Bogi Örn Emilsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
LEIÐARI
SVARTHÖFÐI
BÓKSTAFLEGA
Bara það besta
Ágætur maður tjáði mér það um
daginn að hann hefði ásamt konu
sinni ákveðið að fara í greiðsluverk-
fall. Þau neita semsagt að borga
þann brúsa sem spillingaröfl helm-
ingaskipta skildu eftir. Þessi maður
var með góðan rekstur í þágu þjóð-
arinnar og bankarnir neituðu hon-
um um sanngjarna fyrirgreiðslu.
Ef þessi maður tekur við því útspili
sem er hið nýjasta frá okkar frábæru
ríkisstjórn þá mun hann skulda
meira en 10 milljónir í skatta. Já,
þetta gerist sjálfkrafa vegna þess
að ríkið vill taka skatt af þeim af-
skriftum sem í boði eru. Þessi dug-
mikli maður hefur um það að velja
að borga 10 milljónir í skatta, af
glundri sem hann tók engan þátt í
að brugga, eða leyfa bankanum að
hirða það sem í dag er orðið nánast
verðlaust.
Þeir sem nutu þess að veltast
um í sukki á meðan Davíð keypti
ölið fá öllu betri tilboð, þeir fá jafn-
vel greidda þóknun af þeim skuld-
um sem þeim var boðið að stofna til.
Og þeir fá jafnvel bestu fyrirgreiðslu í
bönkum ef þá langar að kaupa þrota-
bú á slikk. Já, jafnvel þótt skilanefnd-
ir og slitastjórnir þykist vera að refsa
þeim sem öllu stálu, með því að
rukka þá um nokkra milljarða, þá eru
þeir milljarðar vart dropi í það hyl-
dýpishaf græðginnar sem brýtur á
landi og þjóð.
Að vísu erum við núna með bestu
ríkisstjórn sem verið hefur í landinu
svo lengi sem elstu menn muna. Og
þetta get ég sagt þrátt fyrir að í þeirri
stjórn sitji Álfheiður Ingadóttir, sem
í dag berst einsog heigull við vind-
myllur embættismannakerfisins.
En því kerfi er, einsog allir vita, enn-
þá stjórnað af helmingaskiptaveldi
minnihlutans og náhirð íhaldsins.
Á næstu dögum fáum við að sjá
skýrslu. Og margur hefur spáð því að
þar verði fátt um fína drætti. Spáð er
embættismannabulli, mikilli skrúð-
mælgi, hártogunum, lappadrætti,
undanbrögðum og ýmsu öðru góð-
gæti sem gæðir aumingjaleik ís-
lenskra stjórnmála því lífi sem all-
ir landsmenn skammast sín fyrir. Ef
skýrslan góða verður sú hrákasmíð
sem spáð er þá verðum við allavega
að vona að hér finnist fólk sem hef-
ur þor – fólk sem vill láta umheim-
inn vita það að þessi þjóð státar ekki
einungis af þerri fífldirfsku að ganga
um gígbarma spúandi eldfjalla. Hér
býr þjóð sem í hjarta sínu vill einung-
is hið besta – þjóð sem ekki vill leng-
ur leyfa þjófum að deila og drottna.
Ekkert er of gott fyrir Íslendinga þeg-
ar kemur að því að refsa þeim sem
refsa skal.
Í vænni skýrslu víst má sjá
að vargar glæpi fela
og réttvísin hún ræðst á þá
sem reyna ekki að stela.
KRISTJÁN HREINSSON
skáld skrifar
„Hér býr þjóð
sem í hjarta sínu
vill einungis hið
besta.“
SKÁLDIÐ SKRIFAR