Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010
Þorbjörn Pálsson
lögg. fasteignasali
Bláskógar 14, 109 Reykjavík
Vönduð eign 75 % húsins um 267 fm.
Á besta stað í suðurmjódd með fallegum garði
og útsýnissvölum með byggingar möguleikum.
Góðir nágrannar, fyrir háklassa fólk.
Þorbjörn Pálsson sími 565-1233
Fasteigasalan Allt fasteignir í Auðbrekku 6.
Einnig til sölu
Hjallasel 31, 109 Reykjavík
Til sölu með yfirtöku skulda á hagstæðum
kjörum frá Íbúðalánasjóði.
Lítið parhús 70 fm móti suðvestri að
Seljahlíðarelliheimilislóðinni við
Hólmaselstjörn fyrir háklassa fólk
Þorbjörn Pálsson sími 565-1233
Fasteigasalan Allt fasteignir í Auðbrekku 6.
SJÚKT SAMBAND GEIRS
OG DAVÍÐS
Eitt af því sem hefur hvað mesta at-
hygli vakið í skýrslunni eru samskipti
ráðamanna sín á milli sem og auð-
jöfra og bankamanna. Mikið hefur
til dæmis verið fjallað um samskipti
ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans.
„Þetta er að nokkru leyti rót ógæf-
unnar, þessi óbjörgulegu sambönd.
Samband Geirs Haarde og Davíðs
Oddssonar er nánast bara sjúkt eins
og það kemur þarna fyrir. Það þýð-
ir ekkert að ætla að fara að stjórna
landi sem er komið fram á bjarg-
brúnina í einhverjum einkasamtöl-
um gamalla vina þar sem annar er
lafhræddur við hinn.
Fyrst og fremst er þetta svo ófag-
legt, vinnubrögðin eru svo kjána-
lega léleg. Landinu hefur lengi ver-
ið stjórnað af einhverjum gömlum
valdaklíkum og menn hafa sagt að
svona sé þetta bara. Svona sé Ísland.
En þegar virkilega á reynir brýst
þetta bara fram sem algjör skortur á
fagmennsku, þá ríður fúskið í kerfinu
ekki við einteyming.“
Egill segir ekki fram hjá því litið
að stjórnmála-, eftirlits- og embætt-
iskerfið kremjist hreinlega undan
skýrslunni og sú staðreynd að eng-
inn þeirra tæplega 150 aðila sem
rætt var við hafi gengist við ábyrgð
komi lítið á óvart. „Ekki bara það að
hefðina skorti heldur sé þetta eins
og inngróið í kerfið. Enginn þeirra
sem talað var við telur sig hafa átt að
hringja viðvörunarbjöllunum. Segir
það ekki bara allt sem segja þarf um
þetta kerfi?“
Egill segir að fyrsta átakið í endur-
skoðun stjórnsýslunnar ætti hrein-
lega að vera að skera hana niður um
sléttan helming. „Ég er viss um að
það myndi ekki hafa afgerandi áhrif
á gæði hennar. Að öllum líkindum
bara bæta hana. Eins og einn vin-
ur minn sem þekkir kerfið sagði við
mig þá er stjórnsýslan hérna svona
50/50. 50% hæft fólk og 50% óhæft
fólk sem hefur verið komið fyrir af
flokkunum í gegnum vinargreiða.
Það er nákvæmlega engin ástæða
fyrir skattgreiðendur að borga brús-
ann fyrir þetta ofvaxna kerfi.“
Egill segir líka kominn tíma til að
fólk sé metið að verðleikum en ekki
eftir því í hvaða flokki það sé. „Það er
reynt að troða öllum í þessa blessuðu
flokka. Meira að segja manni eins og
mér sem er gjörsamlega óflokks-
bundinn. Flokkapólitíkin eins og
hún er stunduð á Íslandi er algjört
eitur.“
ALÞINGI ÞEGAR SÝKT
Í skýrslunni er tekinn saman listi
yfir þá alþingismenn og maka þeirra
sem voru með lán í bönkunum upp á
100 milljónir eða meira. Sólveg Pét-
ursdóttir var hæst allra með rúma 3,6
milljarða og á eftir henni kom Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir með 1,7
milljarða, Herdís Þórðardóttir með
um milljarð og Lúðvík Bergvinsson
með um 750 milljónir.
