Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Qupperneq 20
22 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FRÉTTIR
Óhætt er að segja að Jón Ásgeir Jó-
hannesson fjárfestir, sem kenndur
er við Baug, sé einn af aðalleikurun-
um í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis. Enginn einstaklingur kemur
líklega eins oft fyrir í skýrslunni og
Jón Ásgeir nema ef vera skyldi Dav-
íð Oddsson, en þeir hafa átt í lang-
vinnum deilum frá því um síðustu
aldamót. Þær deilur, sem hverfast
um Baugsmálið, hafa sett mikinn
svip á íslenskt samfélag á því tíma-
bili sem skýrsla rannsóknarnefnd-
arinnar nær til. Báðir fá þeir Jón Ás-
geir og Davíð á sig mikla gagnrýni í
skýrslunni.
Einna merkilegast við þátt Jóns
Ásgeirs í skýrslunni er hversu mörg-
um málum í henni hann tengist: allt
frá kaupum Orca-hópsins í Fjárfest-
ingabanka atvinnulífsins árið 1999,
til útrásar Baugs og tengdra félaga,
til þeirrar dramatísku atburða sem
leiddu til falls Glitnis - Jón Ásgeir
var aðaleigandi FL Group sem réð
Glitni - um haustið 2008 og að lok-
um til þeirrar greiningar á umsvif-
um Jóns Ásgeirs sem sett er fram í
skýrslunni. Sú greining sýnir, svo
ekki verður um villst, að Jón Ásgeir
Jóhannesson var áhrifa- og valda-
mesti íslenski kaupsýslumaðurinn á
árunum fyrir bankahrunið.
Ekki er hægt að túlka skýrsluna
öðruvísi en að í henni sé felldur
áfellisdómur yfir Jóni Ásgeiri vegna
þess hvernig hann stýrði Baugi og
tengdum félögum. Jón Ásgeir, sem
alltaf hefur verið umdeildur, hefur
því farið frá því að hafa verið hamp-
að sem miklum viðskiptasnillingi
sem byggði veldi sitt á velgengni
Bónuss, sem hann bjó til með tvær
hendur tómar ásamt föður sínum,
yfir í að vera úthrópaður af nánast
öllum á Íslandi árið 2010. Næstu
árin í lífi Jóns Ásgeirs verða örugg-
lega enginn dans á rósum.
Stærsti skuldarinn
Jón Ásgeir var stærsti einstaki, ís-
lenski skuldarinn með skuldahala
upp á meira en 100 milljarða króna
í árslok 2007 og skýrslan sýnir það
tangarhald sem hann hafði á ís-
lensku viðskiptabönkunum þrem-
ur þrátt fyrir að vera aðeins ráðandi
hluthafi í einum þeirra frá því í apríl
2007. Auk þess vekur athygli að eig-
inkona Jóns Ásgeirs, Jóhannes faðir
hans og móðir hans voru öll í hópi
10 stærstu einstöku skuldaranna
í íslenska bankakerfinu, bæði um
áramótin 2007 og 2008 og einnig við
bankahrunið.
Jón Ásgeir, félög hans og tengdra
aðila voru meðal stærstu skuldara
allra bankanna en þau skulduðu
samtals um 660 milljarða króna á
seinni hluta árs 2007.
Í 2. kafla skýrslunnar er þetta
orðað á eftirfarandi hátt: „Sá fyrir-
tækjahópur sem umfangsmestur
var í viðskiptum við íslensku bank-
ana var Baugur Group hf. og tengd-
ir aðilar. Útlán til Baugshópsins voru
veruleg í öllum þremur bönkunum;
Glitni, Kaupþingi og Landsbankan-
um.“
Því er ljóst að í umræðunni um
ábyrgðina á bankahruninu verður
að líta á þátt Jóns Ásgeirs í því: Fall
Glitnis, sem hann nánast handstýrði
í gegnum stjórnendur bankans
þrátt fyrir að gegna ekki formlegu
starfi í honum, var lokapunkturinn
á atburðarás sem hófst með falli
eins stærsta hluthafans í FL Group,
Gnúpi, í ársbyrjun 2008.
Erlendir bankar
kippa að sér höndum
Eftir fall Gnúps má segja að erlend
fjármálafyrirtæki hafi byrjað að loka
fjármögnun til Glitnisbanka, líkt og
Hreiðar Már Sigurðsson Kaupþings-
forstjóri ræddi í sinni skýrslu hjá
rannsóknarnefndinni, og íslensku
bankarnir byrjuðu að fá íslensku fé-
lögin í fangið eins og það er orðað.
