Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Side 54
54 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 HELGARBLAÐ
Grínið
Í SKÝRSLUNNI
Þó að niðurstöður rannsóknarskýrslu Alþingis
séu ekkert gamanmál má þar finna lýsingar og
frásagnir sem eru í öllu falli grátbroslegar. DV
tók saman 20 helstu gullmola skýrslunnar út frá
kómísku sjónarhorni.
Flösku eftir
flösku eftir flösku
„Meginskýringin var sú að þeir menn
sem þarna þurfti að taka á, þeir voru
búnir að vera stórkostlegir gleðigjafar fyrir
þjóðfélagið. Stórkostlegir gleðigjafar fyrir
þjóðfélagið, m.a.s. að þegar var verið að
hugsa um framhaldið þá var alltaf Sigurður
Einarsson kallaður til og gerður að stjórn-
arformanni í einhverjum nefndum
sem áttu að undirbúa framhaldið,
hvernig sem að hann hafði – núna
tala menn um ofurlaun – hvernig
sem hann hafði borgað sér
500 til 600 milljónir. Þó að allir
þessir menn vissu að hann væri
opnandi rauðvínsflöskur sem
kostuðu 200.000 krónur, flösku
eftir flösku eftir flösku.“
n Úr yfirheyrslu yfir Davíð
Oddssyni.
Davíð í stjórn
Blómavals
„Ég get fengið ríkisstjórnina og banka-
stjórnina til að samþykkja þetta með
einu skilyrði, þessa hugmynd ykkar. Hann
[Halldór J. Kristjánsson] var mjög kátur
og sagði: Hvað er það? Það
er að ég [...] komist í stjórn
Blómavals. Þá sagði hann:
Er þetta svona vitlaust? Já,
þetta er svona vitlaust. Og
svo lagði ég á.“
n Úr yfirheyrslu yfir
Davíð Oddssyni.
„Reyttur
og tættur“
„En þarna var hann [Davíð Oddsson]
ofsalega reyttur og tættur og eins og ég
sagði frá því, eins og blöndu af einhverju
taugalosti og sturlun.“
n Lýsing Össurar Skarphéðinssonar á
því þegar Davíð mætti á ríkisstjórnarfund
og viðraði hugmyndir um þjóðstjórn.
Veislurnar
skiluðu engu
„Þrátt fyrir veisluhöld og samskipti við ríka
og fræga fólkið í London hafði Ármann
hvorki náð heppilegum tengslum inn í
breskt stjórnkerfi né hafði hann nógu
djúpan skilning á því.“
n Hreiðar Már Sigurðsson um
kokteilboð Ármanns Þorvaldssonar,
fyrrverandi bankastjóra Kaupthing
Singer & Friedlander.
„Skelfur eins
og lauf í vindi“
„Ég var rétt byrjaður, þá trylltist hann, sagði
að ég væri að grafa undan tillögum hans
og sagði: „Þarna situr forsætisráðherra
frammi og skelfur eins og lauf í vindi og
getur ekki tekið ákvörðun. Hann hlustar
á þig og þú ert að grafa undan þessu. Ef
þetta gengur ekki fram mun ég persónu-
lega sjá til þess að þér verði ólíft á Íslandi
það sem eftir er.““
n Tryggvi Þór Herbertsson um samtal
sitt við Davíð Oddsson rétt fyrir hrun.
Eigið ekki að
gagnrýna okkur
„Þið eigið að standa með okkur. Þið eigið
ekki að vera að gagnrýna bankana og gera
athugasemdir við bankana, þið eigið að
standa með okkur.“
n Birna Einarsdóttir, við Styrmi Gunn-
arsson, ritstjóra Morgunblaðsins.
Allsber í
World Class
„Ég meina, ég stóð allsber í búningsklefan-
um í World Class, var að fara í gufubað á
sunnudegi og var að halda mér sérstaklega
til því að ég var í fyrsta skipti á ævinni að
fara til klæðskera. Og leit á símann minn í
fötunum áður en ég fór í gufuna og þá sá
ég bara að þar voru ógeðslega mörg símtöl
og sms frá Einari Karli sem var
staddur í Glasgow og sagði að
það væru allir að leita að mér,
það væri einhver krísa og ég
yrði að hringja í Ingibjörgu
Sólrúnu þannig að ég klæddi
mig og hringi í hana.“
n Össur Skarphéð-
insson um það
þegar hann frétti
af bankakrísunni.
Skelltu hurðum
„[...] sko, það var alltaf vandamál þegar
þeir þrír [Hreiðar Már Sigurðsson, Lárus
Welding og Sigurjón Þ. Árnason] komu
saman. Það er bara, var „history“ að,
hversu oft var í, örugglega þrisvar eða
fjórum sinnum að annaðhvort Sigurjón
sprakk eða Hreiðar sprakk og þeir fóru
út og skelltu hurðum. Það var dálítið
vandamál sem átti sér langa sögu.“
n Vitnisburður Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar um fundi þremenninganna
2008.
Lalli peð
„Lalli var svona, litið á hann sem kannski
dálítið peð á milli þeirra, voru þarna tveir
kóngar og Hreiðari fannst Sigurjón alltaf
vera að tala illa um Kaupþing og svo „om-
vendt“. En það voru samt svona tveir, þrír
alvörufundir þar sem menn náðu saman.“
n Jón Ásgeir Jóhannesson um Lárus
Welding.
