Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010
ALKÓHÓLSKÝ Í GEIMNUM Stjörnufræðingar fundu fyrir nokkrum
árum út að 463 milljarða kílómetra langt alkóhólský flýtur djúpt í geimnum. Skýið gef-
ur vísindamönnum mynd af því hvernig ævafornar gastegundir geti myndað stjörnu-
þokur. Skýið er í laginu eins og brú og úr metanóli sem á íslensku er einnig nefnt
tréspíri. Það liggur í vetrarbrautinni okkar. Metanól er lífræn sameind og frændefni et-
anóls, sem finnst í áfengum drykkjum okkar mannanna. Menn geta þó ekki neytt met-
anóls, og því er loku fyrir það skotið að drykkjusjúkir geimfarar setji stefnuna á skýið
í framtíðinni. Tréspíra varð fyrst vart í geimnum árið 2004 þegar stjarneðlisfræðingar
komu auga á hann í disklaga þyrpingum sem myndast í kringum stjörnur í fæðingu.
UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON, helgihrafn@dv.is
Rússneskur myndlistarmaður blind-
aðist þegar hann steig á jarðsprengju
frá seinni heimsstyrjöldinni:
Málverkin á síðunni eru flott. Það er eitthvað furðulegt á seyði í þeim. Það sem ger-ir þau sérstök er að lista-
maðurinn sem málaði þau er blind-
ur. Dmitri Didorenko blindaðist þegar
sinnti herskyldu árið 1991. Herdeildin
leitaði í skógum Úkraínu að líkams-
leifum rússneskra hermanna er létu
lífið í innrás nasista í Sovétríkin í síð-
ari heimsstyrjöldinni. Jarðsprengja frá
þeim tíma sprakk þegar herdeildin rót-
aði í moldinni í skóginum og missti Di-
dorenko við það sjónina.
Hann var nokkuð þekktur listamað-
ur fyrir slysið og hafði haldið málverka-
sýningar í Moskvu. Eftir slysið gekk
Didorenko í gegnum langt tímabil
vonleysis og þunglyndis, enda er sjón-
in öflugusta tæki málarans. Að áratug
liðnum var hann flestum gleymdur í
listaheiminum. En þá hringdi gam-
all vinur í Didorenko og bauð honum
að halda sýningu á verkunum sínum
gömlu. Didorenko samþykkti það og
málaði nýtt verk til þess að hafa með
á sýningunni, til gamans og til að sýna
umheiminum að hann væri enn lista-
maður. Málverkið kallaði hann „Jafnvel
lengsta leiðin hefst með litlu skrefi“.
Í fyrstu reyndist það þrautin þyngri
að mála en með elju tókst Dmitri með
tímanum að ná valdi á penslinum á ný.
Hann hefur nú, nokkrum árum síðar,
málað nokkur hundruð málverk. Lista-
maðurinn hefur á síðustu árum vakið
gríðarlega athygli í Rússlandi og víðar
fyrir verkin sem þykja varpa fram tær-
um formum úr hugarfylgsnum blind-
unnar.
BLANDA AF
HARRY POTTER
OG SMÁBORGARA
n Jan Peter Balkenende hefur verið
forsætisráðherra Hollands síðan árið
2002 og myndað fjórar ríkisstjórnir með
ýmsum flokkum. Þrátt fyrir gifturíkan
stjórnmálaferil og ótvíræða hæfileika
hefur honum stundum verið legið á
hálsi fyrir að vera fullþurr, litlaus og
„nördalegur“ til þess að leiða Holland,
svo orðbragð andstæðinga hans sé
notað.
Þessi hlið Balkenendes fór líka í pirrurn-
ar á Karel De Gucht, þáverandi utanrík-
isráðherra Belgíu, sem sagði í viðtali við
flæmskt dagblað árið 2005: „Balken-
ende er blanda af Harry Potter og smá-
borgara.“ Þessi orð ullu smávægilegri
ríkjadeilu á milli landanna og neyddist
sendiherra Belgíu til að biðja utanríkis-
ráðherra Hollands afsökunar. Í kjölfarið
sagði Hans Wiegel, fyrrverandi þing-
maður á hollenska þinginu, að sér lík-
aði betur við Harry Potter en kennileiti
Brussel, Manneken Pis (ísl. Peðlingur
piss), en það er styttan fræga af drengn-
um mígandi.
API Á FLÓTTA
Í FLÓRÍDA
n „Dularfulli apinn í Tampa Bay“
er api af Rhesustegund sem
hefur gengið laus og verið á flótta í
rúmlega ár nálægt St. Pétursborg í
Flórídafylki í Bandaríkjunum. Talið
er að apinn sé karldýr og vegi um
15 kíló. Ekki er vitað hvaðan apinn
kom. Sumir telja að hann hafi
lifað villtur í þjóðgarði í um 150
kílómetra fjarlægð frá St. Péturs-
borg. Aðrir segja að hann gæti
hafa sloppið úr höndum eiganda
sem ekki hafi verið með leyfi til
dýrahalds. Nú hafa 60.000 manns
skráð sig í Facebook-hóp þar sem
rætt er um apann dularfulla. Apinn
er fælinn og ekki talinn hættulegur
mönnum. Sagt er að apinn líti til
beggja átta þegar hann fari yfir
umferðargötu. Meðfylgjandi mynd
sýnir apann þegar hann braust
inn í gróðurhús hjá ónefndum
Flórídabúum.
Borðstofustólar sem hreyfast
Var leiðinlegt við borðhaldið á
páskunum? Færðu leiða á sessu-
nautnum í boðum eftir örfáar
mínútur? Þá ættirðu, kæri lesandi,
að kynna þér uppfinningu Sviss-
lendingsins Paolos Rais frá 2001.
Paolo leiddist að sitja við hliðina
á sama ættingjanum við borð-
stofuborðið heila kvöldstund. „Ég
hugsaði því með mér, hvernig ég
gæti stuðlað að því að fleiri gætu
rætt saman þegar setið er við langt
borðstofuborð,“ sagði hann.
Lausnin var 18 sæta lang-
borð með rafknúnum mótor með
tveimur keðjum. Önnur keðjan
keyrir stólana í hring um borðið á
meðan hin knýr áfram bakka með
mat. Stólarnir snúast eftir borð-
inu á 9 sentímetra hraða á klukku-
stund svo gestirnir taka varla eftir
því að þeir berast hringinn í kring-
um borðið og hafa því sífellt ein-
hvern nýjan á móti sér.
Paolo Rais hefur enn ekki verð-
lagt uppfinninguna en skrifaði
Elísabetu Bretadrottningu bréf og
bauð henni lúxuseintak. „Drottn-
ingin gæti rætt við alla gestina
í boðinu,“ sagði hann. „En hún
svaraði aldrei bréfinu.“
Sjálfur Charles Darwin, höf-
undur þróunarkenningarinn-
ar, fann upp skrifstofustóla með
hjólum á nítjándu öld. Hann kom
hjólum fyrir á stólnum í rann-
sóknarstofu sinni til að geta rúll-
að sér hratt á milli ólíkra sýna og
gagna. Hugmyndin breiddist síð-
an hratt út.
Fann upp skrifstofustólinn Darwin
var margt til lista lagt.
Málarinn blindi Dmitri Didor-
enko gafst ekki upp þrátt fyrir að
missa sjónina.
Blindur málari
SLÆR Í GEGN