Um þetta segir í skýrslunni: „Á
seinni helmingi árs 2007 þegar al-
þjóðlegir lánamarkaðir voru orðn-
ir mjög erfiðir og eignaverð farið
að lækka, þrengdist staða íslenskra
fjárfesta mjög, enda margir hverj-
ir mjög skuldsettir. Með lækkandi
hlutabréfaverði versnaði trygginga-
staða lána og erlendir lánveitendur
íslensku fjárfestanna fóru að kalla
eftir auknum tryggingum. Viðbrögð
íslensku bankanna voru að lána fyrir
þessum tryggingum,“ segir í 2. bindi
skýrslunnar en frá því í ársbyrjun
2008 var þessi þróun eitt af þeim at-
riðum sem veiktu íslenska banka-
kerfið.
Eitt af dæmunum um það að ís-
lensk félög hafi þurft að leita til
bankanna, í tilfelli Jóns Ásgeirs og
tengdra félaga, var þegar eignar-
haldsfélagið 1998 ehf. keypti Haga
af Baugi fyrir rúma 30 milljarða
króna um sumarið 2008 með láni frá
Kaupþingi.
Áhætta mest af Baugi
Afleiðingin af þessum erfiðleikum
á fjármálamörkuðum varð svo sú á
árinu 2008 að samþjöppun áhætt-
unnar hjá íslensku bönkunum var
gríðarlega mikil vegna tiltekinna
viðskiptamanna og eignarhaldsfé-
laga sem leita þurftu til þeirra eftir
lánveitingum þegar erlendir bank-
ar lokuðu á þá. Í skýrslu rann-
sóknarnefndarinnar segir um þetta
atriði: „Samþjöppun áhættu hjá ís-
lensku bönkunum var orðin hættu-
lega mikil þó nokkru fyrir fall þeirra.
Bæði á það við um lánveitingar til
ákveðinna hópa innan hvers banka
en jafnframt mynduðu sömu hóp-
ar stórar áhættur í fleiri en einum
banka. Af þeim sökum varð kerf-
isleg áhætta vegna útlána veruleg.
Skýrasta dæmið um þetta er Baugur
Group og tengd félög. Hæst námu
útlán bankanna þriggja til þessa
hóps við bankana þrjá um 5,5 millj-
örðum evra sem þá nam um 11% af
öllum útlánum móðurfélaga bank-
anna og um 53% af samanlögðum
eiginfjárgrunni þeirra.“ segir í niður-
stöðuhlutanum í fyrsta kafla skýrsl-
unnar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar-
innar er mikið rætt um þetta atriði
og kemur nokkrum sinnum fram
að samkvæmt lögum um fjármála-
fyrirtæki megi áhætta vegna eins
eða fleiri tengdra viðskiptamanna
ekki fara yfir 25 prósent af eigin-
fjárgrunni banka. Lánveitingar til
Baugs og tengdra félaga var hins
HÖFUÐPAUR HRUNSINS
Jón Ásgeir Jóhannesson er ein aðal-
söguhetjan í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis. Skýrslan er ekkert annað en
áfellisdómur yfir Jóni Ásgeiri og öðrum
íslenskum auðmönnum sem stýrðu bönk-
unum og helstu eignarhaldsfélögunum.
Áhætta bankakerfisins var gríðarleg vegna
lánveitinga til Jóns, Baugs og tengdra aðila
og hann stýrði Glitni í gegnum milliliði.
n Viðskiptastaða Baugs og tengdra félaga hjá íslensku bönkunum 30. september 2008.
Banki CAD* ISK (milljarðar)
Landsbankinn 83,3% 225
Kaupþing 69,7% 339
Glitnir 51% 115
Samtals: 679
*Samkvæmt bankalögum má áhætta vegna eins eða fleiri innbyrðis tengdra viðskiptamanna ekki
fara fram úr 25% af áhættugrunni bankans, (CAD). Stærstu eigendur bankanna fóru hins vegar
langt fram úr þessum viðmiðum.
Skuldir Baugs
INGI F. VILHJÁLMSSON og
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamenn skrifa: ingi@dv.is og as@dv.is
Í öllum þremur stóru bönkunum
og Straumi-Burðarási
var Baugshópurinn orð-
inn of stór áhætta.