Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Page 8
„Hættu að taka myndir, fíflið þitt,“ var
setningin sem rauf þögnina í dómsal
númer 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur
í vikunni þegar mál ríkisins á hend-
ur níu mótmælendum var tekið fyrir.
Áður hefði mátt heyra saumnál detta
eftir að hátt í hundrað áhorfendur
höfðu komið sér fyrir, sumir sátu en
aðrir stóðu. Andrúmsloftið var raf-
magnað og þess beðið með óþreyju
að Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
hæfi þinghald. Áður hafði hann til-
kynnt formlega að allar myndatök-
ur væru bannaðar í dómsalnum en
spenntur áhorfandi hafði ekki stað-
ist mátið. Mótmælendunum er gef-
ið að sök að hafa framið aðför að Al-
þingi, brotist inn í þinghúsið, valdið
uppþoti og ráðist á þingverði og lög-
reglumenn, mánudaginn 8. desem-
ber 2008. Fari málið á versta veg fyr-
ir mótmælendurna níu gætu þeir átt
yfir höfði sér 16 ára fangelsi sem er
hámarksrefsing en lágmarksrefsing
er eitt ár.
Lyklar og ausur
„Megum við setjast á gólfið,“ báðu
fjölmargir standandi áhorfendur
sem báru lykla um háls og voru með
ausur og sleifar upp úr brjóstvösum.
Allt táknræn merki til að minna á þá
skjaldborg heimilanna sem stjórn-
völd lofuðu í kjölfar bankahrunsins.
„Nei, alls ekki. Ekki má fara inn fyr-
ir véböndin,“ svaraði Pétur dómari.
Meðal þeirra sem fylgdust með fyr-
irtöku í máli gegn mótmælendunum
voru tveir þingmenn Hreyfingarinnar,
að öðru leyti var áhorfendabekkurinn
skipaður vinum og aðstandendum
mótmælendanna níu ásamt með-
limum úr hinu svokallaða „Heima-
varnarliði“, mótmælendum sem
vilja minna á áðurnefnda skjaldborg
heimilanna.
„Ég hef aldrei á minni tíð sem lög-
maður séð svona marga áhorfendur í
íslenskum dómsal,“ segir Ragnar Að-
alsteinsson, hæstaréttarlögmaður og
verjandi tveggja mótmælenda. Hann
steig fyrst í pontu til að færa rök fyrir
kröfu sinni um frávísun málsins. „Það
er sögulegt að þetta sé fyrsta dóms-
málið eftir bankahrunið og að það
skuli beinast gegn almennum borg-
urum,“ segir Ragnar í samtali við DV.
Vanhæfi blasir við
Frávísunarkrafa Ragnars byggist á því
að Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari
hafði verið fundinn vanhæfur þeg-
ar mótmælendurnir voru ákærðir í
fyrsta sinn. Nú í annarri tilraun bendir
lögmaðurinn á að rannsaka hefði átt
málið upp á nýtt í ljósi þessa vanhæf-
is. Til viðbótar bætir hann því við að
allir lögreglumennirnir sem rannsök-
uðu málið hafi verið vanhæfir ásamt
yfirmanni sínum, Stefáni Eiríkssyni,
lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins.
„Lögreglustjóri og lögreglumenn voru
vanhæfir þar sem þeir voru að rann-
saka mál sem sneri að vinum þeirra
og undirmönnum lögreglustjórans.
Fyrir vikið er ekki hægt að treysta hlut-
leysi rannsóknar og í ljósi vanhæf-
is allra aðila er rannsóknin málsins
ónothæf. Vanhæfið blasir við,“ segir
Ragnar. Lára V. Júlíusdóttir, settur rík-
issaksóknari í málinu, hafnar alfarið
frávísunarkröfunni. Hún segir ákæru
málsins með hefðbundnum hætti frá
ákæruvaldinu. „Þrátt fyrir að vanhæfi
hafi komið fram þýðir það ekki sjálf-
krafa að rannsókn sé ónýt,“ segir Lára.