„Þetta eru ótrúlegar fjárhæðir og
maður hlýtur að spyrja sig hver af-
staða þessara þingmanna til bank-
anna sé almennt. Ég man nú bara
að sá þingmaður sem er þarna með
rúmar 700 milljónirnar kom í sjón-
varpssal skömmu eftir hrunið og
sagði að fólk ætti nú að passa sig að
dæma ekki of hart,“ segir Egill og
skellir upp úr þegar hann minnist
þess. „Það vakti mjög litla hrifningu
á þeim tíma og svo hraktist hann af
þingi.“
Egill segir það nokkuð rökrétt að
áætla að þessir fjármunir og allir þeir
styrkir sem flokkarnir fengu frá fyr-
irtækjunum hafi haft áhrif á þá og
þingmenn þeirra. „Þetta var svo kósí
samband. Þingmenn margir hverj-
ir voru samferða peningamönnun-
um og umgengust þá mikið. Kannski
ekki endilega í einkaþotunum held-
ur voru bara á sömu stöðum, í sömu
partíum, og margir þeirra hafa ef-
laust fengið minnimáttarkennd
gagnvart peningamönnunum.
Heimur þeirra heillaði, virkaði meira
spennandi en pólitíkin. Bjarni Ben
sagði í vikunni í sjónvarpinu að hann
vonaðist til þess að siðleysið smitað-
ist ekki inn á Alþingi en auðvitað var
það fyrir löngu komið þangað.“
Á BÍL FRÁ ’93
Það er mörgum sem svíður nú fjár-
hagslega eftir efnahagshamfarirnar
og skuldir liggja þungt á fólki. Ekki
bara efnislega heldur andlega líka.
Þá er mikil reiði í þjóðfélaginu þó
ekki séu allir að sökkva fjárhagslega.
Hvaða áhrif hafa þessir hlutir haft á
Egil?
„Þetta er svolítið eins og kínverska
bölvunin; megir þú lifa áhugaverða
tíma. En maður þarf kannski ekki
að kvarta það mikið, því þetta er
reynsla sem er svo stór að hún mót-
ar líf manns ef maður kemst heill út
úr henni. Að sumu leyti hef ég líka
notið lífsins í þessu og bara reynt að
standa mig í stykkinu. Bara reynt að
vera hreinn og heiðarlegur. Þetta er
áhugavert. Hvað varðar einkalífið þá
er það bara í blóma. Ég og fjölskylda
mín skuldsettum okkur ekki til and-
skotans og höfum það því bara gott.
Við eins og margir fleiri eigum lít-
ið sem ekkert í húsinu okkar lengur,
en það er ekki þannig að við séum í
einhverjum vandræðum. Ég keyri
um á gömlum bíl frá árinu 1993 og
var því ekki heldur með bílalán. Það
fór margt framhjá mér í góðærinu og
kannski bara sem betur fer núna.“
Egill segist líka stoltur af eigin-
konu sinni, Sigurveigu Káradóttur,
„Ég á líka góða konu sem er að byggja
upp glæsilegt fyrirtæki sem framleið-
ir matvæli og kökur. Það dafnar bara
mjög vel þó fyrirtækið hafi hafið störf
í október 2008. Hún er ekki með nein
lán eða neitt slíkt heldur er þetta bara
gert af dugnaði, ást og kærleika.“
Mikið hefur verið talað um þá arf-
leið sem við erum að færa Íslend-
ingum framtíðarinnar en Egill seg-
ist ekki óttast framtíðina fyrir hönd
Kára, sonar síns. „Við búum nú í
þeim hluta heimsins þar sem lífs-
skilyrði eru almennt mjög góð og
þar sem fólk sem menntar sig getur
haft það gott. Ég hef líka ferðast það
mikið um heiminn að maður hefur
séð það að lífskjör Íslendinga mega
versna ansi mikið mun meira til að
teljast sérlega slæm. Það er til dæmis
styttra í fátæktina suður í Grikklandi.
