Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Blaðsíða 33
...uppistandi Jóns Gnarrs í Landnáms- setrinu Enginn hér á landi stenst Jóni snúning þegar kemur að uppistandi. ... The Blind Side Mynd sem lætur þér líða vel. ... Muramasa: The Demon Blade Fínasti hasarleikur sem Wii-notendur á öllum aldri ættu að geta skemmt sér yfir. Clash of the Titans Þunn, einvíð og þreytuleg að mestu leyti. FÓKUS 16. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 33 Margþætt sýning verður opnuð í Listasafni Íslands á laugardaginn: Dyndilyndi við Laufásveg FÖSTUDAGUR n Lausir Halar á Nasa FM Belfast og Retro Stefson ætla að leika lausum hölum og blása til mikillar gleði á Nasa á föstudags- kvöldið. Miðaverð í forsölu er aðeins 1.600 kr. en hækkar sé keypt við innganginn. Tónleikarnir hefjast klukkan 23.30 en síðast þegar þessar sveitir leiddu saman hesta sína var uppselt og stemningin mögnuð og er óhætt að segja að árinu hafi verið lokað með stæl. n Jagúar á Selfossi Ein besta funk-sveit Norður- landa og þó víðar væri leitað, Jagúar, leikur á Vetrartón- leikaröð Hvíta- hússins á Selfossi á föstudags- kvöldið. Þetta er viðburður sem enginn tónlistarunnandi má missa af. Húsið opnar klukkan 22.00 en miðaverðið er 2.000 krónur. Eftir tónleikana verður opið á efri hæðinni þar sem DJ Funky fried chicken mun þeyta skífum LAUGARDAGUR n Sálin snýr aftur á Nasa Vinsælasta hljómsveit landsins verður með tónleika á Nasa á laugardags- kvöldið. Nokkuð er nú um liðið frá því að sveitin tróð þar upp síðast, en að venju verða þar viðruð öll helstu lög sveitarinnar, allt frá elsta til yngsta smells. Forsala miða verður á staðnum á föstudaginn milli klukkan 13.00-17.00 en ljóst er að alvöru Sálaraðdáendur vilja ekki missa af þessu. n VON hjá Siggu Beinteins Laugardagskvöldið 17. apríl verður sjálf Sigga Beinteins með tónleika á SPOT í Kópavogi ásamt hljómsveitinni VON. Miðasala hefst klukkan 23.00 en miðaverðið er aðeins 1.500 krónur. Þessu vill engin missa af enda Sigga ein af bestu söngkonum þjóðarinnar. n Nemendamúsík í Salnum Kennarar og nemendur Tónlistarskólans í Kópavogi leika tónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Oliver Messiaen, Atla Heimi Sveinsson, George Crumb og Hilmar Þórðarson í Salnum á laugardag- inn klukkan 13.00. Miðaverð er þúsund krónur. n Tvennir tónleikar með Sinfó Sinfonían verður með tónleika á laugardaginn. Hún leikur tónverkið Maximús trítlar í tónlistarskólann II. Tón- leikarnir verða í Háskólabíói að vanda en miðaverðið er sautján hundruð krónur og hefjast tónleikarnir klukkan 17.00. Hvað er að GERAST? Dyndilyndi – verði gjafa gagnstreymi er heiti sýningar sem opnuð verður í Listasafni Íslands á laugardaginn klukkan 15. Um er að ræða marg- þættan listrænan viðburð, allt í senn listsýningu, listnám og menningar- hátíð. Í sextán daga verður Listasafn Íslands samkomustaður ólíkra dýra- tegunda í eiginlegum og óeiginlegum skilningi. Þar verða uppákomur af ýmsu tagi, listsmiðjur, leikþættir, tón- leikar og endurmenntunarnámskeið. Allt á þetta rætur í listbúðunum Himinn, jörð og byggðin á milli sem settar voru upp í Myndlistaskólan- um í Reykjavík á síðasta ári. Fjöldi grunnskólabarna tekur þátt í listbúð- um Dyndilyndis og enn önnur börn koma að hátíðinni með þátttöku í viðburðum. Auk þessa geta gest- ir og gangandi skráð sig í listsmiðjur Dyndilyndis. Aðrir þátttakendur eru Margrét H. Blöndal myndlistarkona og leiðang- ursstjóri sýningarinnar, Tinna Gunn- arsdóttir