Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Side 33
VIÐTAL 9. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 33 Allt er þetta sjálfsagt sama hreyfiafl- ið en það verður eitthvað svo glat- að og innantómt þegar það nýt- ist til að búa til peninga. Ég fylgdist með velgengni þessara manna og fannst þetta allt alveg ótrúlegt eins og flestum. En svo kom í ljós að við- skiptasnilldin var bara það sem við kunnum öll, að velta á undan sér lánaboltum og skuldsetja sig upp í rjáfur. Þetta geta allir gert í einhvern tíma en svo kemur að skuldadögum og í ljós kemur að snilldin er engin snilld,“ segir Sigmar og bætir við að allir sem að hruninu komu eigi að gefa kost á sér í viðtöl til að útskýra sinn hlut. „Það þýðir ekkert að fela sig á bak við rannsóknarskýrsluna eða þá tuggu að málið sé í rannsókn. Það er algjör fyrirsláttur. Í einhverjum til- vikum forðast menn viðtöl því þeir óttast að almenningsálitinu sé ekki hægt að breyta. Það er skrítin nálg- un því í mínum huga snýst þetta fyrst og fremst um að þessir kall- ar skulda fólkinu í landinu útskýr- ingar. Almenningur fjárfesti í þess- um köppum og þeir eiga að koma fram, allir sem einn, og útskýra hvað í fjáranum þeir voru að pæla. Og þeir eiga að hætta að benda á Seðla- bankann eða ríkisstjórnina og skoða bara sinn þátt. Ekkert annað,“ segir hann og bætir við að kreppan sé því miður ekki á undanhaldi. „Ég held að ástandið eigi eftir að verða erf- itt næstu árin. Niðurskurðurinn er rétt farinn af stað. Við komumst upp úr þessu en það verður ekki strax.“ Sjálfur sé hann í ágætisstöðu fjár- hagslega og þurfi ekki að kvarta. „Ég er með venjulegt húsnæðislán sem hefur hækkað helling en ég ætla ekki að væla, ég hef það ágætt miðað við marga aðra.“ HAFNAR SLEGGJUDÓMUM Í jafnvinsælum þætti og Kastljósi, þar sem menn og málefni eru krufin, er ábyrgð þáttarstjórnandans mik- il. Sigmar segist taka gagnrýni þeg- ar hún sé rökstudd og góð en hafni öllum sleggjudómum. „Í svona starfi verður þú að sætta þig við að það eru aldrei allir sáttir við þig. Eðli frétta er að segja frá einhverju sem einhver vill ekki að fréttist og það er óhjákvæmilegt að menn verða stundum ósáttir. Oft er gagnrýni á okkur flokkspólitísk. Ef sjálfstæðis- maður á undir högg að sækja í þætt- inum verða flokksfélagar hans fúlir og gagnrýna okkur óspart. Þeir hrósa okkur hins vegar í hástert ef einhver úr Samfylkingunni er tekinn sams konar tökum í þættinum. Sama gild- ir um fólkið í hinum flokkunum, það lætur nákvæmlega eins. Satt best að segja gef ég lítið fyrir slíka gagnrýni því hún er flokkspólitísk en ekki fag- leg. Hún er ekki sett fram af sann- leiksást eða réttlætiskennd heldur til að verja flokkinn sinn eða flokks- félaga. Og ég er þeirrar skoðunar að þessi flokkshugsun sé allt of rík í samfélaginu og að flokkarnir ráði alltof miklu og móti almennings- álitið of mikið. Þessi trénaða flokks- hugsun lokar nefnilega á gagnrýna hugsun. Ég hef unnið nógu lengi í þessu fagi til að vita að fjölmarg- ir þingmenn og flokksfólk talar oft gegn sannfæringu sinni til að vera á flokkslínunni. Og þegar flokkslínan skiptir meira máli en sannfæringin, hvert stefnum við þá? Þessi mein- loka er stór ástæða fyrir hruninu hér á Íslandi.“ ROKK OG STJÓRNLAUST SUKK Fjölmiðlaferill Sigmars hófst í út- varpi en hann var lengi á rokkstöð- inni X-inu. Þaðan fór hann yfir á fréttastofu RÚV, svo á Stöð 2 og næst í Kastljós. Þótt hann sé enn rokkari segist hann ekki lengur í sambandi við gömlu félagana á X-inu. „Tím- inn á X-inu var mjög skemmtileg- ur en erfiður líka. Ég var í miklu sukki á þessum tíma og frasinn „þetta er ungt og leikur sér“ átti mjög vel við. Ég var ábyrgðar- laus og lífið snérist um djamm og vinnan mætti oft afgangi,“ segir Sigmar sem á nokkrar meðferð- ir að baki. „Það er ákveðin pró- senta af fólki sem er með þenn- an sjúkdóm sem er alkóhólismi og í mínum huga er alveg aug- ljóst að ég átti aldrei séns eft- ir að ég byrjaði að drekka. Frá fyrsta fylleríi drakk ég illa og mikið og lengi og á tímabili yf- irtók sukkið algerlega líf mitt. Ég var algerlega stjórnlaus og réð ekki neitt við neitt,“ segir hann en vill ekki taka svo djúpt í árinni að edrúmennskan hafi bjargað lífi hans. „Um það veit ég í raun ekkert. Edrú- mennskan bjargaði kannski lífi mínu í þeim skilningi að í dag á ég gott líf en ef ég væri enn úti að sukka þá væri líf mitt helvíti dapurlegt. Oft finnst mér alveg makalaust að ég skyldi komast í gegnum þetta því ég var alltaf að reyna að sameina hefðbundið fjöl- skyldulíf, vinnu og massíft sukk og neyslu. Það voru gríðarleg átök í kringum þetta, skilnaður, sárindi og endalaus vonbrigði og uppgjöf. Maður missir svo fljótt allt sjálfstraust og trúna á hið góða þeg- ar maður er endalaust að valda fólkinu sínu svona miklum von- brigðum eins og ég gerði ítrekað þegar ég var sem veik- astur. Niðurbrot- ið verður algert í þessum átök- um,“ segir Sig- mar og bætir við að hann sakni ekki HNAKKREIFST við Þór all Þá sjaldan sem ég fer niður í bæ iða ég ekk- ert í skinninu að vera í sama ástandi og fólkið þar og veit fátt aulalegra en lið sem slef- ar drafandi upp í eyrun á gubbandi fólki. Sigmar Guðmundsson Sigmar segir mun erfiðara að ræða við einstaklinga um persónuleg mál þeirra en peninga og Icesave. MYND KARL PETERSSON En það þýðir ekk-ert að væla. Það er verið að skera niður alls staðar og auðvitað á RÚV ekki að vera und- anskilið. FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.