Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2010, Blaðsíða 25
„Icelandair, þar er betri þjónusta.“
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
49 ÁRA ATVINNULAUS
„Mér væri sama.“
SIGRÚN EIRÍKSDÓTTIR
42 ÁRA KENNARI
„Ég er að fara út á morgun með Iceland
Express og það er vegna verðsins.“
ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR
62 ÁRA TEXTÍLHÖNNUÐUR
„Mér er alveg sama bara á meðan ég
væri að fara til útlanda.“
HULDA AUÐUNSDÓTTIR
36 ÁRA STARFSMAÐUR Í MÖTUNEYTI
„Ég hugsa ég færi bara með Norrænu.“
BRYNJÓLFUR BJÖRNSSON
50 ÁRA SUNDÞJÁLFARI
HVORT VILTU FREKAR FLJÚGA MEÐ ICELANDAIR EÐA ICELAND EXPRESS?
Grínistinn STEINÞÓR HRÓAR
STEINÞÓRSSON, betur þekktur sem
Steindi jr., frumsýnir um helgina fyrsta
þáttinn af Steindinn okkar sem sýndur
er á Stöð 2. Hann segist ekki vera
stressaður fyrir fyrsta þáttinn, frekar
spenntur en Steindi sló í gegn í
Monitor-þáttunum á Skjá einum í haust.
ÆFÐI GAMNISLAG
Í ÆSKU
Það virðist borin von að vinstri-
stjórnin geti unnið aðrar kosningar,
hvort sem þær verða í vor, á næsta
ári eða 2013. Í raun var slíkt alltaf
harla ólíklegt. Oftast er það jú þannig
að sitjandi stjórn missir eitthvað af
vinsældum sínum þegar hún þarf
að taka ábyrgð á öllum vandamálum
þjóðfélagsins, og iðulega missir hún
eitthvað af fylgi sínu í næstu kosn-
ingum. Núverandi ríkisstjórn hefur
of lítinn meirihluta til þess að mega
við slíku.
Svo virðist vera að eina leiðin
til þess að stjórnin geti haldið velli
í næstu kosningum sé með því að
ganga til samstarfs við einhvern
þriðja flokk. Rökréttasti samstarfs-
aðilinn væri (Borgara)Hreyfingin, en
að öllum líkindum mun hún þurrk-
ast út í næstu kosningum og verður
því ekki lengur með í spilinu. Ef við
útilokum Sjálfstæðisflokkinn er því
aðeins einn flokkur sem kemur til
greina, en það er Framsóknarflokk-
urinn.
Miðað við það ástarsamband
sem nú virðist ríkja á milli formanna
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks virðast litlar líkur á því að
framsóknarmenn kjósi frekar sam-
starf við vinstristjórnina heldur en
Sjálfstæðisflokkinn, því eins og vana-
lega eru allar líkur á því að framsókn-
armenn geti valið á milli þessara
tveggja kosta.
Hin óhjákvæmilega Framsókn
Miðað við stöðuna í dag er stjórn-
arsamstarf án hans eftir kosningar
nánast óhugsandi. Enn er ekki gróið
um heilt með Samfylkingu og Sjálf-
stæðisflokki eftir stjórnarslitin í fyrra,
og samsteypustjórn vinstri-grænna
og sjálfstæðismanna er óhugsandi,
enda myndi hún líklega boða enda-
lok VG. Framsóknarflokkurinn, þó
hann eigi ekki endilega marga stuðn-
ingsmenn, býr að því að vera í miðj-
unni og getur þannig valið sér sam-
starfsaðila sitt hvorum megin við sig.
Því endar hann oftast í stjórn, sama
hvernig fer.
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrver-
andi viðskiptaráðherra, gerir sér
grein fyrir þessu, ekki síður en sjálf-
stæðismenn, þegar hann segir að
sameiginlegt framboð Framsóknar,
VG og Samfylkingar í Hveragerði sé
fyrirboði um það sem koma skuli.
Þeir samfylkingarmenn sem eru
farnir að hugsa um líf eftir næstu
kosningar sjá að þetta er eini kostur-
inn í stöðunni.
