Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FRÉTTIR
ILLUGI Í ERFIÐRI
STÖÐU
n Illugi Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, er kominn í
erfiða pólitíska stöðu vegna um-
ræðu í skýrslu
rannsóknar-
nefndar Alþingis
um setu hans
í stjórn Glitn-
is Sjóða fyrir
bankahrunið. Í
skýrslunni kem-
ur meðal annars
fram að ekki
hafi verið farið eftir settum reglum
í fjárfestingum sjóðsins auk þess
sem Illugi lagði á það mikla áherslu
að Glitnir keypti skuldabréf Stoða
út úr peningamarkaðssjóði bank-
ans fyrir 10,7 milljarða króna eftir
að hann var þjóðnýttur. Spurning-
in er sú hvort þessi umræða verði
þingmanninum að falli.
SJÁLFSTÆÐISFLOKK-
UR Í SÁRUM
n En Illugi er ekki eini sjálfstæð-
ismaðurinn sem á undir högg að
sækja um þessar mundir. Sjálf-
stæðisflokkurinn er í raun sá
stjórnmála-
flokkur sem fékk
hvað versta út-
reið í skýrslunni
en við því mátti
kannski búast.
Flokkssystkin
Illuga, Bjarni
Ben. og Þor-
gerður Katrín,
koma heldur ekki vel út úr skýrsl-
unni vegna lánveitinga til þeirra
og maka þeirra sem og vegna
margvíslegra tengsla formannsins
við viðskiptalífið, meðal annars
við Vafningsmálið sem gagnrýnt
er harðlega í skýrslunni.
HVAÐ MEÐ GUNNAR?
n Annar einstaklingur sem tengdur
er Sjóði 9 hefur hins vegar ekkert
verið í umræðunni. Það er Gunnar
Jónsson, bróðir Gests Jónssonar
sem hvað þekktastur er fyrir að vera
lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar. Hann sat einnig í stjórn Glitn-
is Sjóða, væntanlega vegna tengsla
bróður hans við Jón Ásgeir. Ætla má
að nú, þegar rannsóknarnefnd Al-
þingis hefur beint þeim tilmælum
til ákæruvaldsins, verði starfsmenn
og stjórn sjóða Glitnis spurðir út í
aðkomu sína að þeim, meðal annars
Gunnar.
JÓN KVARTAR YFIR
LAUNUNUM
n Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Stoða, er ósáttur þessa dag-
ana. Jón er ósáttur vegna launa
sinna en þau lækkuðu nýver-
ið niður í 1,5 milljónir á mánuði.
Áður hafði Jón verið með meira en
fimm milljónir króna á mánuði.
Heimildir DV herma að Jón tali um
fátt annað þessa dagana en þessi
smánarlaun sem hann sé nú með.
Ofurlaun hans voru lækkuð eftir að
Fréttablaðið greindi frá því að hann
væri enn svo hátt launaður þrátt
fyrir að kröfuhafar Stoða hefðu tek-
ið félagið yfir. Jón heldur einfald-
lega að hann eigi meira skilið.
SANDKORN
Lögreglan á Akureyri þurfti að hafa afskipti af ungum manni um nýliðna helgi:
Brýst inn að næturlagi
Lögreglunni á Akureyri barst tilkynn-
ing um nýliðna helgi vegna ungs
manns sem væri að sniglast í kringum
heimili í bænum að næturlagi. Þurftu
lögreglumenn að hafa afskipti af við-
komandi þar sem hann var gripinn
við að gægjast inn um glugga.