Í hita leiksins
Steinunn Gunnlaugsdóttir, listamað-
ur og ein af mótmælendunum níu,
bendir á að sér hafi verið hleypt inn
í þinghúsið og því hafi enginn brotist
þar inn. Hún telur að ákæruvaldið ætli
sér að fá mótmælendurna dæmda,
með hvaða ráðum sem er. „Ég býst
við því að verða dæmd sek. Það virð-
ist engu skipta hvort ákæran standist
ekki lög, þeir ætla bara að negla okkur
og dæma. Með hvaða aðferðum sem
er. Við sem nú erum ákærð vorum
bara fólk sem vildi grípa inn í þenn-
an skrípaleik á Alþingi. Eina ofbeldið
sem átti sér stað var þegar okkur var
meinað að fara upp á þingpallana,“
segir Steinunn.
„Annað voru stimpingar. Hefðum
við vitað að þetta yrði að dómsmáli
hefðum við öll farið og fengið sjálf
áverkavottorð um marbletti og togn-
anir. Það er mjög lýsandi fyrir kerfið
í dag að ráðherrar geti fengið tveggja
ára fangelsi fyrir afglöp í starfi en okk-
ur er hótað 16 árum.“
„Það er alveg augljóst, á frásögn-
um og myndum, að fólkið bankaði á
dyr og var hleypt inn líkt og venjulega
er gert. Þinghúsið stendur borgurun-
um opið og það er stjórnarskrárvar-
inn réttur þeirra. Til þess eru þing-
pallarnir, segir Ragnar og bætir við:
„Það er útilokað að halda uppi vörn-
um í málinu þegar svo óljóst er hvað
skjólstæðingar mínir eiga að hafa gert
af sér. Það er náttúrlega alveg með
ólíkindum að fólk sem var statt þarna
geti lent í eins árs fangelsi. Ég tel að
margvísleg rök knýi að því að málinu
verði vísað frá. Þá þarf að rannsaka
málið aftur og ákæra í þriðja sinn.
Við skulum sjá hvort ákæruvaldið geti
komið þessu sæmilega frá sér í þriðja
sinn,“ segir Ragnar.
8 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FRÉTTIR
300 ÞÚSUND
ÞORSKTONN
n Guðmundur Ólafsson hagfræð-
ingur talar yfirleitt tæpitungulaust. Í
morgunþætti Rásar 2 í vikunni sagði
hann efnislega að
láta ætti réttar-
kerfið um að gera
upp ábyrgðina á
bankahruninu,
sækja menn til
saka og dæma
ef svo ber undir.
Mikilvægast væri
að snúa sér að því
að bjarga 80 þús-
und fórnarlömbum græðginnar og
vanrækslunnar. Það verði hins vegar
aðeins gert með því að auka fram-
leiðsluna og þjóðartekjurnar. Hann
lagði meðal annars til að þorskafli
yrði færður upp í 300 þúsund tonn
enda hefði ráðgjöf Hafró reynst ónýt.
Sagan segir að Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri Hafró, hafi umsvifalaust haft
samband við Guðmund og boðið hon-
um á einkanámskeið í fiskifræði.
HEILSUSPILLANDI?
n Fátt er meira rætt þessa dagana en
skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis
og niðurstöður hennar. Mörgum sýn-
ist sem skýrslan
geti lyft trúverð-
ugleika þjóðar-
innar gagnvart
erlendum þjóð-
um enda berist
nú sá boðskap-
ur frá Íslandi að
hægt sé að gera
upp bankahrun
og fortíðina á op-
inn og gagnsæjan hátt. Pottverji orti
um skýrsluna í byrjun vikunnar.
Viljirðu halda í heilsu þína
og hamingju ekki far´ á mis.
Vertu þá ekkert að reyna að rýna
í rannsóknarskýrslu Alþingis!
UNDIR KRAUMAR
ANDÓFIÐ
n Níumenningarnir, sem sóttir voru
til saka vegna óspekta og ógnana
við Alþingi í desember 2008, voru
leiddir fyrir rétt
í vikunni. Undir
kraumar andóf
gegn „kerfinu“
og ljóst er að upp
úr kann að sjóða
falli dómur gegn
þeim. Fram-
vinda málsins er
fest á filmu og í
undirbúingi er
undirskriftasöfnun. Í yfirlýsingu með
henni verður þess getið að aðeins á
Íslandi hafi andóf fólksins gegn fjár-
málakreppunni haft beinar pólitísk-
ar afleiðingar. Ríkisvaldið geti hins
vegar ekki dulið óbeit sína á athöfn-
um ungmennanna og reyni nú að
stimpla mótmælin sem glæpi gegn
stjórnkerfinu. Þykir félögum þeirra
rétt að stjórnkerfi beiti sér fyrir því að
kæra alla mótmælendur í búsáhalda-
byltingunni ætli það sér að láta málið
ganga allt til enda.
