Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 46
MÆÐUR ÓÖRUGGAR EF PABBARNIR STANDA SIG Samkvæmt rann-
sókn verða konur óöruggar með sig ef makar þeirra taka meiri ábyrgð en þær
í uppeldi barnanna. Höfundur rannsóknarinnar segir þetta til komið vegna
þeirrar aldalöngu hefðar að mæður séu aðalumönnunaraðilinn og þótt
samfélögin hafi breyst fái þær enn samviskubit ef pabbarnir taki virkari
þátt. Ef marka má rannsóknina er mikill munur á kynjunum því sjálfsá-
lit karlkynsþátttakenda minnkaði ekki þótt mæðurnar tækju á sig alla
ábyrgðina á börnunum.
Ný rannsókn sýnir að þeir sem eru
komnir af léttasta skeiði eiga auð-
veldrara með að leysa félagslegan
ágreining, setja sig í spor annarra
og viðurkenna að hafi haft rangt fyr-
ir sér en ungt fólk. Þetta, segja höf-
undar rannsóknarinnar, bendir til
þess að fólk sem er komið yfir sex-
tugt sé almennt gáfaðra, í þeirra
skilningi, en sér yngra fólk. „Því hef-
ur lengi verið haldið fram að gáf-
urnar aukist með aldrinum og nú
höfum við sannað það,“ segir sál-
fræðingurinn og aðstandandi rann-
sónarinnar Richard Nisbett og bætir
við að þjóðfélagsstaða einstaklinga
skipti ekki máli í þessu sambandi.
Í könnuninni voru 247 þátttak-
endum skipt í þrjá aldurshópa, 25 til
40, 41 til 59 og 60 ára og eldri og all-
ir látnir segja sína skoðun á frásögn-
um af þrenns konar félagslegum
átökum. Svör þeirra voru metin eft-
ir því hversu vel þeim gekk að leysa
vandamálin öllum deiluaðilum í
hag. „Það er margt sem fer miður
með aldrinum. Við eigum t.d. erfið-
ara með að læra nýja hluti þegar við
verðum eldri,“ segir Nisbett og bæt-
ir við: „Hins vegar, ef við stöndum
frammi fyrir félagslegum ágreiningi
ættum við að leita til ömmu eða afa
og fá þeirra sýn á vandamálið.“
Rannsóknin þykir sanna kosti
þess að leita ráða hjá sér eldri
manneskju líkt og hefð er fyrir í
austurlenskri menningu. „Í hinum
vestræna heimi hefur okkur eldri
verið ýtt á hliðarlínuna, bæði í fjöl-
skyldunni, í vinnunni og samfélag-
inu. Raunveruleikinn er hins vegar
sá að þessi hópur hefur yfir mikilli
lífsreynslu að búa og af hverju ekki
að nýta þá þekkingu?“ sagði Col-
in Milner formaður samtaka eldri
borgara. indiana@dv.is
Samkvæmt nýrri rannsókn á eldra fólk auðveldara með að leysa úr deilum en ungt fólk:
AMMA VEIT BEST
UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR, indiana@dv.is
46 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 LÍFSSTÍLL
5 FÆÐU- TEGUNDIR SEM GERA
ÞIG FALLEGRI
1Möndlur Þessar gómsætu litlu
hnetur innihalda
trefjar sem gera
þig grennri og holla
fitu sem er frábær fyrir
hjartað og húðina. Möndlur eru
einnig fullar af steinefnum sem
styrkja vöðvana.
2Feitur fiskur Silungur, lax, túnfiskur og
sardínur eru rík
af nauðsynlegum
ómega-3 fitusýrum
sem berjast gegn
öldrun húðar og hjartavandamálum.
3Epli Ávöxturinn er fullur af
trefjum sem
lækkar kólesterólið
og C-vítamínum
sem verja húðina fyrir
UBV-geislum sem valda hrukkum.
4Te Grænt te er mjög ríkt af andoxun-
arefninu EGCG.
Einn bolli af grænu
tei jafngildir heilum
skammti af brokkólí,
spínati, gulrótum og jarðarberjum.
5Acai-ber Þessi frábæri ávöxtur á rætur að rekja til regnskóga Amazon og er aðeins nýlega
orðinn vinsæll á
heimsvísu. Berin
eru rík af trefjum,
ómega-3 og
ómega-9 fitusýr-
um sem hjálpa til
við að halda hjartanu
heilbrigðu.
Genin skipta ekki mestu máli ef þú vilt lifa vel og lengi heldur er það lífsstíllinn sem þú
aðhyllist. Samkvæmt nýrri breskri rannsókn geturðu minnkað líkurnar á hjartaáfalli
um helming með því að hreyfa þig meira, borða fisk, ávexti og grænmeti reglulega
og forðast reykingar og ofneyslu áfengis. Höfundur rannsóknarinnar, Thomas Perls,
mælir með eftirfarandi tíu atriðum ef við viljum ná 100 ára aldri.
