Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010
ÞEIR NEITUÐU
FH
Íslandsmeisturum FH hefur gengið brösu-
lega að styrkja hóp sinn eins og þeir helst
vildu fyrir komandi tímabil. FH-ingar
hafa þó verið að reyna og sóttust meðal
annars eftir starfskröftum fjögurra Blika.
Í það minnsta hafa átta sterkir leikmenn
hafnað því að ganga í raðir fimmfaldra Ís-
landsmeistara FH.
Erfiðlega hefur gengið hjá Íslands-
meisturum FH að styrkja sig fyrir
átökin í Pepsi-deildinni á komandi
sumri. FH-ingar misstu sterka leik-
menn úr sínum röðum í haust, með-
al annars fyrirliðann Davíð Þór Við-
arsson sem hélt í atvinnumennsku,
Tryggva Guðmundsson sem fór til
ÍBV og Dennis Siim fór heim til Dan-
merkur. Ásamt þeim yfirgáfu liðið Al-
exander Söderlund, Daði Lárusson,
og hinn stórefnilegi Kristján Gauti
Emilsson sem leikur nú með ungl-
ingaliði Liverpool. Íslandsmeistar-
arnir hafa þó ekki setið auðum hönd-
um. Þeir hafa reynt að styrkja sig en,
kannski ótrúlegt en satt, fá þeir hvert
nei-ið á fætur öðru. Samkvæmt
heimildum DV hafa í það minnsta
átta leikmenn neitað félagaskiptum
í FH fyrir komandi tímabil en þar
koma Blikar mikið við sögu.
Mislukkuð innrás í Kópavog
FH-ingar sóttust eftir þjónustu nokk-
urra ungra og efnilegra Blika fyrir
tímabilið sem allir urðu bikarmeist-
arar með liðinu í haust. Fyrst reyndi
FH við bakvörðinn Arnór Svein Að-
alsteinsson og framherjann Krist-
in Steindórsson en sá fyrrnefndi
var í landsliði Íslands sem lék gegn
Færeyjum og Mexíkó í mars. Báðir
ákváðu þeir að vera áfram í Kópavog-
inum.
Einnig buðu FH-ingar í miðju-
buffið hjá Breiðabliki, Guðmund
Kristjánsson, ásamt því að ræða
lauslega við markamaskínuna, Al-
freð Finnbogason, samkvæmt ör-
uggum heimildum. Fimmti leikmað-
urinn sem valdi Breiðablik fram yfir
fimmfalda Íslandsmeistara FH er svo
Rafn Andri Haraldsson, Þróttarinn
ungi, sem hafnaði fínum samningi í
Hafnarfirðinum.
Einu félagaskiptin sem komu
upp á yfirborðið var kapphlaupið
um framherja KR, Guðmund Péturs-
son. FH-ingar héldu sig vera búna að
landa Guðmundi sem hafði þó alltaf
gefið það út að draumurinn væri að
leika aftur með Breiðabliki þar sem
hann var á láni í fyrra. Kvöldið sem
forráðamenn FH sátu rólegir og biðu
eftir að Guðmundur renndi í hlað
að skrifa undir hafði safnast nægur
peningur hjá Blikum og tók hann því
U-beygju aftur í Kópavoginn og skrif-
aði undir við Breiðablik.
Tveir fóru í KR núna
– einn í fyrra
Þegar ljóst var að GAIS-leikmennirn-
ir sem áður léku með KR, bakvörður-
inn Guðmundur Reynir Gunnarsson
og framherjinn Guðjón Baldvinsson,
myndu leika á Íslandi í sumar, setti
FH sig í samband við þá báða, eins
og fleiri lið. Staða vinstri bakvarðar
er í uppnámi eins og er í FH þar sem
Hjörtur Logi Valgarðsson er meiddur
eitthvað fram á sumarið.
Á sama tíma var Jordao Diogo bú-
inn að læsa sér stöðu vinstri bakvarð-
ar í KR en samt valdi Guðmundur
Reynir að fara heim í Vesturbæinn.
FH-ingum vantar einnig slagkraft
fram á við en eins og Guðmundur
Reynir ákvað Guðjón Baldvinsson
að taka slaginn við stjörnum prýdda
framlínu KR-inga þar sem eru meðal
annars Björgólfur Takefusa og Kjart-
an Henry Finnbogason.
Þetta er ekki eina árið sem FH á
erfitt með að landa leikmönnum þó
eflaust sé þetta metár í neitunum hjá
Íslandsmeisturunum. Þegar Bald-
ur Sigurðsson hafnaði FH fyrir KR í
fyrra hafði Heimir Guðjónsson, þjálf-
ari FH, það á orði í útvarpsviðtali á
X-inu, að stundum fyndist honum
eins og menn þori ekki í FH, hver svo
sem ástæðan er fyrir því, samkeppni
eða annað. Það var í takt við orð sem
Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi
þjálfari FH og núverandi landsliðs-
þjálfari, hafði sagt áður þegar hann
landaði þremur Íslandsmeistaratitl-
um með FH áður en Heimir tók við.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
KOMNIR:
n Gunnar Már Guðmundsson
frá Fjölni
n Gunnleifur Gunnleifsson frá HK
n Jón Ragnar Jónsson frá Þrótti
n Torger Motland frá Stavanger IF
FARNIR:
n Alexander Söderlund til Lecco
n Daði Lárusson í Hauka
n Davíð Þór Viðarsson til Öster
n Dennis Siim hættur
n Kristján Gauti Emilsson
til Liverpool
n Tryggvi Guðmundsson í ÍBV
Komnir og farnir
Alfreð Finnbogason
21 árs sóknarmaður
Arnór Sveinn
Aðalsteinsson
24 ára bakvörður
Kristinn
Steindórsson
19 ára sóknarmaður
Guðmundur
Kristjánsson
21 árs miðjumaður
Guðmundur
Pétursson
24 ára sóknarmaður
Rafn Andri Haraldsson
21 árs miðjumaður
Guðjón Baldvinsson
24 ára sóknarmaður
Guðmundur Reynir
Gunnarsson
21 árs bakvörður
Lítið gengið að fá menn
Heimir Guðjónsson vill
eflaust styrkja sveit sína
meira fyrir komandi tímabil.