Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 48
SÓLARKNÚIN FLUGVÉL Vel hefur gengið með tilraunaflug á nýrri flugvél sem eingöngu er knúin sólarorku og ber nafnið Solar Impulse. Vélin fór í sitt annað reynsluflug á dögunum í Sviss og var á lofti í 87 mínútur og náði 1200 metra hæð. Væng- haf vélarinnar er jafnmikið og á Boeing 747 þotu en vélin vegur álíka mikið og hefðbundinn fjölskyldubíll. Vélin mun fara í ann- að flug í júlí næstkomandi en framtíðarmarkmiðið er að reyna hnattflug árið 2012. MODERN FAMILY OG IPAD Í Páskaþætti hinnar geysivinsælu bandarísku sjónvarpsþáttaraðar Modern Family fær fjölskyldufaðir- inn Phil hina nýju iPad-tölvu frá Apple í afmælisgjöf. Það sem vekur athygli er að Apple-fyrirtækið virðist hafa verið í samstarfi við framleið- anda þáttanna en í upptalningu í lok þáttarins kemur fram að fyrirtækið hafi lánað tölvuna sem notuð var. Þess má geta að fjölskyldufaðirinn fellur fyrir hinni nýju tölvu og í lok þáttarins sést hann renna fingrum létt yfir skjá tölvunnar og hvísla: „Ég elska þig.“ AOL AÐ SELJA BEBO Bandaríska vefþjónustufyrirtækið AOL (America Online) festi kaup á samskiptavefnum Bebo fyrir tveimur árum fyrir 850 milljónir Bandaríkja- dala. Bebo stóð þá á hátindi vinsælda sinna en mátti síðan lúta í lægra haldi fyrir útrás samskipavefj- anna Facebook, MySpace og Twitter. Það var síðan í vikunni að AOL tilkynnti starfsmönnum að vefurinn yrði seldur eða hreinlega lagður niður á næstu vikum þar sem ekki væri til staðar nægt fjármagn til að reka hann lengur. ÞRÍVÍDD Í SNJALLSÍMA Raftækjaframleiðandinn Sharp sýndi á dögunum LCD þrívíddarskjái sem fyrirtækið hyggst setja á markað fyrir stafrænar myndavélar, snjallsíma og önnur lítil raftæki. Við þrívíddarskjá- inn þarf engin gleraugu og einnig er með auðveldum hætti hægt að skipta úr þrívíddarham yfir í tvívídd. Sharp mun fljótlega hefja fram- leiðslu á skjánum fyrir hin ýmsu tæki en í kjölfarið koma síðan þrívíddar- snertiskjáir fyrir snjallsíma. UMSJÓN: PÁLL SVANSSON, palli@dv.is HÆTTUÁSTAND Í NETHEIMUM Í vikunni sem leið mátti sjá ýms- ar athyglisverðar fyrirsagnir á vef- miðlum vestanhafs. „Dagurinn sem Internetið tapaði,“ mátti lesa á einni af stærri síðunum og The New York Times hélt sérstaka Internet- minningarathöfn í tilefni þess að samkvæmt dómsúrskurði sem féll á þriðjudag er fjarskipta- og net- þjónustufyrirtækjum nú heimilt að loka á eða draga verulega úr hraða ákveðinna vefsíðna og krefjast þess í framhaldi að eigendur vefjanna greiði sérstakt gjald sem tryggi eðli- legan hraða og aðgengi notenda að efni þeirra. Úrskurðurinn gerir nú stórfyrirtækjum á fjarskiptamark- aði löglega kleift að stýra umferð á hluta netsins með þvingunum og vekur upp spurningar varðandi framtíð netheima og þau lýðræðis- legu vinnubrögð sem við viljum að séu viðhöfð þar sem annars staðar. Fjarskiptastofnun missir valdið Dómsúrskurðurinn á þriðjudag fell- ir úr gildi það vald sem Fjarskipta- stofnun Bandaríkjanna (Federal Communications Commission) hef- ur haft til að tryggja hagkvæma, ör- ugga og aðgengilega fjarskiptaþjón- ustu og vernda hagsmuni og réttindi almennings á netinu. Þriðjungur Bandaríkjamanna hefur sem dæmi í dag ekkert aðgengi að háhraða- neti en það var einmitt eitt af mark- miðum stofnunarinnar að stoppa í það gat. Með úrskurðinum hefur boltanum nú verið velt til fyrirtækja eins og AT&T, Comcast, Verizon og Time Warner Cable sem hingað til hafa sýnt lítinn sem engan áhuga á að byggja upp hagkvæm háhraða- dreifikerfi sem ná til allra lands- manna. Villta vestrið Ákvörðun dómstóla hefur vakið upp hörð viðbrögð vestanhafs og er talað um afturhvarf frá lýðræði því hags- munir stórfyrirtækja hafi nú meira vægi en hagsmunir og réttindi al- mennings. Hið virta blað The Economist fjallaði um málið