Samkvæmt heimildum DV hefur
viðkomandi, sem er karlmaður und-
ir tvítugu, undanfarið lagt það í vana
sinn að sniglast í kringum híbýli bæj-
arbúa og í sumum tilvikum fara inn á
heimili að næturlagi. Tilgangur ferða
hans er ekki þjófnaður því eftir því
sem DV kemst næst hefur hann ekki
verið gripinn fyrir stuld. Þess í stað
hafa DV borist frásagnir af því að
maðurinn ungi sé frekar að sniglast
um inni á heimilunum og hafi í ein-
hverjum tilvikum komið nálægt und-
irfatnaði stúlkna sem þar búa.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Akureyri barst henni til-
kynning vegna unga mannsins um
síðustu helgi. Daníel Guðjónsson,
yfirlögregluþjónn rannsóknardeild-
arinnar, bendir á að félagsmálayfir-
völd hafi um nokkurt skeið fylgst með
viðkomandi. „Okkur var tilkynnt um
mann sem gengi í hús og að gluggum,
til að athuga hvort það væri opið. Við
höfðum afskipti af honum og hann
hefur verið undir eftirliti lengi fyrir
eitthvað svona. Hvað okkur varðar var
þetta ekki meira en það og ekki stað-
fest að hann hafi verið inni á heimil-
um,“ segir Daníel. trausti@dv.is
Tilkynnt til lögreglu Um síðustu helgi
barst lögreglu tilkynning um ungan
mann sem gengi milli húsa til að sjá
hvort hægt væri að komast inn.
Fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðs-
ins, Styrmir Gunnarsson, ýjar að því
í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is að Ragnhildur Geirsdóttir, for-
stjóri FL Group árið 2005, hafi ekki
viljað staðfesta frásagnir um óráðsíu
í stjórnun félagsins vegna þess að
hún hafi fengið himinháan starfs-
lokasamning. Samningurinn við
Ragnhildi hljóðaði upp á 130 millj-
ónir króna. Styrmir nefnir Ranghildi
ekki á nafn en alveg er ljóst að hann
á við Ragnhildi.
Starfslok Ragnhildar bar brátt að
í október 2005 en hún hafði verið
ráðin sem forstjóri FL Group í mars
það ár. Hún hafði þá starfað hjá fé-
laginu frá árinu 1999. Ragnhildur
var ráðin til plastframleiðslufyrir-
tækisins Promens í desember það ár
og starfar þar enn.
Ósætti við Hannes
Ósættið sem varð til þess að Ragn-
hildur hætti hjá FL Group sner-
ist um vitneskju forstjórans um að
Hannes Smárason, stjórnarformað-
ur FL Group og einn helsti eigandi
félagsins, hefði látið millifæra 3,5
milljarða króna af reikningi félags-
ins í Kaupþingi í Lúxemborg. Pen-
ingarnir komu svo aftur inn á reikn-
ing FL Group nokkrum mánuðum
síðar og það með vöxtum.
Inga Jóna Þórðardóttir, sem sat í
stjórn FL Group á þessum tíma, ber
því við í skýrslunni að eina ástæð-
an fyrir því af hverju peningarnir
voru settir aftur inn á reikning-
inn hafi verið sú að Ragn-
hildur hafi hótað að
kæra millifærsluna
til lögreglunnar.
Um þetta segir
í skýrslunni:
„Þá hefði
henni [Ragn-
hildi, innsk.
blaða-
manns]
borist til
eyrna að
stjórnarformaður [Hannes, innsk.
blaðamanns] stæði í ýmsum hlutum
sem forstjórinn vissi ekki af. Í sam-
tali hennar við forstjóra
hefði komið fram að
fjármunir hefðu
horfið af reikn-
ingum félagsins í
Kaupþingi í Lúx-
emborg. Í nokkra
mánuði vantaði
þessar upphæðir
og þær skiluðu sér
ekki fyrr en
forstjóri
hótaði Kaupþingi að fara með málið
til lögreglu.“
Í kjölfarið var bundinn endi á
störf Ragnhildar hjá FL Group og
fékk hún áðurnefndan starfsloka-
samning. Heimildir DV herma hins
vegar að hún hafi aldrei fengið að
vita hvað orðið hafi um milljarðana
sem hurfu: hvert þeir fóru og í hvað
þeir voru notaðir. Heimildarmað-
ur DV sem þekkir til málsins segir:
„Nei, og menn munu aldrei vita það
nema þeir komist í gögnin hjá Kaup-
þingi í Lúxemborg. Hannes mun
aldrei gefa þetta upp,“ en það er ekki
rætt í skýrslunni hvað varð um þessa
fjármuni.
