Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 HELGARBLAÐ Það eru ýmis boð og bönn sem gilda á Íslandi. Boð og bönn yfir hluti sem þykja jafnvel sjálfsagðir í öðrum löndum. Nýlega var til dæmis samþykkt með lögum að banna nektardans. Í flestum tilfellum er reynt að skapa öruggara umhverfi fyrir landsmenn en sumir líta á málið sem forsjárhyggju og skerðingu á mannréttindum. DV tók saman lista yfir nokkur boð og bönn hér á landi. BANNAÐ AÐ BEYGJA Á RAUÐU n Í flestum ríkjum Bandaríkjanna og í Kanada er leyfilegt að beygja til hægri á rauðu ljósi. Þetta er ekki leyfilegt hér á landi og er ekki algeng regla í Evrópu heldur. Þessi regla þykir bjóða hættunni heim en sú lausn sem lögð hefur verið til hér á landi eru svo- kölluð framhjáhlaup með biðskyldu. Nokkrum sinnum hefur þessi breyting verið lögð fyrir á Alþingi en aldrei náð fram að ganga. TAKMÖRKUN Á GJALDEYRI n Sökum gjaldeyrishaftanna mega Íslendingar ekki kaupa gjaldeyri að vild eins og hefur verið hægt hér frá því að haftaárunum lauk. Til þess að kaupa gjaldeyri þarf viðkomandi að sýna flugseðil og vegabréf sem sýnir að hann sé á leið til lands þar sem viðkomandi gjaldmiðill er notaður. Þá má ekki kaupa nema visst mikið í einu. BARA ÍSLENSKT n Á Íslandi er með öllu bannað að kaupa eða selja erlent nef- og munntóbak. Á sama tíma er hins vegar leyfð sala á íslensku nef- og munntóbaki. Mörgum þykir þarna skjóta skökku við enda ekki ósvipað því að selja bara vissar tegundir af víni eða mat en ekki aðrar. REYKINGAR BANNAÐAR! n 1. júní 2007 voru reykingar bannaðar á Íslandi á kaffihúsum, skemmtistöðum og veitingastöðum. Víða úti í heimi mega reykherbergi vera á veitingahúsum og skemmtistöðum, svo lengi sem það uppfylli ákveðnar kröfur og ekki er veitt þjónusta þar. Hér á landi eru reykingar einfaldlega bannaðar innandyra á opinberum stöðum. Helst þarftu að læsa þig inni heima hjá þér og vera undir teppi, langi þig að kveikja í einni. SPILAVÍTIN BÖNNUÐ n Úti um alla Evrópu sópa borgir að sér skattfé í gegnum spilavíti. Ísland er þó ekki með á þeirri bylgjulengd frekar en öðrum. Arnar Gunnlaugsson gerir hvað hann getur til að fá spilavíti leyfð hér á landi en hann verður ekki vinsæll sá alþingismaður sem samþykkir það. Gífurlega miklar tekjur geta skapast í skattfé út frá spilavítum sem geta þó auðvitað farið illa með menn. Einnig er ólöglegt að spila póker á Íslandi þar sem mótshaldari eða húsið tekur part af veltunni en á sama tíma er leyfilegt að reka spilakassasal þar sem hægt er spila póker í kössunum. EKKI 0%, BARA BANNAÐ! n Bjórauglýsingar hafa verið áberandi hér á landi í mörg ár. Til þess að fela að verið sé að auglýsa bjór er sett örlítið letur neðst í hornið þar sem stendur 0 prósent áfengi. Hafa þá fyrirtækin alltaf þurft að hafa í sölu óáfengan drykk sem heitir það sama. Nú er bannað aftur á móti að auglýsa léttbjór sem á sér stóra bróður sem er áfengur. Þá er einnig bannað að auglýsa allar tegundir af víni og það sama á við um tóbak. BANNAÐ AÐ SKJÓTA ÁLFTIR OG SPÖRFUGLA n Álftin var friðuð 1913 á sama tíma og haförninn. Álftin þótti svo fagur fugl. Engu að síður eru margir bændur í mestu vandræðum vegna hennar. Lóan er einnig friðuð þrátt fyrir að vera veidd víða um Evrópu. Slík lög gilda einnig um spörfugla. Reyndar eru öll dýr friðuð samkvæmt dýraverndunarlögum og svo eru veittar sérstakar undanþágur á þær tegundir sem má veiða. EKKI MÁ KAUPA ÁFENGI ÚTI Í BÚÐ n Hér á Íslandi er ekki hægt að kaupa sér bjórkippu í búðinni eða á bensínstöðinni, mörgum til ama. Það mun víst vera leyfi- legt í nánast öllum öðrum löndum í heiminum. Árið 2005 var gerð könnun meðal almennings og kom fram í henni að tæp 60 prósent vildu geta keypt áfengi í búðum. Árið 2006 var svo  lagt fram frumvarp til Alþingis sem var ekki samþykkt. Síðan þá hefur umræðan verið tekin upp öðru hvoru en ekkert gerst. á Íslandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.