1. Ekki hætta að vinna
„Í þeim samfélögum þar sem
fólk hættir of snemma að vinna er
tíðni of feitra gamalmenna hærri
en annars staðar,“ segir ít-
alski félagsvísindamaður-
inn Luigi Ferrucci og bætir
við: „Þegar fólk sest í helg-
an stein fer það að dunda
í garðinum en dettur út
úr öðru daglegu lífi. Ef
það er ekki annað í boði
en að hætta í vinnunni
skaltu reyna að finna
þér eitthvert verðugt
verkefni. Skráðu
þig í sjálfboða-
starf.“
2. Notaðu
tannþráð
Rannsókn sem fram-
kvæmd var í New York-há-
skólanum árið 2008 sýnir
að með því að nota tannþráð
fækkar bakteríum í munni. Þess-
ar bakteríur eru taldar valda
skemmdum á æðakerfinu.
Önnur rannsókn bendir til að
eftir því sem bakteríurnar séu
fleiri því meiri séu líkurnar á
hjartavandamálum.
3. Hreyfðu þig
„Líkamsrækt er besta leiðin til að við-
halda æskunni,“ segir Jay Olshansky
læknir við háskólann í Illinios. Fjöl-
margar rannsóknir hafa sýnt fram
á kosti þess að hreyfa sig reglulega,
bæði fyrir skapið, hugann, jafnvæg-
ið, vöðvana og beinin. „Áhrifin koma
strax eftir fyrstu æfingu. Þú þarft
ekki endilega að hanga í rækt-
inni tímunum saman. Farðu
í hálftíma göngutúr á
hverjum degi.
Þú getur meira
að segja farið í
góða skó og skellt
þér í Smáralindina og kíkt í gluggana í
leiðinni,“ segir Olshansky.
4. Borðaðu trefjar á morgnana
Blóðsykurinn helst jafn yfir daginn
ef þú borðar trefjaríkan morgunverð
samkvæmt rannsókn Ferrucci og félaga
en Ferrucci heldur því fram að mikil
neysla trefja sporni gegn sykursýki.
5. Sofðu í minnst sex tíma
Bættu frekar árum við líf þitt en klukku-
tímum við sólarhringinn með því að
sleppa svefni. „Líkami okkar notar
svefn til að endurhlaða sig og lækna.
Settu svefn í forgang,“ segir Perls,
höfundur rannsóknarinnar.
6. Borðaðu hollan mat
Rannsóknin gefur til kynna
að þeir sem fá öll nauðsyn-
leg næringarefni, steinefni
og víta mín kalki síður í ellinni.
Leitaðu uppi litríkustu ávext-
ina og grænmetið fyrir
hugann og minnið.
7. Slakaðu á
„Hreyfðu þig
reglulega,
farðu í
jóga, hug-
leiddu eða bara dragðu inn andann
djúpt nokkru sinnum á dag og þú eyk-
ur líkurnar á að ná 100 ára aldri,“ segir
Perls.
8. Taktu upp lífshætti sjöunda
dags aðventista
Þeir Ameríkanar sem kalla sig sjöunda
dags aðventista lifa að jafnaði í 89 ár
eða áratug lengur en meðal Banda-
ríkjamaðurinn. Aðventistar hugsa vel
um líkama sinn sem þeir fengu að láni
frá guði, þeir reykja ekki, drekka ekki
og borða sjaldan sælgæti. Þeir borða
grænmeti, ávexti og hnetur og hreyfa
sig mikið auk þess sem þeir leggja
mikla áherslu á fjölskyldu og samfé-
lagið.
9. Lifðu vanabundnu lífi
Samkvæmt sérfræðingi í öldrunar-
sjúkdómum lifa þeir lengst sem borða
sama matinn og gera sömu hlutina út
lífið. „Að fara að sofa á sama tíma og
vakna á sama tíma á hverjum degi er
góð leið til að halda líkamanum í jafn-
vægi. Að sama skapi á líkaminn erf-
iðara með öll frávik eftir því sem við
eldumst,“ segir Ferrucci sem segir að
óregulegur lífsstíll veiki ónæmiskerfið.
10. Vertu í sambandi
Lykillinn að góðu andlegu heilbrigði er
að vera í reglulegu sambandi við vini
og ættingja. Þunglyndi og andleg van-
líðan getur valdið ótímabæru andláti.
Sumir sálfræðingar telja að félagslegu
samskiptin sem eiga sér stað við lík-
amsrækt fullorðinna sé í raun
mikilvægari en hreyfingin
sjálf.
10 RÁÐ TIL AÐ VERÐA
100 ÁRA
Fergie, söngkonan flotta úr
Black Eye Peas, lumar á ráði
þegar kemur að sjálfsstjórn
og aðhaldi en söngkonan
segist nota hugann til að
leika á sjálfa sig. „Ég tel mér
trú um að franskar kartöflur
séu eitraðar en þegar kem-
ur að girnilegum eftirrétt-
um leyfi ég mér að fá einn
bita. Ég lít örugglega út eins
og fáviti á meðan ég smjatta
á þessum eina bita því ég
reyni að njóta hans til hins
ítrasta.“
FRANSKAR
ERU EITUR