Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 FRÉTTIR SKOÐA LÁN FONS TIL HULDUFÉLAGS Þrotabú Fons finnur engar skýringar á þriggja milljarða króna láni frá Fons til huldufélags í Panama. Lítið sem ekkert er vitað um félagið. Þrotabúið yfirheyrir bankastarfsmann í Lúxemborg til að fá upp- lýsingar um lánið. Lánið var afskrifað í bókum Fons árið 2008. Þrotabú Fons, eignarhaldsfélags- ins sem áður var í eigu Pálma Har- aldssonar og Jóhannesar Kristins- sonar, rannsakar nú um þriggja milljarða króna lánveitingu til eignarhaldsfélags í Panama sem nánast ekkert er vitað um. Félagið í Panama heitir Pace Associates og var lánið veitt árið 2007. Rætt hefur verið um lánið nokkrum sinnum á skiptafundum í þrotabúi Fons en sem stendur er lítið vitað um eðli félagsins eða til- gang lánsins. Engar upplýsingar um þetta er að finna í þeim gögn- um um starfsemi félagsins sem þrotabú Fons hefur undir hönd- um. Lánið fór til Panama í gegn- um Landsbankann í Lúxemborg og snýst rannsókn þrotabúsins á lánveitingunni meðal annars um að reyna að fá upplýsingar um lánafyrirgreiðsluna frá tilteknum starfsmanni Landsbankans þar í landi. Skýrsla fyrir dómi Erfiðlega hefur hins vegar geng- ið að fá upplýsingar um lánið frá starfsmanninum og hefur þrotabú- ið leitað til Héraðsdóms Reykjavík- ur til að taka skýrslu af starfsmann- inum. Talið er að starfsmaðurinn geti varpað einhverju ljósi á málið og tilgang lánveitingarinnar. Yfirheyrsla yfir þessum starfs- manni Landsbankans átti að fara fram símleiðis í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudaginn. Yf- irheyrslunni var hins vegar frestað um viku þar sem dómarinn í mál- inu lagði áherslu á að maðurinn hefði lögmann sér til fulltingis í yfirheyrslunni. Ein af ástæðun- um fyrir því af hverju starfsmað- ur Landsbankans kann að vera tregur til að ræða um lánið er að skiptastjóri bankans hefur gefið fyrirmæli um að einstakir starfs- menn ræði ekki um málefni bank- ans sem kunni að vera háð banka- leynd. Reynt verður að ræða aftur við manninn um Panamalánið í næstu viku. Lánið afskrifað hjá Fons Eitt af því sem vakti athygli starfs- manna þrotabúsins varðandi lán- ið til þessa huldufélags í Panama var að það var afskrifað í bókum Fons fyrir efnahagshrunið árið 2008. „Það er undarleg afskrift á allri fjárhæðinni í bókum félags- ins sem erfitt hefur verið að rekja,“ segir heimildarmaður DV. Ekkert er vitað um hvert peningarnir sem runnu til þessa félags fóru á end- anum en ljóst er að eigendur Fons töldu að félagið myndi ekki fá fjár- munina til baka. Engin ákvörðun hefur verið tek- in um það í þrotabúinu hvað gert verður í málinu og þurfa frekari upplýsingar um lánið að liggja fyrir áður en það verður ákveðið. Hugs- anlegt er þó að höfðað verði riftun- armál eða skaðbótamál á hendur fyrrverandi eigendum Fons þegar meira liggur fyrir um lánið, meðal annars hver átti félagið í Panama og í hvaða tilgangi lánið var veitt. INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Það er undarleg afskrift á allri fjárhæðinni í bókum félagsins sem erfitt hefur verið að rekja. Ekkert vitað um félagið Þrotabú Fons skoðar nú þriggja milljarða króna lánveitingu til Pace Associates sem skráð er í Panama í Suður-Ameríku. Nánast ekkert er vitað um félagið eða af hverju lánið var veitt. Lánið afskrifað Lánið til Panamafélagsins var afskrifað í bókum Fons árið 2008 en þrotabú félagsins reynir nú að verða sér úti um upplýsingar um þetta huldufélag, meðal annars með skýrslutökum í Héraðsdómi Reykjavíkur af bankastarfsmönnum í Landsbankanum í Lúxemborg. Pálmi Haraldsson var eigandi Fons. Egill Grímsson, stjórnarformaður Arctic Trucks, sem fór með þátta- gerðarmönnum breska sjónvarps- þáttarins Top Gear, sem sýndur er á BBC, upp að hrauninu á Fimm- vörðuhálsi, segir rangt að sjón- varpsmennirnir hafi ekið á jeppum yfir logandi hraunið. Sagt var frá því í fréttum fyrir helgi að sjónvarps- mennirnir hefðu farið á jeppa upp á hraunið þar sem kviknað hafi í hjól- börðunum. Egill segir í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum vegna málsins að eingöngu framdekkjum á einum bíl hafi verið ekið upp á heitan hraun- jaðarinn. Tilgangurinn hafi verið að láta kvikna í dekki fyrir mynda- vélarnar, meðal annars til að sýna hversu hættulegt hraunið er. Þeg- ar því markmiði var náð var bílnum þegar í stað bakkað niður af heitum hraunjaðrinum. Lögreglan á Hvolsvelli gagnrýndi þessar aðfarir sjónvarpsmannanna í frétt á Vísi á fimmtudaginn en Eg- ill Grímsson heldur því hins vegar fram að menn hafi farið mjög varlega við upptöku atriðisins og fyllsta ör- yggis hafi verið gætt. „Við undirbún- ing og skipulag ferðarinnar óskaði Arctic Trucks eftir nærveru Hjálpar- sveitar skáta í Kópavogi, enda hefur Arctic Trucks í áraraðir átt mjög gott samstarf við hjálparsveitir landsins. Útvegaði sveitin meðal annars fjar- skipta- og ljósabúnað auk sprunguör- yggisbúnaðar. Á leiðinni að eldstöðv- unum lenti hópurinn í mjög slæmu veðri og erfiðri færð. Kom nærvera hjálparsveitarinnar sér einkar vel og lýsti starfsfólk BBC ánægju sinni með þau faglegu og fumlausu vinnubrögð sem hjálparsveitin viðhafði.“ Hann segir atriði Top Gear-manna á Fimmvörðuhálsi verða mikla land- kynningu, enda nýtur þátturinn mik- illa vinsælda. Stjórnarformaður Arctic Trucks segir bresku sjónvarpsmennina hafa farið varlega á Fimmvörðuhálsi: Top Gear-menn kveiktu í hjólbörðum Hraunið á Fimmvörðuhálsi Þátta- gerðarmenn á vegum Top Gear óku bíl upp á heitan hraunjaðarinn þannið að framdekkin fóru upp á hraunið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.