Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FRÉTTIR
Hugarfarsbreyting í samfélaginu
Vigdís Hrefna Pálsdóttir, 32 ára leikkona.
Úlfhildur Ragna Arnardóttir, 4 ára.
„Það hefur auðvitað allt hækkað í kringum
mann en ég finn mest fyrir hækkun
matar körfunnar.
Maður getur ekki
leyft sér að fara til
útlanda í frí eins og
maður kannski gat
áður,“ segir Vigdís
Hrefna. Hún segist
aðspurð ekki hafa
tekið þátt í upp-
sveiflu góðærisins
af miklum krafti.
„Ég keypti mér ekki flatskjá, bý í lítilli
íbúð og á ekki Range Rover,“ segir hún
glaðbeitt. Hún segist enn fremur hafa
tekið meðvitaða ákvörðun um að spenna
bogann ekki hátt. „Ég skildi ekki þá og skil
ekki enn lógíkina í því að eiga eitthvað á
100 prósent láni,“ segir hún.
Spurð hvort fólk í kringum hana sé
í vandræðum segir hún að fólk hafi
almennt skipt um gír. „Mér finnst
hugarfarsbreytingin í samfélaginu vera
til hins betra,“ segir hún. Spurð hvernig
henni finnist stjórnvöld hafa staðið sig í
að mæta þeim sem skulda segir Vigdís að
sér virðist sem ríkisstjórnin hafi aðallega
hjálpað þeim sem allra verst standa en
hjálpin hafi ekki borist venjulegu fólki sem
hagaði sér með hófsemi. „Ég myndi vilja
sjá hjálp fyrir breiðari hóp en stjórnvöld
eru svo sannarlega ekki í öfundsverðri
stöðu. Ég bið til Guðs að Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokkurinn taki ekki við þessu
aftur og keyri þessa þjóð ofan í svaðið fyrir
fullt og allt,“ segir hún.
„Ég á ekki neitt“
Kristín Rut Ómarsdóttir,
24 ára starfsmaður á hóteli.
„Ég fann fyrir kreppunni þegar ég var
erlendis í námi en hún hefur ekki svo
mikil áhrif á mig
núna,“ segir Kristín
Rut. Henni tókst að
klára námið sem
hún var í þrátt fyrir
erfiðleika sem fylgdu
gengi krónunnar.
Spurð hvernig hafi
verið að koma heim
í kreppuna segir
Kristín Rut að erfiðast hafi verið að horfa
upp á ættingja og vini í vandræðum, en
að öðru leyti hafi kreppan ekki haft mikil
áhrif á hana. „Ég á ekki neitt og bý ein
þannig að þetta hafði ekki svo mikil áhrif
á mig,“ segir hún og bætir við að henni
virðist sem fjölskyldufólk hafi það verst.
„Ég er búin að horfa upp á marga sem
hafa misst allt sitt,“ segir hún.
Hætti við að fara út í nám
Óttar Eyþórsson, 26 ára nemi.
„Ég þurfti að breyta þeim framtíðarplön-
um sem ég hafði. Ég þurfti að hætta við
að fara út í dýrt nám,
eins til stóð. Ég salt-
aði það,“ segir Óttar
og bætir við að hann
sé blessunarlega
laus við íbúðalán. „Ég
var það heppinn að
eiga ekki neitt,“ segir
hann.
Aðspurður segir
hann að fólkið í kringum hann sé ekki
í stórvægilegum erfiðleikum, þó það
sé vissulega erfiðara fyrir marga að ná
endum saman. Hann segir að ráðaleysi
einkenni aðgerðir stjórnvalda til hjálpar
heimilunum. „Þau vita því miður ekkert
hvað þau eiga að gera,“ segir hann.
„Peningakerfið er bara svindl“
Halldóra Mogensen, 30 ára deildarstjóri hjá
Íslenskum fjallaleiðsögumönnum.
„Ég finn aðallega fyrir því þegar ég kaupi
í matinn. Vöruverð hefur hækkað mikið.
Við erum hins vegar
öll rosalega jákvæð.
Það er kannski það
sem Íslendingar
eiga sameiginlegt
og ástæðan fyrir því
að við komumst í
gegnum þetta,“ segir
Halldóra. Þess vegna
gerist kannski ekki
neitt og þess vegna
er fólk ekki brjálað niðri í bæ. Við erum
svo miklir þjarkar og tökum þessu öllu
af stóískri ró,“ segir hún. Halldóra segist
alltaf hafa verið á móti bönkunum og
bankakerfinu. „Peningar eru eitthvað sem
ekki er til og þetta er bara hugmynd sem
mennirnir fundu upp. Ég hef alltaf vitað
að bankamenn eru bara glæpamenn
og peningakerfið er bara svindl,“ segir
Halldóra ákveðin.