í vikunni og tók sem dæmi að netþjónustuaðilar gætu nú fyrirvaralaust stýrt umferð af leitarvefjum eins og Google að eigin leitarsíðu og þannig hagnast verulega vegna aukinnar umferð- ar. Það er í raun eins og einhver ut- anaðkomandi skipti um rás meðan þú horfir á sjónvarpið án þess að þú fáir nokkru um ráðið. Breytingarn- ar sem nú eru að verða að veruleika eru hins vegar nánast ósýnilegar hinum hefðbundna notanda og þess vegna hættulegar í eðli sínu. Lögmál hins Villta vesturs ræður nú ríkjum, hagnaður stórfyrirtækja á fjarskipta- markaði allsráðandi á kostnað þess jafnræðis sem netið á að veita háum sem lágum. Keyra frumvarp í gegn Bretar eru einnig að taka örlaga- ríkt skref í netmálum. Hið umdeilda frumvarp bresku ríkisstjórnarinn- ar (Digital Economy Bill) sem lýtur að höfundarrétti og aðgerðir gegn ólöglegu niðurhali hlaut meirihluta atkvæða í annarri umræðu á breska þinginu á miðvikudag. Frumvarp- ið á þá aðeins eftir að fara í gegn- um lávarðadeildina en þar er talið nær fullvíst að það verði samþykkt og verði því að lögum innan tíðar. Kosningar eru þó handan við hornið og óvíst hvað ný ríkisstjórn tekur til bragðs varðandi jafn umdeilda laga- setningu. Wikileaks lokað? Frumvarpið gerir samtökum og eigendum höfundarréttar kleift gegn dómsúrskurði að fá aðgang að nöfnum og heimilisföngum þeirra sem tengdir eru við ólög- legt niðurhal og hefja lögsókn gegn þeim. Það sem mesta athygli hefur þó vakið í frumvarpinu er klausa sem veitir viðskiptaráðherra heim- ild til að fyrirskipa lokun á vefsíð- um sem; „...hafa verið, eru, eða eru líklegar til að vera notaðar við at- hæfi sem varða brot á lögum um höfundarrétt eða hafa tengsl við slíkt athæfi.“ Ríkisstjórninni væri því í lófa lagið að fyrirskipa lokun á síðum eins og Wikileaks sem birta skjöl sem eru í nær öllum tilfellum var- in höfundarrétti eða leynd. Orða- lag frumvarpsins um síður sem eru „líklegar til að vera notaðar“ hefur líka vakið sterk viðbrögð og óvissu um hvaða völd ríkisstjórnir eru að fá í hendurnar sem geti ógnað lýð- ræði og ritfrelsi. Sterk meðöl en engin breyting Það sem er umhugsunarvert varð- andi frumvarp bresku stjórnarinn- ar er hið sterka meðal sem á helga tilganginn. Svíar settu lög um ólög- legt niðurhal í apríl á síðasta ári og netumferð í landinu dróst saman um 30 prósent á skömmum tíma. Áður en lögin tóku gildi var Svíþjóð í hugum margra gósenland ólög- legs niðurhals og heimili The Pir- ate Bay, einnar stærstu deilisíðu á ólöglegu efni í heiminum. En að- eins fáum mánuðum eftir að lögin voru sett hafði netumferð og ólög- legt niðurhal í landinu aukist á nýj- an leik og hefur aldrei verið meir en nú. Ástæðan er einfaldlega sú að þeir sem eru að sækja ólöglega kvikmyndir, sjónvarpsþætti og tón- list nýta sér nú dulkóðun til að fela innihald þeirra skráa sem sóttar eru og nýta sér aðrar leiðir sem fela slóð þeirra og uppruna. Ástand- ið sem lögunum var gert að fyrir- byggja er því óbreytt og lögin því tilgangslaus. palli@dv.is 48 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 HELGARBLAÐ Almenningur í Bretlandi og Bandaríkjunum virðist litlu ráða um ákvarðanir stjórn- valda þegar kemur að löggjöf sem snertir hagsmuni hins hefðbundna notanda á netinu. Engar uppljóstranir Bresku stjórninni væri í lófa lagið að fyrirskipa lokun á síðum eins og Wikileaks sem birta skjöl sem eru í nær öllum tilfellum varin höfundarrétti eða leynd. Úr höndum stjórnvalda til fyrirtækja Samkvæmt dómsúrskurði sem féll á þriðjudag er fjarskipta- og netþjónustufyrirtækjum nú heimilt að loka á eða draga verulega úr hraða ákveðinna vefsíðna og krefjast þess í framhaldi að eigendur vefjanna greiði sérstakt gjald sem tryggi eðlilegan hraða og aðgengi notenda að efni þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.