Á BRATTANN AÐ
SÆKJA
n Allir stóru flokkarnir hafa nú um
eitthvað að hugsa. VG glímir við innri
átök og klofning í afstöðu flokks-
manna til margra grundvallarmála.
Hinir flokkarnir
glíma við innan-
flokksólgu vegna
sannleiksskýrsl-
unnar. Háværar
raddir eru innan
Samfylkingarinn-
ar um að Björg-
vin G. Sigurðsson
sýni gott fordæmi
og gangi alla leið
út af vettvangi stjórnmálanna þar
til þingmannanefnd hefur komist
að niðurstöðu um vanrækslusynd-
ir hans. Bjarni Benediktsson hefur
hjólað opinberlega í Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur, varaformann Sjálf-
stæðisflokksins, vegna skulda hennar
og eiginmannsins Kristjáns Arason-
ar. Ljóst er að uppgjöri innan Sjálf-
stæðisflokksins verður ekki lengur
slegið á frest.
SANDKORN Það var fullt út úr dyrum í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar mál gegn níu mótmæl-
endum var tekið fyrir. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður tveggja mótmælenda, krefst þess
að málinu verði vísað frá. Eyþór Gunnarsson óttast um systur sína verði hún fundin sek.
„ÞEIR ÆTLA BARA
AÐ NEGLA OKKUR“
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
n Andri Leó Lemarquis
n Jón Benedikt Hólm
n Kolbeinn Aðalsteinsson
n Ragnheiður Esther Briem
n Snorri Páll Jónsson
n Sólveig Anna Jónsdóttir
n Steinunn Gunnlaugsdóttir
n Teitur Ársælsson
n Þór Sigurðsson
Mótmælendurnir:
Andri Leó Lemarquis, einn mót-
mælendanna níu, telur málatilbún-
að ákæruvaldsins allsherjar skrípa-
leik. Hann telur réttarkerfið sniðið
að lítilmagnanum en ekki stórum
krimmum. „Við erum nokkrir ein-
staklingar sem þorðum að opna
munninn og benda á að hér á landi
væri að finna ýmiskonar ranglæti.
Ég tel okkur einfaldlega hafa verið
að gera skyldu okkar þennan dag.
Að við séum þau fyrstu sem eigi
að taka og dæma eftir bankahrun-
ið finnst mér fáránlegt. Við vorum
einfaldlega löngu komin með nóg
af ástandinu og er ennþá með upp í
kok, því miður hefur ekkert breyst,“
segir Andri Leó.
Allsherjar
skrípaleikur
Hræddur um
systur sína
Eyþór Gunnarsson, tónlistarmað-
ur og bróðir eins af mótmælendun-
um,skilur lítið í ákæru á hendur syst-
ur sinni en óttast í leiðinni um hennar
hag. Verði mótmælendurnir fundnir
sekir spáir hann brjáluðum mótmæl-
um í kjölfarið. „Það er svo margt fá-
ránlegt í þessu, til dæmis að þau séu
ákærð fyrir húsbrot þegar þinghúsið
stendur opið samkvæmt lögum. Þá
á systir mín, samkvæmt lýsingu, að
hafa tekið niður þrjár manneskjur
og það sér hver maður sem sér hana
að slíkt er ómögulegt. Að ákæra hana
fyrir ofbeldi og líkamsárásir er algjör-
lega fáránlegt. Réttarkerfið á að beina
augum sínum að einhverjum stærri
málum en þessu. Það er skelfileg til-
finning að mál gegn systur minni
sé komið þetta langt og ég vona svo
sannarlega að málinu verði vísað frá.
Ef ekki, þá er eitthvað mikið að og
það leynist í mér ótti um annað því ég
hef ekki mikla trú á kerfinu. Ef systir
mín verður dæmd hættuleg þá veit ég
hreinlega ekki hvað gerist í framhald-
inu,“ segir Eyþór.
Alveg pakkað Það var fullt
út úr dyrum í dómsal 101
þegar málið var tekið fyrir.