Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2010, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2010, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 30. apríl 2010 FRÉTTIR Greiðslukortafyrirtækið Valitor hefur enn tekjur af dreifingu kláms á netinu. Femínistafélag Íslands kærði slíkt mál til lögreglunnar í desember 2007, en saksóknari vís- aði málinu frá snemma árs 2008. Þá var Höskuldur Ólafsson for- stjóri Valitor, en hann hefur verið ráðinn bankastjóri Arion banka frá 1. júní næstkomandi. Tekjur af notkun greiðslukorta í verslunum eða á netinu eru uppi- staðan í tekjum Valitors eins og annarra greiðslukortafyrirtækja. Samkvæmt ársreikningi ársins 2009 námu þjónustutekjur félags- ins 7,6 milljörðum króna og hagn- aðist það um tæpan milljarð króna. Ekki kemur fram í ársreikningi hversu hátt hlutfall tekna Valitors á rætur að rekja til útlanda. DV hef- ur heimildir fyrir því að heildar- velta Valitor, hérlendis sem erlend- is, sé um 350 milljarðar króna. Það merkir að þóknun fyrir færslur og kortagreiðslumiðlun er að jafnaði 2,2 prósent. Enn tekjulind Valitor Samkvæmt upplýsingum, sem DV aflaði síðla árs 2007, námu tekjur Valitor af viðskiptum á netinu með klám nokkur hundruð milljónum króna. Fullyrt var á þeim tíma að drjúgur hluti tekna Valitor erlendis væri vegna viðskipta netfyrirtækja sem bjóða klám á netinu. DV hefur heimildir fyrir því að Valitor hafi enn umtalsverðar tekj- ur vegna greiðslumiðlunar með klám á netinu. Heimildarmaður DV, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að tekjurnar séu nú um hálft prósent af veltu. Ekki er þar með sagt að tekjurnar, sem ræt- ur eiga í áðurgreindum viðskipt- um, séu minni í krónum talið því heildarvelta félagsins hefur aukist frá árinu 2007. Fullyrt er að vel sé fylgst með viðskiptum og viðskiptavinum enda setji til dæmis Visa Inter- national strangar reglur vegna svo- kallaðrar orðsporsáhættu. Kæra felld niður Þó svo að Femínistafélag Íslands hafi kært forstjóra og stjórn Valitor í desember 2007 og fjallað hafi ver- ið um málið í fjölmiðlum á þeim tíma er ekki að sjá sem forstjóri eða stjórn félagsins hafi kerfisbundið reynt að losa sig við greiðslumiðl- un eða færsluhirðingu sem tengist klámi. Í kæru Femínistafélagsins var vísað til fréttar DV frá 2. október 2007. Í þeirri frétt staðfesti Hösk- uldur, forstjóri Valitor og verðandi bankastjóri Arion banka, að hluti veltunnar tengdist söluaðilum sem miðluðu klámefni inn á netið. „Ég neita því ekki að ákveðin velta hjá okkur tengist þessum viðskipt- um en þetta er ekki fókusatriði hjá okkur. Ég held að það sé í einhverj- um mjög litlum mæli og nái ekki einu prósenti af veltu okkar. Í sjálfu sér er erfitt að fylgjast með þessum viðskiptum og við höfum ekki tök á því að vita nákvæmlega hvað er verið að versla með kortum á öll- um tímum,“ sagði Höskuldur. Í kæru Femínistafélags Íslands á hendur forstjóra og stjórn Valitor í árslok 2007 sagði meðal annars: „Greiðsluþátturinn er lykillinn að dreifingu klámefnis á Netinu og því á Valitor með athæfi sínu hludeild í broti gegn 210. grein hegningar- laga með því að sjá um færsluhirð- ingu fyrir kaupmenn í klámiðnaði.“ Félagið taldi að Valitor liðsinnti kaupendum og seljendum kláms í verki með því að annast innheimtu og ættu ábyrgðarmenn fyrirtækis- ins því að sæta sömu refsingu og framleiðendur og sölumenn slíks efnis. Einnig var bent á að færslu- hirðum á borð við Valitor bæri að fylgjast nákvæmlega með öllum viðskiptum sem færu í gegnum kerfi þeirra. Hversu langt á að ganga? „Það er alltaf spurning hversu langt er hægt að ætlast til að gengið sé í þessum efnum. Eiga menn að setjast í dómarasæti og segja fólki hvernig það notar greiðslukortin sín hvort heldur er í verslunum eða á netinu?