Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Side 32
10 ÁRA AFMÆLI
HAFNARHÚSS
Á mánudaginn er áratugur liðinn
frá því að Listasafn Reykjavíkur var
opnað í Hafnarhúsinu. Af því tilefni
er efnt til myndlistarþings á laugar-
dag með þátttöku á annað hundrað
aðila. Hluti þátttakenda er valinn
fyrir fram en Listasafnið leggur ríka
áherslu á að ná fram ólíkum sjónar-
miðum og óskar því góðfúslega eftir
þátttöku utanaðkomandi sem láta
sig málefnið varða. Skráning stendur
nú yfir en þátttökufjöldi er takmark-
aður. Á meðan málþingið fer fram
stendur fjölskyldufólki til boða að
taka þátt í listasmiðju þar sem unn-
ið verður með viðfangsefni í anda
Errós. Boðið verður upp á léttar veit-
ingar í smiðjunni, eða frá klukkan
13 til 16.
UM HELGINA
BRIDGES OG GILLIAM Á BÍÓDÖGUM
Bíódagar, kvikmyndahátíð Græna ljóssins, hófst í Regnbog-
anum á fimmtudaginn. Hátíðin stendur í þrjár vikur og verða
sýndar 24 myndir af ýmsum toga, þar á meðal The Imagin-
arium of Dr. Parnassus, nýjasta mynd Terry Gilliam, og Crazy
Heart með Jeff Bridges í óskarsverðlaunahlutverki. Nánar um
hátíðina á graenaljosid.is.
BRESKUR POPP-
ARI Á SÓDÓMU
OkiDoki heldur sitt sextánda
tónleikakvöld á skemmtistaðn-
um Sódómu á laugardaginn.
Meðal þeirra sem fram koma eru
Tristram, Rökkurró, Miri og Nolo.
Tónlistarmaðurinn Tristram
kemur frá London en hann gaf
nýverið út sína fyrstu plötu,
stuttskífuna Someone Told Me A
Poem. Tristram framreiðir þjóð-
lagaskotið popp og hefur fengið
mikið lof fyrir einlægar lagasmíð-
ar og ótrúlega söngrödd. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 21 stund-
víslega og verður þeim lokið á
miðnætti. 18 ára aldurstakmark
er inn á tónleikana og er miða-
verð 1000 krónur.
32 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FÓKUS
Sálin hans „Jens“ míns lætur til sín taka:
Gigg og ný plata Sálarinnar
STRÆTI Í NEM-
ENDALEIKHÚSINU
Nemendaleikhúsið frumsýnir loka-
verkefni sitt, leikritið Stræti eftir Jim
Cartwright, einn af þekktari sam-
tímahöfundum Breta, í Smiðjunni
í kvöld, föstudag. Þessi útskriftarár-
gangur hefur vakið verulega athygli
fyrir fyrri sýningar sínar í vetur, Eftir-
litsmanninn eftir Gogol og Bráðum
hata ég þig eftir Sigtrygg Magnason.
Stræti kom fram fyrir rúmum
tveimur áratugum og fór á fjalir
leikhúsa víða um heim. Í verkinu
er brugðið upp myndum af íbúum
götu einnar í lítilli iðnaðarborg þar
sem fátækt og atvinnuleysi hrjáir
íbúana. Leikstjóri er Stefán Baldurs-
son, þýðandi verksins er Árni Ibsen
og um tónlist sjá Vala Gestsdóttir og
Arndís Hreiðarsdóttir. Myndin er úr
sýningu Nemendaleikhússins á Eft-
irlitsmanninum.
Sálin hans Jóns míns vinnur nú að
nýrri plötu sem vænta má að komi
út næsta haust. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá hljómsveitinni. Verð-
ur það fyrsta stúdíóplata Sálarinn-
ar frá því að Undir þínum áhrifum
kom út árið 2005. Þessa dagana er
sveitin með annan fótinn í hinu forn-
fræga hljóðveri Hljóðrita við upptök-
ur á nýju efni. Það verður í gerjun og
vinnslu fram eftir ári og ef allt fer vel
kemur það út á disk með haustinu.