Hún segir kreppuna ekki hafa bitnað illa
á sér en mamma hennar hafi keypt sér
húsnæði í fyrsta sinn á ævinni, rétt fyrir
hrun. Halldóra flutti inn til móður sinnar til
að aðstoða hana með greiðslurnar.
Halldóra segir aðspurð að stjórnvöld
hafi ekki staðið sig í því að koma til móts
við fólk. Það sé vegna þess að þau séu
að vinna að því að halda sama kerfinu
gangandi. Hún er hins vegar á því að segja
þurfi skilið við peningakerfið eins og við
þekkjum það. „Mér finnst þetta peninga-
kerfi algjört rugl og við erum vaxin upp
úr þessu. Við eigum að vera orðin nógu
tæknilega þróuð til að við þurfum ekki
að vera með þetta peningakerfi. Það er til
nóg af auðlindum í heiminum. Það þarf
bara að nota tæknina og vísindin til að
vinna fyrir okkur. Þannig að við þurfum
ekki að vinna í einhverjum störfum sem
við viljum ekki vinna í, bara til að eiga
mat og húsaskjól. Þetta á allt að vera frítt
og það er hægt, með þeirri tækni sem
við búum yfir,“ útskýrir hún. „Ef hlutirnir
væru ekki gerðir í gróðaskyni heldur væru
vísindin notuð til að þróa vélbúnað sem
myndi endast þá væri hægt að búa til
vélar sem gætu unnið störfin fyrir okkur
og myndu ekki bila,“ segir Halldóra og
bætir við að allir menn séu jafnir og
þannig eigi samfélagið að vera.
Þakkar fyrir að eiga ekki börn
Eva Hafsteinsdóttir, 28 ára nemi.
„Ég tók sem betur fer ekki lán í erlendri
mynt en ég fjárfesti í húsnæði og finn vel
fyrir hækkununum.
Verðbólgan blæs
upp lánin mín og
það rýrir ofsalega
mínar tekjur,“
segir Eva. Hún hefur
meðal annars þurft
að bregðast við
með því að ganga
í stað þess að taka
strætó, eins og hún gerði áður. „Svo versla
ég í Bónus og fer til dæmis minna í bíó,“
segir Eva sem þakkar fyrir að eiga ekki
börn í þessu ástandi. Það bitni þá ekki á
þeim á meðan.
Hún segir aðspurð að margir í kringum
hana séu í vandræðum. „Það hafa verið
mikil vandræði hjá þeim sem ég þekki,
sérstaklega út af erlendu lánunum. Þetta
hefur áhrif á alla stórfjölskylduna og það
finna allir fyrir þessu. Við erum hins vegar
öll að reyna að hjálpast að. Það er það sem
fjölskyldur gera,“ útskýrir hún.
Eva er enn að bíða eftir aðgerðum frá
stjórnvöldum. „Ég þekki fólk sem er með
allt sitt á hælunum og mér finnst asnalegt
hvað maður þarf að sækja það stíft að fá
hjálp. Ég þekki marga sem eiga í veruleg-
um erfiðuleikum,“ segir hún að lokum.
Taka varla eftir kreppunni
Lilja Laufey Davíðsdóttir og Andri Már
Sigurðsson, 25 og 26 ára nemar.
„Nei, alls ekki. Við myndum varla taka eftir
henni ef ekki væri fyrir fjölmiðla,“ segir
Andri Már spurður hvort þau Lilja finni
fyrir kreppunni. Hann bætir reyndar við
að það sé kannski ofsagt en segir að þau
eigi ekki neitt og skuldi þar af leiðandi
ekki neitt. „Það er helst vöruverðið sem við
finnum fyrir. Það hefur hækkað,“ segir Lilja
en þau Andri eru bæði í skóla. Andri segir
að þrátt fyrir atvinnuleysi hafi þau bæði
verið svo heppin að fá sumarstarf næsta
sumar. Spurð hvernig vinir þeirra og kunn-
ingjar hafi það segja þau að kreppan bitni
ekki mikið á þeim sem þau þekki.
Spurð hvernig þau telji að stjórnvöld hafi
staðið sig í því að koma til móts við fólk
segir Andri að þau hafi kannski ekki gert
KREPPA UNGA FÓLKSINS
Skuldavandi heimilanna er mestur hjá
ungu fólki sem keypti sér íbúð seint á
uppgangstímanum, að því er fram kem-
ur í athugun Seðlabankans. Fjórðungur
allra heimila er enn hjálparþurfi, þrátt
fyrir fullyrðingar ríkisstjórnarinnar um
að búið sé að ná utan um skuldavanda
heimilanna. DV ræddi við ungt fólk um
kreppuna og áhrif hennar á það sjálft og
þess nánustu.