Styrmir ræddi við Ragnhildi
Í kaflanum þar sem rætt er um
starfslok Ragnhildar er vitnað í
Styrmi sem bar því við í skýrslutöku
hjá nefndinni að hann hefði feng-
ið upplýsingar um millifærslurnar
hjá FL Group og skrifuð hefði ver-
ið ítarleg fréttaskýring um mál-
ið á ritstjórn Morgunblaðsins.
Segir Styrmir að rætt hafi verið við
Ragnhildi út af málinu. „En til þess
að birta þetta þurftum við eina stað-
festingu. Við þurftum staðfestingu á
því að þetta hefði gerst nákvæmlega
svona. Ég vildi ekki birta þetta nema
við hefðum [hana] frá einhverjum
aðila sem þekkti málið innan Flug-
leiða. Svo ég talaði við unga stúlku
sem þekkti vel til mála og leitaði eft-
ir því að fá staðfestingu hennar og
hún tók því mjög vel. Svo einn góð-
an veðurdag þegar ég ætlaði að fá
þetta endanlegt og ganga frá þessu
þá var tilkynnt að hún hefði látið af
störfum og hefði fengið laun í fimm
ár. Svo sagði hún mér að hún gæti
því miður ekki staðfest þetta,“ segir
Styrmir í skýrslunni.
DV náði ekki í Ragnhildi til að
ræða við hana um málið. Hún
mun hafa flogið utan á mánudag-
inn. Ragnhildur hefur aldrei greint
nákvæmlega frá því af hverju hún
hætti hjá FL Group og millifærslu-
málið hjá FL Group hefur ekki enn
verið upplýst.
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, ýjar að því í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis, að 130 milljóna starfslokasamningur Ragnhildar Geirsdótt-
ur hjá FL Group hafi fengið hana til að þegja um starfshætti félagsins. Aldrei hefur
verið greint nákvæmlega frá ástæðunni fyrir starfslokum Ragnhildar.
LAUN ÞÖGGUÐU
NIÐUR Í FORSTJÓRA
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar: ingi@dv.is
Í skugga FL Group
Ragnhildur lét óvænt
af störfum hjá FL
Group árið 2005 vegna
ósættis út af milli-
færslum af reikningi
félagsins hjá Kaupþingi
í Lúxemborg. Hannes
Smárason, sem sést hér
bak við hana, tók við
af henni en hafði áður
verið stjórnarformaður.
Nei, og menn munu aldrei vita það nema
þeir komist í gögnin hjá Kaup-
þingi í Lúxemborg. Hannes
mun aldrei gefa þetta upp
Fréttin að mestu tilbúin Styrmir ber því við í skýrslunni að
fréttin um dularfullu millifærslurnar af reikningi FL Group hafi verið
nánast tilbúin á ritstjórn Morgunblaðsins. Hið eina sem hafi vantað
var staðfesting Ragnhildar sem hætti við á síðustu stundu.
Ingi Freyr frétta-
stjóri á DV
Ingi Freyr Vilhjálmsson hefur ver-
ið ráðinn fréttastjóri DV. Hann er
fæddur árið 1980.
Ingi er með BA-
próf í heimspeki
og sagnfræði frá
Háskóla Íslands
og MLitt. í heim-
speki og siðfræði
frá háskólanum
í St. Andrews í
Skotlandi. Ingi
hefur síðastliðin ár starfað sem
blaðamaður, fyrst á Fréttablað-
inu og síðar á DV, þar sem hann
hóf störf í desember 2008. Ingi er í
sambúð með Sigrúnu Hallgríms-
dóttur lækni.