vöruhönnuður, Huginn Þór Arason myndlistarmaður, Krist- ín Ómarsdóttir rithöfundur, Magga Stína, tónlistarmaður og strengja- stýrir, Harpa Arnardóttir leikkona, Mundi athafnamaður, Kristinn G. Harðarson myndlistarmaður, Me- gas, tónlistar- og textaverkamaður, Margrét Bjarnadóttir danshöfundur, Hilmar Örn Hilmarsson tónverka- maður, Rikke Houd hljóðheimilda- smiður, Rán Flygenring, grafískur hönnuður, Borghildur Ína Sölvadótt- ir, grafískur hönnuður, Elísabet Indra Ragnarsdóttir dagskrárgerðarkona, Sara María Skúladóttir klæðskeri, Hildigunnur Birgisdóttir myndlistar- kona, Theresa Himmer, arkitekt og hönnuður, og Kristján Eggertsson arkitekt. Sýningin er liður í Barnamenn- ingarhátíð í Reykjavík 2010. Nánar um hátíðina á dyndilyndi.is. ... leikritinu Hænuungarnir Hver leikarinn öðrum betri í þessu frábæra verki. ... The Lovely Bones Draumkennt yfirbragð í ágætri mynd. Ungur listamaður Sýning- in er liður í Barnamenning- arhátíð í Reykjavík 2010. vinnuna með sér að hann þyrði varla að hafa þá eftir. „En hann sagði með- al annars að það væri mjög sjaldan sem hann hefði unnið með leikara sem hefði svona góða þekkingu og færni í slagsmálaatriðum. Ég ákvað að vera ekkert að útskýra fyrir honum að ég væri eiginlega færari í líkamlega þættinum en í þeim leikræna,“ segir Magnús í léttum dúr. Chan þekkti þó til Magnúsar í hlut- verki Íþróttaálfsins í Latabæ, eða Lazy- Town eins og þættirnir heita í banda- rísku sjónvarpi og víðar. „Ástæðan fyrir því að ég gerði þetta var eiginlega af því að mig langaði til að koma Latabæ til Kína. Það eru þrír Kínverjar sem eru mjög þekktir og Jackie Chan er einn þeirra. Óhollusta og offita eykst gríðar- lega hratt í Kína og kínversk stjórnvöld ætla að reyna að gera eitthvað í málun- um. Jackie Chan hefur mikinn áhuga á þessum málum og við ræddum þau mikið. Ég fór til Kína með honum og hitti hans fólk og við erum að reyna að koma á fundum við heilbrigðisráðu- neytið og mennta- málaráðuneytið þar í landi á ráð- stefnunni Sjang- hai Expo sem fram fer í september,“ segir Magnús en á þeirri ráðstefnu verður Jackie Chan heiðursgest- ur. Magnús er stórhuga sem fyrr. Hann seg- ir forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, hafa tekið Latabæ upp á sína arma fyrr á árinu og nú séu hann og aðrir forsvarsmenn „bæjarins“ að vinna í því að koma þættinum til Kína og svo vonandi í framhaldinu til Jap- ans, Indlands og Rússlands. „Kínverjar eru nú að berjast við sama vandamál og Bandaríkjamenn og vilja gera eitthvað í sínum mál- um. Latibær passar þar mjög vel inn í. Hann er heldur ekki amerískt pró- gramm og kemur því ekki með pólitík í pokanum. Það er dálítið gott.“ Lét undan suðinu Líkt og kannski einhverjir muna sendi Magnús sérstakt myndband til for- svarsmanna The Spy Next Door sem varð til þess að hann fékk hlutverkið. Hann segir þrá sína eftir hlutverkinu ekki hafa ráðið þar för heldur sé smá saga þar á bak við. „Þetta var þannig að aðalfram- leiðandi myndarinnar, Bob Simonds, á fjórar dætur sem elska Latabæ og hann sá mig þar og leist vel á. Hann hringdi í mig til að fá mig í prufu fyrir vonda kallinn í The Spy Next Door en ég hafði engan áhuga á því. En hann suðaði í mér sem varð til þess að ég hitti leikstjórann næst þegar ég var í LA. Þeir hringdu svo strax aftur í mig og sögðust vilja heyra mig lesa ein- hvern texta. Ég sagðist ekki vilja það, vera mjög tímabundinn og svona og þeir ættu því bara að finna einhvern annan í þetta. Svo hringdu þeir enn einu sinni í