“ segir einn heimildar- manna DV. Valitor skiptir við þús- undir kaupmanna og milliliði víða um heim, en um 20 manns ann- ast erlend viðskipti Valitor. Eftir því sem næst verður komist skipt- ir félagið við bandarískt fyrirtæki sem fylgist með því að allt fari löglega fram og getur það skoð- að viðskiptavinina allnákvæm- lega. Vakni grunsemdir um að einhverjar færslur á vegum bók- sala á netinu tengist klámi hefur kortafyrirtæki, sem hann skiptir við, möguleika til þess að skoða viðskiptin og gera vart við ólögleg viðskipti. Valitor skiptir einnig við sjálf- stæð netsölufyrirtæki. Eitt þeirra er í eigu Jónasar Reynisson- ar, fyrrverandi sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Jónas er búsettur erlendis og rekur eMerch antpay Limited. Slík fyr- irtæki safna framleiðendum eða kaupmönnum á bak við sig sem Valitor verður þá að kanna sjálft. Umsækjendur vandlega skoðaðir Mjög ítarlega var farið yfir þá 40 umsækjendur sem sóttu um stöðu bankastjóra Arion banka. Meðal annars var farið yfir fjárhag og hagsmunatengsl umsækjend- anna áður en stjórn bankans réð Höskuld Ólafsson. Lausleg eftirgrennslan DV bendir ekki til þess að tekjur Val- itors af klámviðskiptum á netinu hafi verið ræddar sem eitthvert álitamál varðandi verðleika Hös- kuldar. Raunar bendir flest til þess að þetta mál hafi ekki verið rætt í stjórn Arion banka í tíð núverandi stjórnar bankans. Valitor er í meirihlutaeign Ar- ion banka og stjórnarformað- ur er Björk Þórarinsdóttir, fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka. Björk tók við stjórn- arformennsku í Valitor í janúar síðastliðnum. Eins og áður segir er full- yrt innan Valitor að eftirlit með mögulegum klámviðskiptum á netinu sé mjög strangt. Valitor heyrir auk þess undir eftirlit Fjár- málaeftirlitsins. DV hefur heim- ildir fyrir því að kvartanir eða kærur hafi ekki borist FME vegna tekna Valitor af sölu kláms á net- inu. Greiðslukortafyrirtækið Valitor hefur enn umtalsverðar tekjur af færslum sem tengjast klámi á netinu. Félagið virðist ekki hafa endurskoðað viðskiptin þrátt fyrir kæru Femínistafélags Íslands. Valitor segist engin afskipti hafa af því hvernig fólk noti greiðslukort sín á netinu en gæti að því að lögum sé fylgt. VALITOR ENN MEÐ TEKJUR AF KLÁMI Gráa svæðið Viðskipti með klám á netinu eru umfangsmikil en áhættusamt getur verið fyrir orðspor greiðslukortafyrirtækja að gera slík viðskipti að mikilvægri tekjulind. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Vegna umfjöllunar DV um aðkomu Valitor að greiðslumiðlun í tengslum við verslun með klámefni á netinu. „1. Hér er verið að vekja gamalt mál sem kært var til lögreglu af hálfu Öryggisnefndar Femínistafélagsins í lok árs 2007. Lögregla sá ekki ástæðu til að rannsaka málið frekar og vísaði kærunni frá skömmu síðar. Sú ákvörðun var staðfest af hálfu ríkissaksóknara í febrúar 2008. 2. Valitor er aðili að kortasamsteypum VISA EU og MASTERCARD Inc. og fylgir öllum þeim ströngu reglum og fyrirmælum sem þessir aðilar setja varðandi starfsemi sinna aðildarfélaga, auk þess sem kortasamsteypurnar sinna sjálfar öflugu eftirliti. Jafnframt fylgir Valitor öllum lögum og reglum sem um starfsemi félagsins gilda, hér á landi sem erlendis. 3. Valitor veitir þúsundum kaupmanna og annarra söluaðila greiðslumiðlun sem stunda viðskipti á netinu. Þessi viðskipti eiga sér meðal annars stað í gegnum erlenda milliliði sem tengja söluaðilana við fyrirtæki í færslumiðlun og útgáfustarfsemi á borð við Valitor. Hlutfallsleg velta þeirra söluaðila sem stunda viðskipti með efni sem flokka má undir erótík eða klám er brot úr prósenti af kortaveltu Valitors, hvort sem litið er til færslumiðlunar erlendis eða hér á landi. Yfirgnæfandi hluti viðskipta á netinu snýst um sölu á vörum og þjónustu, til dæmis á fatnaði, raftækjum, geisladiskum, tölvuleikjum og bókum sem almenningur þekkir vel af viðskiptum sínum við aðila á borð við Amazon og Ebay. 4. Valitor hefur engin afskipti af því hvernig korthafar nota greiðslukort sín á netinu önnur en þau að gæta þess að slík viðskipti séu í samræmi við lög og reglur, ásamt því að fylgja fyrirmælum kortasamsteypanna í hvívetna.“ Athugasemd frá Valitor Raunar bend-ir flest til þess að þetta mál hafi ekki verið rætt í stjórn Arion banka í tíð núverandi stjórnar bankans. Viðskipti á gráu svæði? Valitor hefur enn umtals- verðar tekjur af færslum sem tengjast klámi á net- inu frá því Femínistafélagið kærði Höskuld Ólafsson og alla stjórn félagsins í árslok 2007. Kæran var felld niður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.