Hér er líka mikið af miklum verð-
mætum þó svo að ýmislegt mis-
jafnt hafi gengið á. Við eigum mikl-
ar auðlindir og bómlega menningu,
bókmenntir, tónlist og fleira. Hérna
er ágætt menntakerfi og öflugt heil-
brigðiskerfi sem eru gríðarleg verð-
mæti þannig að þetta er alls ekkert
alslæmt – langt í frá. “
SÉRKENNILEG SAMFÉLAGSGERÐ
Egill segir líka nauðsynlegt að lands-
menn líti í eigin barm „Íslenska þjóð-
in þolir illa að heyra það en hún þarf
líka að horfa í sinn barm. Það er mjög
áhugaverður kaflinn í skýrslunni þar
sem er meðal annars talað um mik-
illæti Íslendinga og þessa sértegund
af drambi. Gorgeirinn. Hvað menn
hérna geta litið gríðarlega stórt á sig
af litlu tilefni – það er kafli sem fólk
mætti lesa vel. Ef maður skuldset-
ur sig til dæmis mjög hátt í erlendri
mynt getur maður ekki bara kennt
öðrum um. Einhverja ábyrgð verður
maður að taka sjálfur.“
Þá segir Egill að margir grunn-
þættir í samfélaginu séu undarleg-
ir. „Bara það að börn séu geymd á
stofnunum níu tíma á dag. Hvað
segir það um samfélagið? Það er
ótrúlega sérkennileg samfélagsgerð.
En fólk verður að hafa þetta svona,
þá segir það okkur í raun að gildis-
matið er eitthvað geggjað. Við þurf-
um líka að læra að rækta garð okk-
ar sjálfra. Það eru ekki bara þing- og
bankamenn sem þurfa að gera það.
Og hvað með allt þetta kaupæði? Sú
hugmynd að við getum ekki verið
hamingjusöm nema að fylla heimili
og líf okkar af alls kyns drasli er auð-
vitað sorgleg.“
KROSSEIGNATENGSLIN Á BOL
Fram undan eru óvissutímar á Ís-
landi. Icesave-málið er enn óleyst,
enginn virðist geta spáð fyrir um
framhaldið og óvíst hvernig sögu-
legum niðurstöðum skýrslunnar
verður fylgt eftir. Getum við treyst á
að dómskerfi landsins standi und-
ir því sem skýrslan hefur í för með
sér?
„Ég er ekkert ofboðslega bjart-
sýnn á það. Því miður. Þótt auðvitað
voni ég að réttlætið sigri að lokum.
Það er nauðsynlegt til að lækna sár-
in í samfélaginu og vantraustið sem
gegnsýrir allt. Það vantar allavega
ekki upplýsingarnar. Þessi skýrsla
sér til þess. Hún er grundvallargrein-
ing á íslensku samfélagi, algjört lyk-
ilplagg, ótæmandi brunnur fróðleiks
og upplýsinga og við verðum bara að
vinna almennilega úr þessu – jafnvel
þótt það komi eldgos.“
Það er ýmislegt kómískt sem kem-
ur fram í skýrslunni góðu og það sem
vakti hvað mesta athygli Egils var
teikningin af krosseignartengslun-
um í viðskiptalífinu. „Þetta á að líta
út eins og vefur tengsla en svo skoð-
ar maður það nánar og sér að þetta
er svarthol. Ég er búinn að biðja Jón
Sæmund um að gera bol fyrir mig
með þessari mynd og ég býst ekki við
örðu en það verði best seller.“
asgeir@dv.is
Minni kjós-enda og því
miður fjölmiðla er
stutt.
Maður fólksins Egill hefur verið kraftmikill í umfjöllun sinni um hrunið.
Krosseignatengsl í viðskiptalífinu Egill hefur beðið Jón Sæmund um að prenta
„svartholið“ fyrir sig á bol.