Það er ástæða til að áætla að
framsóknarmenn muni hugsa sinn
gang rækilega. Þeir sem muna nokk-
ur ár aftur í tímann rekur líklega
minni til þess að framsóknarmenn
komu illa út úr síðasta stjórnarsam-
starfi við Sjálfstæðisflokkinn þegar
fram í sótti. Fylgi hans dvínaði, og
að lokum var honum kastað út þegar
betri kostur bauðst.
Sigmundur selur sig dýrt
Sigmundur Davíð mun að öllum
líkindum selja sig dýrt. Sjálfstæðis-
menn geta í besta falli boðið hon-
um að vera utanríkisráðherra, nema
að hann og Bjarni fari í stólaleik eins
og Davíð og Halldór gerðu. Vinstri-
stjórnin gæti hins vegar boðið hon-
um forsætisráðherraembættið sjálft.
Það er jú fordæmi fyrir þessu. Síðasta
vinstristjórn var leidd af Steingrími
Hermannssyni framsóknarmanni,
þó ekki væri hann endilega í stærsta
flokknum.
Ólíklegt er að Jóhanna sækist eftir
embættinu aftur. Steingrímur J. Sig-
fússon mun eins og vanalega standa
til hliðar ef hann telur það þjóna
þjóðarhag, og þó að Össur sé metn-
aðarfullur vill hann líklega frekar
halda áfram að vera ráðherra heldur
en að lenda aftur í stjórnarandstöðu.
Ef til vill er það líklegast að næsta
ríkisstjórn verði skipuð Sjálfstæðis-
flokki og Framsóknarflokki, Bjarna
og Sigmndi, sem munu halda áfram
þar sem frá var horfið frá Halldóri og
Davíð. Hinn kosturinn er hugsan-
lega Sigmundur Davíð sem forsætis-
ráðherra. Hvernig sem fer virðist Sig-
mundur Davíð vera maður sem við
verðum að læra að lifa með.
Sigmundur Davíð sem forsætisráðherra
UMRÆÐA 30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 25
MYNDIN
Hver er maðurinn? „Steinþór Hróar
Steinþórsson.“
Hvar ertu uppalinn? „Ég er alinn upp í
Mosfellsbæ.“
Hefurðu æft íþróttir? „Já, fótbolta og
gamnislag. Ég var alveg rosalega góður
í fótbolta.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á
Íslandi? „Það skiptir mig eiginlega
engu máli bara. Ef ég ætti að flytjast
innanlands myndi ég vilja flytja til
Seyðisfjarðar. Mér hefur alltaf þótt það
heillandi staður.“
Hvernig slakarðu á? „Ég leggst.“
Hver er þín fyrirmynd í gríninu?
„Held mikið upp á Lonely Island-gaurana
úti en á Íslandi er Þorsteinn Guðmunds-
son allra manna fyndnastur.“
Eru allir þættirnir tilbúnir? „Nei, við
eigum eftir að taka upp eitthvað. Við
erum að klippa þetta jafnóðum. Þetta er
alveg að koma en mest allt er búið.“
Ertu sáttur með útkomuna á
þáttunum? „Já, mjög. Við fengum að
framkvæma mestallt sem við vildum
gera.“
Ertu orðinn stressaður fyrir frum-
sýninguna? „Nei, alls ekki, ég er miklu
meira bara spenntur.“
Eru þættirnir fyrir alla? „Já, það ættu
allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Verður yfirmönnum Skjás eins
boðið í frumsýningarpartíið? „Já, já.
Þeir mega alveg koma. Það eru engin
illindi á milli okkar. Það er frábært fólk
sem vinnur á Skjá einum og því er svo
sannarlega boðið.
MAÐUR DAGSINS
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
KJALLARI
VALUR GUNNARSSON
rithöfundur skrifar
„Sigmundur Davíð
mun að öllum
líkindum selja
sig dýrt.“
Jómfrúarferð í blíðviðri Hvalaskoðunarbáturinn Rósin lagði í sína fyrstu ferð með farþega út frá Reykjavíkurhöfn í gær, í blíðskaparverði. Skipið er í eigu Puffin Express en
fyrirtækið sérhæfir sig í lunda- og hvalaskoðun auk þess sem það fer með hópa í sjóstangveiði. Georg Rúnar Halldórsson rennir hér fyrir þorsk í sannkölluðu blíðvirði. Róbert
Reynisson, ljósmyndari DV, slóst með í för og tók þessa mynd.