Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 FRÉTTIR Rúnar Ástþór Ólafsson og Hanna María Jónsdóttir fluttu úr nýbyggðri íbúð sinni í lok janúar á síðasta ári vegna myglusveppa sem fundust undir parketti í íbúðinni. Þau og þrjú börn þeirra höfðu átt við lang- vinn veikindi að stríða sem þau rekja til myglusveppa. „Fljótlega eft- ir að fluttum í íbúðina fóru strákarn- ir okkar að veikjast og virtust enda- laust vera með flensu. Okkur var sagt að hafa engar áhyggjur; þessi veik- indi væru örugglega tengd því að þeir væru byrjaðir hjá dagmömmu og í leikskóla. En þegar veikindin versnuðu og þeir fóru að fá útbrot og blöðrur á hendur og fætur, ásamt því að vera alltaf með flensu þá vissi ég að eitthvað væri að, en kveikti ekki á perunni þá að um sveppi væri að ræða,“ segir Hanna, en þau fluttu í íbúðina í apríl árið 2008 og bjuggu því í henni um ellefu mánaða skeið. Mikil veikindi Helstu einkenni veikindanna voru hiti á kvöldin, nefrennsli og blöðrur á höndum og fótum hjá börnunum. Hjá Hönnu og Rúnari lýstu veikind- in sér í sífelldum höfuð- og eyrna- verkjum og stundum flökurleika. „Svörin sem við fengum frá lækn- um eftir margar heimsóknir til þeirra með börnin voru ávallt á þá leið að þau hrjáðust af vírus eða einhvers konar ofnæmi og þetta væri bara eðlilegt,“ segir Hanna. Miklir gallar á íbúðinni Fljótlega eftir að þau fluttu inn komu í ljós ýmsir gallar og að frágangur ým- issa atriða væri í ólagi. Þau leituðu til byggingarstjóra eignarinnar og ósk- uðu eftir því að gallarnir yrðu lag- færðir. Þau segja að það hafi gengið illa og leituðu því aðstoðar lögmanns við að fá nauðsynlegar lagfæring- ar, en í gögnum lögmanns þeirra er listi með 27 atriðum sem þau telja nauðsynlegt að lagfæra. „Við héldum að þetta yrði ekkert mál og að bygg- ingarstjórinn myndi bara ganga frá þessu og laga gallana. Hann var hins vegar alltaf að fresta öllu og ekkert gerðist. Við vorum komin með lög- fræðing með okkur sem var farinn að sjá um samskiptin,“ segir Rúnar og áður en það uppgötvaðist að myglu- sveppir væru í íbúðinni vildu þau rifta kaupsamningnum. Héldu lokagreiðslunni eftir Þar sem frágangi á íbúðinni var ekki lokið ákváðu Rúnar og Hanna að halda eftir lokagreiðslunni vegna kaupanna, 3,5 milljónum króna. Í gögnum frá lögmanni þeirra kem- ur fram að byggingarstjóri eignar- innar hafi sjálfur sagt að hann væri ekki nógu ánægður með fráganginn og það yrði lagfært. „Okkur langaði til að kaupa okkur íbúð og eignast sjálf húsnæði. Það var kominn tími á það. Við vorum búin að vera að leigja lengi og þessa íbúð keyptum við eftir að hafa séð fallegar teikningar og allt átti að vera svo fínt. Þegar við sáum að ekki yrði gengið frá þessum hlut- um sem við settum út á ákváðum við að halda lokagreiðslunni eftir og enn hefur ekki verið skrifað undir neitt afsal á eigninni,“ segir Rúnar. Húsnæðið heilsuspillandi Eftir langvinn veikindi fjölskyld- unnar og þá sérstaklega barnanna ákváðu Rúnar og Hanna að leita til fyrirtækisins Húss og heilsu sem hefur síðustu ár sérhæft sig í rann- sóknum á myglusveppum. Hanna var á þessum tíma nýbúin að lesa sögu fjölskyldu úr Grindavík sem þurfti að flytja út úr einbýlishúsi sínu vegna myglusveppa. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir líffræðingur og starfsmaður Húss og heilsu fram- kvæmdi rannsókn þann 31. janúar í fyrra. „Þegar hún reif upp parkettið þá komu myglusveppir í ljós og það gaus upp lykt. Ég fékk ógeð og við fórum út úr íbúðinni það kvöld,“ seg- ir Hanna en samkvæmt bréfi frá Heil- brigðiseftirliti Suðurnesja um íbúð- arhúsnæði Hönnu og Rúnars segir, og er þá vísað í húsaskoðunarskýrslu embættisins: „Þá hefur Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðing- ur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands tjáð embættinu að sveppategundir sem fundust á byggingarsýnum úr íbúðinni geti verið hættulegar heilsu manna. Á grundvelli þessara upplýs- inga telur Heilbrigðiseftirlit Suður- nesja að umrætt húsnæði geti ver- ið heilsuspillandi fyrir íbúa þess og mælir ekki með notkun þess fyrr en þeim úrbætum sem embættið hefur lagt til verði lokið.“ Mikil veikindi Rúnar og Hanna hafa fengið læknis- vottorð þar sem fram kemur að synir þeirra hafi verið með „tíðar sýkingar og þeir voru að hósta mikið á nótt- unni og voru með hita af og til. Einnig voru foreldrarnir með þrálát kvefein- kenni og mikinn hósta, sérstaklega á nóttunni.“ í læknisvottorðinu kemur fram að eftir að fjölskyldan hafi flutt úr íbúðinni í Njarðvík hafi „heilsufar þeirra allra verið betra og hafa dreng- irnir getað verið í dagvistun án þess að þurfa að vera veikir heima eins oft og þeir voru meðan þeir voru í Reykjanesbæ.“ Í lok vottorðsins seg- ir: „Svo virðist sem mikill raki í hús- inu, gróður myglusveppa og myglu- skemmdir hafi mögulega haft slæm áhrif á heilsufar drengjanna og jafn- vel foreldranna líka. Þau segja heilsu- far sitt og drengjanna mikið betra eft- ir að þau fluttu úr húsinu.“ Húsgögnin skilin eftir Eftir að hafa verið á hrakhólum í nokkrar vikur komu Hanna og Rúnar sér fyrir í leiguhúsnæði. Þau höfðu á þessum tíma ekkert hreyft við húsgögnum í íbúðinni sem þau höfðu flutt úr. „Við töluðum við Sylgju hjá Húsi og heilsu og spurð- um hvort við gætum ekki tekið hús- gögnin úr íbúðinni. Hún sagði að það þyrfti að þrífa þau og það væri hægt að prófa að setja öll húsgögnin í gám, eitra fyrir sveppunum og síð- an þrífa allt með sérstökum efnum. Við prófuðum að taka hluta af hús- gögnunum og þrífa með sérstökum efnum eftir nákvæmum leiðbein- ingum. Við tókum þessi húsgögn Hjón um þrítugt hafa verið á hrakhólum síðustu þrettán mánuði eftir að hafa farið úr nýrri íbúð þar sem myglusveppir fóru að vaxa. Heilbrigðiseftirlitið hefur gefið út að heilsuspillandi sé að búa í íbúðinni. Fjölskyldan skildi alla búslóðina eftir og er hún ónýt vegna myglusveppa. FLÚÐU VEGNA MYGLUSVEPPA JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is Alltaf bíðum við og hend- um peningum í lög- menn og matsgerðir en ekkert gerist. Fjölskyldan Rúnar Ástþór og Hanna María ásamt börnunum sínum fjórum í Kópavog- inum. Þau hafa staðið í tæplega tveggja ára baráttu við að fá galla og lélegan frágang á nýrri íbúð sem þau keyptu viðurkennda og lagfærða. Þau flúðu íbúðina eftir ellefu mánaða búsetu í henni þegar myglusveppir komu í ljós. MYND SIGTRYGGUR ARI Barnadótið skilið eftir Rúnar og Hanna María reyndu að þrífa hluta af búslóðinni með sérstökum aðferðum en það bar ekki árangur. Hér má sjá inn í barnaherbergið þar sem öll leikföngin voru skilin eftir. MYND SIGTRYGGUR ARI Myglusveppir Rúnar við parkettið þar sem hluti af myglusveppunum fannst. Þeir geta verið hættulegir heilsu manna. MYND SIGTRYGGUR ARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.