Sálin slær annars upp giggi á Nasa
á laugardagskvöldið. Nokkuð er liðið
frá því sveitin tróð þar upp síðast en
að venju verða þar viðruð öll helstu
lög sveitarinnar, allt frá elsta til yngsta
smells. Sálverjar líta á þetta gigg sem
snemmbúinn vorfögnuð og talið er
líklegt að Jens Hansson verði létt-
klæddur á sviðinu þegar líður á nótt-
ina, að því er segir í tilkynningunni.
Mun sveitin af því tilefni gegna nafn-
inu Sálin hans Jens míns um þessa
helgi. Sérstakir aufúsu- og heiðurs-
gestir á Nasa verða rannsóknarnefnd-
armenn, „enda veitir því ágæta fólki
sjálfsagt ekki af því að hrista aðeins úr
klaufunum eftir þrotlausa vinnu und-
anfarna mánuði,“ eins og það er orðað
í tilkynningunni.
Forsala miða verður á staðnum í
dag, föstudag, milli klukkan 13 og 17.
Sálin hans „Jens“ míns Vinnur
að plötu fyrir haustið og heldur
tónleika á laugardag.
„Ég er búinn að sjá hana já, ég fór á
frumsýninguna í Bandaríkjunum. Árið
byrjaði mjög vel, ég er bæði búinn að
fara í Hvíta húsið að hitta forsetafrúna
og fara á rauða dregilinn í Hollywood,“
segir glaðbeittur Magnús Scheving
þegar blaðamaður nær tali af honum
á flugvelli í Los Angeles síðastliðinn
miðvikudag í tilefni af frumsýningu
myndarinnar The Spy Next Door hér
á landi um helgina. Eins og kunnugt
er leikur Magnús í myndinni, hinn illa
Poldark. Stjarnan er hins vegar Jackie
Chan sem gert hefur fjöldann allan af
hasarmyndum í Hollywood undanfar-
in ár.
Magnús er ánægður með útkom-
una, segir myndina þrælskemmtilega.
„Þetta er „action“-mynd. Ef menn eru
hrifnir af Jackie Chan þá er þetta mynd
fyrir þá. Og reyndar líka mynd fyrir alla
fjölskylduna því þetta er ekta Jackie
Chan-hasarmynd með fjölskylduívafi,
og með alveg frábærum vondum kalli,“
segir Magnús og hlær.
Venjulega lendir töluverður hluti
af því sem tekið er upp á gólfi klippi-
herbergisins. Magnús segir hins veg-
ar allar senurnar sem hann lék í vera í
myndinni. Tökur fóru fram í Albuquer-
que í New Mexico í Bandaríkjunum á
síðasta ári og var unnið af fullum krafti.
„Þetta voru mjög langir tökudagar.
Oftast var unnið langt fram eftir kvöldi
og á nóttunni,“ segir Magnús. „Töku-
tíminn í dögum var aftur á móti mjög
stuttur, aðeins um tuttugu dagar. En
þetta var mjög stíf vinna.“
Absúrd að láta
Jackie Chan lemja sig
Eins og vænta má þar sem Jackie Chan
er hetjan og Magnús vondi kallinn
taka þeir hvor á öðrum í myndinni.
„Ég þurfti að leika í fullt af slagsmála-
atriðum með Jackie Chan. Það er mik-
ið „challenge“, að fara beint úr splittinu
yfir í slagsmálasenu með honum,“ seg-
ir Magnús og hlær. „Og það var eigin-
lega absúrd að mæta á settið og horfa
í augun á Jackie Chan, vitandi að hann
er að fara að berja þig.“
Magnús bætir við að hasarmynda-
hetjan kínverska sé svakalega dugleg á
tökustað. „Hann er alltaf að og alltaf að
breyta öllu. Hann kannski bað mann
að æfa einhverja rútínu, einhverjar
VILDI EKKI HAFA
illmennið íslenskt
varnir fyrir ákveðna senu, svo fór mað-
ur að æfa þetta allt kvöldið en morg-
uninn eftir þegar maður mætti, reiðu-
búinn til að gera þetta í senunni, þá
var hann búinn að breyta þessu öllu.