Fjörutíu prósent ungs barnafólks,
sem keypti fasteign seint í uppsveifl-
unni, eru í hópi þeirra sem eru á
mörkum þess að ná endum saman
hver mánaðamót, að því er fram kem-
ur í skýrslu Seðlabankans um stöðu
heimilanna.
Meginþorri þessa fólks býr við nei-
kvæða eiginfjárstöðu; skuldar meira í
húsnæðinu en það á. Þó að kreppan
komi illa við marga þjóðfélagshópa
má með rökum segja að um kreppu
ungu kynslóðarinnar sé að ræða.
Fjórðungur þarf meiri hjálp
Í kynningu Karenar Á. Vignisdóttur
og Þorvarðar Tjörva Ólafssonar á
rannsókn Seðlabankans á fjárhags-
stöðu heimilanna kom fram að fjórð-
ungur allra heimila þarf frekari að-
stoð til að létta á skuldavanda sínum.
Það megi gera með því að fella niður
skuldir eða minnka greiðslubyrði.
Líta má svo á að niðurstöður út-
tektar Seðlabankans séu ákveðinn
áfellisdómur yfir stjórnvöldum. Þeim
hefur ekki tekist að hjálpa þeim sem
hjálp þurfa. Þann 17. mars tilkynnti
Árni Páll Árnason félagsmálaráð-
herra, ásamt fjórum öðrum ráðherra,
svokallað lokasvar stjórnvalda til að-
stoðar fólks í skuldavanda. „Með
þeim aðgerðum sem nú hafa verið
kynntar er verið að bregðast við öll-
um þeim vanda sem þegar hefur ver-
ið bent á,“ sagði Árni Páll á fundi með
fjölmiðlafólki þann sama dag. Þó
árétta þau Karen og Þorvarður Tjörvi
að enn séu óvissuþættir til staðar um
stöðu heimila og hverju þau úrræði
sem kynnt hafa verið fái áorkað.
Vandi 24 þúsund heimila
Eins og áður segir þarf nærri fjórð-
ungur heimila frekari aðstoð til að
létta á skuldavanda sínum, sam-
kvæmt úttekt Seðlabankans. Í úttekt-
inni segir að ungt fólk, barnafólk og
fólk með gengistryggð lán sé líklegra
en annað fólk til að eiga í erfiðleik-
um með að ná endum saman. Fjórð-
ungur heimila berst við að ná end-
um saman, eða tæplega 24 þúsund
heimili á landinu. Þessi heimili eiga
stóran hluta af bílaskuldum lands-
manna. Þorvarður Tjörvi segir að
úrræðin, sem stjórnvöld hafa boðið,
hafi hjálpað um fimm þúsund heim-
ilum að komast í viðráðanlega stöðu.
Enn þurfi 24 þúsund heimili hjálp við
endurskipulagningu fjármálanna.
Átthagafjötrar
Í janúar 2008 skulduðu 11 prósent
heimila meira í húsnæði en þau
áttu. Við bankahrunið hækkaði hlut-
fallið upp í 20 prósent og er nú talið
vera um 39 prósent. Afleiðingar nei-
kvæðrar eiginfjárstöðu eru í flestum
tilvikum þær að fólk getur ekki selt
húsnæði sitt og er þar með bund-
ið átthagafjötrum. Það getur reynst
ungum fjölskyldum, fólki sem ýmist
þarf að stækka við sig vegna barn-
eigna eða minnka við sig, þungbært.
Fimmtungur þeirra sem búa við
neikvæða eiginfjárstöðu er ungt
barnafólk. Meginþorri þess unga
fólks sem tók lán á seinni stigum hús-
næðisuppsveiflunnar skuldar meira
en hann á í húsnæði sínu.
Tvöföldun erlendra lána
Eins og við er að búast leiddi úttekt
Seðlabankans í ljós að um 80 pró-
sent þeirra sem eru í tekjulægsta hóp
samfélagsins eru í vanda og hlutfall
heimila í vanda minnkar ört eftir því
sem ráðstöfunartekjurnar aukast.
„Tvö af hverjum þremur heimilum
í vanda eru með ráðstöfunartekjur
undir 250 þ.kr. á mánuði,“ segir með-
al annars í kynningu á úttektinni.
Meira en helmingur þeirra sem
á í vanda er með gengistryggð
íbúða- eða bílalán, enda kosta er-
lendir gjaldmiðlar oft meira en tvö-
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Líta má svo á að niðustöður út-
tektar Seðlabankans séu
ákveðinn áfellisdómur
yfir stjórnvöldum.
Erfitt ástand Um 39 prósent heimila búa
við neikvæða eiginfjárstöðu. Ungt fólk, sem
keypti húsnæði á árunum fyrir hrun, hefur
orðið verst úti. MYND RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR