Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2010, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2010, Blaðsíða 50
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is 50 FÖSTUDAGUR 30. apríl 2010 MASSIMO TAIBI Ítalinn Massimo Taibi var einn af þeim fjölmörgu markvörðum sem fengu að spreyta sig í marki Manchester United eftir brotthvarf Peters Schmeichel. Í fyrsta leik sínum fór hann á kostum gegn Liverpool og héldu menn að þarna væri framtíðarmarkvörðurinn fundinn. Svo var nú aldeilis ekki. Taibi gat ekk- ert í næstu leikjum og eftir að hann fékk boltann í gegnum klofið af 30 metra færi frá Matthew Le Tissier spilaði hann ekki leik meira fyrir United. Hann fór frá United til Reggina og þaðan til Atalanta þar sem hann spilaði í fjögur ár. Hann var síðan árin 2005-2007 hjá Torino áður en hann samdi við B-deildarliðið Ascoli þar sem hann er fastamaður í byrjunarliði og ber treyju númer 1 með stolti. HVAR ER HANN Í DAG? UM HELGINA Það er ekki að ástæðulausu að stuðningsmenn Manchester Unit- ed flykkjast nú í hópa á samskipta- síðunni Facebook undir yfirskrift- inni: „Ég held með Liverpool í fyrsta skiptið á ævinni á sunnudaginn.“ Á sunnudaginn er nefnilega næstsíð- asti og stærsti dagur ensku úrvals- deildarinnar til þessa. Chelsea, sem er á toppi deildarinnar með 80 stig, heimsækir Liverpool og seinna um daginn leikur Manchester United gegn Sunderland á útivelli. Staðan er einfaldlega þannig: Vinni Chel- sea og United tapi er Chelsea meist- ari. Vinni Chelsea verður það meist- ari með sigri í lokaleik sínum gegn Wigan heima. Geri Chelsea jafntefli eða tapi og United vinnur eru Eng- landsmeistararnir komnir með for- ystu í deildinni fyrir lokaumferðina og geta orðið meistarar fjórða árið í röð með sigri á Stoke heima í loka- umferðinni. Sannfærandi Chelsea-menn Stuðningsmenn Manchester Un- ited vonuðust til að Aston Villa, lið sem sækist eftir síðasta Meist- aradeildarsætinu, myndi gera sér greiða um síðastliðna helgi þegar það heimsótti Chelsea á Brúna. Svo varð nú aldeilis ekki. Chelsea vann afar sannfærandi sigur, 7-1, og sendi þar skýr skilaboð um að það ætlaði sér meistaratitilinn í ár. Liverpool átti frábæran leik gegn Burnley um helgina og á enn möguleika á Meist- aradeildarsæti þannig það mun væntanlega veita Chelsea harða samkeppni. „Þetta verður erfiður leikur, það er alveg víst. En ef þú ætlar að verða meistari þarf að vinna svona leiki, það gera sannir sigurvegarar,“ seg- ir Joe Cole sem hefur unnið titilinn tvisvar með Chelsea. „Leikurinn gegn Aston Villa var framar vonum. Við spiluðum alveg frábærlega þar og sannfærðum sjálfa okkur um að við erum bestir. Þess vegna erum við á toppnum og ætlum að vera þar eftir síðustu umferðina. Það hefst allt með sigri á Liverpool um helg- ina,“ segir hann. Vond staða United Með tapi fyrir Chelsea á heimavelli fyrir nokkrum vikum komu Eng- landsmeistarar Manchester Un- ited í þá stöðu að þurfa að treysta á önnur lið eftir að missa topp- sætið. United þarf því að treysta á erkifjendurna í Liverpool að gera þeim greiða um helgina en helst vilja þessi lið ekki gera hvort öðru neitt gott. Hjálpi Liverpool fjend- um sínum frá Manchester og svo fari að þeir verði meistarar eiga þeir metið með nítján Englands- meistaratitla en í dag eru liðin jöfn með átján. „Þetta er engin draumastaða,“ segir Michael Carrick, miðjumað- ur Manchester United. „Við get- um sjálfum okkur um kennt fyrir að tapa leiknum gegn Chelsea en Liverpool er nú gott lið og á heima- leik. Það er líka enn í möguleika um meistaradeildarsæti þannig það ætti nú að geta veitt Chelsea mikla mótspyrnu,“ segir hann en Liver- pool verður án Fernando Torres í leiknum og jafnvel varaframherj- ans, David Ngog. Stendur Tottenham í fæturna? Baráttan um síðasta meistaradeild- arsætið, það fjórða í deildinni, er harðari en nokkru sinni fyrr. Fjögur lið berjast um sætið en þar stendur Tottenham best að vígi. Það er sem stendur í fjórða sætinu með 64 stig og á eftir að leika þrjá leiki, Aston Villa hefur jafnmörg stig en á aðeins eftir að spila tvo leiki, Manchester City á þrjá leiki eftir í sjötta sætinu með 63 stig, Liverpool er með 62 stig í sjöunda sætinu og á eftir að leika tvo leiki. Tottenham mætir Bolton um helgina á meðan Manchester City og Aston Villa kljást í gífurlega mik- ilvægum leik. Tapliðið þar er lík- lega úr leik um sætið og geri þau jafntefli gætu þau slegið sig bæði úr leik og afhent Tottenham þetta mikilvæga sæti sem veitir mikla fjármuni. „Við létum ekki kné fylgja kviði gegn United um síðustu helgi þeg- ar við jöfnuðum leikinn. Í staðinn bökkuðum við og fengum á okk- ur tvö mörk. Sem betur fer héldum við fjórða sætinu þannig að þetta er ennþá í okkar höndum. Þannig vilj- um við líka hafa það. Ef við klárum Bolton um helgina erum við komn- ir í mjög góð mál, það kemur líka ekki neitt annað til greina,“ segir Tom Huddlestone, leikmaður Tot- tenham. Ljóst er hvaða lið falla úr ensku úrvalsdeildinni en spennan um Englandsmeistaratitilinn og fjórða sætið er í algleymingi. Chelsea gæti verið orðið enskur meistari á sunnudaginn fari allt á besta veg hjá þeim bláu. Í KJÖRSTÖÐU Eiður Smári og félagar verða að vinna Bolton um helgina. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Ég held með Liverpool í fyrsta skiptið á ævinni á sunnudaginn. OFURSUNNUDAGUR Á ENGLANDI HVAÐ GERIST? Verður Chelsea meistari en kemst United í ökumannssætið eftir helgina?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.