mig á föstudegi, sögðust ekki vilja neinn annan, en þyrftu samt að sjá mig í einhverjum öðrum fötum en bláa búningi Íþróttaálfsins og þannig vera vissir um að ég gæti litið út eins og vondur kall. Ég sagðist bara senda þeim myndband, hóaði í vini mína á sunnudegi, við tókum þetta upp, klipptum saman og sendum um kvöldið. Þeir hringdu um hæl og sögðu að ég væri ráðinn. Það þótti líka mjög sérstakt að ég skyldi setja mistökin aftast. Það er ekki venjan í „casting“-myndbandi. Ef þú ert að reyna að fá vinnu þá sleppirðu venjulega mistökunum á þeim mynd- böndum,“ segir Magnús léttur. Vinnur að Latabæjarmynd Fleiri Hollywood-hlutverk eru ekki í pípunum hjá Magnúsi, þrátt fyrir að stöðugt sé verið að bjóða honum ýmis hlutverk. Hann segist líka hafa nóg að gera við undirbúning Latabæjarmynd- ar. „Ég er að vinna með tólf handrits- höfundum, hitti forstjóra Dream- Works í gær [þriðjudag] og sat með honum á einkafundi í einn og hálfan tíma. Það var mjög ánægjulegur fund- ur þannig að það er alltaf eitthvað að gerast.“ Magnús tekur þó fram að það sé nokkuð í að myndin verði að veru- leika. „Þetta tekur svo rosalegan tíma, kannski þrjú, fjögur ár. Það fer bara eitt ár í að koma öllu niður og finna nákvæmlega út um hvað myndin á að vera. Maður þarf bara að vera duglegur í að vinna að því. En það er gríðarleg- ur áhugi fyrir þessu. Ég hitti líka Law- rence Bender sem hefur framleitt all- ar myndir Tarantinos og hann hefur mikinn áhuga á að taka Latabæ lengra með mér. Þannig að það er fullt að ger- ast.“ Skömmu fyrir jól var sagt frá því í fjölmiðlum, bæði hér á landi og til dæmis í breskum blöðum, að Latibær rambaði nánast á barmi gjaldþrots. Magnús gefur lítið fyrir þann frétta- flutning. „Ég held að íslensku blöðin hafi hlaupið töluvert á sig. Það eru auð- vitað allir að vinna að því á Íslandi að endurskipuleggja sín félög. Blöðin skrifuðu svo um að Latibær væri að því, þær fréttir eru þýddar út og hef- ur kannski þær afleiðingar að fullt af Íslendingum missa vinnuna. Ég held því að við Íslendingar ættum aðeins að passa okkur, við ættum að hlúa að okk- ar vörumerkjum og okkar bisness. Við þurfum á því að halda. Ég held að allir, blaðamenn og aðrir, þurfi að hjálpast að við það.“ Lítur upp til Helga í Góu Magnús segir því Latabæ ekki standa öðruvísi en flest önn- ur íslensk fyrirtæki að þessu leyti. „Ég held að Latibær hafi alla þá möguleika og öll þau vandræði sem venjuleg fyr- irtæki á Íslandi búa við í bar- áttunni í dag. Það tekur sextán ár að byggja upp fyrirtæki og þrjátíu ár að hagnast á þeim. Þú sérð menn sem hafa ver- ið duglegir að vinna eins og Helga í Góu, menn sem vinna gríðarlega hart og mikið við að byggja upp sín fyrirtæki. Helgi er maður sem ég lít gríðarlega upp til, þó hann sé akkúrat í öf- ugum geira við mig.“ Talandi um peninga; blaðamaður uppgötvar allt í einu að hann gleymdi að spyrja um launatékka Magnús- ar fyrir The Spy Next Door. „Þegar þú ert svona í fyrstu mynd ertu ansi neð- arlega á skalanum. Þú ert jafnvel með lægri laun en ljósamaðurinn. En þetta var bara fínt. Þetta var heldur ekki gert út af peningunum heldur út af ánægj- unni af því að fá að leika á móti Jackie Chan.“ kristjanh@dv.is Magnús Scheving Hitti nýverið manninn sem framleitt hefur allar myndir Quentins Tarantino vegna undirbúnings myndar um Latabæ. Chan í hasar Magnús segir Jackie Chan hafa hrósað sér fyrir getu sína í slagsmálaatriðum í The Spy Next Door.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.