Þetta var því mjög sérstakt, en mjög
skemmtilegt.“
Chan leikstýrir öllum slagsmálaat-
riðum sjálfur og segir Magnús gaman
að sjá hvernig hann vinnur. Chan er
þekktur fyrir að leika í öllum áhættu-
atriðum sjálfur og þurfti Magnús einn-
ig að gera ýmis „stunt“, hlaupa upp
á byggingar, renna sér niður stiga og
fleira. Hann segir þetta þó ekki hafa
reynt meira líkamlega á en hann sé
vanur.
„Neeei, ég myndi nú ekki segja það.
Íþróttaálfurinn myndi alveg slá þessu
við held ég,“ segir Magnús kíminn.
Nokkrir leikaranna handleggs-
brotnuðu þó og urðu fyrir minni háttar
meiðslum eftir ýmis stökk og læti. „En
það var svo fyndið að Jackie Chan er
svo vanur því að hann sagði bara allt-
af: „Ok, let´s move on.“ Kínverjarnir
eru vanir þessu, þetta er bara eðlileg-
ur fórnarkostnaður, og þess vegna eru
alltaf aðrir leikarar tilbúnir til að taka
við ef einhver meiðist. En Jackie Chan
er algjörlega frábær í þessu, hann var
til dæmis hárnákvæmur í að henda
sverði sem lenti rétt hjá mér. Hann
sagði mér að treysta sér sem ég bara
gerði. Og ég fann sverðið strjúkast við
eyrað og gagnaugað trekk í trekk. Þetta
heppnaðist fullkomlega!“
Leikur Rússa með
íslensk-færeyskan hreim
Eins og áður segir leikur Magnús full-
trúa illu aflanna í myndinni, hinn rúss-
neska Poldark. Hann viðurkennir að
hann hafi ekki undirbúið sig neitt sér-
staklega vel fyrir hlutverkið.
„Maður ætti að vinna einhverja
rannsóknarvinnu, fara í talþjálfun og
allt það. En ég ákvað að nota bara ís-
lensk-færeyska hreiminn. Ég held að
þeir Rússar sem sjá myndina verði
mjög hissa,“ segir Magnús og skellir
upp úr.
„Ég á reyndar fyrst og fremst að
vera útlendingur af því að vondi kall-
inn má að sjálfsögðu ekki vera Amer-
íkani. Valið stóð á milli þess að vera
Íslendingur, Norðmaður eða Rússi og
ég valdi Rússann,“ segir Magnús og
bætir við að honum hafi fundist nógu
mikið um neikvæða umfjöllun um Ís-
land þessi misserin og því varla á það
bætandi að láta vonda kallinn í Holly-
wood-mynd vera Íslending.
Magnús kveðst gera sér grein fyrir
að leikurinn hjá sér sé ekkert sérstak-
lega góður, enda sé hann ekki leik-
ari. „En ég sá í einhverjum dómi að
illmennið fékk góða umsögn. Jackie
Chan-myndir almennt hafa hins veg-
ar aldrei fengið góða dóma held ég.
Þannig eru bara myndirnar hans. En
þeir sem hafa séð Jackie Chan-mynd
vita að þær eru þrælskemmtilegar.“
Meira samstarf með Chan
Chan og Magnúsi kom mjög vel
saman. Magnús segir kappann hafa
reyndar sagt það fallega hluti um
Magnús Scheving leikur illmennið í nýjustu mynd Jackie Chan
sem frumsýnd verður hér á landi í kvöld, föstudag. Hann segir
það hafa verið afskaplega skemmtilegt að leika á móti has-
armyndahetjunni frægu sem meðal annars hafi kastað
sverði hárfínt fram hjá gagnauganu á honum í einni
senunni. Magnús er með í bígerð kvikmynd um
Latabæ, sem hann segir ekki vera á barmi
gjaldþrots þrátt fyrir fréttaflutning um
hið gagnstæða.