Tekinn í
rassgatið
„Hann [Þorsteinn Már Baldvinsson] orðaði
það þannig: Ég hef aldrei á ævi minni verið
tekinn annað eins í rassgatið.“
n Gestur Jónsson, lögfræðingur Jóns
Ásgeirs, um Þorstein Má Baldvinsson
þegar Glitnir var tekinn yfir af ríkinu.
„Hættið að skipta
um eiginkonur“
„Ég sagði við þá oft í London: Hættið þið
bara að kaupa ykkur Porsche og drekka
svona mikið brennivín og þá líður ykkur
betur, hættið að skipta um eiginkonur, það
mun spara ykkur mikla peninga.“
n Lárus Welding um launamál í
bankakerfinu fyrir hrun.
„Talar ekki svona
við mig drengur“
„Þá er forstjóri Fjármálaeftirlitsins staddur í
bankanum og mér varð svo mikið um þetta
að ég hljóp niður á fyrstu hæðina, þar
sem hann var, og kallaði hann yfir í næsta
herbergi og sýndi honum þessar tölur, þar
sem sko Baugur, Glaumur og FL Group og
Landic Property og bara 360 [...] þá sagði
forstjóri Fjármálaeftirlitsins: Þú misskilur
þetta, þetta eru ekkert sömu aðilarnir. Þá
lamdi ég nú fast í borðið og sagði: Þú talar
ekki svona við mig drengur.”
n Davíð Oddsson þegar hann sá
lánabók Glitnis.
„Keep it under
wraps“
„Bíddu, á ég að fara þarna? Ég meina, [ég
hef] hvorki áhuga né vit á þessu, og hún
sagði: Það þarf einhvern sem þarf að stýra
þessu af okkar hálfu sem hefur reynslu. Og
ég sagði við hana: En á ég þá ekki að taka
viðskiptaráðherra með mér? Hún sagði:
Nei. Jón Þór verður þarna með þér. Ég
sagði: En á ég ekki að hringja í viðskipta-
ráðherrann? Og hún sagði: Ekki
strax, þannig að ekki tala
við neinn, „keep it under
wraps“.“
n Frásögn Össurar
Skarphéðinssonar af
samtali þeirra Ingibjargar
Sólrúnar þegar
Glitnir var að
falla.
Íhugaði að láta
kaupa mjólk
„Ja, hann var náttúrulega bara alveg
skelfilegur og það lá við að maður hringdi
heim til þess bara að biðja konuna að fara
út og kaupa mjólk, svo það yrði
örugglega til mjólk í ísskápnum,
það var nú þannig lýsingarnar
sem voru á því hvaða ástand
mundi skapast.“
n Viðbrögð Árna Mathiesen
við þrumuræðu Davíðs á rík-
isstjórnarfundi 30. september
2008.
Meira en nóg
„Takk Meira en nog :-).“
n Svar Magnúsar Guðmundssonar,
forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, við
tillögu Sigurðar Einarssonar um einnar
milljónar evra bónus til Magnúsar fyrir
árið 2007.
Davíð gerði
ekkert rangt
„Nú er það svo að hver læs maður sér það
í sviphendingu að ekkert þeirra atriða
sem til „athugunar“ er í töluliðum 1 – 8
hafa „öðru fremur“ haft þýðingu fyrir þá
atburðarás sem leiddi til falls bankanna.“
n Úr 50 blaðsíðna andmælabréfi Davíðs
Oddssonar.
Allt draslið
„Næsta verkefni þá í tengslum við það er
auðvitað að finna nýja eigendur til þess að
taka allt draslið yfir.“
n Sigurjón Þ. Árnason um viðskipti sín
við Björgólfsfeðga.
Tróð snúðnum
í andlitið á sér
„Og hann [Björgólfur Thor Björgólfsson]
sat þarna í sínum flottu fötum, ofsalegur
„seller“, að selja eitthvað sem gekk út á það
að þeir áttu að fá Glitni ókeypis og fá alla
skapaða hluti og síðan allan gjaldeyrisforð-
ann og eitthvert „guarantee“ til viðbótar. Og
Halldór Kristjánsson sat þarna svona eins
og laminn hundur og tók ekki mikið undir
þetta. Svo var þessi fundur búinn, Sigurjón
var þarna, það voru snúðar á borðunum,
skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er
nú munnstór maður og mikill og þegar þeir
voru farnir út og hann var einn eftir þá tók
hann svona hálfan snúð, tróð honum upp
í andlitið á sér og skaut undan snúðnum
þessari setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég
hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd
með gullúri og kippti honum út.“
n Úr yfirheyrslu yfir Össuri
Skarphéðinssyni.
Geir skalf
og nötraði
„Og frá því er skemmst að segja að hann
nánast skalf og nötraði. Hann sagði: „Þú
getur ekki gert mér þetta. Ég get ekki farið
þarna upp og sagt þetta við Davíð.““
n Össur Skarphéðinsson um samtal sitt
við Geir Haarde þegar ljóst var að Davíð
fengi ekki að leiða neyðarstjórn.
Óheyrilega lág laun
„Þau laun sem ég hef verið með hjá þessum
banka síðan 2003 hafa í öllum samanburði
við þá sem ég ber mig saman við verið
óheyrilega lág. Það er nefnilega þannig.“
n Sigurður Einarsson, stjórnarformaður
Kaupþings.