Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 HELGARBLAÐ
1. HVAÐ HEITIR MESSI FULLU NAFNI?
a) Lionel Andrés Messi
b) Lionel Rustari Messi
c) Lionel Rosario Messi
2. MESSI LEIKUR Í TREYJU NÚMER 10 HJÁ BARCELONA SEM HANN ERFÐI
FRÁ RONALDINHO. EN HVAÐA NÚMER BAR HANN Á BAKINU ÁÐUR EN
RONALDINHO YFIRGAF BARCA?
a) 18
b) 19
c) 22
3. MESSI SLÓ FYRST RÆKILEGA Í GEGN Á HEIMSMEISTARAMÓTI
UNGMENNA ÞAR SEM HANN VAR VALINN BESTI LEIKMAÐURINN OG VAR
MARKAHÆSTUR. ARGENTÍNA VANN MÓTIÐ OG SKORAÐI MESSI TVÖ
MÖRK Í ÚRSLITALEIKNUM SEM VAR GEGN HVAÐA LIÐI?
a) Gana
b) Nígeríu
c) Fílabeinsströndinni
4. HVAÐ GERÐIST AÐEINS TVEIMUR MÍNÚTUM EFTIR AÐ MESSI KOM
INN Á Í SÍNUM FYRSTA LANDSLEIK GEGN UNGVERJALANDI 17. ÁGÚST
2005?
a) Hann skoraði með hjólhestaspyrnu
b) Hann skoraði sjálfsmark
c) Hann fékk rautt spjald
5. HVAÐA TITIL HEFUR MESSI UNNIÐ MEÐ ARGENTÍNSKA LANDSLIÐINU?
a) Ólympíumeistaratitilinn
b) Suður-Ameríkubikarinn
c) Heimsmeistaratitilinn
6. MESSI HEFUR VERIÐ Í HERBÚÐUM BARCELONA FRÁ ÁRINU 2000
EN HJÁ HVAÐA ARGENTÍNSKA FÉLAGI VAR HANN FYRIR KOMU SÍNA TIL
KATALÓNÍU?
a) Newell’s Old Boys
b) Boca Juniors
c) River Plate
7. HVAÐ AFTRAÐI MESSI FRÁ ÞVÍ AÐ SPILA ÚRSLITALEIK MEISTARA-
DEILDARINNAR 2006 GEGN ARSENAL?
a) Leikbann
b) Meiðsli
c) Ekki valinn í hópinn
8. HVAÐ HEFUR MESSI OFT VERIÐ TILNEFNDUR TIL KNATTSPYRNU-
MANNS ÁRSINS HJÁ FIFA?
a) Tvisvar
b) Þrisvar
c) Fjórum sinnum
9. HVAÐ HEFUR MESSI SKORAÐ MÖRG LANDSLIÐSMÖRK, SKEKKJU-
MÖRK ERU TVÖ MÖRK?
a) 13
b) 17
c) 21
LIONEL
MESSI?
Svör: 1A, 2B, 3B, 4C,
5A, 6A, 7B, 8B, 9A
Hvað veistu um
1. Lærðu eitt nýtt orð
á viku og merkingu
þess. Leggðu þig svo
fram við að bæta því í
orðaforðann og nota
það í daglegu tali.
2. Leggðu leið þína
á eitt safn í mánuði og
skrifaðu niður það sem
þú lærðir af heimsókn-
inni eða upplifun þína.
Þannig situr meira eftir.
3. Gerðu þér ferð á
bókasafn einu sinni
í viku og kynntu þér
efni sem vekur áhuga
þinn. Skoðaðu rann-
sóknir og lestu þér til
um málefnið. Einnig
getur verið sniðugt
að skrifa niður hug-
myndir sem fæð-
ast við lesturinn og
ræða þær við vin eða
maka.
4. Fylgstu vel
með helstu við-
burðum heims-
ins í gengum
netmiðla, dag-
blöð og sjón-
varp. Það að
vera meðvitað-
ur um atburði
líðandi stundar
hjálpar þér að
taka þátt í sam-
ræðum við fólk
í daglegu lífi.
5. Skráðu þig
í bókaklúbb. Það eykur þekkingu þína að lesa og
það eykur félagslegan þroska að kynnast nýju fólki.
Lestur er líka róandi og ágætis leið til að fá hvíld frá
amstri dagsins.
6. Mættu á opnanir á myndlistarsýningum,
ljósmyndasýningum og öðrum listviðburðum.
Kynntu þér vel listamennina og
hugmyndirnar á bak við lista-
verkin.
7. Lestu upphátt. Að lesa
upphátt er góð æfing, hægt er
að lesa einn, fyrir barnið sitt og
svo má gera rómantíska stund
úr lestrinum og lesa fyrir maka
sinn.
8. Sæktu námskeið af ýms-
um toga. Í dag er mikið úrval
námskeiða í boði sem snýr að
því að hjálpa fólki og styrkja
það. Einnig er fjölbreytt úrval
matreiðslunámskeiða, prjóna-
námskeiða, listnámskeiða og
ýmissa annarra bæði til gagns
og gamans.
9. Ferðastu á nýja staði reglu-
lega. Hvort sem þú ferðast inn-
an lands eða utan er mikilvægt
að kynna sér sögu staðarins
áður en haldið er af stað. Einn-
ig skaltu drekka í þig eins mik-
inn fróðleik og þú getur þegar á
áfangastað er komið og upplifa
sem mest. Haltu
ferðadagbók
og skrifaðu litla
fróðleiksmola og
reynslusögur um
hvern stað.
10. Smakkaðu
nýjan og framandi
mat reglulega á
veitingastöðum
eða reyndu fyr-
ir þér í eldhús-
inu. Kynntu þér
vel menninguna
á bak við matinn
og lestu þér til um
hráefnin í honum.
Deildu matnum
með góðum vin-
um og leyfðu fróð-
leiknum að fljóta
með á milli rétta.
Menntun er alltaf af hinu góða en ekki má gleyma því að það má
læra margt utan skóla. Skóli lífsins er jú enginn smá skóli og þú
getur fengið meira út úr þeim skóla en þig grunar. Sestu niður
með blað og penna og skrifaðu niður áhugamál þín sem og hluti
sem þig langar til að kunna og vita meira um.
LÆRÐU!
Lifðu og
kolbrun@dv.is